Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1987, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 25; APRÍL 1987.
PV Fréttir
Fimm eru með 60%
af útflutningnum
Einungis fimm aðilar eru með yfir
60% af öllum vöruútflutningi frá ís-
landi. Þrír þeir stærstu flytja út
fiskafúrðir og búvörur og tvö þau
næstu ál og kísiljárn. Langstærsti út-
flytjandinn er Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna en verðmæti þess sem SH
flutti út í fyrra var 9.108 milljónir
króna.
Næst í röðinni er Samband íslenskra
samvinnufélaga með 6.834 milljóna
króna útflutningsverðmæti Og þar
næst Sölusamband íslenskra fiskfram-
leiðenda með 5.783 milljónir. í fjórða
sæti er íslenska álfélagið hf. með 4.173
milljónir og í fimmta sæti íslenska
jámblendifélagið hf. með 1.336 millj-
óna króna útflutningsverðmæti á
síðasta ári.
Hagtíðindi birta lista yfir 50 helstu
útflytjendur síðustu tvö ár. Þeir eru
með 93,5% útflutningsins í fyrra. Næst
á eftir þeim fimm stærstu koma þessi
fyrirtæki: Síldarverksmiðjur ríkisins
1.001 milljón, íslenska umboðssalan hf.
með sútuð skinn og fiskafurðir fyrir
929 milljónir, Marbakki hf. með fiska-
furðir fyrir 894 milljónir, SIS, iðnaðar-
deild, með ullar- og skinnavömr fyrir
790 milljónir.
Þá koma Islenska útflutningsmið-
stöðin hf. með fiskafurðir fyrir 762
milljónir, Síldarútvegsnefhd 739 millj-
ónir, Sölustofnun lagmetis 674 milljón-
ir, P. Pétursson - Fiskafurðir hf. 649
milljónir, Andri hf. með fiskafurðir
fyrir 593 milljónir, G. Albertsson með
mjöl og lýsi fyrir 524 milljónir. Aðrir
í hópi 50 stærstu útflytjenda vom með
útflutningsverðmæti í fyrra undir hálf-
um milljarði. -HERB
„Afsökun er
lágmarkskrafa"
„Það hlýtur að teljast lágmarkskrafa
að við séum beðnir afsökunar á þessu
tilfelli af þeim sem hlut áttu að máli,
þar með talinn slökkviliðsstjóri,“ sagði
Baldur S. Baldursson, blaðafulltrúi
Bmnavarðafélags Islands, í samtali
við DV í gær er við ræddum við hann
um málið en.nokkur hiti er enn í
slökkviliðsmönnum vegna þess að lög-
reglumönnum var skipað að koma í
veg fyrir að þeir fæm á bilum embætt-
isins á stéttarfélagsfund.
Baldur sagði að í rauninni hefði
þetta mál aldrei átt að koma til við
eðlilegar aðstæður. Þeir fæm á bílun-
um í yfir 100 skoðunarferðir á hveiju
ári, í fyi-irtæki, hótel o.fl. Á stéttarfé-
lagsfundinum hefðu þeir verið í betra
sambandi við stöðina en oft í þessum
skoðunarferðum.
„Það fer því að vera spuming hvort
ekki hafi legið annarleg sjónarmið á
bak við það 'að senda lögregluna á
okkur,“ sagði Baldur. -FRI
Stöð 2:
Beinar útsendingar norður
lón G. Hauksson, DV, Akureyri:
Útsendingar Stöðvar 2 vom sýndar
beint á Akureyri í fyrrakvöld. Var
þetta í fyrsta skipti sem slíkt gerist
og þar með er Stöð 2 í beinni útsend-
ingu orðin veruleiki fyrir norðan.
„Þetta gekk mjög vel og við erum
ánægðir," sagði Bjami Hafþór Helga-
son hjá Sjónvarpi Akureyrar í
gærkvöld.
BILASYNING I
Opið frá 13-17
Munið Ford skiptikjörin
Ford Escort hefur verið einn vinsælasti og mest seldi bíliinn
hér á iandi undanfarin 13 ár. Vinsældir Escortsins byggjast
ekki síst á hagkvæmum akstri og einstaklega
háu endursöluverði. Escortinn er framdrifinn, búinn aflmiklum
en spameytnum vélum, fyrsta flokks fjöðrun og stýrisbúnaði.
Hann er ekki sist rúmgóður fjölskyldubíll sem rúmar alla
fjölskylduna auk mikils farangurs.
Ford Escort
SVEINN EGILSSON HF
Skeifunni 17. Sími 685100.
vðt**
OPIÐ TIL KL. 41DAG
Jll E |
KORT EUBOCAOD
Matvörumaxkaöur 1. hæd - Rafdeild 2. hæð
Húsgagnadeild 2. og 3. hæð -
Gjafa- og búsáhaldadeild 2. hæð -
Ritfangadeild 2. hæð - Munið JL-griUið
Leikfangadeild 2. hæð
Sérverslanir í JL-portinu
Jl!
A A ▲ A A A
acQa'aagi
olicu aacjaqij^í..
■iuBiriaiiia«£aáuiii tiu
Jón Loftsson hf. ________________
Hringbraut 121 Sími 10600