Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1987, Blaðsíða 35
MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1987.
47
Ásmundur Stefánsson:
Stjómmál
Niðurstaðan
mikil vonbrigði
„Mér líst illa á stöðuna og það er
augljóst að ég er ekki inni á þingi
miðað við þessar tölur,“ sagði Ás-
mundui- Stefánsson, forseti ASÍ og
þriðji maður á lista Alþýðubandalags-
ins í Reykjavík, í samtali við DV
aðfaranótt sunnudags þegar talsvert
var liðið á talningu atkvæða.
„Það er ljóst að flokkurinn hefur
misst fylgi um land allt og það eru
mikil vonbrigði og ljóst að málflutn-
ingur okkar hefur ekki komist til
skila. Mér sýnist að stjómarílokkamir
haldi sínum hlut og mér finnst það
óverðskuldað miðað við frammistöðu
þeirra síðastliðin §ögur ár. Þetta er
greinilega niðurstaðan og hún er mér
mikil vonbngði," sagði Ásmundur.
„Það er augljóst að fylgi Alþýðu-
bandalagsins hefúr minnkað og
viðbrögð okkar hljóta að verða þau
að við þurfum að styrkja starfið og
efla málflutninginn," sagði Ásmundur
Stefánsson. -ój
Ásmundur Stefánsson ásamt Guörúnu, konu sinni, í kosningamiðstöð Aiþýðubandalagsins þegar beðiö var úrslitanna.
Kosningamiðstöð Alþýðubandalags:
Dauflegt andrúmsloft
Það var frekar fámennur hópur
manna sem var í kosningamiðstöð
Alþýðubandalagsins í húsnæði flokks-
ins við Hverfisgötu þegar DV kom
þangað um það leyti sem fyrstu tölur
bámst á laugardagskvöld.
í salnum var Ásmundur Stefánsson,
þriðji maður á lista flokksins í Reykja-
vík, og grúfði sig yfir tölurnar. Smám
saman fjölgaði í liðinu enda þótt fyrstu
gestimir fæm að tínast út um klukkan
hálftólf. Þegar fyrstu tölur úr Reykja-
vík bámst vom lítil viðbrögð í salnum
þó að vonbrigðastuna heyrðist frá ein-
staka manni. „Þetta er alls ekki nógu
gott hjá okkur,“ sagði einn í salnum
og virtust fleiri sammála um það.
Barinn á staðnum var opinn og þeg-
ar tekið var að fjölga við hann hnippti
maður við næsta borð í sessunaut sinn
og sagði: „Heyrðu, þeir em með bar
héma!“
Aðallega virtust gestimir vera að
væta kverkamar í gosi og léttum vín-
um og ekki var farið að sjá á nokkrum
manni og virtist samkoman öll hin
skikkanlegasta.
Ekki var um nein afgerandi viðbrögð
að ræða í salnum fyrr en söngkvartett
tróð upp og söng létt lög. Var kvartett-
inn klappaður upp og ekki var annað
að sjá en að hann nyti ívið meiri vin-
sælda en tölurnar sem stöðugt birtust
á stórum sjónvarpsskjá á veggnum.
-ój
Monroe gas- og vökvahöggdeyfar.
Sjálfvirk stilling eftir álagi.
2ja ára ábyrgö!
Straumur bíleigenda liggur í Borgartún 26.
Þar er úrvalið mest í bílinn! Láttu sjá þig sem
fyrst. Þú og bíllinn þinn njótið góðs af
heimsókninni.
naust
ara
BORGARTÚNI 26, SÍMI 62 22 62
DÚNMJÚKIR
DEMPARAR!
Stórmarkaður bíleigenda
!
3
|
Áður en þú gerir upp hug þinn
varðandi hugsanleg bílakaup
getur borgaö sig fyrir þig
að kynna þér kosti KADETT bílanna,
ss. rými, hönnun, aksturseiginleika
og lágan eldsneytiskostnað.
OPEL
KADET
hessi glæsilegi vusúur-þýski bíll
var kosinn bíll ársins
af dómharðri nefnd bílagagnrýnenda
þegar hann var fyrst kynntur
fyrirtveimurárum.
Þessi stórkostlega viðurkenning
var upphafið að miklum vinsældum
OPEL KADETT.
-©■Igm
mmr(
yand^ðuvalið! BíLVANGURsf
VGluU KADETT! HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300