Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1987, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1987, Síða 17
LAUGARDAGUR 7. MARS 1987. 59 Sérstæð sakamál Það hafði ekki staðið í blöðunum. Hann komst því að þeirri niðurstöðu að Lavína Elliott hlyti að vera morð- inginn. „Gerðir þú það?“ sagði hann við Lavínu eftir nokkra stund. Þá gaf hún það svar sem hann bjóst við. „Já, ég gerði það.“ Svo bætti hún því við að hún hefði gert þetta þeirra vegna. Svo sagði hún honum frá þvi hvernig hún hefði komið að húsinu, gengið að eldhúsdyrunum, bankað og spurt konuna, sem kom til dyra, hvort hún væri Gemma Tullett. Jafn- framt greindi hún frá því hvernig hún hefði skotið Gemmu. A eftir sagðist hún svo hafa hringt til lög- reglunnar til þess að reyna að varpa gruninum á David Parnell. Það hefði svo verið hún sem hefði komið byss- unni fyrir í garðinum hjá honum. Lavína brosti ánægjulega á meðan hún sagði frá öllu þessu. Samviskuspurningu skaut nú upp hjá Malcolm Tullett. Átti hann að láta David Parnell fá dóm fyrir morð sem hann hafði ekki framið? Eða átti hann að segja lög- reglunni að það hefði verið ástkona hans, Lavína Elliott, sem hefði fram- ið morðið og játað það fyrir sér vegna þess að hún elskaði hann. En þetta var ekki eini efinn sem sótti að Mal- colm þær stundir sem hann íhugaði málið. Gat hann treyst Lavinu fram- vegis? Gat hann ekki búist við því að hún reyndi að leysa einhvern nýjan og óvæntan vanda sem upp kynni að koma á milli þeirra á sama hátt. Gerði upphug sinn Malcolm Tullett var ekki lengi að gera upp hug sonn og þótt honum þætti erindið ekki létt og hann yrði að játa á sig margra ára framhjáhald ákvað hann að láta samviskuna ráða. Lögreglan trúði honum strax. Það varð líka til að styrkja framburð Malcolms að rannsókn á húsi hans hafði leitt i ljós fingraför á eldhús- hurðinni og hafði ekki tekist að varpa ljósi á af hverjum þau voru. Reyndar var ekki aðeins um fingra- för að ræða heldur einnig far eftir alla höndina. Það tók ekki langan tíma að leiða málið til lykta. Lavína Elliott hafði aðeins komið einu sinni í hús Tullett- hjónanna og því gátu fingraför hennar ekki verið frá fyrri heimsókn. Er á hana var gengið játaði hún og eftir það leið aðeins tæpur sólar- hringur þar til David Parnell var látinn laus. Lavína Elliott var hins vegar lögð inn á geðdeild þar sem andlegt ástand hennar og sakhæfi er til at- hugunar. Ýmislegt þykir benda til að hún sé það andlega sjúk að hún geti ekki hlotið dóm. Þegar fréttist um skilnaðarmál Parnellhjónanna og þátt Gemmu Tullett í því tók Malcolm aftur upp fyrra samband við Lavínu Elliott. Mun hann þá hafa verið kominn á þá skoðun að hjónaband hans og Gemmu gæti aldrei orðið jafn gott og það hafði fyrrum verið. Skilnaður var þó ekki talinn koma til greina og kom þar ýmislegt til en hvað þyngst á metunum mun hafa verið að lögfræðingur tjáði Malcolm að hann myndi þurfa að greiða Gemmu lífeyri og yfirgefa heimili þeirra sem hún héldi. Þótti ljóst að þar eð hún hafði ekkert unnið úti síðan hún gift- ist myndi hún eiga í erfiðleikum með að fá vinnu. Mátti ætla að útgjöldin yrðu um 25.000 krónur á mánuði. Malcolm Tullett vissi að hann hefði ekki ráð á að greiða svo mikið í mánuði hverjum. Hann yrði því að reyna að gera einhvers konar sam- komulag við konu sína og það var hann enn að reyna er hún var myrt. Morðinginn Lavína Elliott hafði viljað tala um framtíðina er hún hringdi til Mal- colms. Hann fór til hennar og hún tók honum opnum örmum. Hún sagði að nú gætu þau farið að búa saman því ekki yrði um neinar greiðslur að ræða til Gemmu og hann væri frjáls maður. Malolm Tullett fannst þetta tal óviðeigndi svo skömmu eftir dauða konu hans. Þá fannst honum einkennilegt að heyra hve ánægð Lavína virtist vera yfir því að nú fengi illvirkinn David Parnell mak- leg málagjöld. Yrði Malcolm að viðurkenna að David hefði unnið til þungs dóms. „En hann hefði ef til vill getað lát- ið hana ljúka við kvöldmatinn áður en ég skaut hana,“ sagði svo Lavína Elliott við elskhuga sinn. Það rann kalt vatn á milli skinns og hörunds á Mal- colm Tullett þegar hann heyrði þessi orð. Hvernig vissi Lavína Elliott að kona hans hafði setið að snæðingi þegar morðinginn kom í heimsókn? Lavína Elliott. Bón- og bílaþvottasföðin, Bíldshöfða 8, sími 681944 Við hiiðina á bifreiðaeftirlitinu Vel þrifinn bill ber eiganda sínum fagurt vitni. Við tjöruhreinsum, þvoum og bónum fólksbíla, jeppa og sendiferðabiia í fullkominni bílaþvottavél og tekur þjónustan aðeins 10 minútur. Óþarft er að panta. Þá tökum við einnig bíla í handbón og alþrif en þé er viss- ara að panta tima. Opið alla daga frá kl. 9-19 Decimin komið aftur!!! Ertu að fitna? Ef svo er verður Ðecimin að koma línunum aftur i rétta horfið. B0 RÐ U M al!?.?em vilium'eins mikið og við geturn Með þvi að fara eftir leið- beiningunum sem fylgja hverju glasi má borða aíl- an hollan og næringarrík- an mat, eins mikið og hver getur í sig látið, og léttast í leiðinni! UPPFINNANDINN: Viðurkenndasti og einn fræg- asti sérfræðingur Dana i offitu- vandamálum, Anders Korsgar- ard læknir, sá sem þróaði Decimin, hefur með visindaleg- um rannsóknum sýnt fram á að með réttri notkun Decimin, sé farið nákvæmlega eftir leið- beiningum hans, léttist fólk með offituvandamál að meðal- tali um 2-4 kg hverja viku fyrstu vikurnar og getur náð varanlegum árangri í megrun. BRUCE LANSKI, bandarískur megrunarsérfræð- ingur, segir: „Það er alveg sama hvaða megrunarforskrift er notuð; ef þeir sem vilja grenna sig fara ekki eftir henni léttast þeir hreinlega ekki..." liTSÖLUSTAÐIR Á STÓR-REYKJAVÍKURSVÆÐINU: Apótek Austurbæjar, Háteigsvegi 1. Árbæjarapótek, Hraunbæ 102 B. Apótek Garðabæjar, Hrismóum 2. Apótek Norðurbæjar, Miðvangi 41. Borgarapótek, Álftamýri 1-5. Háaleitisapótek, Háaleitisbraut 68. Hafnarfjarðarapótek, Strandgötu 35. Heilsuhúsið, Skólavörðustig 3. Heilsumarkaðurinn, Hafnarstræti 11. Laugarnesapótek. Kirkjuteig 21. Lyfjabúð Breiðholts, Arnarbakka 4-6. Lyfjabúðin Iðunn, Laugavegi 40A. Nesapótek, Eiðistorgi 17. ’ nema salt og sætindi Decimin. Reynslan af Decimin hefur margsannað undraverðan árangur til megrunar án þess að fólk þurfi að líða hungur eða önnur óþæg- indi sem eru samfara megrun. Sendum í póstkröfu Pantanir teknar i síma og simsvari utan skrifstofutima allan sólarhringinn. Verð 625 kr. glasið. Simi 91-611659. Útsölustaðir á landsbyggðinni: Akureyri: Akureyrarapótek, Stjörnuapótek. Borgarnes: Borgarnesapótek. Dalvik: Dalvikurapótek. Egilsstaðir: Apótekið. Grindavik: Apótek Grindavikur. isafjörður: Ísafjarðarapótek. Keflavik: Sólbaðstofan Sólcy. Neskaupstaður: Nesapótek. Úlafsfjörður: Apótekið. Siglufjörður: Apótekið. Patreksfjörður: Apótekið. Hveragerði: Ölfusapótek. Decimin- umboðið, Skólabraut 1, sími 91-611659. Simsvari tekur við pöntun- um allan sólarhringinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.