Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1987, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1987, Side 12
12 LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987. „Við ætlum okkur að ná árangri og við munum ná árangri." Það er forsætisráðherra Noregs, Gro Harl- em Brundtland, sem svo talar á fundi með blaðamönnum í Saltsjöbaden og á því augnabliki, sem orðin eru sögð, vill maður gjaman trúa þess- ari glaðbeittu konu. Það er talað um hana sem eina forsætisráðherra Norðurlanda sem náð hafi alþjóð- legri stöðu eftir morðið á Olof Palme. Og framganga hennar á norrænu ráðstefnunni um umhverfi og þróun, sem haldin var 7.-10. mai sl., færði sönnur á fæmi hennar og smitandi öryggi í alþjóðlegum samskiptum. Og erindi hennar við 100 sérfræðinga og stjómmálamenn af Norðurlönd- um og frá ýmsum þróunarríkjum og alþjóðastofnunum var að kynna skýrsluna „Our Common Future“ - Okkar sameiginlega framtíð - sem unnin hefur verið undir hennar stjóm á síðustu þremur árum. — Brandt — Palme — Brundtland — Ein af ástæðunum fyrir því að Gro var falin formennska í þeirri nefnd 21 fulltrúa frá jafnmörgum löndum sem vann þetta verkefni á vegum allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna var sú að hún er fyrsti umhverfissinninn og umhverfis- málaráðherrann í heiminum sem orðið hefur flokksleiðtogi og for- sætisráðherra. Þetta taldi Peres de Qucillar, framkvæmdastjóri Sam- einuðu þjóðanna, táknrænt fyrir það hversu umhverfismálin eru að verða miðlæg í stjórnmálunum. Brundtland-skýrslan kemur í kjölfar þeirra skýrslna sem unnar hafa verið fyrir tilstilli Sameinuðu þjóðanna og kenndar eru við Brandt og Palme. Þær fjölluðu um norður/suður vandann og um sam- eiginlegt öryggi. Sú skýrsla, sem nú liggur fyrir á bók eftir þriggja ára rannsóknir, yfirheyrslur og Gro Harlem Brundtland, forsætisráðherra Noregs, vex að virðingu og áliti viða um heim. Framganga hennar á norrænu ráðstefnunni um umhverfi og þróun færði sönnur á færni hennar og smitandi öryggi í alþjóðleg- um samskiptum. jöfnunar- og mengunarvandamál heimsbyggðarinnar. Hins vegar skilgreinir nefndin hagvöxtinn upp á nýtt og þá þannig að einungis framfaraleiðir (framþróunar- leiðir), sem svara þörfum og væntingum núlifandi kynslóðar án þess að tefla í tvísýnu mögu- leikum komandi kynslóða til þess að fullnægja sínum þörf- um, séu leyfilegar. Með þessa viðmiðun í huga verði að endur- skoða allar efnahagsákvarðanir heima fyrir og á alþjóðavettvangi. Á ráðstefnunni á Grand Hotel í Saltsjöbaden var Brundtland- nefndin gagnrýnd fyrir að gera lítið úr nauðsyn þess að ríku þjóðirnar létu af þeim lífsstíl sem ekki er lífs- skilyrðum á jörðinni bjóðandi. Gro Harlem Brundtland sagði að skýrslutextinn bæri að vísu ákveð- in merki sambræðslu ólíkra við- horfa en í honum væri að finna allar nauðsynlegar röksemdir fyrir jafnari skiptum á heimsvísu og nýju efnahagskerfi sem rétti hlut þróunarríkjanna. Framsetningin væri hins vegar við það miðuð að hún lokaði engum eyrum fyrirfram og hægt væri að ræða röksemda- færslu hennar við alla. Allir þyrftu að hlusta, ekki síst áhrifamenn í fjármála- og viðskiptaheiminum. Samtvinnun efnahags- og umhverf- ismála ætti að sannfæra þá eins og alla aðra um að varanleg fram- þróun með formerkjum Brundt- land-nefndarinnar er ekki síður til hagsbóta fyrir rika heiminn en þróunarlöndin. Erfitt verkeftii En Shridath S. Ramphal, fram- kvæmdastjóri Samveldislandanna, varaði sérstaklega við þeirri til- hneigingu Alþjóðabankans að gera kröfur um umhverfisvernd að yfir- varpi til þess að hliðra sér hjá lánveitingum. Sveltandi þjóð getur orðið að ganga nærri útsæðinu og Hagvöxtur að hætti Gróu samtöl um allan heim, snýst um samtvinnun efnahagsþróunar og umhverfisverndar. í rauninni má segja að Brundtland-nefndin haldi áfram röksemdafærslu Brandt- og Palme-nefndanna og felli niður- stöður þeirra inn í þá heildarsýn sem reifuð er í „Okkar sameigin- legu framtíð“. Við lestur skýrsl- unnar sveiflast maður milli örvæntingar og bjartsýni. Hér er ekki bara málað í svörtu og hvítu, heldur dregin upp marghliða mynd af möguleikum og mistökum. Von og vonleysi Sé litið á þróun mála frá því á umhverfismálaráðstefnu Samein- uðu þjóðanna, sem haldin var í Stokkhólmi 1972, hefur miðað í rétta átt á mörgum sviðum: Barna- dauði hefur minnkað, ólæsi minnkar hlutfallslega, stærri hluti barna hefur skólagöngu en áður og þeir sem komast á legg geta vænst þess að lifa lengur. „Græna byltingin“ hefur að mestu útrýmt svelti í Indlandi og Kína og fæðu- framleiðsla eykst nú hraðar en sem nemur fólksfjölgun í heiminum. Betri tök hafa náðst í baráttunni við ýmsar farsóttir heldur en var í byrjun síðasta áratugar. Og tækni- legir möguleikar til þess að draga úr mengun eru meiri en áður. En sé framantalið fallið til þess að auka vongleði þá er það sem á eftir kemur líklegt til þess að fylla bikarinn vonleysi. Sjöhundruð milljónir manna lifa við sárustu fátækt og þeim fjölgar ár frá ári. Sá fjórðungur jarðarbúa sem býr í iðnríkjunum notar 80% allrar orku og málma sem til sölu eru á jörð- inni, 85% af öllum pappír og yfir 50% allrar fitu o.s.frv. Bilið milli suðurs og norðurs eykst stöðugt. Víða í þróunarlöndum hefur efna- hagsástandi hrakað. Fallandi hráefnisverði samfara minnkandi lánveitingum og aðstoð fylgir auk- in fátækt, gróðureyðing og umhverfismengun. Oft er það þrautarlendingin að blóðmjólka þúfénað, mergsjúga gróðurmoldina og naga bithaga niður í rót. Eða slaka á kröfum um mengunarvam- ir til þess að lokka eiturspúandi iðnað frá ríku löndunum til þróun- arlandanna. Jarðarbúar eru nú um fimm millj- arðar og fjölgar um 100 milljónir árlega. Spár gera ráð fyrir því að á næstu öld muni mannkynið telja 10 til 14 milljarða einstaklinga, og ekki fjölga mikið úr því. Stærsta vandamálið er kannski ekki að framleiða fæðu fyrir allan þennan fjölda. Það er miklu verra viður- Norræn útsýn Einar Karl Haraldsson eignar að koma mat til þeirra sem hans þurfa við. Nú er t.a.m. tvöföld ársframleiðsla í komgeymslum iðnríkjanna meðan 3-400 milljónir manna draga fram lífið við hungur- mörkin. Og það er svo sérstakt áhyggjuefni að 90% fólksfjölgunar á sér stað í þróunarlöndunum, og þar af aftur 90% í yfirfullum stór- þorgarflæmum. Uppblástur er eitt helsta um- hverfisvandamál jarðarbúa. Á hverju ári eyðast skógar sem ná yfir álíka stórt landsvæði og ís- land. Og á hverjum níu mánuðum læsir eyðimörkin klónum í land- svæði á stærð við Sviss. Ofan á þessar ógnvekjandi staðreyndir bætist koltvísýringurinn, súra regnið, eyðing ózonlagsins, eitrun innhafa og útrýming dýra- og jurta- tegunda sem alvarlegar áminning- ar um slæma stjórnun og nýtingu náttúruauðlinda. Varanleg þróun Gro Harlem Brundtland lætur horfurnar ekki buga sig. Hún segir að skýrslan „Our Common Fut- ure“ sé pólitískt verkfæri sem nú beri að beita í öllum ríkjum heims og hvarvetna á alþjóðvettvangi. Hið nýja sem Brundtland-nefndin kemur með er kannski ekki mikið, en þó gæti hin nýja skilgreining hennar á hagvexti náð að skjóta rótum. Varanleg framþróun er lykilhugtakið sem nefndin leggur til grundvallar. Nefndarmennirnir 21, sem hafa ákaflega ólíkan bak- gunn, eru sammála um að hagvöxt- ur sé nauðsynlegur ef leysa á lausnin er ekki fólgin í því að neita henni um úttekt til þess að bæta sér missinn fyrir næstu sáningu. Starfsmenn Alþjóðabankans voru virkir þátttakendur í ráðstefnu rík- isstjóma Noðurlanda í Saltsjöbad- en, sem haldin var í tilefni af útkomu Brundtland-skýrslunnar, ábending Ramphals var áminning um það hversu torleyst þróunar- og umhverfisverndarverkefni eru. Sömu sögu sögðu einnig frásagnir fjórtán blaðamanna frá Asíu og Afríkulöndum af norrænum sam- starfsverkefnum í heimalöndum þeirra. í staðinn fyrir embættis- mannaskýrslur hafði verið brugðið á það ráð að gefa út greinar þeirra, sem margar eru mjög gagnrýnar, í fjórtán myndskreyttum bækling- um. En þrátt fyrir alla erfiðleika ætl- ar Gro Harlem Brundtland að ná árangri og m.a. er gert ráð fyrir að Sameinuðu þjóðirnar geri sérstaka framkvæmdaáætlun á grundvelli Brundtland-skýrslunnar, hugsan- lega með alþjóðasáttmála að markmiði. Víst er að leitoga nor- skra jafnaðarmanna bíða ærin verkefni jafnvel þó að Rolf Prest- hus, leiðtoga Hægri flokksins, takist að sameina borgaraflokkana um að fella stjórn Gro Harlem Brundtland í sumar. Einar Karl Haraldsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.