Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1987, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1987, Page 28
28 LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987. DV kyrtnir 1. deildarfélögin í knattspymu Þór Akureyri „Ekkert annað en toppbarátta kemur til mála hjá Þór í sumar1 - segir Árni Stefánsson, leikmaður með Þór, Akureyri „Við Þórsarar stefnum auðvitað á toppinn í sumar og ekkert annað kemur til f"1 reina hjá okkur. Við erum únir að æfa mjög vel, byrj- uðum í febrúar og þetta leggst allt saman mjög vel í okkur,“ sagði Árni Stef- ánsson, leikmaður með Þór í knattspymunni, þegar hapn var ínntur eftir áliti á Islandsmótinu í knatt- spyrnu sem hefst í næsta mánuði. - Nú hafið þið oft náð vænlegri stöðu í 1. deildinni en svo hefur allt klúðr- ast þegar ó hefur reynt. Kannt þú einhverja skýringu á þessu og er ekki meiningin að breyta þessu? „Það er bjargföst trú mín að Þórslið- ið eigi að geta gert mun betri hluti en það hefur gert undanfarin ár. Það er rétt að okkur hefur oft tekist að kom- ast í góða stöðu í deildinni en síðan hefur algert klúður komið til sögunn- ar. Þá höfum við leikmennimir kannski haldið að þetta kæmi af sjálfu sér í stað þess að halda áfram að leika af fullum krafti. Jú, auðvitað ætlum við okkur að breyta þessu í sumar.“ „Mikil óheppni árið 1985 að komast ekki í Evrópukeppni“ Ami heldur áfram: „Ég vil líka minna á að við vorum mjög óheppnir sumarið 1985 þegar sáralitlu munaði að okkur tækist að komast í Evrópu- keppni. Þá sigmðum við FH, 6-1, hér á Akureyri og á sama tíma léku ÍA og Fram og mátti ÍA ekki vinna leik- inn sem þeir þó gerðu og því misstum við af Evrópukeppninni. Þetta ár var Jóhannes Atlason þjálfari hjá okkur I I i ritill í 1. deild hefur , aldrei farið til Akureyrar Leikmenn Þórs frá Akureyri hljóta að vera orðnir vel hungrað- ir í íslandsmeistaratitil því félag- inu hefur aldrei tekist að sigra í 1. deild, KA og ÍBA ekki heldur, og því hefur íslandsmeistaratitill í 1. deild aldrei til Akureyrar komið. ÍBA hefur fjórum sinnum sigrað í 2. deild og einu sinni komst ÍBA (nú KA og Þór) í úrslitaleik bikar- keppni Knattspymusambands íslands og lék ÍBA þá gegn Akra- nesi. Tvo leiki þurfti til að knýja fram úrslit, fyrri leiknum lauk með 1-1 jafntefli en ÍBA sigraði svo 8-2 í síðari leiknum. Tveir leikmenn ÍBA hafa orðið mai-kakóngar í 1. deild; Kári Ámason árið 1968 og Hermann Gunnarsson órið 1970. Kári skoraði 8 mörk og Hermann 14. • og hann hefur nú tekið aftur við lið- inu. Við bindum miklar vonir við störf hans. „Leikum alltaf fyrst við meistar- ana og sigrum þá“ - Nú eigið þið að leika gegn íslands- •Árni Stefánsson, hinn harðskeytti varnarmaður Þórs. meisturum Fram í ykkar fyrsta leik í íslandsmótinu í Reykjavík. Hvemig leggst sú viðureign í þig? „Þessi leikur leggst ákaflega vel í mig. Ég vil minna á mjög athyglis- verða þróun. Þetta er þriðja árið í röð sem við mætum íslandsmeisturunum í fyrsta leik okkar á útivelli. Árið 1985 unnum við Skagamenn, Valsmenn sigruðum við í fyrra og Framara ætl- um við að leggja að velli í fyrsta leiknum á komandi íslandsmóti." - Hver verður helsti veikleiki Þórs- liðsins i sumar? „Ég á helst von á því að ef um ein- hvern veikleika verður að ræða þá verði það varðandi markaskorunina. En annars vil ég segja að Þórsliðið er mjög jafnt og í því er fjöldi leik- manna sem leikið hefur saman í áraraðir og það verður örugglega mesti styrkur okkar í komandi baráttu íslandsmótsins." Árni spáir Val íslandsmeistara- titji I lokin, Árni. Hvaða lið verða í topp- og botnbaráttu og kannski meira í gamni en alvöru, hver verður lokaröð liðanna? „Þetta er erfið spuming. Þó tel ég að Valur, Fram, KR og vonandi Þór verði í toppbaráttunni en á botninum verða FH og Víðir. Lokaröðin gæti orðið þessi: 1. Valur 2. Þór 3. KR 4. Fram 5. ÍA 6. Keflavík 7. KA 8. Völsungur 9. Víðir 10. FH ■ fer en brír bætast við i Líklegt verður að telja að lið Þórs verði nokkuð framarlega í 1. deildinni í sumar enda margir snjallir leikmenn í liðinu sem lengi hafa leikið saman og þekkja vel hver annan. Aðeins einn leikmað- ur, sem lék með Þór í fyrra, hefur horfið á braut. Það er Baldur Guðnason en hann fluttist suður vegna náms og leikur með FH í sumar. • Þrír nýir leikmenn leika með Þór í sumar. Guðmundur Valur * Sigurðsson er nýr leikmaður hjá I Þór en hann lék með Breiðabliki í fyrra. Þar er á ferð skemmtilegur | leikmaður sem ætti að styrkja . Þórsliðið. Þá hefur Ómar Guð- | mundsson markvörður gengið í ■ Þór á ný en hann lék með KS í ■ fyrra en þar áður með Þór. Þriðji I nýi leikmaðurinn er Gísli Bjama- * sonsemlékáðurmeðAftureldingu | og Víkingi í Reykjavík. _ • Þórsarar hafa æft gífuriega vel síðan í febrúar, að sögn Arna Stefánssonar. Þessi mynd var tekin af leikmönnum Þórs sem mættir voru á æfingu á Akureyri í vikunni. DV-mynd Jón G. Hauksson, Akureyri ’ qmt mm §§P* (wW lÉmmM JBL m

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.