Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1987, Blaðsíða 4
4
MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1987.
Sljómmál
Vestmannaeyjar þingmanns-
lausar í fýrsta skipti
Ómar Garðaissan, DV, Vestmannaeyjum:
í fyrsta skipti í þingsögunni er kom-
in upp sú staða að Vestmannaeyingar
eiga ekki fulltrúa á Alþingi. Venjulega
hafa tveir til þrír þingmenn ffá Vest-
mannaeyjum átt þar sæti. Þeir sem
áttu bestu möguleikana á að komast
inn af þeim sem voru í ffamboði voru
Ámi Johnsen af D-lista og Magnús
H. Magnússon af A-lista en hvomgur
þeirra náði kjöri.
Kosningabaráttan hér einkenndist
af því að sjálfstæðismenn lögðu á það
mikla áherslu að koma sínum manni,
Áma Johnsen, á þing. En sæti hans
sem þriðja manns á D-lista var í vem-
legri hættu, sérstaklega eftir tilkomu
Borgaraflokksins. Þetta starf þeirra
skilaði ábyggilega árangri og náði
fylgi langt út fyrir raðir sjálfstæðis-
manna.
Kosningastarf hinna flokkanna fór
ffekar seint af stað. Blaðamaður DV
fór á kosningaskrifstofu flokkanna á
kosningadaginn. Var mikill hugur í
mönnum, sérstaklega var Ragnar
Óskarsson, annar maður á G-lista,
bjartsýnn og virðist það hafa verið á
rökum reist því Margrét Frímanns-
dóttir, efsti maður á G-lista, komst inn.
Nú er talað um Kvennalistann sem
sigurvegara þessara kosninga en hér
í Vestmannaeyjum höfðu konurnar sig
lítt í frammi og höfðu ekki opna skrif-
stofu nema tvo síðustu dagana.
Að liðinni kosninganótt náði blaða-
maður DV tali af Áma Johnsen og
Magnúsi H. Magnússyni.
Ámi Johnsen:
Mun freista þess
að vinna sæti á ný
ákaflega furðulegar og vægast sagt
ósanngjamar. Við höldum ekki
nærri því jafnvægi miðað við minni
flokkana sem þessar reglur virðast
fyrir. Það er ekki til bóta fyrir ís-
lenskt þjóðfélag að stuðla að slíku.
Hvað mig áhrærir mun ég reyna
að ffeista þess í næstu kosningum,
sem geta orðið fyrr en seinna, að
vinna aftur það sæti sem ég skipaði
á síðasta kjörtímabili, annað sætið,
og ég mun reyna það sem fulltrúi
Suðurlands í heild en ekki síst sem
fulltrúi Vestmannaeyinga sem í
fyrsta skipti eiga nú engan talsmann
úr sínum röðum á Alþingi.
Það hefur verið mér mikil hvatn-
ing að finna alls staðar i kjördæminu
mikinn áhuga fyrir því að ég ætti
áfram sæti á Alþingi þó að niður-
stöðumar hafi orðið þessar sem raun
ber vitni vegna óhagstæðrar skipt-
ingar atkvæða. Ég er líka mjög
þakklátur fyrir þann ævintýralega
mikla áhuga og stuðning sem Eyja-
menn sýndu mér í þessari kosninga-
baráttu.
Ég vil þakka öllum þeim sem unnu
mikið og óeigingjamt starf,“ sagði
Ámi að lokum.
„Ég harma þessi úrslit þó að ég sé
á hinn bóginn ánægður með að
flokkurinn er einna styrkastur hér
miðað við fyrra fylgi hér í Suður-
landskjördæmi. Ég þakka það
afburðagóðri vinnu okkar fólks. Það
var mjög hvetjandi að vera þátttak-
andi í þessu starfi og hvað mig
varðar sýna þessi úrslit að þær út-
hlutunarreglur sem farið er eftir em
Árni Johnsen með kosningastjóra sínum, Guðjóni Hjörleifssyni.
DV-myndir Ómar Garðarsson.
Magnús H. Magnússon náði ekki kjöri. Hér er hann með Elínu Ölmu Art-
húrsdóttur, öðrum manni á lista Alþýðuflokksins, og Þorbirni Pálssyni
kosningastjóra.
Magnús H. Magnússon:
Sama
togstreKan
og
„Ég vil segja það um þessi úrslit að
sjálfstæðismenn, eins og í síðustu
kosningum 1983, töldu fólki trú um
að ég væri ömggur og að til þess að
atkvæði úr Vestmannaeyjum nýttust
þyrfti að kjósa Áma Johnsen. En þetta
er sama togstreita og 1983 en þá vant-
’83
aði aðeins örfá atkvæði á að ég næði
kosningu. Að öðru leyti hef ég ekkert
um þessi úrslit að segja annað en að
ég er afar þakklátur öllu mínu sam-
starfsfólki fyrir þessar kosningar,"
sagði Magnús að endingu.
f dag mælir Dagfari
Þetta fór eins og Dagfari hefur
spáð. Þeir sigmðu allir með tölu,
flokkarnir, og em afskaplega þakkl-
átir kjósendum fyrir stuðninginn.
Sumir þeirra miða að vísu við síð-
ustu kosningar, aðrir við skoðana-
kannanir, og svo em hinir sem unnu
sigur ef miðað er við stöðuna eins
og hún var.
Alþýðuflokkurinn hefur unnið
umtalsvert á frá síðustu alþingis-
kosningum. Það er mikið afrek og
þó sérstaklega það að formaðurinn
skyldi hafa komist inn á þing. Það
er ekki hveijum manni gefið að tefla
sjálfum sér ffam í baráttusæti og ná
kjöri eftir að hafa lagt allt undir.
Það sannar betur en annað að kjós-
endur vilja veg formannsins og
flokksins sem allra mestan og er
mikill sigur fyrir Alþýðuflokkinn.
Borgaraflokkurinn er ekki nema
mánaðargamall. Hann var stofnaður
utan um Albert sem hafði verið
útskúfaður úr rfkisstjómum ffam
yfir aldamótin. Þessi nýi flokkur
hefur mtt sér braut inn á þing með
mikið mannval og Albert sjálfan í
broddi fylkingar sem sannar að kjós-
endur vilja að Albert komist í ríkis-
stjóm á þessari öld en ekki þeirri
næstu. Sigur hans er mikill.
viðhorfum kvenna þegar ríkisstjórn
verður mynduð.
Flokkur mannsins og Þjóðarflokk-
urinn vinna líka sína eigin sigra.
Þeir hafa ekki getað auglýst eins og
stóm flokkamir. Þeir vissu vel að
það yrði á brattann sækja. En at-
kvæðin, sem þeir fengu, sanna að
þjóðin er að vakna og þeir vita um
fjölmörg atkvæði sem þeir hefðu
fengið ef kjósendur hefðu mátt ráða.
Stefán Valgeirsson nær kjöri sem er
mikill sigur fyrir Stefán. Eiginlega
er hann sigurvegari kosninganna.
Hvað hefði gerst ef Stefán hefði boð-
ið sjálfan sig ffam í fleiri kjördæm-
um?
Bandalag jafnaðarmanna fékk
ekki mörg atkvæði. En Bandalagið
var líka búið að segja að það ætti
ekki samleið með hinum flokkunum
og þess vegna eru kosningamar mik-
ill sigur fyrir þessi sjónarmið
Bandalagsins. Það sannaði að
Bandalagið á ekki samleið með öðr-
um, hvorki flokkum né kjósendum.
Er hægt að ná betri árangri?
Þetta hafa verið góðar kosningar,
eins og kosningar eiga að vera, þar
sem enginn tapar og allir sigra.
Húrra fyrir lýðræðinu.
Dagfari
Allir sigruðu
Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi
frá síðustu kosningum en heldur
nokkurn veginn sínu ef miðað er við
að Borgaraflokkurinn var stofnaður
til höfuðs honum. Það er ekki létt
verk að ganga í gegnum kosningar
þegar efsti maður listans klýfur sig
út og stofnar nýjan flokk til höfuðs
þeim gamla. Ef lagt er saman fylgi
Borgaraflokksins og Sjálfstæðis-
flokksins sjá menn að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur bætt við sig fylgi
fr á síðustu kosningum og hægri öflin
em nú sterkari á þingi en nokkm
sinni fyrr. Þetta er mikill sigur fyrir
Sjálfstæðisflokkinn.
Framsóknarflokkurinn kemur vel
út úr þessum kosningum. Eftir hrak-
spár allt kjörtímabilið og erfiða
stöðu í þéttbýlinu fær Framsóknar:
flokkurinn sama fylgi og síðast
þannig að öllum má vera ljóst að
Framsókn er á mikill sóknarbraut.
Steingrímur formaður hlýtur glæsi-
lega kosningu og ljóst er að kjósend-
ur vilja að Framsókn verði áfram
leiðandi flokkur í ríkisstjóm. Kosn-
ingamar em mikill sigur fyrir
Framsóknarflokkinn.
Alþýðubandalaginu hafði verið
spáð tapi samkvæmt skoðanakönn-
unum. Miðað við þá staðreynd að
flokkurinn mundi tapa hefur hann
haldið vel á sínu. Þá er þess og að
geta að Kvennalistinn lýsti yfir and-
stöðu gegn Nato og hemum og
samkvæmt þvi skiptist vinstra fylgið
upp á milli þessara tveggja flokka.
Vinstri hreyfingin í landinu hefur
þess vegna styrkt stöðu sína og getur
Alþýðubandalagið verið ánægt með
þá niðurstöðu. Alþýðubandalagið
var raunar að vinna mjög á síðustu
dagana fyrir kosingamar og ef það
hefði fengið lengri tíma hefði það
náð fullum styrk. Úrslitin em því
alls ekki eins slæm og tölumar segja
til um.
Kvennalistinn er sigurvegari
kosninganna - stórbætir fylgi sitt
og hefur sannað tilverurétt sinn. Nú
verður ekki lengur gengið fram hjá