Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1987, Page 34
46
MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1987.
Stjómmál
Steingrímur í sigurvímu á kosninganótt:
„Ætlum að ná Ninna inn næst“
Það ætlaði allt um koll að keyra á
veitingastaðnum Tess í Hafnarfirði er
Steingrímur Hermannsson heimsótti
stuðningsmenn sína þar á fiórða
tímanum kosninganóttina. Urslit í
Reykjaneskjördæmi lágu þá fyrir, stór-
sigur Steingríms var staðreynd:
„Þetta sýnir okkur að skynsemin
heíur sigrað öfgamar. Árangurinn er
glæsilegur en við skulum ekki láta
deigan síga því við ætlum að ná hon-
um Ninna inn næst,“ sagði Steingrím-
ur í stuttu ávarpi til stuðningsmanna
sinna. Átti hann þar við Níels Áma
Lund, ritstjóra Tímans, er skipaði
þriðja sæti á lista íramsóknarmanna
á Reykjanesi. Fagnaðarlátunum ætl-
aði aldrei að linna. Sigurvegarinn gat
sig vart hrært fyrir hamingjuóskum.
Eftir að hafa kvatt stuðningsmenn
sína í Hafnarfirði hélt Steingrímur
aftur til samkvæmis á heimili sínu þar
sem meðal annarra vom fyrmefndur
Ninni og Jón Skaftason borgarfógeti
ásamt fjölskyldu sinni. Jón er fyrrum
þingmaður framsóknarmanna í
Steingrímur Hermannsson og Jón Skaftason borgartógeti mæta á kosningagleði framsóknarmanna í Hafnarfirði.
DV-mynd GVA
Reykjaneskjördæmi og náði því einu
sinni að fá 23,7 prósent atkvæða sem
er töluvert betri árangur en Steingrím-
ur náði nú.
„Ég hefði ekki skipt mér af þessum
kosningum nema vegna þess að ég var
farinn að halda að Steingrímur væri
að falla,“ sagði Jón Skaftason. Að-
spurður hvers vegna . sigurganga
Steingríms hefði ekki teygt sig yfir
lækinn, til Reykjavíkur og jafnvel
lengra, svaraði Jón: „Það skiptir
miklu máli hvaða persónur em í fram-
boði.“
Frú Edda Guðmundsdóttir sam-
gladdist bónda sínum ásamt gestum á
forsætisráðherraheimilinu í Amamesi
kosninganóttina. Þegar DV spurði
hana hvort hún hefði ekki frekar ósk-
að þess að Steingrímur hefði fallið af
þingi og fyrir bragðið orðið meira
heima við svaraði hún: „Þetta er erfið
spuming. Má ég ekki svara henni
seinna?"
-EIR
Gott starf
í ríkisstjóminni
vegur þyngst
- sagði Guðmundur G. Þórarinsson
„Mér líst vel á stöðuna," sagði Guð-
mundur G. Þórarinsson, efsti maður á
lista Framsóknarflokksins í Reykjavík
og nú þingmaður, eftir að fyrstu tölur
í kjördæminu vom ljósar. „Þetta er
talsvert miklu betra en skoðanakann-
anir bentu til. Það bendir flest til að
við fáum þrjá þingmenn hér á suðvest-
urhominu í staðinn fyrir einn.“
Guðmundur kom til kosningavöku
Framsóknarflokksins skömmu eftir að
fyrstu tölur vom birtar og var vel
fagnað enda stemningin þar á bæ góð
og menn að hvískra sín á milli: „Er
ég orðinn varaþingmaður?" spurðu
menn sessunauta sína.
Guðmundur neitaði því að hafa ver-
ið með „prófskrekk" þegar hann beið
eftir fyrstu tölum. „Ég átti þó frekar
von á að við Finnur Ingólfsson værum
báðir inni,“ sagði Guðmundur.
„Ég er viss um að auglýsingamar,
sem við stóðum fyrir, hafa haft eitt-
hvað að segja en ég held þó að störf
okkar manna í ríkisstjórninni vegi
þyngst. Það gerðu allir ráð fyrir að
við myndum tapa, og það jafhvel vem-
lega, en ég held að allir geti verið
sáttir við þetta.
Hér í Reykjavík hefur verið vel unn-
ið og ég vil þakka öllum sem lögðu
hönd á plóginn fyrir vel unnin störf,“
sagði Guðmundur G. Þórarinsson.
-GK
Guðmundur G. Þórarinsson spáir i stöðuna með Finni Ingólfssyni.
DV-mynd GVA
Vilhjálmur Egilsson, Norðurlandi vestra: Áfall fwir flokk
og þjóð „Ég taldi að við sjálfstæðismenn fengjum 20-21 þingmann og ef það hefði gengið eftir hefði ég átt góða möguleika. Þegar vel gengur velur þjóðin sér gjaman eyðslu og mgl. Þessi kosn- ingaúrslit eru mikið áfall fyrir Sjálfstæðisflokkinn og þjóðina."
Jón G. Hauksson, DV, Akureyri: „Ég stefndi að því að komast inn og hélt reyndar að möguleikamir væru góðir. Þess vegna urðu þessi úrslit mér vonbrigði," sagði Vil- hjálmur Egilsson, annar maður á lista Sjálfstæðisflokksins í Norður- landskjördæmi vestra.
Kampakátir forsvarsmenn Sjálfstæðisflokksins slökuðu á eftir erfiða kosningabaráttu á kosningafagnaði i Broad-
way. Gamanið fór hins vegar nokkuð aö kárna þegar tölurnar fóru að berast. DV-mynd KAE
Lvtill fögnuður á kosninga-
fagnaði sjálfstæðismanna
Sjálfstæðismenn héldu kosningahá-
tíð sína í veitingahúsinu Broadway.
Þar hafði mikið verið vandað til. Til
dæmis var risastór sjónvarpsskermur
á sviðinu í Broadway þannig að fólk
gæti fylgst sem best með úrslitum
kosninganna.
Frá upphafi var ljóst að kosningaúr-
slitin yrðu sjálfetæðismönnum nokkuð
erfið en menn báru sig þó mannalega
framan af. Viðmælendur DV vom
flestir nokkuð bjartsýnir áður en
fyrstu tölur birtust og töldu að flokk-
urinn ynni vamarsigur.
Þegar tölur fóm hins vegar að ber-
ast var greinilegt að mönnum var mjög
bmgðið. Fólk gerði sér fljótt grein fyr-
ir því hvert stefndi og innan tíðar fóm
frambjóðendur og aðrir forystumenn
flokksins að hverfa á braut.
Slökkt var á skerminum stóra á svið-
inu og þeir fáu sem eftir vom gerðu
sitt besta til þess að skemmta sér örlít-
ið eftir erfiða kosningabaráttu. -ES
„Sjáiði bara gömlu refina“
„Það væri flott ef við héldum 14
mönnum," sagði spennt framsóknar-
kona þegar fyrsta landsspáin birtist í
sjónvarpinu. „Ég er viss um að Finnur
er nærri því inni í Reykjavík," sagði
flokksbróðir hennar.
Framsóknarmenn héldu kosninga-
vöku að Borgartúni 18 og þar var
tölum ákaft fagnað og stemning góð.
Það mátti heyra saumnál detta í saln-
um þegar tilkynnt var að fyrstu tölur
væm að koma og síðan braust út fögn-
uður. Fyrstu fréttir af géngi þeirra
manna í Norðurlandskjördæmi vestra
þóttu lofa góðu. „Sjáiði bara gömlu
refina fyrir norðan," sagði einn sá
ákafasti.
„Mér líst ákaflega vel á stöðuna,“
sagði Sigríður Hjartar sem skipaði
þriðja sæti á lista framsóknarmanna
í Reykjavík. „Það er ekki annað að
sjá en að fylgisaukningin sé geysimik-
il á Reykjanesi og það stefhir i góða
kosningu í Reykjavík."
Menn á kosningavökunni vom á
einu máli um að fylgisaukninguna á
suðvesturhominum mætti þakka
Steingrími Hermannssyni öðrum
fremur. Heldur urðu menn þó undir-
furðulegir þegar spurt var um áhrif
allra auglýsinganna en Sigríður Hjart-
ar skar upp úr með þýðingu þeirra:
„Þær hafa ekki spillt fyrir,“ sagði hún
og þar með var það útrætt.
Sigríður sagði að stemningin í kosn-
ingabaráttunni hefði verið heldur dauf
framan af en batnað stórlega þegar á
leið og verið mjög góð undir lokin.
„Við vorum ekki bjartsýn í byrjun en
komumst fjótt að þvi að við höfðum
byrinn með okkur,“ sagði Sigríður.
Þegar fyrstu tölur úr Norðurlands-
kjördæmi eystra komu var ljóst að
Stefán Valgeirsson næði kjöri og
dyggur framsóknarmaður hnippti í
flokksbróður sinn og sagði: „Heyrðu,
þetta hlýtur að vera kassinn af Mel-
rakkasléttu sem þeir hafa talið upp
úr.“
-GK