Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1987, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1987, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987. Utlönd Ný sending af frábœrum fatnaði. Jacques Chlrac, forsætisráðherra Frakklands, og Mikhail Gorbatsjov, leið- togi Sovétríkjanna, takast í hendur fyrir fund sinn í Moskvu í gær. Símamynd Reuter Leiðréttu misskilning Jacques Chirac, forsætisráðherra Frakklands, sagði í. gær að fundur hans með Mikhail Gorbatsjov, ,Ieið- toga Sovétríkjanna, hefði verið gagnlegur að því levti að þeim hefði tekist að leiðrétta ýmiss konar' mis- skilning sem valdið hefur stirðnandi sambúð landanna tveggja. Chirac, sem er staddur í þriggja daga opinberri heimsókn til Sovétríkjanna, sagði hins vegar að enginn árangur hefði náðst í tilraunum þeirra til að bnía bilið í afstöðu Frakklands og Sovétríkjanna í afvopnunarmálum. Frakkar hafa tekið dræmt undir þær hugmyndir sem Sovétmenn hafa að undanfömu sett fram um afvopnun. „Við skiljum afstöðu hvor annars betur,“ sagði-Chirac við fréttamenn að afloknum liðlega íjögurra klukku- stunda íúndi með Gorbatsjov, „en skoðanir okkar eru enn ólíkar." Mótmæla manntali Andstæðingar manntalsins, sem fara á fram í Vestur-Þýskalandi 25. maí næstkomandi, réðust á fimmtu- dagskvöld inn á fótboltavöll í Dort- mund og máluðu slagorð á völlinn með hvítri málningu. Hvöttu andstæð- ingamir almenning til þess að taka ekki þátt í manntalinu. Atburðúrinn átti sér stað fáeinum klukkustundum áður en mikilvægur leikur átti að hefj- ast. Græningjar hafa meðal annarra hvatt fólk til þess að mótmæla mann- talinu. Fullyrða þeir að yfirvöld komi til með að fá of miklar upplýsingar um þegnana með manntalinu. Krefjast brott- flutnings allra SS-20 eldflauga V amarmálaráðherrar ríkj a Atlants- hafsbandalagsins lögðu í gær ffarn þá kröfu að Sovétmenn tækju niður allar SS-20 eldflaugar sínar, sem eru hluti meðaldrægs kjamorkuvigbúnaðar þeirra, bæði í Asíu og Evrópu. Sögðu ráðherramir ákvæði þess efhis verða að vera hluta samkomufags stórveld- anna um meðaldrægar eldflaugar í Evrópu. Caspar Weinberger, vamarmálaráð- herra Bandaríkjanna, sem átti upptök- in að þessari kröfu, vildi ekki tjá sig um hvort Bandaríkjamenn myndu breyta í þessa vem samningsuppkasti því sem nú liggur fyrir fr á þeim í Genf. Samkvæmt drögum þessum yrði Sov- étmönnum heimilt að halda eitt hundrað SS-20 kjamaoddum, sem beint væri að Asíu, þótt þeir fjarlægðu þær eldflaugar er beinast gegn Evr- ópu. Sovéska fréttastofan Tass birti í gær viðbrögð við þessari kröfu vamar- málaráðherranna og sagði að krafa um að teknar verði niður allar meðal- drægar eldflaugar, bæði Sovétríkj- anna og Bandaríkjanna, væri ekki í samræmi við samkomulag leiðtoga stórveldanna tveggja á Reykjavíkur- fúndinum síðastliðið haust. Vamarmálaráðherrum NATO-ríkj- anna tókst ekki að ná samkomulagi um sameiginleg viðbrögð við umdeild- um áætlunum Sovétmanna um brott- flútning skammdrægra eldflauga frá Evrópu. Helmut Kohl, kanslari Vestur- Þýskalands, sagði í gær að bann við skammdrægum eldflaugum myndi skapa aukna hættu fyrir land sitt, frá smærri hemaðarkerfum Sovétríkj- anna. Hvatti hann til þess að stórveld- in gerðu með sér samkomulag er næði til allra kjarnorkuvopna sem draga eitt þúsund kílómetra eða styttra. Maður i nautabanaklæðum kveikir hér í félaga sinum með nautsgrímuna. Það skal tekið fram að „nautið" var í eldtraustum klæðum. Atburðurinn átti sér stað fyrir utan spánska konsúlatið í Frankfurt og voru þeir félagar ásamt öðrum að mótmæla gamalli spánskri hefð. í litlum þorpum á Spáni skemmta íbúarnir sér á sérstökum hátiðum við að grýta naut, kveikja í þeim og drepa þau loks. Símamynd Reuter Placido Domingo þakkarfýrir sig Snorri Valsson, DV, Vín: Hér í Vínarborg stendur nú yfir hin árlega listahátíð „Wiener Fest- wochen". Þó að alltaf sé mikið um að vera í listalífinu hér tekur samt út yfir allan þjófabálk hið mikla framboð þessar vikui' sem hátíðin stendur. Hver stórstjaman á fætur annarri þenur sig í Operunni. Frumsýningar nýrra leikverka eru daglegir viðburðir og djassinn iðar á annarri hverri krá. En allt kostar þetta sitt og þó að miða- verð sé niðurgreitt af borgaryfirvöld- um vill veskið þynnast hjá þeim sem stíft sækja í krásimar. Þeir vom því ágætis undantekning, tónleikamir á Ráðhústorginu síðast- liðinn miðvikudag. Þar komu ffam margir ágætir skemmtikraftar en rús- ínan í pylsuendanum var þó Placido Domingo. Hann söng þama án endur- gjalds í þakklætisskyni fyrir dyggileg- an stuðning Vínarborgar við fjársöfn- un hans til hjálpar fómarlömbum jarðskjálftanna i Mexíkó á síðastliðnu ári. Þrátt fyrir hellirigningu létu fimmt- án þúsund aðdáendur sig hafa það að standa og hlýða á söng Domingos. Hann lét sig síðan ekki muna um að syngja Othello eftir Verdi sama kvöld- ið og hafði hann varla tíma til að fara úr regnkápunni milli tónleikanna. Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækur 10-12 Lb óbund. Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 11-15 Sb 6 mán. uppsögn 11-20 Ib 12 mán. uppsögn 14-25,5 Sp.vél. 18 mán. uppsögn 22-24,5 Bb Ávísanareikningar 4-10 Ab Hlaupareikningar 4-7 Sp Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1,5-2 Ab.Bb, Lb.Sb, 0b,Vb 6 mán. uppsögn Innlán með sérkjörum 2,5-4 Ab.Úb 10-22 Innlán gengistryggð Bandaríkjadalur 5,5-6,25 Ib Sterlingspund 8-10,25 Ab Vestur-þýsk mörk 2,5-4 Ab Danskarkrónur 9-10,25 Ab ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennir vfxlar(forv.) 20-24 Bb.Sb, Úb Viöskiptavíxlar(forv.)(1) 22,8-26 eða kge Almenn skuldabréf(2) 21-27 Úb Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 21-24,5 Bb.Sb Utlán verðtryggð Skuldabréf Aö2.5árum 6-7 Lb Til lengri tíma 6,5-7 Bb.Lb, Sb.Úb Útlán til framleiðslu Isl. krónur 16,25-26 Ib SDR 7,75-8,25 Bb.Lb, Úb Bandaríkjadalir 8-8,75 Bb.Sb Sterlingspund 11,25-13 Bb.Vb Vestur-þýsk mörk 5,5-6,5 Bb.Lb, Úb.Vb Húsnæðislán 3,5 Lífeyrissjóðslán 5-6,75 Dráttarvextir 30 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala maí 1662 stig Byggingavísitala 305stig Húsaleiguvísitala Hækkaði 3% 1. aprll HLUTABRÉF Söluverö að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennartryggingar 110 kr. Eimskip 246 kr. Flugleiðir 170 kr. Hampiðjan 114 kr. Iðnaðarbankinn 124 kr. Verslunarbankinn 114 kr. / (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aöila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og sparisjóðir kaupa þó viðskiptavlxla gegn 21 % ársvöxtum. (2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskil- alána er 2% bæði á verðtryggð bg óverð- tryggð lán, nema i Alþýðubanka og Verslunarbanka. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank- inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb = Versl- unarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. Nánari upplýslngar um penlngamarkaðinn blrtast i DV á fimmtudögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.