Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1987, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1987, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 1987. 29 Iþróttir 24 punda bolti úr Laxá í Dölum - laxveiðin gengur rólega víða um land en vel á stöku stað „Það komu 6 laxar á fyrsta eina og hálfa deginum, sem okkur finnst frek- ar róleg veiði, en það kom einn 24 punda fiskur og Hans Kristjánsson sem veiddi hann,“ sagði Pétur Björns- son í veiðihúsinu við Laxá í Dölum. „Við sjáum víða fisk en hann tekur illa, veðrið er mjög gott, sól og blíða. Hans Kristjánsson veiddi fiskinn í Efri-Kistum og tók hann maðk, barátt- an stóð yfir í klukkutíma. Við höfum fengið einn lax á flugu og hann veiddi ég í Mjóhyl, tók rauða frances. Veður- farið þarf að breytast næstu daga svo að fiskurinn komi því við höfum séð hann fyrir utan,“ sagði Pétur. Haukadalsá „Veiðin gengur vel hjá okkur og laxarnir, sem komnir eru á land, eru orðnir 23 og hann er 14 punda sá stærsti;“ sagði Torfi Ásgeirsson í veiði- húsinu við Haukadalsá en áin var opnuð 13. júní. „Laxinn er kominn vítt og breitt um ána og það komu 7 laxar á land í dag. Maðkurinn og flug- an hafa gefið jafht af veiðinni. Laxinn virðist vera að koma og veiðin á von- andi eftir að glæðast meira næstu daga, flestir eru laxamir frá 8 og upp í 14 púnd,“ sagði Torfi. Laxá í Leirársveit „Veiðin gengur rólega hjá okkur hér í Laxá í Leirársveit eins og víða hér í kring, lítið af laxagöngum ennþá, það er kominn 21 lax á land,“ sagði Hauk- ur Garðarsson í veiðihúsinu. „Hann er 18 punda sá stærsti og maðkurinn hefur gefið aðeins betur en flugan. Veiðimenn hafa séð fiska á nokkrum stöðum en ekki mikið,“ sagði Haukur ennfremur. Laxá í Aðaldal „Ég var að veiða fyrir neðan Æðar- fossa núna eftir matinn og laxinn var tregur en það er mikið af fiski, ótrú- lega mikið, laxamir sjást stökkva víða og eru sumir vænir en þeir em tregir að taka enda veðrið mjög gott,“ sagði veiðimaður okkur í veiðihúsinu Vöku- holti við Laxá í Aðaldal. „Laxamir, sem em komnir á land, em orðnir 229 og Ólafur Benediktsson veiddi þann stærsta á maðk f veiðistaðnum Flösu. Laxinn er kominn upp um alla á og þetta lofar góðu og ef veðrið breytist tekur laxinn ömgglega." Miðfjarðará „Miðfjarðai'áin er komin í 100 laxa og síðasta holl veiddi 23, en það er sólskin héma og fiskurinn tekur ekki vel,“ sagði Böðvar Sigvaldason a Barði er við spurðum um ána. „Veiði- menn segja að fiskur sé víða í ánni og í þessu holli eru veiðimenn sem ættu að fá hann.“ . Langá á Mýrum „Ég fékk fjóra laxa, þar af tvo 16 punda. Ég setti í 9 laxa en þeir tóku illa og missti tvo 24-25 punda fiska, líklega par, en þeir vom í sama hyln- um,“ sagði veiðimaður sem var að koma úr Langá. „Það komu nokkir laxar á síðasta flóði og veiddi ég þá, annars var ekki mikið líf, en það voru vænir fiskar, það em komnir 18 laxar á land í Ánabrekkulandi. Laxá á Refasveit „Það komu tveir laxar á land úr Laxá á Refasveit fyrsta daginn og voru þetta 10 og 12 punda fiskar. Þeir veidd- ust í Garðshomi og Gljúfrabúa. • Veiðin hefur gengið mjög illa i Elliðaánum frá því áin var opnuö 10. júní og veiðimenn, sem voru við ána í gær, tóku lífinu með ró eins og sést á þessari mynd. í gærkvöldi, þegar veiðitima lauk, voiu aðeins 15 iaxar komnir á land. DV-mynd G. Bender Laxinn er kominn viða eins og í Snaga,“ sagði Sigurður Kr. Jónsson á Blönduósi. „Blanda er komin í 290 laxa og það veiddust 24 á sunnudag- inn, ég fékk 7 laxa, er nýkominn úr ánni. Líf í Soginu og Ölfusá Við fréttum að Sogið hefði gefið laxa f>Tsta daginn og vissum við um 3, veiðimenn voru að fá hann á Pallinum í Ölfusá og fréttum við af 4 í gær, sá stærsti var 17 punda. Langholtið og Snæfoksstaðir gáfu enga veiði f\Tsta daginn en veiðimenn sáu mikið af fiski en þeir tóku ekki. -G. Bender VEIÐIÞÁTTUR DV: Umsjón: Gunnar Bender Gífurlegur fjöldi við veiðar í gær „Það var óhemju mikið af fólki kringum vatnið og veiðimenn voru á öllum aldri en mest fengu veiðimenn smá fiska og ætli það hafi ekki verið svona mest um 300 að veiða í einu“sagði Sigurður Bergs- son formaður Stangaveiðifélags Hafnarfjarðar en veiðimenn fjöl- menntu að Kleifarvatni á veiðidaginn. „Við erum rétt að byija og það eru komnir nokkrir veiðimenn til veiða og öllum er boðið í pylsur“ sagði Ármaðurinn Árni Þ Sigurðs- son við Elliðavatn, þar sem Ármenn mættu til veiða og var heimilis- legt hjá þeim þar sem gillaðar voru pylsur og átti að sporðrenna um 300. Þeir höfðu komið sér fyrir í hjólhýsi rétt við vatnið og þarna komu veiðimenn á öllum aldri en á meðan við stoppuðum og fengum okkur kók, kom aðeins einn tittur á land. Á öðrum stað í vatninu á veiðidegi fjölskyldunnar víðs vegar um landið þar sem Stangaveiðifélag Reykjavíkur bauð uppá veiði, voru menn að fá einn og einn silung. En Stangaveiðifélagið bauð líka til silung- sveislu í Geitabergsvatni og þar var fjölmennt sagði tíðindamaður okkar en fiskurinn var smár. „Ætli það hafi ekki verið um 3000 manns við veiðar hér í þjóðgarðin- um og þetta fór mjög vel fram, enda var veðrið mjög gott gott hér í dag“ sagði séra Heimir Steinsson á Þingvöllum, er við spurðum um veiðidaginn.„Veiðimenn voru á öllum aldri og þetta var bæði bleikja og murta sem veiddist “ bætti Þorlákur Heimisson við en hann fvlgd- ist vel með öllu sem fram fór. -G. Bender Maðkurinn á 15 krónur „Við eigum til eitthvað af laxa- maðki en ekki mikið. silunga- maðktu-inn er búinn fyrir löngu." sagði maðkatínari í samtali við DV. „Laxamaðktu'inn hjá okkur er seldur á fimmtán krónur og hann klárast næstu daga.“.,Sil- ungamaðktu-inn er á þrotimi en laxamaðkurinn er emtþá til og við seljum hann á tíu krónur .stvkkið." sagði annar maðkatín- ari. Hæsta verð sern við heyrum | að greitt sé fyrir maðk þessa ■ dagana er 15 krónur og ef þessi I þurrkur heldur áfi-am fer verðið I ofar. ef hægt verður að fá maðk * á annað borð. I G.Bender “ mmm mmm mrnm mmm mmm mI • Bræðurnir Ólafur og Sigurður Sigurðarsynir með fyrsta fiskinn á veiðidegin- um hjá Ármönnum og hann tók flugu í vatni i nágrenni Reykjavíkur. DV-mynd G. Bender • Þessar vinkonur höfðu reynt við silunginn en hann var tregur svo þær ætluðu að fá sér pylsur og reyna svo aftur við fiskinn í Elliöavatni. DV-mynd G. Bender Við Elliðavatn var ollum boðið uppa pylsur og kók hjá Armönnum og veitingarnar runnu vel ut. DV-mynd G.Bender VEIÐIVÖRUR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.