Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1987, Blaðsíða 22
22
MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1987.
Stjómmál
Mikil eftirvænting ríkti i Naustinu á kosninganótt enda ekki að furða.
veginn að sanna sig sem afi í islenskum stjómmálum.
Kvennalistinn var þar með kosningavöku og í þann
DV-myndir GVA
Konur í kosn-
ingaham
Það ríkti mikil eftirvænting í her-
búðum Kvennalista í Naustinu. Enda
ekki að undra, skoðanakannanir
höfðu sýnt verulega fylgisaukningu
flokksins og fyrstu tölur að berast.
Þrátt fyrir mikinn meðbyr voru kon-
ur hófsamar í spám, en allt frá því að
fyrstu tölur tóku að streyma inn var
orðið ljóst að stefhumál listans höfðu
fundið hljómgrunn meðal kjósenda.
Er fyrstu tölur úr Reykjavík höfðu
birst tókum við nokkrar þeirra tali.
Kristín Einarsdóttir var bjartsýn.
Taldi hún líklegt að listinn fengi 6-7
þingsæti. Það átti eftir að koma á
daginn að þessi spá var ekki fjarri lagi.
Kvennalistinn hefur sérstöðu meðal
stjórnmálaafla að því leyti að enginn
er formaður, ekkert er til sem heitir
miðstjóm, né er hægt að sjá út nokk-
um þann sem hefur áhrif umfram aðra.
Við spurðum Sigríði Lillý Baldurs-
dóttur nánar út í starfsemi listans og
báðum hana að spá íyrir um endanleg
úrslit.
„Við höfum haft konur í tveimur og
hálfri stöðu við störf. Auk þess hefúr
mikill fjöldi fólks lagt okkur lið á einn
eða annan hátt.
Þegar okkur bámst úrslit úr skoð-
anakönnun ykkar á DV, sem mældi
fylgi okkar í Reykjavík 19,1%, töldum
við að þar yæri um prentvillu að ræða
og afgreiddum þau sem 9,1%. Síðar
kom á daginn að þetta var ekki prent-
villa en ég tel samt mun raunhæfara
að áætla fylgið um 9%, miðað við að
við fengum 5,5% í síðustu kosning-
um.
Guðrún Agnarsdóttir taldi raunhæft
að áætla 5 þingsæti. „Það myndi létta
mjög öll störf í þingflokknum ef hann
stækkaði upp í fimm. Við gerum okkur
varlegar spár en við höfum orðið var-
ar við mjög gott viðmót á vinnustaða-
fundum. Við höfum háð málefhalega
kosningabaráttu og ég held að fólk sé
farið að hlusta á okkur og skilja."
Frá sjónvarpsstöðvunum voru nú
famar að berast tölur úr fleiri kjör-
dæmum og virtist Kvennalistinn bæta
við sig einum manni við hverja spá. Á
tímabili var þeim spáð sjö þingsætum.
Við spurðum Sigríði Dúnu Krist-
mundsdóttur hvað væri eiginlega að
gerast.
„Það sem er að gerast er það að
málflutningur okkar, stefnumál og
vinnubrögð hrífa. Fylgið held ég að
sé fyrst og fremst frá konum komið.
Það er greinilegt að við tökum bæði
ffá Alþýðubandalagi og Sjálfstæðis-
flokki. Einnig er mikið um ungar
konur sem nú eru að kjósa í fyrsta
sinn. Þessar konur eru að byrja lífið
og þær hugsjónir sem við byggjum á
stefiiu okkar em þeim ákaflega gott
veganesti. Einnig er nokkuð um það
að karlar á miðjum aldri hafi haft sam-
band við okkur og komið.“
Er líða tók á nóttina tók fagnaður
að gerast almennur. Inn á Naust tók
að streyma fólk og var brátt mikil
stemning í salnum. Kvennalistakonur
sungu úr eigin söngbók, Kerlingarbók,
og var stiginn vikivakadans með.
-PLP
Þegar einsýnt þótti aó mikill sigur var í þann veginn að vinnast var sungið og stiginn vikivaki við undirleik Bergþóm
Ámadóttur.
DV
Kristín Einarsdóttir:
„Er orðin vön
tilhugsuninni"
Við kosningasigur Kvennalistans
komust margar nýjar konur á þing.
Ein þeirra er Kristín Einarsdóttir en
hún var önnur á lista í Reykjavík. Við
króuðum hana af á kosningavöku
Kvennalistans sem haldin var í Naust-
inu en þar var glatt á hjalla.
- Kristín, hvemig er að vera komin
á þing?
„Ja, ég gerði mér grein fyrir því strax
í janúar þegar við lukum við að raða
á lista að ég ætti nokkuð ömggt þing-
sæti þannig að ég er orðin vön til-
hugsuninni."
- Heldurðu að gömlu flokkamir eigi
ef til vill eftir að neita samstarfi við
þá nýju og koma þannig á stjómar-
kreppu sem gæti leitt til nýrra kosn-
inga?
„Mér finnst ekkert ólíklegt að sú
staða geti komið upp en ég þara trúi
ekki að þeir fari að gera það.“
-PLP
Þórhildur Þorleifsdóftir og Kristín Einarsdóttir glaðar í bragði á kosninga-
nótt. Ekki að undra, þær náðu báðar inn á þing þá um nóttina.
Leikstýra
Ein af nýjum þingkonum Kvenna-
lista er Þórhildur Þorleifsdóttir leik-
stjóri. Við náðum tali af henni í
Naustinu er hún var að fagna sigri
ásamt samstarfskonum sínum. Við
spurðum hana hvort hún myndi leik-
stýra þingflokknum.
„Nei, það ætla ég ekki að gera, það
em margir sem líkja stjómmálum við
leikhús en í raun em þetta mjög ólík
fyrirbæri. Ég þakka þennan sigur okk-
ar því að við höfum sett frarn góð
á Alþingi
málefni og það á málefnalegan hátt
en ekki með skrumi og auglýsingum
eins og aðrir."
Þegar við náðum tali af Þórhildi
vom ekki allar tölur komnar og spurð-
um við þvi hvort hún byggist við því
að Kvennalistinn ætti enn eftir að
bæta við sig.
„Ég spái engu, það er best að spyrja
að leikslokum."
-PLP
Traust forusta
Steingríms
- skóp sigurinn að mati Jóhanns Einvarðssonar
„Ég er ánægður með hlut okkar
ffamsóknarmanna hér í kjördæminu,"
sagði Jóhann Einvarðsson sem nú tek-
ur sæti á Alþingi að nýju. Hann
skipaði annað sætið á lista Framsókn-
arflokksins í Reykjaneskjördæmi þar
sem flokkur hans bætti vemlega stöðu
sína frá síðustu kosningum.
„Það er tvennt sem hefur ráðið
mestu um þessi úrslitsagði Jóhann.
„Annars vegar er vel tímasett og vel
skipulögð kosningabarátta. Hins veg-
ar er það traust fomsta Steingríms
Hermannssonar. Við auglýstum mikið
og það hefur ömgglega skilað sér en
fyrst og ffemst er það markviss vinna
og ömgg fomsta sem hefur skapað
þennan sigur.“
Jóhann sagði að úrslitin í Reykja-
neskjördæmi hefðu ekki komið sér á
óvart. „Við fundum það, sérstaklega
síðustu vikuna, að fylgi okkar var
mjög að vaxa,“ sagði Jóhann. „Á fund-
úm okkar í kjördæminu hittum við
að máli ólíklegustu menn sem snúist
höfðu til fylgis við Framsóknarflokk-
inn.
Það er augljóst að við höfum tekið
mest fylgi af Alþýðuflokki og Al-
þýðubandalagi. Fylgi Alþýðuflokksins
í sveitarstjómarkosningunum hefur
greinilega ekki skilað sér til hans nú
í alþingiskosningunum. Að vísu ber
að hafa það í huga að Framsóknar-
flokkurinn hefur áður náð meira fylgi
og það hefúr nú skilað sér aftur,“ sagði
Jóhann Einvarðsson.
-GK
Jóhann Einvarðsson sest nú aftur á
þing.