Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1987, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1987, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1987. 23 Fréttir AJþjoðlegt framtak: Boðhlaup i þágu friðarins Nú stendur yfir alþjóðlegt friðar- hlaup. Hlaupið, sem er lengsta boð- hlaup sem hefúr verið hlaupið, hófst við Frelsisstyttuna í New York 27. apríl sl. með þvi að kveikt var á kyndli. Með þennan kyndil eiga síðan hlaup- arar frá 55 þjóðlöndum eftir að hlaupa 43.000 kílómetra en það er rúmlega ummál hnattarins. Reiknað er með að kyndillinn gangi á milli manna oftar en 20 þúsund sinn- um. Áætlað er að hlaupinu ljúki í New York 7. ágúst í sumar. Hér á landi verður hringvegurinn hlaupinn og hefst hlaupið hér 12. júní. Áætlað er að það taki 8 til 10 daga að hlaupa þá 1.411 kílómetra sem hringvegurinn er. Það getur hver sem vill tekið þátt í þessu hlaupi því það er öllum opið. Fengnir verða vanir hlauparar til að hlaupa lengstu og erfiðustu kafla leiðarinnar. fþróttasamband íslands sér um fram- kvæmd hlaupsins hér á landi.svo og Olympíunefnd fslands, Maraþonliðið og Ungmennafélag íslands. í frétt um hlaupið segir: „Með fundi Reagan og Gorbatsjov síðastliðið haust varð fs- land sjálfkjörinn boðberi friðar í vitund manna um allan heim og er þetta hlaup því jákvæður liður i að halda þeirri hugmynd á lofti.“ -sme Söluskáli opnaðurá Hofn Júlía Imsland, DV, Hofn Söluskáli Olís á Höfn var opnaður um síðustu helgi en hann hefur lengi verið lokaður og aðeins verið rekin smur- og dekkjaþjónusta í húsakynn- um Olís. Steinar Guðmundsson hefur haft veg og vanda af rekstri smur- stöðvarinnar og fær nú til liðs við sig Hannes Halldórsson sem sjá mun um söluskálann. Verið er að byggja sölu- skála við Essóbensínsöluna við Vesturbraut og verður þar, auk venju- legs sjoppuvamings, hægt að fá kaffi og brauð, heitar samlokur, pylsur, ís og fleiri smárétti. Segja má að sjoppu- rekstur á Höfn hafi verið í algeru lágmarki undanfarið, aðeins tvær sjoppur á staðnum, og mun þessi aukna þjónusta koma sé vel, bæði fyr- ir heimamenn og ferðafólk. Elli- og örorkulíf- eyrir hækkar Ákveðið hefúr verið að hækka elli- og örorkulífeyri. Hækkunin tók gildi 1. maí sl. og kemur því til útborgunar um næstu mánaðamót. Hækkunin nær til þeirra sem litlar eða engar tekjur hafa aðrar en lífeyri almannatrygg- inga. Lífeyrisþegi, sem nýtur fullrar tekju- tryggingar, hækkar um kr. 2.000, hlutfallsleg hækkun verður til hjóna sem bæði njóta lífeyris. Með þessari hækkun verður lífeyrir til elli- og örorkulífeyrisþega, sem nýt- ur fullrar tekjutryggingar og heimilis- uppbótar, alls kr. 24.523 krónur á nrínuði. Kaplahrauni 7 65 19 60 r Hefurðu oft lítinn tíma en vilt matreiða hollan og góðan mat handa þér og þínum? Þá, eins og alltaf, er lambakjöt kjörið. Vegna þess hve það er meyrt og safaríkt er auðvelt að matreiða stórkostlegan rétt á aðeins 30 mínútum. Ótrúlegt? Prófaðu bara. Biynjar Eymundsson matreiðslumeistari á Gullna Hananum hefur valið þennan rétt - einn af mörgum möguleikum lambakjötsins í fljótlegum úrvalsréttum. m/melónu og jurtakryddsósu f,4. 2 stk. ca. 750gr, Imbainnanlærís- vöðvarsem eru kryddaðirmeð eftírfaraadi kryddblöndu: ltsk.salt. fátsk.sykur. tttsk.pipar. tttsk. timian. fótsk.oregano. 8MBI Vöðvamir eru brúnaðir á pönnu á öllum hliðum og síðan settir í 140°C heitan ofn í ca. 20 mín. Tími og hiti ræðst þó af steikingarsmekk. Rétt fyrir framreiðslu em ræmur af melónu og rifinn appelsínubörkur hitað í ofninum. Kjötið er nú skorið í þunnar sneiðar og borið fram með melónukjötinu og sósunni, skreytt með appelsínuberkinum. Með þessu má einnig bera fram t.d. soðið blómkál, steinselj ukartöflur og eplasalat. Sósan: fátitri vatn. 1 msk. kjötkraftur. lOstk. einiber. 2stk.lár\iðarlauf. fé tsk. timian. fétsk.oregano. 1 tsk. sveskjusulta. 1 msk. sax. blaðlaukur. SaB úr fá appelsúiu, sósutitur. Allt sett í pott og soðið niður um !ó og þá þykkt með 2 tsk. af maísenamjöli sem er hrært út áður í dálitlu af köldu vatni. Sósan er síuð og í hana má setja 1 dl. rjóma ef vill. MARKAÐSNEFND

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.