Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1987, Page 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500
krónur. Fyrir besta fréttaskotið i hverri viku greið-
ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritsfjórn - Auglýsingar - Áskrift ~ Dreifing: Sími 27022
ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 1987.
Rottufóturinn sem borinn var fram
sem meðlæti með folaldakjöti. DV-
mynd GVA
Rottufotur
í salati
„Við vorum að borða folaldasnitsel
og með því var íram borið danskt
grænmetissalat sem keypt háfði verið
djúpfiyst í verslun í Reykjavík. Viss-
um við ekki fyrr en rottufótur stóð
upp úr grænmetisskálinni, öllum til
hrellingar. Við misstum matarlyst-
ina,“ sagði Þórólfúr Sigurðsson
nemandi í samtali við DV.
Grænmetissalatið, sem hér um ræð-
ir, var pakkað í Danmörku í nóvember
’85 og hafði geymsluþol í 18 mánuði
við rnínus 18 stig.
„Það er i sjálfu sér ógeðfellt að fá
rottufót í matinn en hitt þótti okkur
ekki síður forvitnilegt hvar afgangur-
inn af dýrinu væri niðurkominn,"
sagði Þórólfur. -EIR
Lögreglan
leítaði manns
Jón G. Hauksscm, DV, Akureyri;
Lögreglan á Akureyri var í nótt beð-
in um að leita að manni sem hvarf úr
húsi sem hann hafði verið gestkom-
andi í. Óttast var um manninn þar sem
hann er með sjúkdóm, sem getur verið
1 varasamur.
Þegar betur var að gáð hafði maður-
inn farið beinustu leið heim til sín og
lá þar steinsofandi í morgun þegar
hann fannst. Maðurinn, sem leitað var
að, var sumsé aldrei týndur.
ISl 2ÓÚ3Ú
LOKI
Ekkert má nú
hjá þessum
grænmetisætum!
Alyktun Kaupmannasamtakanna:
Létt vín selt í
matvöruverslunum
Bjórinn hugsanlega lögleyfður á næsta þingi, segir viðskiptaráðherra
I ályktun. sem gerð var á aðal-
fundi Kaupmannasamtakanna sem
haldinn var um helgina, kemur fram
að leggja beri niður áfengisverslun
ríkisins í smásölu enda séu kaup-
menn færir um að sinna þörfum
markaðarins í þeim efnum.
I samtali við DV sagði Guðjón
Oddsson. nýkjörinn formaður Kaup-
mannasamtakanna, að kaupmenn
leggðu til að létt vín verði selt í
matvöruverslunum. Benti hann á að
innan skamms yrði ný áfengisversl-
un opnuð í Kringlunni, nýja
Hagkaupshúsinu, og því yrði þar
stutt á milli áfengisverslunar og
matvöruverslunar. Sagði Guðjón um
áfengiseinkasölu ríkisíns að éinokun
væri óþolandi á hvaða sviði sem hún
birtist.
Á fundinum var Matthías Bjárna-
son viðskiptaráðherra spurður að
því hvort líkur væru á að bjór yrði
lögleyfður hér á landi á næstunni.
Svaraði Matthías því til að hann
hefði trú á þvi að svo yrði á kom-
andi kjörtímabili og jafiivel á næsta
þingi. Sagði Matthías ennfremur,
varðandi hugmyndir kaupmanna um
að létt vín yrði selt í matvöruversl-
unum, að'þær hugmyndir ættu langt
í land með að komast í gegnum Al-
þingi.
-ój
Með hækkandi sól færist fjör i leiki krakkanna og fátt er skemmtilegra en að ærslast úti. Þessir krakkar gáfu
sér þó tima frá leik til að vera á mynd og ef vel er að gáð má sjá að vettlingar, húfur og þykkar vetrarúlpur
eru farnar að vikja í hlýnandi tíð. DV-mynd GVA
Fengu
stóni
vinningana
Jón G. Haukssan, DV, Akuryri;
„Anna Guðný Júlíusdóttir, 14 ára
stúlka á Akureyri, vann 500.000 krón-
ur í happaþrennu Háskólans um
Verðlagsstofnun:
helgina. Þá vann annar Akureyring-
ur, Baldur Karlsson, stóran vinning í
Getraunum. Hann hafði þrjár raðir
með tólf réttum og fjörutíu raðir með
ellefú réttum. Glæsilega gert.
„Ég var að koma úr fimmbíó á laug-
ardaginn og ákvað að prófa og keypti
miða,“ sagði Anna Guðný Júlíusdóttir
við DV í gær. „Þegar ég byrjaði að
skafa af kom í ljós að ég var með
500.000. I síðasta reitnum hélt ég að
væru 500 krónur, en þegar ég gáði
betur, sá ég að það voru 500.000.“
Anna sagðist næstum hafa verið
búin að skafa af reitnum, sem merktur
er: „Má ekki skafa,“ sem hefði gert
miðann ógildan.
„Ég ætla að leggja þetta fyrir og
kaupa bíl þegar ég verð 17 ára,“ sagði
Anna í gær um það hvað hún ætlaði
að gera við vinninginn.
Hækkunarbeiðni firá olíufélögum
Verðlagsstofnun hefur borist
hækkunarbeiðni frá olíufélögunum
og staðfesti Georg Ólafsson verðlags-
stjóri það í samtali við DV.
Ekki vildi Georg segja til um hvort
þarna væri einungis um beiðni á
hækkun bensínverðs að ræða eða
hvort einnig væri farið fram á hækk-
un gasolíuverðs.
Þessi beiðni olíufélaganna er dag-
sett á föstudag. Verðlagsráð mun
fjalla um beiðni þessa á næstunni,
að sögn Georgs.
-ój
r
í
4
Veðrið á moigun:
Suðaustan-
og sunnanátt
á landinu
Á miðvikudaginn verður suðaust-
an- og sunnanátt á landinu og hlýtt
í veðri. Úrkomubelti þokast austur
yfir landið og verður yfir Austur-
landi síðdegis. Hiti verður á bilinu
4-8 stig.
Vinningshafinn Anna Guöný Júlíus-
dóttir, th., á heimili sinu í gær. Með
henni á myndinni eru systir hennar,
Eva Mjöll Júliusdóttir, og móðirin,
Rannveig Guðmundsdóttir hjúkruna-
rfræðingur. Heimilisfaðirinn, Július
Gestsson læknir, var að ná i kjúklinga
sem áttu að vera i kvöldmatinn hjá
vinningshafanum, þegar myndin var
fekin. DV-mynd JGH
r