Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1987, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1987, Qupperneq 17
FIMMTUDAGUR 21. MAI 1987. 17 „Sandinistar leitast ekki viö að byggja upp kerfi aö sovéskri fyrirmynd, einfaldlega vegna þess að þeir eru raunsæismenn." Nicaragua í brennidepli Það fer ekki mikið fyrir Nicaragua á landakortinu: 148 þús. km2 og tæp- lega þrjár milljónir íbúa. Þetta litla land hefur tekið sinn skerf af heims- fréttunum upp á síðkastið. En hvað dettur mönnum fyrst í hug þegar Nicaragua ber á góma? Stríð, ófrelsi, alræðisstjóm, mannréttindabrot og almenn kúgun. Þetta eru áherslumar sem §öl- miðlamir hafa skilað okkur á undanfömum árum. En em þær rétt- ar og hverjir ákveða þær? Það virðist vera undir hælinn lagt hvort upplýsingar komast til skila um ástandið í landinu. Reyndar skortir ekki litaðar og hlutdrægar frásagnir. Oft em það bandarískir fjölmiðlar sem matreiða fréttimar ofan í okkur, gjaman í tengslum við stórorðar yfirlýsingar Bandarikja- forseta eða skoðanabræðra hans. Reagan lýsir því t.d. yfir einn daginn að í Nicaragua ríki kommúnískt al- ræði, mannréttindabrot séu daglegt brauð og að koma þurfi í veg fyrir að Sovétríkin nái fótfestu á megin- landi Ameríku. Sama kvöld birtist svo útdráttur úr ræðunni í sjón- varps- eða útvarpsfréttum, oftast nær án þess að hlutimir séu settir í víðara samhengi. Óhlutdrægar fréttir eiga erfitt uppdráttar Óhlutdrægar fréttir af ástandi mála í Nicaragua eiga hins vegar erfitt uppdráttar. Ekkert er auðveld- ara en að klína áróðursstimpli á hlutlægan fréttaflutning af þeirri einföldu ástæðu að hlutlaus lýsing á v ástandinu, eins og það er, fellur ekki inn í þá einföldu heimsmynd sem er samofin fréttaskeytum. Hvemig fer t.d. sú staðreynd að í Nicaragua em um 60% atvinnu- tækja í einkaeign og um 2/3 hlutar jarðnæðis saman við einbeittar yfir- lýsingar Reagans um kommúnískt alræði? Miklu fremur er þetta stað- festing á yfirlýsingum sandinista um að þeir stefrii að blönduðu hagkerfi. Nicaragua á í stríði við contra- sveitimar svokölluðu, sveitir sem efldust og styrktust fyrir atbeina bandarískra erindreka. Hvemig má þá vera að bandarískir ríkisborgar- ar, jafiit og aðrir, geta ferðast um landið að vild, ef undan em skilin mestu átakasvæðin? Lýsir þetta lok- uðu og ósveigjanlegu stjómkerfi? Mergminn málsins er sá að í Nic- aragua er reynt að byggja upp þjóðfélagskerfi sem hæfir aðstæðum þar í landi. Hálfrar aldar einræði Kjallariim Einar Hjörleifsson sálfræðingur reyndist vægast sagt illa og skildi við landið í sárum sem eitt af fátæk- ustu ríkjum álfunnar. Sandinistar leitast ekki við að byggja upp kerfi að sovéskri fyrir- mynd, einfaldlega vegna þess að þeir em raunsæismenn. Þeir stefna að blönduðu hagkerfi, fjölflokkakerfi, almennri menntun og góðri heil- brigðisþjónustu. Auk þess vilja þeir sem best samskipti við ríki í ölhun heimshlutum en ekki binda sig við ákveðnar valdablokkir. Upp á síðkastið hefur oíurlítið rof- að til í fréttaflutningnum hvað varðar Nicaragua. Reyndar em það enn bandarísk innanríkismál sem oftast gefa tilefrii til umfjöllunar um málefni íbúanna. Nokkum veginn óhlutdrægar frásagnir af ástandinu í landinu færast þó heldur í vöxt. Sennilega hefur eitthvað dregið úr trúverðugleika Reagans og hans sálufélaga eftir alla umræðuna um vopnasmyglið til Irans og ólöglegan stuðning við contrasveitirnar. Ráðstefna um ástandið í Nicaragua Laugardaginn 23. maí vei-ður hald- in ráðstefna um ástandið í Nic- aragua, að frumkvæði Mið-Amer- íku-nefndarinnar og með þátttöku fjölmargra samtaka, svo sem stjóm- málaflokka, verkalýðssamtaka, námsmannasamtaka og friðarhreyf- inga. Ráðstefnunni er ætlað tvíþætt hlutverk: annars vegar að veita upp- lýsingar um ástandið í landinu, hins vegar að ræða hvernig við Islending- ar getum stutt við bakið á smáþjóð sem berst harðri baráttu fyrir sjálf- stæði sínu og sjálfsákvörðunarrétti. Á ráðstefhunni verður ýmiss konar fræðsluefhi, kvikmyndasýningar og pallborðsumræður. Sagt verður frá aðstoð annarra Norðurlanda við Nicaragua. Sá stuðningur er af ýms- um toga spunninn. Þróunarstofhan- ir á Norðurlöndum veita fé til byggingar skóla og heilsugæslu- stöðva, verkalýðssamtök styðja systursamtök sin í landinu. verka- menn gefa andvirði daglauna sinna í ákveðin verkefni og áffarn mætti telja. Við íslendingar emm langt á eftir grönniun okkar í þessum efnum. Stuðningur við Nicaragua hefur enginn verið, þótt ýmis upplögð verkefni séu fyrir hendi. Ef til vill væri fyrsta skrefið að senda sendinefnd til landsins - sendi- nefnd, skipaða fulltrúimi sem flestra stjórnmálaafla, verkalýðsfélaga og almannasamtaka. í framhaldi af því mætti skipuleggja þróunaraðstoð við Nicaragua - aðstoð sem byggist á þjóðfélagslegum forsendum okkar íslendinga. T.d. mætti nefna aðstóð við uppþyggingu fiskiskipaflotans á Atlantshafsströndinni og vinnslu sjávarafurða og sérfræðilega ráðgjöf í jarðhitamálum. Mest er um vert að við sitjum ekki hjá meðan nágrannaþjóðimar leggja sitt af mörkum til þess að ein smá- þjóðin enn verði ekki valdahags- munum stórveldis að bráð. Einar Hjörleifsson „Óhlutdrægar fréttir af ástandi mála í Nicaragua eiga hins vegar erfitt upp- dráttar. Ekkert er auðveldara en að klína áróðursstimpli á hlutlægan fréttaflutn- ing.“ Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á hluta fasteignarinnar Miðtúni 4, Tálknafirði, merkt 11-B, þingl. eign Halldórs Magnússonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Lands- banka Islands, Gunnars Sæmundssonar hrl., Ævars Guðmundssonar hdl. og Guðríðar Guðmundsdóttur hdl. á eigninni sjálfri mánudaginn 25. maí 1987 kl. 16.00. ________________________Sýslumaður Barðastrandarsýslu FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU Lausar stöður við framhaldsskóla: Við Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi,kennara- stöður í íslensku, ensku, eðlisfræði, stærðfræðigrein- um, tölvufræði. Einnig hlutastarf í félagsfræði, líffræði, heilsugæslugreinum, lögfræði, matreiðslu og tón- mennt. Við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum, kennara- stöður í ensku, dönsku, líffræði, efnafræði, eðlisfræði, verslunargreinum, rafmagnsfræði, málmsmíði, sér- greinum vélstjórnarbrautar, þýsku, stærðfræði og félagsfræði. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík fyrir 5. júní næstkomandi. Menntamálaráðuneytið. NÝJA WE 65 HÁÞEYTIVINDUÞVOTTAVÉLIN FRÁ: [M Electrolux Wascator Gullió tækifærí fyrir þvottahús, fyrirtæki, fjölbýlishús og minni stofnanir Ein aðalnýjungin í WE 65 vélinni er mótorinn sem nú er staðsett- ur ofan við tromluna, þetta dregur ekki einungis úr skemmdum •tyegna vatnsleka, heldur auðveldar ofanverð staösetning allt við- hald. Örfá handtök til að komast að mótornum - Þessi nýji mótor er ekki hefðbundinn DC mótor heldur með tannhjóla- skiptingu sem einfaldar allt viðhald og hefur einnig í för með sér átakaminni skiptirigu á hraöa, sem þýðir að hleðslan jafnar sig sjálf í tromlunni og háþeytivinda verður hljóðlaus og allt að því án titrings. WE 65 er fáanleg í gulu, bláu og drapplituð. _________________A. KARLSSOH MF._____________________ HEILDVERSLUN-SIMI: 27444-PÓSTHÓLF: 167-BRAUTARHOLT 28-REYKJAVÍK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.