Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1987, Síða 4
4
LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987.
Fréttir
Skuttogarinn Tálknfirðingur:
Hefurfengið þúsund lestir
af grálúðu á einum mánuði
Togarinn Tálknfirðingur hefur á
einum mánuði veitt 1.000 lestir af grá-
lúðu í fimm veiðiferðum og hefur
aflinn bæði verið seldur út í gámum
og unninn í Hraðfiystihúsi Tálkna-
fjarðar. Eins og DV hefur áður skýrt
frá hefur verið um grálúðumok að
ræða hjá togurunum á Vestfjarðamið-
um síðan veiðamar hófust í lok apríl.
„Þetta hefur gengið ágætlega en þú
gætir eflaust fundið fleiri togara með
sama aflamagn og við á þessum tíma,“
sagði Öm Sveinsson, skipstjóri á
Tálknfirðingi, í samtali við DV í gær.
Hann sagði að í sjálfu sér veiddist
ekkert betur af grálúðunni nú en í
fyrra, það væm bara svo miklu fleiri
togarar sem stunduðu veiðamar nú
en í fyrra. Ástæðan er fyrst og fremst
gott verð fyrir grálúðuna öfugt við það
sem var hér áður fyrr.
Öm sagði að grálúðuveiðamar væm
mikiil þrældómur fyrir sjómennina því
segja mætti að unnið væri allan sólar-
hringinn þegar svona vel veiddist. Á
grálúðumiðunum væri mjög vondur
botn sem skipstjórar kölluðu gjaman
„Hampiðjutorgið" sökum þess hve
hann slítur veiðarfærunum og færir
Hampiðjunni aukin viðskipti. Mikið
Öm Sveinsson, skipstjóri á Tálknfirð-
ingi: þúsund lestir af grálúðu í fimm
veiðiferðum. DV-mynd GVA
væri því að gera um borð í veiðarfæra-
viðgerðum, auk þess sem mikið verk
væri að gera að aflanum og við að ísa
hann í kassa. Hann sagðist búast við
að veiðunum lyki um næstu mánaða-
mót. Þá sagðist hann fara á þorsk-
veiðar á Vestfjarðamiðum enda ætti
Tálknfirðingur megnið af þorskkvóta
sínum eftir.
-S.dór
Kjaradeila flugumferðarstjóra:
Samningafundurinn fór
í deilur um lagakróka
- flugumférðaistjórar hafha að vísa verkfallsboðuninni til Félagsdóms
Kjaradeila flugumferðaretjóra
snýst nú meira um það hvort boðað
verkfall þeirra 25. maí sé löglegt eða
ekki heldur en kjama málsins, nýja
kjarasamninga. I gær var boðaður
sáttafundur hjá rikissáttasemjara og
fór fundartíminn að mestu i deilur
um lagakróka. Pulltrúar fjármála-
ráðuneytisins vildu að báðir aðilar
stæðu að því að vísa verkfkllsboðun-
inni til úrskurðar Félagsdóms en þvi
höfhuðu flugumferðarstjórar. Nýr
sáttafundur hefúr ekki verið boðað-
ur.
Flugumferðarstjórar bentu á það í
verkfallsboðun sinni að þeir myndu
þrátt fyrir verkfall annast nauðsyn-
lega öryggisgæslu, svo sem gagnvart
sjúkra- og neyðarflugi vegna vama
landsins og öllu flugi tengdu lög-
gæslu. Fjármálaráðuneytið svaraði
verkfallsboðuninni með bréfi dag-
settu 11. maí þar sem verkfallið er
sagt ólöglegt samkvæmt 19. grein
laga nr. 94/1986 en samkvæmt 3ja
tölulið þeirrar greinar er starfe-
mönnum sem starfa við nauðsynleg-
ustu öryggisgæslu ekki heimilt að
fara i verkfalL ID V í gær vom þess-
ir aðilar í samgöngumálum tóldir
upp.
I gær svöruðu svo fluguxnferðar-
stjórar þessu bréfi og mótmæltu
lagatúlkun sem þar kemur fram.
Þeir benda á að skrá yfir þá sem
ekki mega fara í verkfall hafi aldrei
veríð birt í B-deild Stjómartíðinda,
sem sem lög gera ráð fyrir, og ekki
hafi verið haft samráð við flugum-
ferðarstjóra þegar listinn var
saminn, eins og ber að gera sam-
kvæmt lögunum, og því hafi þessi
listi enn ekkert gildi.
Búist er við að fjármálaráðuneytið
muni einhliða vísa verkfallsboðun-
inni til Félagsdóms en það verður
vart fyrr en eftir helgi.
-S.dór
Djúpivogur:
Heimamenn vilja ffá
kaupfélagsverslunina
- hafa skipað nefhd til að semja við Sambandið
Á borgarafundi á Djúpavogi í fyrra-
kvöld var samþykkt einróma að stefna
að því að heimamenn tækju við versl-
un Kaupfélags Berufjarðar sem er
gjaldþrota og greiðslustöðvun, sem
það fékk á sínum tíma, rennur út í
byrjun næsta mánaðar. Undanfarið
hefur kaupfélagið á Höfn rekið versl-
unina á Djúpavogi og heimamenn eru
ekkert yfir sig hrifnir af því.
„Á borgarafundinum var skipuð
nefnd til að fara í viðræður við Sam-
bandið um að heimamenn, sem vilja
taka að sér verslunina, fái húsnæði
það sem kaupfélagsverslunin er í en
Sambandið er stæreti kröfuhafinn í
þrotabúið. Og við trúum ekki öðru en
að Sambandið bregðist vel við þessu,“
sagði Ólafur Ragnareson, sveitarstjóri
á Djúpavogi, í samtali við DV.
Ólafur sagði ennfremur að það væri
trú heimamanna að þeir gætu rekið
þessa verslun ekki síður en kaupfélag-
ið á Höfn enda eðlilegra að verslunin
á staðnum sé rekin af heimamönnum
en ekki úr öðru plássi.
-S.dór
Verjendur bankastjóra Utvegsbankans:
Kreflast frávísunar
málsins
Veijendur ákærðra í máli ákæru-
valdsins gegn sjö fyrrverandi
bankastjórum Útvegsbanka íslands
kvöfðust frávísunar málsins við
þingfestingu þess í gær og lögðu
fram skriflega greinargerð máli sínu
til stuðnings.
Þetta eru veijendur þeirra Hall-
dórs Guðbjamasonar, Ólafe Helga-
sonar, Lánisar Jónssonar, Axels
Kristjánssonar, Ármanns Jakobs-
sonar, Jónasar G. Rafiiar og Bjama
Guðbjömssonar.
Þegar veijendur höfðu lagt fram
kröfu um frávísun málsins lýsti
Bragi Steinarsson saksóknari
ákæmatriðum og lagði fram máls-
skjöl. Því næst lét hann bóka afstöðu
embættis ríkissaksóknara til fram-
kominnar frávísunarkröfu og kom
þar meðal annars fram að við rann-
sókn málsins hefðu engin þau efni
eða atriði komið fram sem þentu til
refeiábyrgðar eða veittu gmndvöll
til saksóknar gegn bankaráðsmönn-
um Útvegsbanka íslands. Því breytti
það engu þó Jóhann Einvarðsson,
bróðir Hallvarðs Einvarðssonar rík-
issaksóknara, hefði átt sæti í
bankaráðinu en til þess var hann
kjörinn af Alþingi.
Pétur Guðgeirsson sakadómari tók
frávísunarkröfuna til úrskurðar og
sagði hann í samtali við DV að bú-
ast mætti við niðurstöðu eftir helgi.
-ój
„Við verðum að passa að vel fari um þau,“ hafa þeir Þorsteinn Páisson
og Friðrik Sophusson hugsað þegar þeir hagræddu bollum og diskum fyrir
viðræðufund þeirra og fulltrúa Alþýðuflokksins í Borgartúni 6 í gær.
DV-mynd GVA
Fundur Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks:
Viðræðumar
lofa góðu
- segir Jón Baldvin
Nú er ljóst að raunvemleg vinna
við myndun ríkisstjómar er komin í
gang fyrir alvöm. Fulltrúar Alþýðu-
flokks og Sjálfetæðisflokks áttu í gær
ítarlegar könnunarviðræður sem
stóðu seinni hluta dags og fram á
kvöld.
Jón Baldvin Hannibalsson og Jó-
hanna Sigurðardóttir, fulltrúar
Alþýðuflokksins, sögðu að loknum
fundinum að málefnalegri vinnu milli
flokkanna væri að sjálfeögðu ekki lok-
ið en hins vegar lofuðu viðræðumar
góðu.
Fulltrúar Sjálfctæðisflokksins, þeir
Þorsteinn Pálsson og Friðrik Sophus-
son, vildu ekki fullyrða hvort ljóst
væri að samstarfegmndvöllur væri
milli flokkanna. Nú segjast sjálfstæð-
ismenn þurfa að taka ákvörðun um
það hvaða stjómarmynstur verður fyr-
ir valinu og hefja viðræður samkvæmt
því mynstri.
Að sögn fulltrúa flokkanna var ekk-
ert rætt um hver hugsanlegur væri-
sem þriðji flokkur í samstjóm Al-
þýðuflokks og Sjálfctæðisflokks. Fyret
hefði verið nauðsynlegt að kanna
málefnalegan gmndvöll samstarfeins.
Eins og kunnugt er koma Kvenna-
listi og Alþýðubandalag helst til
greina sem þriðji flokkur. Alþýðu-
bandalagið er þó úr leik um stundar-
sakir vegna innbyrðis uppgjörs sem
m.a. fer fram á miðstjómarfúndi
flokksins nú um helgina.
Því er eins líklegt að byijað verði á
að ræða við Kvennalistann þó vitað
sé að áhugi á samstarfi við hann hafi
mjög dofnað, bæði í röðum alþýðu-
flokksmanna og þó sérstaklega í
Sjálfstæðisflokknum. -ES
Þorsfeinn Pálsson og Friðrik Sophusson, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, bjóða
þau Jón Baldvin Hannibalsson og Jóhönnu Sigurðardóttur, fulltrúa Alþýðu-
flokksins, velkomin til könnunarviðræðna vegna stjórnarmyndunar.
DV-mynd GVA