Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1987, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1987, Side 15
LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987. Kommúnistar á útisamkomu 1. maí árið 1934. Jón Baldvinsson, (ormaður Alþýðuflokksins frá 1916 -1938. Núverandi form- aður Alþýðuflokksins heitir i höfuðið á honum. En í stefnuskrá flokksins frá 1922 er skýrt kveðið á um það megin- markmið að koma öllum helstu framleiðslutækjunum í þjóðareign. Það kom hins vegar fljótt á daginn að flokkurinn var ekki nógu róttæk- ur fyrir þá verkalýðssinna sem sáu „roðann í austri" og tóku mið af þró- un mála austur á Volgubökkum. Byltingin og bolsévikkar Forvígismenn íslenskrar jafnaðar- stefnu sóttu flestir hugmyndir sínar til danskra jafnaðarmanna. En á sama tíma og jafnaðarstefnan var að festa rætur hér á landi elduðu jafnað- armenn og marxistar grátt silfur saman úti í Evrópu. Byltingin í Rússlandi árið 1917 átti enn eftir að skerpa ágreininginn. Hér á landi sem annars staðar hlaut byltingin að hafa feikileg áhrif á marga verka- lýðssinna og strax árið 1922 höfðu málsvarar byltingarinnar, kommún- istar, náð undir sig Jafnaðarmanna- félagi Reykjavíkur með þeim afleiðingum að félagið klofnaði. Árið 1926 stofnuðu kommúnista Jafnaðarmannafélagið Spörtu og sama ár fengu jafnaðarmenn því framgengt að Alþýðuflokkurinn gengi í 2. alþjóðasambandið sem var alþjóðlegt samband jafnaðarmanna. Þetta var mikill ósigur fyrir komm- únista sem vildu að Alþýðuflokkur- inn gengi í 3. alþjóðasambandið, Komintern, sem voru alheimssamtök kommúnista. Frá árinu 1922 störfuðu kommún- istar í skipulegum samtökum innan Alþýðuflokksins og börðust þar við jafnaðarmenn um völdin innan flokksins og verkalýðshreyfingar- innar. Meginágreiningur jafnaðarmanna og kommúnista var hugmyndafræði- legur. Jafnaðarmenn vildu ná sósíal- iskum markmiðum sínum með umbótastarfsemi innan ramma þing- ræðisins en kommúnistar trúðu á byltingu. Þeir voru ekki einungis þeirrar skoðunar að þeim bæri að stuðla að byltingunni með ráðum og dáð heldur héldu þeir því einnig fram að byltingin væri söguleg nauðsyn hvort sem mönnum líkaði betur eða verr. Hér að framan hefur verið minnst á ágreininginn um alþjóðlegt sam- starf en eftir að kommúnistum varð ljóst að þeir höfðu beðið lægri hlut innan Alþýðuflokksins settu þeir fram þá kröfu að verkalýðshreyfing- in yrði aðskilin Alýðuflokknum. Þessu voru jafnaðarmenn að sjálf- sögðu andvígir og þegar kommúnist- ar létu loks til skarar skríða og sögðu skilið við Alþýðuflokkinn var þessi ágreiningur talinn meginástæða klofningsins. Kommúnistar og Komintern Brynjólfur Bjarnason varð formað- ur Kommúnistaflokksins en aðrir áberandi forystumenn voru þeir Ein- ar Olgeirsson og Stefán Pétursson. Með skipulagi kommúnistaflokks- ins var reynt að ná fram furðulegu samblandi af mjög virkri þátttöku allra meðlimanna annars vegar og skilyrðislausri hlýðni þeirra hins vegar. kommúnistaflokkurinn var mynd- aður úr svonefndum „seilum" sem stofnaðar voru á vinnustöðum og í íbúðahverfum. Selluforminu var ætl- að að virkja þátttöku hins almenna flokksmanns. En á hinn bóginn ber þess að geta að kommúnistaflokkurinn var ekki sjálfstætt stjórnmálaafl heldur deild í alheimssamtökum kommúnista, Komintern. Alheimssamtökunum var stjómað frá Moskvu og þaðan fengu evrópskir kommúnistaflokkar línuna senda á fárra ára fresti. Snemma á þriðja áratugnum höfðu kommúnistar innan Alþýðuflokksins gengið til liðs við Komintern svo að afstaða þeirra gagnvart jafnaðar- mönnum var fengin beint frá al- heimssamtökunum. I áraraðir voru jafnaðarmenn ekki í húsum hæfir að áliti kommúnista enda boðaði rétt- línan frá Moskvu að jafnaðarmenn væru hvori meira né minna en höfuð- stoð auðvaldsins. Árið 1935 varð svo róttæk stefnu- breyting á afstöðu Komintern gagnvart jafnaðarmönnum. Þar munaði mestu um óttann við upp- gang fasismans í Evrópu. Nú var kommúnistum ætlað að ná samstarfi við jafnaðarmenn og í samræmi við þá afstöðu gerðu íslenskir kommún- istar Alþýðuflokknum mörg tilboð um samvinnu eftir 1935. Ekki voru allir meðlimir kommún- istaflokksins á einu máli um skilyrð- islausa hlýðni við Komintem og á timabili var það jafnvel álitamál hvort hann héldi sig á línunni. En réttlínumenn náðu yfirtökunum og andófsmenn voru annaðhvort reknir úr flokknum eða þvingaðir til hlýðni. Kommúnistar höfðu brennandi áhuga á hagsmunamálum verkalýðs- ins. þeir héldu uppi virku en öguðu félagsstarfi og höfðu á að skipa mælskum og ritfærum málsvörum. Öll þessi atriði urðu til þess að áhrif kommúnista á stjórnmál og þjóðlíf fjórða áratugarins voru mun meiri en kosningatölur gefa til kynna. Kjörfylgi þeirra var aldrei mikið á landsvísu en fór þó vaxandi. í sínum fyrstu kosningum árið 1931 fengu þeir 3% heildaratkvæði en í sínum síðustu kosningum fengu þeir 8,4%. Þessar tölur segja þó ekki alla sög- una því kommúnistar stóðu fyrst og fremst í baráttu við Alþýðuflokkinn um fylgi verkamanna í stærstu bæj- um landsins. Kjörfylgi kommúnista í stærstu bæjum á Islandi var í réttu hlutfalli við þau itök sem þeir höfðu í verka- lýðsfélögum viðkomandi bæjarfé- laga. Þannig höfðu kommúnistar mikil itök í verkalýðshreyfingu Norðurlands og þá sér í lagi á Siglu- firði og á Akureyri. Staða þeirra var einnig mjög sterk í Vestmannaeyjum og á Eskifirði. „Þar sem síldin og þorskurinn var, þar vorum við sterk- ir,“ er haft eftir Einari Olgeirssyni en hann átti öðrum fremur heiðurinn af vinsældum kommúnista á Norður- landi. Baráttan fyrir tilverurétti komm- únistaflokksins var því barátta um ítök í verkalýðshreyfingunni og þá baráttu þurfti kommúnistaflokkur- inn að há við Alþýðuflokkinn á árunum 1932-1934. Fyrstu tvö árin eftir stofnun kommúnistaflokksins störfuðu bæði kommúnistar og jafnaðarmenn að verkalýðsmálum innan ASÍ. En árið 1932 létu alþýðuflokksmenn til skar- ar skríða gegn kommúnistum í verkalýðsfélögunum. Markmið Al- þýðuflpkksins virtist vera í því fólgið að svipta kommúnista því fylgi sem þeir nutu innan verkalýðshreyfing- arinnar og einangra þá þannig sem ójarðbundinn pólitískan sértrúar- söfnuð. Herbragð jafnaðarmanna var af tvennum toga. í fyrsta lagi ætluðu þeir að útiloka þau verkalýðsfélög sem kommúnistar réðu yfir frá starfi í ASÍ en í öðru lagi ætluðu þeir að kljúfa þessi sömu félög og ná þannig af þeim samningsréttinum gagnvart atvinnurekendum. Því er skemmst frá að segja að fyr- irætlanir jafnaðarmanna fóru út um þúfur og eftir harðvítugar vinnudeil- ur norðanlands gátu kommúnistar hrósað frækilegum varnarsigri í bar- áttunni um verkalýðsfélögin. Árið 1940 rofnuðu svo endanlega skipu- lagstengsl ASÍ og Alþýðuflokksins. Þar með rættist langþráður draumur sjálfstæðimanna og kommúnista sem höfðu með sér bandalag í þessu máli þótt ólíkir hagsmunir réðu gerðum þeirra. Klofningur í þágu sameining- ar - kommúnistar verða sósíalistar Árið 1938 klofnaði Alþýðuflokkur- inn í annað sinn er nokkrir liðsmenn hans, með Héðin Valdimarsson í broddi fylkingar, gengu til liðs við kommúnista og stofnuðu Sameining- arflokk alþýðu - Sósíalistaflokkinn. Héðinn hafði um langt skeið verið einn helsti forystumaður Alþýðu- flokksins. Hann var talinn kappsam- ur og harður í horn að taka ef á reyndi. Héðinn var kosinn í bæjar- stjórn Reykjavíkur árið 1922 og hann varð þingmaður Alþýðuflokksins árið 1926. Hann var varaforseti ASÍ og þar með varformaður Alþýðu- flokksins þar til hann var rekinn úr flokknum. I alþingiskosningunum 1934 vann Alþýðuflokkurinn sigur og fékk tíu menn kjörna. I kjölfar kosninganna var svo mynduð samsteypustjórn Alþýðuflokks og Framsóknarflokks sem nefnd hefur verið stjórn hinna vinnandi stétta. Formaður og varaformaður Al- þýðuflokksins gáfu hvorugur kost á sér sem ráðherraefni í hina nýju rík- isstjórn. Þegar stjórnarsamstarfið var svo u.þ.b. hálfnað tók Héðinn að gagnrýna það og krefjast þess að Alþýðuflokkurinn sliti stjórnarsam- starfinu. I kosningunum 1937 tapaði svo Alþýðuflokkurinn þremur þingsæt- um en framsóknarmenn bættu við sig fjórum þingsætum og kommúnistar fengu þrjá þingmenn. Héðinn varð fyrir sárum vonbrigðum með kosn- ingaúrslitin og taldi nú einsýnt að jafnaðarmenn og kommúnistar ættu ■ nú að slíðra sverðin og sameinast í einum stórum jafnaðarmannaflokki. Hann kom því til leiðar að hafnar voru samningaviðræður um samein- ingu flokkanna. En eftir að kommún- istar höfðu krafist þess að hinn nýi flokkur tæki skilyrðislausa afstöðu með Sovétríkjunum og Komintern og eftir að kommúnistar höfðu hafn- að þingræðisleið jafnaðarmanna slitnaði upp úr viðræðunum. Héðinn sætti sig hins vegar ekki við þær lyktir en stefndi sjálfur að sameiningu flokkanna. Eftir nokkurt þóf var honum svo vikið úr Alþýðu- flokknum snemma árs 1938. Á haustdögum sama ár var svo Komm- únistaflokkurinn lagður niður en Héðinn og félagar stofnuðu ásamt kommúnistum nýjan flokk, Samein- ingarflokk alþýðu - Sósíalistaflokk- inn. Þessi klofningur var mikið áfall fyrir Alþýðuflokkinn. Flokkurinn tapaði þá að verulegu leyti forræði sínu í verkalýðsfélögum Reykjavíkur og eftir þennan klofning hefur Sós- íalistaflokkurinn og Alþýðubanda- lagið alltaf fengið meira fylgi í alþingiskosningum þangað til nú í nýafstöðnum kosningum. Sósíalistaflokkurinn tók eins og fyrri daginn afstöðu með Sovétríkj- unum þegar Stalín gerði griðasátt- mála við Hitler og þegar Rússar réðust á Finna. En Héðinn Valdi- marsson var ekki vanur því að láta segja sér fyrir verkum og sagði sig því úr Sósíalistaflokknum rúmu ári eftir að flokkurinn var stofnaður. Aftur klofið í þágu sameining- ar - sósíalistar verða allaball- ar Aftur klofnaði Alþýðuflokkurinn árið 1956 en þá var það Hannibal Valdimarsson sem lék aðalhlutverk- ið. Hann hafði lengi verið i forystu- sveit hinna svonefndu ísafjarðar- krata. Stefán Jóhann Stefánsson tók við formennsku í Alþýðuflokknum eftir fráfall Jóns Baldvinssonar árið 1938 og hann gegndi formennskunni næstu fjórtán árin. Á þessu tímabili urðu óánægjuraddir innan Alþýðu- flokksins æ háværari. Þetta andóf náði hámarki á flokksþingi Alþýðu- flokksins árið 1952 þegar Hannibal sigraði Stefán í formannskosningum. Samstaðan um Hannibal var þó ekki meiri en svo að hann var felldur í næsta formannskjöri og síðan rek- inn úr flokknum. Hannibal sneri sér þá að verkalýðs- hreyfingunni og varð forseti ASl, m.a. með stuðningi sósíalista. I alþingiskosningunum 1956 bauð hann svo fram með sósíalistum í kosningabandalagi sem nefnt var Alþýðubandalag. Hannibal varð formaður Alþýðubandalagsins og gegndi því embætti til ársins 1967 þegar hann og sósíalistar slitu sam- vistum. Þá var Sósíalistaflokkurinn formlega lagður niður en Alþýðu- bandalagið gert að skipulögðum stjórnmálaflokki. Hannibal var hins vegar ekki af baki dottinn heldur stofnaði Samtök frjálslyndra og vinstrimanna. Hvað nú? Sonur Hannibals er Jón Baldvin, núverandi formaður Alþýðuflokks- ins, en hann fylgdi föður sínum inn og út úr Alþýðubandalaginu. Um tíma var Jón Baldvin baráttufélagi margra núverandi forystumanna Al- þýðubandalagsins. Jón Baldvin hefur sagt það markmið sitt að mynda stóran kratískan stjórnmála- flokk. Svavar Gestson, formaður Alþýðu- bandalagsins, segir bandalagið samfylkingu og býður krötum faðm- inn. Næstu vikur munu skera úr um hvort hinir svokölluðu A-flokkar ná saman. Fari svo er hafinn nýr kapí- tuli í íslenskri stjómmálasögu. 1 -KGK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.