Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1987, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1987, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987. ______________Fréttir Dýrara með leigubílum - hækkunin tíu prósent Gjaldskrá leigubíla hefur hækkað. Meðatalshækkun er tíu prósent. Startgjaldið kostaði áður 130 krónur en kostar nú 140 krónur, hækkunin er 7,7%. Bið- og kílómetragjald hækk- aði um 11,62%. Ein klukkustund í bið kostaði áður 552 krónur en kostar nú 617 krónur. Hver ekinn kílómetri kost- ar nú 19,92 í dagvinnu en 29,97 í næturvinnu. Áður kostaði hver kíló- metri 17,86 í dagvinnu en 26,84 í næturvinnutaxta. Verð á biðtíma er eins, bæði daga og nætur. -sme Húsnæði Folda- skóla spmngið - íbúar funda um málið Alvarlegt ástand hefur skapast í húsnæðismálum Foldaskóla í Grafar- vogi. Aðeins einum áfanga af fjórum er lokið og tekur hann 200 böm en talið er að nemendur verði á sjötta hundrað þegar skólinn hefst aftur í haust. íbúar í Grafarvogi hafa nú ákveðið að halda fund um þetta mál á þriðjudaginn kemur og hafa þeir boðið Davíð Oddssyni borgarstjóra og forráðamönnum skólamála á fúndinn. I upphafi var ráðgert að byggja Foldaskóla upp á fjórum árum í fjórum áfongum en nú, þremur árum síðar, er bara lokið við fyrsta áfanga og segja íbúar í Grafarvogi að það stefni í hið mesta óefhi næsta vetur. -S.dór Vöruskipta- jöfnuðurinn óhagstæður Fyrstu 3 mánuði ársins varð vöm- skiptajöfnuðurinn óhagstæður um 1,2 milljarða króna því inn vom fluttar vörur fyrir 11 milljarða en út fyrir 9,8 milljarða króna. Aftur á móti var hann hagstæður í marsmánuði um 297 millj- ónir króna. I fyrra varð vöruskipta- jöfriuðurinn hagstæður fyrstu 3 mánuðina sem nam 441 milljón króna. Verðmæti vömútflutnings fyrstu 3 mánuði ársins var 7% meira á föstu gengi en á sama tíma í fyrra, en verð- mæti vöminnflutnings var 27% meira en á sama tíma í fyrra. -S.dór Verðlagsráð sjávarútvegsins: Árangurslaus fundur í gær í gær var haldinn fundur í Verð- lagsráði sjávarútvegsins um nýtt fiskverð eða að gefa fiskverð frjálst. Búist var við að einhver ákvörðun yrði tekin á fundinum í gær en svo varð ekki. Hann stóð stutt og var ár- angurslaus með öllu. Ami Benediktsson, fulltrúi fisk- vinnslu Sambandsins, lýsir því yfir í blaðaviðtali í gær að hann sé andvígur því að gefa bolfiskverðið frjálst og standi hann við þessa skoðun sína í Verðlagsráði mun fiskverðið ekki verða gefið frjálst vegna þess að allir aðilar í ráðinu verða að vera því sam- þykkir. Útvegsmenn og sjómenn era hlynntir því að fiskverð verði gefið frjálst. -S.dór mm vm) 'N Ummæil Jóns Páic- ,^!f!?i!.?.fÆðlsky“utrimmtækinu. það hentar' W^Mdunni tTað haldTsTr í'f^| j° Burt með aukakíló. Æfið 5 mín. á dag. Til þess að ná árangri verður að æfa hinar þrjár mikiivægu undirstöðuæffngar dagiega. Eftir að byrjað er að aefa samkvæmt æfingar- prógrammi mótast vaxtarlag líkamans af sjálfu sér. Æfing 1 Þessl aefing er fyrir magavöðva og stuðlar að mjóu mittl Setjist á sætlð á trimmtækinu, leggið fæturna undir þverslária, hendur spenntar aftur fyrlr hnakka. Látið höfuðið síga hægt að gólfi. Efri hluti líkamans er reistur upp og teygður í átt að tám. Mikilvægt: Æfingu þessa verður að framkvæma með jöfnum hraða án rykkja. í byrjun skal endurtaka æfinguna flmm sinnum, en síðan fjölga þelm í allt að tíu slnnum. og Þessl aeflng er fyrir handleggl Leggist á hnén á sætlð á trlmmtæki höndum um vlnklana, handf _ stífir allan tímann. Teygið úr fó renni út á enda, hnén dregln Æfingln endurtekin a.m Æfing 3 Þessi æfing er tll þess að þjálfa fætur og handieggl. Setjist á sætið og takið báðum höndum um handföngin á gormunum og dragið sætið að vinklunum. Teyglð úr fótunum og hallið efri hluta líkamans aftur og togið í gormana. Haldlð gormunum til sklptis. Æflngln endurtekln a.m.k. tíu sinnum. Enginn líkami er góður án vöðva í brjósti, maga og bakhluta Kúlumagí, fitukeppir, slöpp brjóst, slappur bakhluti o.s.frv.) Allt þetta sýnir slappa vöðvavefi. Byrjaöu strax að stækka og styrkja vöðvana þlna með þessari árangursrlku og eölilegu aðferð. vfidvar S/«ipP'r tvöpvar IJrjob Wuiuivikivur nwUivMvnr Slappir vöðvnr ÆJðir vik)vur Leggðu fljótt af Misstu aukakíló með því að æfa 5 mín. á dag. á \s^rsáð\r óta^ÍSar a Verð aðeins 2.890.- Pöntunarsími 91-651414 Símapantanir alla daga vikunnar kl. 9.00-22.00 Póstverslunin Príma Box 63, 222 Hafrrarfirði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.