Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1987, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1987, Page 8
8 LAUGARDAGUR 25. APRIL 1987. IIX' ViftriNG RENTACAR LUXEMBOURG Bjóðum aðeins fyrsta flokks bíla, alla með útvarpi. Hafið samband við næstu ferðaskrifstofu, verslið við landann. Nýtt símanúmer í LUX: 90-352436888. Utboð Alftafjörður 1987 Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofan- greint verk. Lengd vegarkafla samtals 7,9 km, fylling 900 m3 og neðra burðarlag 9.500 m3. Verki skal lokið 1. júlí 1987. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á ísafirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 27. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 11. maí 1987. Vegamálastjóri V Útboð Slitlög og yfirlagnir á Suðurlandi 1987 Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofan- greint verk. Klæðing 81.000 ferm. yfirlögn 55.000 ferm. og hjólfarafylling 31.000 ferm. Verki skal lokið fyrir 1. september 1987. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Selfossi og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 27. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 11. maí 1987. Vegamálastjóri Menntaskólinn á Egilsstöðum Tilboð óskast í að steypa upp og fullgera 1. áfanga skólahúss ME, auk frágangs á lóð næst húsinu. Hú- sið er ein hæð og kjallari, gólfflatarmál um 950 m2. Verkinu skal skilað í tvennu lagi, efri hæð skal full- gerð fyrir 1. sept. 1988 en öllu verkinu lokið fyrir 1. sept. 1989. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgar- túni 7, Reykjavík, gegn 5000,- kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 19. maí 1987 kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN RIKISENS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 _ REYKJAVÍKURHÖFN Til sölu er stálgrindarhús til niðurrifs. Húsið er 503 m2 og 2700 m3 að stærð á einni hæð, byggt 1957. Húsið er byggt úr stálgrind, klætt með bárujárni að utan og hlaðið milli súlna með holsteini. Niðurrifi ásamt hreinsun á öllu ofan botnplötu skal vera lokið fyrir 30. maí nk. Tilboðum skal skilað á skrifstofu Reykjavíkurhafnar, Hafnarhúsinu v/TryggvagötU, 4. hæð, á þartil gerðum eyðublöðum, sem þar fást, fyrir kl. 14.00 mánudaginn 4. maí 1987. Húsið sem stendur í Kleppsvík verður til sýnis dagana 29. og 30. apríl nk. milli kl. 13.00 og 15.00 báða dagana. Hafnarstjórinn í Reykjavík. Ferdamál Ferðamenn Þau sæti, sem eru til staðar, eru þó þægilegur sess. Ferðasíðan brá undir sig betri fætinum og fór að líta á nýju flugstöðina og hvað hún hefði að bjóða ferðalöngum. Það fyrsta sem við tókum eftir var að hljómburður er fádæma góður, svo góður að jafnvel er hægt að skilja það sem sagt er í hátalarakerfið og er þetta eina flugstöðin, sem Ferðasíðan hefur komið í, þar sem svo er. Hátalarakerf- ið er enda engin smásmíði. 1.100-1.200 hátalarar eru um allt húsið, meira að segja eru fjórir í tölvuherbergi þar sem annars er aldrei nokkur maður. Flugstöðin er annars öll hin glæsi- legasta. Ekkert hefur verið til sparað og er íburður með eindæmum mikill. Þetta gerir það að verkum að um- hverfi er allt hið vistlegasta og vel búið að þeim sem þar bíða. Þó em nokkur atriði sem hefðu mátt fara betur. Þar er fyrst til að taka að stólar em síst of margir, og sums staðar em þeir allt of fáir svo sem inni í „fingri", ganginum sem fólk bíður í, er það þarf að skipta um flug, eða hefur þurft að millilenda. Aðstaða hefur og lítið breyst. Þann- ig hefur fríhöfh ekkert verið stækkuð, og ekki heldur íslenskur markaður. Bókabúð i markaðnum er með ein- dæmum léleg, svo til ekkert úrval erlendra né innlendra dagblaða og bókakostur rýr. Enn sem komið er hefur ekki verið sett upp nein veitingaaðstaða. Ástand- ið nú í þeim málum er óviðunandi, aðeins er boðið upp á einn bar, rétt til þess að bjórþyrstir íslendingar geti tekið forskot á sæluna. Þetta stendur þó til bóta þar sem ljóst er að vel verð- ur búið að þessum málum í framtíð- inni. Vel er staðið að afhendingu farang- urs í flugstöðinni. Töskumar koma á færiböndum beint fyrir framan tollinn, og nú er öll bið úr sögunni, þær em byrjaðar að koma áður en fyrsti far- þeginn birtist. Mesta bótin er þó landganga far- þega. Gríðarlangur gangur, svonefhd- ur „fingur", liggur frá efri hæð stöðvarbyggingarinnar út að flug- braut og leggja flugvélar beint upp að honum. Síðan er lagður landgangur beint upp að flugvélinni og ganga því farþegar beint inn í „fingur". Þar með er það úr sögunni að sólar- landafarþegar horfi á vindinn rífa með sér mexíkanahattana þeirra og þeyta þeim um völlinn. Þegar við áttum leið um svæðið vom farþegar úr þremur vélum saman- komnir í flugstöðinni, en alls taka landgangar sex vélar. Flugstöðin var Verðsaman- burður á toll- frjálsum vamingi Schipol er ódýrastur, Leifur Ei- ríksson kemur fast á eftir en Kastmp er dýrastur. Ferðamenn, sem leggja leið sína til útlanda, hafa áhuga á verðlagi í þeim fríhöfnum sem þeir heimsækja á leið sinni. Schipolfhigvöllur hefur löngum státað af því að bjóða upp á ódýrar fríhafharvörur. Kastmpvöll- ur í Kaupmannahöfn gumar einnig af því að vera með ódýrar vörur. Það sem okkur varðar einkum er hvað þessar vörur kosta í okkar eigin flug- stöð, Leifs Eiríkssonar. Schipolflug- völlur var ódýrastur í samantekt nokkurra áfengistegunda, ilmvatna fyrir dömur og snyrtivara fyrir herra. Leifur fylgdi fast á eftir. Af þessum þremur völlum var Kastmp dýrast- ur. Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur algjöra sérstöðu meðal fríhafna en eins og allir vita er hægt að kaupa fríhafriarvaming við komuna inn i landið sem ekki er hægt annars stað- ar. Þetta athuga útlendir ferðamenn oft á tíðum ekki og em búnir að gera innkaup áður en þeir koma hingað til lands. Ef fríhöfnin óskar eftir meiri viðskiptum væri tilvalið fyrir hana að auglýsa í erlendum ferðablöðum. Hér á eftir fer samanburður á verði nokkurra vömtegunda í fríhöfnum þriggja landa: Flugstöð Leifs Eiríks- sonar, Kastmp og Schipol. Tölumar frá Keflavík og Kaupmannahöfn em fengnar úr Viðskipta- og tölvublað- inu. -A.BJ. Kvennilmvötn Verðsamanburður: llmvötn fýrir dömur Ilm va tn fyrír dömur Flugstöð Leifs Eiríkssonar Schipol Amster- dam Kastrup Kaupm höfn Les Must de cartier Edt 50 ml 1367 1596 1529 Shalimar (Guerlain) Edt. 50 ml 684 413 1038 Cloe, (Lagerfeld) Edt 95 ml 925 1012 1076 White Linen (Estée Lauder) Edp 60 ml 1046 1024 1126 Y. St. Laurent Paris, Edt 75 ml 1035 998 999 Verðsamanburður: Snyrtivörur fýrir herra Snyrti vörur fyrír herra Flugstöð Leifs Eiríkssonar Schipol Amster- dam Kastrup Kaupm höfn Aramis After Shave 120 ml 663 568 635 Lacoste After Shave 100 ml 663 560 624 Lacoste Deodorant Spray 150 ml 422 430 480 Koyros After Shave 100 ml 905 808 867

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.