Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1987, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1987, Blaðsíða 15
r LAUGARDAGUR 7. MARS 1987. ■r i 57 Bflar Bylting í sovéskum bílaiðnaði Nýr Moskvich, nýr smábfll og endurbætur á Lada Samara ásamt nýjum tæknibún- aði í bflaverksmiðjunum eiga að verða iyftistöng fyrir framleiðsluna Nýr Moskvich, 2141, litur dagsins Ijós síðar á þessu ári. Þetta verður annar nýi billinn frá Sovét á stuttum tíma. Síðar mun hann koma í fjögurra dyra útgáfu og sem stationbíll. Nýjar vélar í bílinn eru einnig i hönnun. fyrir heimamarkað. Volga er einnig með nýjar gerðir í hönnun, en fyrst um sinn verður haldið áfram að smíða bíla, byggða á sömu grunnhugmynd- um og við þekkjum, sem gerir útflutn- ing illmögulegan. Á næstu fimm ára áætlun kemur samt örugglega ný Volga. Nýttlíffrá Sovét Nýjar gerðir, nútímalegir fram- leiðsluhættir og endurbætur lofa góðu. Árangurinn kemur í ljós á næsta hálfa ári. Bílamálaráðuneytið í Sovét hefur sett hverri verksmiðju strangar skorð- ur. Lada á til dæmis að framleiða bíla í stærðarflokknum 1100 til 1600 rúmsm. Moskvich frá 1600 til 2000 rúmsm. Zaporozhets allt að 1000 rúmsm. OKÁ á að smíða smábíla, en Volgan verður áfram lúxusbíllinn fyrir almenning. Umsjón Jóhannes Reykdal Nýjar gerðir af Samara Með vorinu kemur Samara með nýja innréttingu og vélin mun einnig fá endurbætur. Innan fárra ára munum við einnig fá að sjá nýjan framenda á Samara. Þar fyrir utan kemur fimm dyra útgáfa af Samara og tvær nýjar vélarstærðir: 1100 og 1500. Báðar munu verða byggðar á 1300-vélinni. Samara mun smám saman taka stærri hlut af framleiðslunni. Árið 1986 voru smíðaðir 70 þúsund Samara bíl- ar, þar af 45 þúsund til útflutnings. Framleiðslan í ár mun fara upp í 200.000 bíla. Á næstu 10 árum mun afturhjóladrifna Ladan, sem byggir á línu frá Fiat, hverfa. Hinar gerðimar af Lödunni munu fá sína andlitslyftingu í ár. Ný innrétt- ing mun koma i 2107-bílnum og Lada-Sport (2121 Niva) mun verða endurbætt á ýmsan hátt. Nýr Lada- Sport er á teikniborðinu og verður nault, aðallega hvað varðaði prófun í vindgöngum. Þessi nýi bíll er fimm dyra „kombi“. Dálítið hátt verður inn í bílinn að aft- an en á móti kemur að farangursrýmið allt verður flatt þegar bak aftursætis- ins er lagt fram. Að sögn blaðamanns BIL þá verða sætin í bílnum betri en í Samara og minna frekar á sæti í frönsku bílunum. Hjólabúnaðurinn að framan er byggður á gormum og burðarörmum. Jaínvægisstöng sér um að halda þessu á sínum stað. Að aftan er snúningsöx- ull með höggdeyfum og gormum. Hemlar eru með diskum að framan og skálum að aftan. Nývél varofdýr Ef allt hefði farið fram sem skyldi þá hefði þessi nýi Moskvich fengið nýja vél, 1800 rúmsm. En ný vél varð of dýr. Því er það 1600-vélin úr Löd- unni sem er undir vélarhlífinni og það Ein af frumgerðunum af nýja Moskvich. Þessi er frá árunum eftir 1970. Samlik- ingin við Saab er greinileg. tilbúinn til framleiðslu í upphafi næstu fimm ára áætlunar. Meiri búnaöur í bílana Með vorinu verða vélmenni tekin í notkun við framleiðsluna á Lada Sam- ara. Samtímis verður búnaður bílanna aukinn, betri áklæði og meiri gæði á plasthlutunum. „Metallic" lakk er einnig á áætluninni. Annar nýr bíll frá Sovét mun líta dagsins ljós á árinu. Þetta er hinn nýi Moskvich 2141. 2141 er stórt stökk frá gamla Mosk- vitch. Hann er með innréttingu sem gæti komið beint frá hvaða evrópskum millistærðarbíl sem er. Nýr Moskvich með haustinu Þessi nýi bíll er væntanlegur með haustinu á markað. Yfirbyggingin gæti verið „stolin" beint frá Simca 1307/Talbot 1510. Hönnunin er gerð hjá Moskvich-verksmiðjunum en þeir fengu þó hjálp við hönnunina frá Re- kemur á óvart að hún er höíð langstæð í bílnum, en ekki þverstæð eins og tískan er í dag. Þessi gamla Lada-vél verður í bílnum næstu árin en í milli- tíðinni er unnið af miklum krafti að hönnun nýrrar vélar hjá Moskvich. 2141-bíllinn kemur fljótlega sem fjögurra dyra „sedan“ og hálfu ári síð- ar mun koma station-gerð. Vélarúr- valið verður einnig aukið, meðal þess kemur dísilvél og í bensín-línunni verða án efa 1600,1800 og 2000 rúmsm. vélar. Nýr smábíll frá Zaporozhets Þriðja verksmiðjan sem sendir frá sér nýjan bíl er Zaporozhets. I dag smíða þeir kópíur af gamla góða NSU með loftkældum V4 mótor. Frá þeim mun koma smábíll með vatnskældum 1000 rúmsentímetra mótor. Þessi nýi bíll mun koma fram í dagsljósið á ár- inu 1987. Fjórði aðilinn, sem sendir frá sér nýjan bíl, er OKA. Þetta er smábíll með loftkældri vél sem reiknaður er OKA er smábill með loftkældri vél sem ætlaður er fyrir heimamaricað. Nýr Daihatsu Charade Daihatsu Charade er nú tíu ára gamall og í áranna rás hafa verið gerðar á bílnum ýmsar breytingar. Á bílasýningunni í Genf þessa dagana kynna verksmiðjumar alveg nýja gerð þessa vinsæla smábíls. Bíllinn var „frumsýndur” á bíla- sýningunni í Tokyo í október en núna gefst fyrsta tækifærið til að berja hann augum í Evrópu á bíla- sýningunni í Genf. Eins og fyrirrennaramir er bíllinn Nýr Yugo Zastava-verksmiðjurnar í Júgó- slavíu undirbúa mikla ffamsókn á þessu og næsta ári. Ný gerð af Yugo er á leiðinni eftir því sem erlend bíla- blöð skrifa. Hann er hannaður hjá ItalDesign undir stjóm meistarans Giugiaro og búist er við að hann lík- ist hinum nýja Fiat Ritmo sem kemur á markað á þessu ári. Hvað stærð varðar er þessi nýi Yugo líkur VW Golf og Ritmo. Hann hefúr ffamleiðslunafnið 103. Þar á eftir er von á 104, sem er sedangerð, en það verður fyrst árið 1989 eða 1990. Zastava á miklu gengi að fagna í ffamleiddur í þriggja og fimm dvra útgáfum. Nú er yfirbyggingin 17 mm lengri og 50 mm breiðari. Ennfremur hefúr loftmótsstaðan verið minnkuð þannig að cw-gildið er nú 0,32. Tæknilega séð er þessi nýi Charade lítið breyttur. Hann er enn með þriggja strokka vél, bæði bensín og dísil. Reiknað er með að bíllinn komi almennt á markað í Evrópu í maí. Hvert verðið verður, miðað við fyrirrennarana, er ekki vitað. Yugo 45 mun fá tvær andlitslyftingar i ár og ný gerð er á leiðinni. Bandaríkjunum með núverandi gerð fær andlitslyftingu með vorinu Yugo 45Á (A fyrir „America"). Sú og jafnvel aftur síðar á árinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.