Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1987, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1987, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987. Islensk tunga Enn um fjölmiðla og málfar í síðasta pistli fjallaði ég um áhrif fjölmiöla á málfar og lofaði jafn- framt að halda því áfram í næstu greinum. Og loforð eru ýmist gefin til að halda þau eða svíkja. Ég hallast að hinu fyrrnefnda. En oft er erfiðara að standa við orð sín en að láta það eiga sig. Líklega lofum við um of. Það er stundum kallað að lofa upp í erm- ina sína. Um það bil sem ég var sestur við tölvuna og kominn í stellingar sem hæfðu því að uppfylla loforð mitt, þá hringdi síminn. Viðmælandinn var vinur minn og uppspretta at- hugasemda, Helgi Hóseasson. Hann vildi vekja athvgli á því að þulir útvarps töluðu sífellt um enda fyrir anda. Mér vafðist í fyrstu tungan um höfuðið eins og oft vill verða en hún lagðist í samt lag eft- ir nokkrar útskýringar. Um var að ræða orð eins og nem- endum fyrir nemöndum, byrjend- um fyrir byrjöndum o.s.frv. Þetta fannst Helga andlaust hjal, að taka enda og iafnvel endur fram yfir anda. Og þó eru andar ekki í neinu sérstöku uppáhaldi hjá hon- um. Hann nefndi til vitnis kennara austan af fjörðum, sem athygli mín náði ekki nafni á. Hann sagði allt- af nemöndum sínum til syndanna, ef með þurfti. Sjálfsagt hefur hann líka hælt nemöndum sínum. Þá rifjaðist upp fyrir mér gömul kennslubók í ensku sem ég lærði í barnaskóla. Sú var eftir Boga Ól- afsson og í henni stóð: Handa byrjöndum. Helgi dró fram annað vitni, Grím Thomsen og rímur hans af Búa Andríðarsyni og Fríði Dofradóttur. Þar kemur fyrir komöndum. Loks vitnaði hann um anda- og draugatrú meistara Þórbergs. Reyndar eru áhöld um það hvort sú trú hafi verið einlæg eða leik- araskapur. En allt um það, Helgi tók anda framyfir enda. Þá er það alvara málsins Öllu gamni fylgir nokkur alvara og á það ekki síður við um mál- Eitt vakti strax athygli mína. Það er að tiltölulega fá þessara orða eru til í tveimur útgáfum í þágufalli fleirtölu. Ég kann aðeins þrjú, byrj- öndum, nemöndum og komöndum. Þau kunna að finnast fleiri en hin útgáfan er langtum algengari. Enginn mundi segja: Verkafólkið gat skít í tilboðið frá atvinnurek- öndunum. Eða: Þjóðin hafði um langa hríð engan frið fyrir fram- bjóðöndum. (í tilefni þessara setninga dettur mér í hug ljóð- línan: Hér á reiki er margur óhreinn andinn... Það skyldi þó ekki vera að Grímur heitinn hafi átt við atvinnurekanda eða fram- bjóðanda þegar hann setti saman kvæði sitt.) Að öðru leyti stóð ég orðlaus frammi fyrir þessum spurningum. Næst varð því fyrir mér að leita upplýsinga. Engar fann ég í bóka- skápnum mínum og datt þess vegna í hug að leita til Islenskrar mál- nefndar. Sú stofnun á að vera alrtienningi til ráðuneytis um ís- lenskt mál og ég vissi af reynslu að þaðan fer maður ekki bónleiður til búðar. Öruggar skýringar fengust ekki enda ekki við því að búast undir- búningslaust. Óhætt er þó að fullyrða að e- beygingin (nemendum) er eldri og upprunalegri. Hin útgáfan er til- komin fyrir u-hljóðvarp, þ.e. þegar a breytist í ö fyrir áhrif frá u; sbr. barn-börn, land-lönd o.s.frv. Það fylgdi sögu að um væri að ræða áhrifsbreytingu, af því að sama breyting verði í orðum þar sem svipað stendur á, til dæmis félagi-félögum. Nú sé ég að ég hef svikið eitt lof- orð í dag, nefnilega það að ræða frekar um fjölmiðla og málfar. Tit- ill greinarinnar er þess vegna algert ómark en það tekur því ekki að breyta honum úr því sem komið er. Að svo mæltu vona ég að allir eigi andríka helgi og velji sér anda eftir smag og behag, eins og dansk- urinn segir. nafnorðum með tilheyrandi fall- beygingu o.s.frv. Þá er komið að kjarna málsins, nefnilega beygingu nafnorða sem enda á -andi. Tökum byrjandi. Það beygist svona: Eintala byrjandi byrjanda byrjanda byrjanda Fleirtala byrjendur byrjendur byrjendum/byrj- öndum byrjenda. Ýmsar spurningar vakna. Hver er merking viðskeytisins -andi? Hvers vegna eru til tvær útgáfur af þágufalli fleirtölu, byrjendum/ byrjöndum? Eins og fyrri daginn er auðveld- ara að spyrja en svara. Þao ruglast margir á endum og öndum, nemendum og nemöndum. fræði en önnur svið mannlífsins. Þetta ,.enda og anda“ hjal greip athygli mína og ýmsar spurningar vöknuðu. Umrædd orð eru þau sem enda á -andi í íslensku. Og ekki öll, heldur aðeins hluti þeirra. Sagnir sem standa í lýsingar- hætti nútíðar hafa þessa endingu, -andi: sbr. syngjandi, skrifandi, tal- andi. hoppandi, fljúgandi, étandi og sofandi. Stundum taka þessar sagnir upp á þeim ósköpum að beygjast og bæta við sig greini. Það er nokkuð sem einungis nafnorðum leyfist, samkvæmt lögum málfræðinnar. Tökum sem dæmi orðin eigandi og leigjandi í setningunni Eigand- inn trylltist þegar hann sá hvernig leigjandinn hafði leikið íbúðina. Sagnirnar eru þar með orðnar að íslensk tunga Eiríkur Brynjólfsson Vísnaþáttur Blunda vil Tvö athyglisverð átök hafa verið gerð á síðustu mánuðum til þess að hlúa að minningu og virðingu Kristjáns Fjallaskálds sem sjálf- sagt er að fara um nokkrum orðum í vísnaþætti. Fluttur hefur verið fróðlegur og smekklegur sjón- varpsþáttur um skáldið, frumsýnd- ur í vetur og endurfluttur á þessu vori. Ennfremur var í vetur gefin út, með fyllri ævisögu en áður, aukin útgáfa allra tiltækilegra ljóða hans. Fyrir þessu hefur staðið og stjórnað ungur bókmenntafræð- ingur, Matthías Viðar Sæmunds- son, sem nýlega hefur verið settur til virðulegs embættis við Háskóla íslands. Kristján Jónsson, auknefndur Fjallaskáld, 1842-1869, er einstæð- ur maður í íslenskri bókmennta- sögu. Ég segi ekki ævintýramaður í sögunni en það heiti hefði verið eðlilegt að gefa flestum öðrum mönnum en einmitt þessu skáldi. Hann var eitt af harmabörnum okkar þjóðmenningar, eins og Jón- as, Breiðfjörð og Bólu-Hjálmar. Sá síðastnefndi var ódrepandi, Krist- ján og hinir, sem ég nefni, féllu fyrir aldur fram, án þess að venju- legum sjúkdómum eða slysum væri um að kenna. Með vissum hætti urðu öll þessi skáld óskabörn þjóð- arinnar, ljóðskáld, eins og slíkir menn áttu helst að vera, og kross- menn skáldskaparins á íslandi. Við getum talið upp fjölda slíkra á öll- um okkar öldum og jafnvel enn myndu gáfumenn fást í þessi hlut- verk með brennivín, eitur og óhamingjusamar ástir sem sjálf- sögð hjálpargögn. Ævilínu Kristjáns má draga með stuttu striki. Hann missir föður sinn ungur og móðirin verður að giftast aftur til þess að reyna að halda saman heimilinu. Jafnvel það urðu örlagarík mistök vegna þess að mannsvalið var ekki heppi- legt. Gáfaðir synir lenda snemma á flækingi um fjallakot Austurlands. Kristján kemst samt til menntunar og verður á örfáum æviárum at- hyglisvert skáld en ofurviðkvæmni og óheppilegur tíðarandi drepur hann. Það er ekki fyrst og fremst fátæktin. Ég horfði á sjónvarpsþáttinn 'í bæði skiptin. Hann var óvenju vel heppnaður, þökk sé Matthíasi, per- sónugervingi skáldsins, óþekktum manni, Rúnari Guðbrandssyni, og Þorsteini frá Hamri, að ónefndum öllum hinum sem að gerð þáttarins stóðu. Þar var allt vel gert og frá- bært val. Um útgáfu á ljóðasafninu og formálann ætla ég ekki að ræða hér. Ég er vel kunnugur ljóðum Kristjáns og bókmenntalegri um- fjöllun. Ég las ungur æviminningar Friðriks Guðmundssonar og þekkti Benjamín Sigvaldason þjóðsagna- safnara en þeir, ásamt skólabræðr- um Kristjáns, eru helstu upplýs- ingamenn um ævi skáldsins og raunveruleg örlög. ég í bárum þímim Vísnaþáttur Það pláss, sem eftir er, fer til að birta nokkrar af vísum skáldsins, og eru bæði yngri og eldri lesendur hafðir í huga. Lausavísur Engan trúan á ég vin, auðnudagar þverra. Einn ég harma, einn ég styn, einn ég tárin þerra. Einn ég gleðst og einn ég hlæ, er amastundir linna. Aðeins notið einn ég fæ unaðsstunda minna. Þegar dynur harmahregg og hylur ljósið bjarta, þegar sorga eituregg er þér lagt að hjarta. Lát þá, vinur, áfengt öl örva hjartadreyra. Svo skal maður bæta böl að bíða annað meira. Vinakveðjur Vinur Kristjáns, Jón Ólafsson, skáld og ritstjóri, orti: Beiskjugalli blandast æ bestu unaðsstundir. Sanna gleði fyrst ég fæ foldarsverði undir. Það er eins og svona bölsýnis- kveðskapur hafi verið í tísku á þessum árum, enda bætti Kristján strax við: Illt er að hreppa auðnurán illum tældur draumi, síðan flytjast friðar án í forlaganna straumi. Allt er horfið heimsins lán hvergi gleði nýt ég. Trúar, vonar, ástar án einn því flækjast hlýt ég. Enginn spornar ýta við örlaga þungum straumi. Ó, að ég mætti finna frið fjarri heimsins glaumi. Þær vísur, sem við birtum hér eftir Kristján, eru nokkuð ein- hæfar. Stundum var honum bjart- ara fyrir augum og fyrirsögnin á þættinum er úr Dettifosskvæðinu sem fyrst sýndi þjóðinni að hér fór enginn meðalhagyrðingur. Fleiri slík fylgdu á eftir og opnuðu fátæk- um fjallastrák ýmsar dyr. En samt fór sem fór. Svart fyrir augum Allt þó sýnist blítt og bjart blysum fyrir hvarma, innra getur manni margt megna vakið harma. Aldrei græt ég gengna stund, en gleðst af því sem líður. Ljóst ég veit, að læknuð und lengur ekki svíður. Senn í hörðum banablæ brotnar andarstofa. Andvökulaust eina ég fæ eilífa nótt að sofa. Utanáskrift: Jón úr Vör, Fannborg 7, Kópavogi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.