Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1987, Side 16
58
LAUGARDAGUR 7. MARS 1987.
Sérstæö sakamál
Gemma Tullett leit reiðilega upp frá kvöldmatnum þegar barið var
á eldhúshurðina. Venjulega komu gestir að aðaldyrunum. Sá sem
var þarna á ferð var hins vegar enginn venjulegur gestur.
Fyrir utan stóð kona sem frú Tullett hafði aldrei séð fyrr. Hún
velti því fyrir sér hvað hún vildi. Maður frú Tullett, Malcolm, var
í viðskiptaferð svo það voru litlar líkur til þess að konan væri að
heimsækja hann.
Gemma og Malcolm Tullett á meðan allt lék í lyndi.
Dauðinn við dymar
David Parnell.
„Ertþú frú Tullett?“
spurði ókunna konan. Gemma Tul-
lett svaraði því játandi og á sama
augnabliki tók komukonan upp
skammbyssu og skaut fjórum skotum
á frú Tullett sem átti sér einskis ills
von. Hún féll deyjandi á eldhúsgólf-
ið. Hún lést svo fimm mínútum síðar.
Þá var ókunna konan löngu horfm.
Atburður þessi gerðist 5. ágúst í
fyrra í Eastleigh í Hampshire í Eng-
landi. Lögregla kom þegar á vett-
vang og í fyrstu leit út fyrir að um
flókið mál kynni að vera að ræða.
Frú Tullett var skotinn um sjöleyt-
ið. Tuttugu mínútum síðar hringdi
kona, sem vildi ekki láta nafns síns
getið, til lögreglustöðvarinnar í
Eastleigh. Kvaðst hún hafa heyrt
skothvelli og séð mann hlaupa frá
húsinu við Millbank Road 84 en þar
var heimili Tulletthjónanna. Kvaðst
konan hafa séð manninn hlaupa inn
í garð við húsið við Barrow Lane 43
eða 45.
Lögreglan á staðinn
Tíu mínútum eftir að ónafngreinda
konan hringdi til lögreglunnar var
hún komin að húsinu við Millbank
Road 43 og augnabliki síðar að hús-
inu við hliðina. íbúar fyrrnefnda
hússins reyndust vera fullorðið fólk
sem komið var á eftirlaun. Tóku þau
lögreglunni vel.
Maðurinn i húsinu við hliðina tók
henni hins vegar ekki eins vel. Þar
bjó David Pamell en hann var 37 ára
og slökkviliðsmaður. Hann skellti
hurðinni á lögregluna og var það út
af fyrir sig grunsamlegt. Hálftíma
síðar neyddist hann þó til að opna
því þá var lögreglan komin með úr-
manninn Parnell. Um svipað leyti
kom Malcolm Tullett heim úr ferða-
lagi sínu en lögreglan var þá einmitt
að reyna að hafa upp á honum. Hann
varð mjög sorgmæddur er hann
heyrði hvernig komið var en gat
enga skýringu gefið sem komið gæti
lögreglunni á sporið.
Lögreglan þóttist hins vegar næst-
um viss um að David Parnell væri
morðinginn. Kom það vel heim og
saman við það sem ónafngreinda
konan hafði sagt í símtali sínu við
lögregluna. Það kæmi svo í ljós hvort
byssan, sem fannst í garði hans, væri
morðvopnið. Það vakti þó nokkra
athygli að engar púðurleifar fundust
á höndum hans. Á því gat þó verið
sú skýring að hann hefði verið með
hanska.
Þá leiddi frumrannsókn í ljós að
hann gat hafa haft ástæðu til morðs-
ins.
Nýskilinn
Hálfu öðru ári áður en þetta gerð-
ist hafði kona Davids farið fram á
skilnað frá honum vegna þess að
hann átti vingott við aðra konu. Var
þar um að ræða Gemmu Tullett.
Neitaði David ekki ásökunum er
kona hans bar þær á hann og var
henni veittur skilnaðurinn enda
neitaði hann því ekki fyrir rétti að
hann hefði átt vingott við Gemmu.
Skömmu síðar slitnaði svo upp úr
sambandi Davids og Gemmu og gerð-
ist hann þá bitur að sögn.
Malcolm Tullett viðurkenndi við
yfirheyrslur að um hefði verið að
ræða ástarsamband milli konu hans
og Davids. Kvaðst Malcolm hafa
orðið miður sín vegna þessa og jafn-
framt skammast sín fyrir að svo
skyldi vera komið. Hefði hann rætt
málið við konu sína og hún þá lofað
að hitta David Parnell aldrei aftur.
Hefði hún svo sagt skilið við hann
að fullu og öllu fjórum mánuðum
eftir skilnað hans og Janet.
Ástæðan sem kom til greina
Lögreglunni þótti, eins og fyrr seg-
ir, að David hefði vegna þessa haft
ástæðu til að myrða Gemmu Tullett.
Hennar vegna hefði hann fórnað
hjónabandi sínu en svo hefði hann
staðið uppi einn. I biturleika sínum
hefði hann svo ákveðið að stytta
henni aldur.
Var málið nú í rauninni talið upp-
lýst þótt David Parnell neitaði því
ákaft að bera nokkra sök á dauða
Gemmu Tullett. Mark var þó ekki
tekið á yfirlýsingum hans því hann
var aðeins talinn vera að reyna að
koma sér undan þeirri ábyrgð sem,
hann bæri. Á því leikur líka lítill
vafi að hann hefði hlotið dóm fyrir
morðið hefði honum ekki borist
óvænt aðstoð.
Malcolm Tullett
var sá sem kom honum til hjálpar.
Viku eftir morðið hringdi Lavína
nokkur Elliott til hans. Þau Malcolm
höfðu þá þekkst lengi og hann átt
við hana ástarsamband í mörg ár.
Mun Gemmma Tullett ekkert hafa
um það vitað.
Nokkru áður en skilnaðarmál
Davids Parnell og Janet konu hans
kom fyrir rétt fékk Malcolm sam-
viskubit vegna framhjáhalds síns og
sleit sambandinu við Lavínu þótt
hún væri mjög á móti því.
skurð dómara þess efnis að henni
væri heimilt að framkvæma hús-
rannsókn. Ekkert fannst þó i húsinu
sem grunsamlegt gat talist. Undir
runna í garðinum fannst þó skamm-
byssa sem vafin hafði verið inn í
handklæði og var greinilegt að ætl-
unin hafði verið að fela hana þarna.
Parnell handtekinn
Byssufundurinn þótti ærin ástæða
til þess að handtaka slökkviliðs-