Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1987, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1987, Síða 15
MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1987. 15 NYTT AF NALINNI er nýr klúbbur á íslandi fyrir alla þá sem hafa gaman af saumum, prjónaskap og öðrum hannyrðum og einnig að prýða hýbýli sín. í hverjum mánuði færðu nýjan pakka af glæsilegu efni, 16 stór litprentuð spjöld, (19,3x27,4 sm), með hugmyndum, uppskriftum og leiðbeiningum ásamt vandaðri og nákvæmri sníðaörk með íslenskum leiðbeiningum o.m.fl. Áskriftargjald er aðeins kr. 480.- fyrir hverja sendingu og allir klúbbfélagar fá án aukagjalds handhægar og smekklegar geymslumöppur fyrir spjöldin, plastvasa undir sníðaarkir, leiðbeiningaþjónustu i vikulegum símatíma, afslátt af ýmsum námskeiðum og margs konar leiðbeininga- og kennslugögn um handavinnu og hannyrðir. Og efnið úr ritinu NÝTT AF NÁLINNI fer allt á sinn stað í safnmöppunni, föt handa henni á einn stað, handa honum á annan stað, allt fyrir börnin á þann þriðja, heimilið hefur sitt ákveðna pláss sem og kennsluefni og sníðaarkir. Pannig verður smám saman til aðgengilegur hugmyndabanki á heimilinu. Tímarit framtíðarinnar, 16 litprentuð spjöld í hverjum mánuði, eða 192 snjallar hugmyndir, uppskriftir og leiðbeiningaráári. Vandaðar sníðaarkir. Handhægar og fallegar « safnmöppur. Millispjöld úr plasti til '« aðgreiningar efnisflokka í safnmöppu. Sérstakir plastvasar fyrir hverja * sníðaörk. Leiðbeiningaþjónusta, þar sem allir klúbbfélagar fá upplýsingar og ráðgjöf. Afsláttur af völdum handavinnu- námskeiðum. Verðlaunagetraunir og léttir spurningaleikir með góðum verðlaunum. Hagstæð sértilboð á ýmsum « vörum tengdum heimili og handavinnu. affyrstusendingu gmnnhandbók um saumaskap ef þú pantar innan 10 daga mmm. RÁÐGJAFARÞJÓNUSTA FYRIR ALLA FÉLAGSMENN Um leið og vandamál skjóta upp kollinum eða spurningar vakna um eitt eða annað tengt saumaskap og hannyrðum geturðu hringt í sérfræðing klúbbsins, Rögnu Þórhallsdóttur, Ieiðbeinanda Nýs af nálinni. Ragna er lærður handmenntakennari og því vandalaust að fá hjá henni góð og notadrjúg ráð. Ef þú hringir fyrir mánaðamót tryggirðu þér fyrsta pakkann með 50% afslætti og að auki ókeypis grunnhandbók um saumaskap, Sníða- og saumakennslan, án þess að skuldbinda þig á nokkurn hátt um áframhaldandi þátttöku í klúbbnum. Með einu símtali geturðu afþakkað frekari sendingar, en annars færðu pakka frá klúbbnum sendan um það bil mánaðarlega heim. Hringdu í síma 91- HÚSKllG Við verðum við simann alla virka daga í vikunni kl. 9-22. NÝTT AF NÁLINNI ereingöngu ætlað félögum í samnefndum klúbbi. Þetta nýstárlega efni er því ekki til sölu í verslunum. Vertu því með frá byrjun og pantaðu fyrstu sendinguna - án nokkurra skuldbindinga um framhaldið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.