Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1987, Blaðsíða 2
20
MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 1987.
íþróttir
• Ingi Bjöm Albertsson alþingismaður sést hér skora fyrsta mark Valsmanna í leiknum en hann var þá nýkominn inn
á sem varamaöur. Á innfelldu myndinni fagnar Ingi Björn markinu. DV-mynd S
Þingmaðurinn skoraði
og Valur vann ÍA, 2-1
- Valsmenn hafa nú tveggja stiga forskot í 1. deild
„Auðvitað er ég ekki ánægður með
tapið í þessum leik. Svona leikir eru
spuming um einbeitirigu og reynslu,
það sýndi sig þegar við vorum búnir
að jafria en misstum það svo niður.
IA-liðið getur gert góða hluti en svo
má ekki heldur gleyma því að Vals-
menn eru með sterkt lið,“ sagði
Guðjón Þórðarson í samtali við DV
þegar Valsmenn voru nýbúnir að
leggja Skagamenn að velli með 2
mörkum gegn einu á Islandsmótinu í
knattspymu á Hlíðarenda í gær-
kvöldi. Sigurganga Vals heldur því
áfram og trónar liðið sem fyrr í efsta
sæti deildarinnar.
Leikur liðanna var ekki skemmtileg-
ur á að horfa, mikið um þóf og kýlingar
fram og aftur um völlinn. Það litla sem
sást af knattspyrnu kom frá Vals-
mönnum. Á 22. mínútu skoraði al-
þingismaðurinn Ingi Bjöm Albertsson
fyrsta mark leiksins með skoti af
stuttu færi eftir mikla þvögu í víta-
teignum. Skagamenn áttu sitt eina
markskot rétt fyrir leikhlé en skot
Heimis Guðmundssonar fór rétt fram-
hjá markinu. Akurnesingar komust
lítið áfram gegn sterkri vöm Vals-
manna, liðið átti ágætis spil úti á
vellinum en þegar nær dróg markinu
rann allt út í sandinn.
Seinni hálfleikur var daufur og ekk-
ert markvert gerðist fyrr en síðasta
stundarfjórðunginn og komu þá tvö
mörk með stuttu millibili. Akurnesing-
ar jafria leikinn á 73. mínútu. Ólafur
Þórðarson gaf sendingu fyrir markið
en Guðmundur markmaður virtist
misreikna sendinguna, hún barst til
Haraldar Ingólfssonar sem ekki var i
vandræðum að koma knettinum í
markið.
Valur skorar síðan sigurmarkið
tveimur mínútum síðar, Ingvar Guð-
mundsson gaf fyrir markið og þar var
Ámundi Sigmundsson á réttu stað og
skoraði. Aðeins lifriaði yfir leiknum
án þess þó að fleiri mörk bætust við.
Sigurjón Kristjánsson var besti mað-
ur Vals en Birkir Sigurðsson mark-
vörður besti maður ÍA.
Dómari leiksins var Magnús Jónat-
ansson og hafði hann alls ekki nógu
góð tök á leiknum.
-JKS
Brúðguminn brenndi
af vrtaspymunni
Heppnissigur Fram gegn FH
„Þetta var gífurlega „móralskur" sig-
ur því strákamir fengu 3 stig sem
hreinlega urðu að vinnast. Baráttan
var í góðu lagi en það vantar meiri
samæfingu í liðið en það á eftir að
lagast og strákamir eiga eftir að
standa sig í sumar,“ sagði Guðmundur
Torfason sem fylgdist með sínum
gömlu félögum í FYam þegar liðið sigr-
aði FH-inga, 1-0, á Kaplakrikavelli á
föstdagskvöld. Geysileg barátta var í
leiknum en minna fór fyrir gæðum
knattspymunnar og var það slæmt því
oft hafa leikir þessara liða verið
skemmtilegir á að horfa.
Það var greinilegt að hvomgt liðið
ætlaði að tapa þessum mikilvæga leik
því liðin fóm afar varlega í fyrri hálf-
leik. Kapp var lagt á að reyna að halda
boltanum og hafa fleiri fyrir aftan til
að tryggja að fá ekki á sig mark. Upp
úr þessu spannst mikið miðjuþóf þar
sem boltinn var til skiptis hjá FH-
ingum og Frömurum án þess þó að
nokkuð markvert gerðist.
Heppnistimpill á sigurmarkinu
Ekkert minnsstætt skeði í fyrri hálf-
leik nema þá kannski að Guðmundur
Haraldsson gaf FH-ingum þrívegis gul
spjöld sem var kannski óþarflega mik-
ið. I síðari hálfleik kom Jón Oddsson
inn á í liði Fram og við það batnaði
leikur Iiðsins til hins betra. Það var
einmitt Jón sem átti stóran þátt í
marki Framara á 55. mínútu sem þó
var hálfgert heppnimark. Undirbún-
ingurinn hjá þeim Jóni og Amljóti var
samt mjög laglegur því þeir spiluðu
skemmtilega í gegnum vöm FH.
Skyndilega var Jón í dauðafæri en
sendi til hliðar þar sem Amljótur
skaut hörkuskoti í Guðmund Hilmars-
son FH-ing og þaðan í netið.
Brúðguminn misnotaði víti
Guðmundur, sem gekk í það heilaga
á laugardaginn, átti reyndar eftir að
koma meira við sögu í leiknum því 4
mínútum fyrir leikslok var dæmd víta-
spyma á Fram eftir að Janus Guð-
laugsson hafði brotið á Pálma
í Firðinum
Jónssyni innan vitateigs. Guðmundur
sem af Guðs náð hefrn alltaf verið
örugg vítaskytta tók að sjálfsögðu
vítaspymuna en skaut langt fram hjá
markinu og þar með fór gullið tæki-
færi forgörðum hjá Hafhfirðingum.
Skömmu síðar flautaði Guðmundur
Haraldsson, ágætur dómari leiksins,
til leiksloka og Framarar fögnuðu
sigrinum.
Þeirra bestu menn í þessum leik
vom þeir Jón Oddsson, sem varð að
yfirgefa völlinn vegna meiðsla, og Pét-
ur Ormslev sem lék síðari hálfleikinn
mjög vel. Þá var Friðrik mjög ömggur
í markinu að vanda. Liðið er langt frá
því að vera sannfærandi en miklar
kröfur em gerðar til liðsins eftir sigur
á Islandsmótinu í fyrra. FH-liðið hefur
ekki átt farsæla daga undanfarið og
er liðið sem fyrr í neðsta sæti deildar-
innar. Halldór var sem fyrr öryggið
uppmálað í markinu og þá átti Krist-
ján Gíslason góða spretti en aðrir náðu
sér ekki nógu vel á strik.
-RR
n
• „Ég átti nú
satt best að
segja meiri
von á þvi að
fá lax en golf-
kúlu hér í
Kjósinni."
MUGGUR Á MÁNUDEGI:
Juri Sedov, sovéski þjálfarinn
hjá Víkingi í 2. deild knattspyrn-
unnar, er maður duglegur og
sérstakur að mörgu leyti. Sedov
gerir meira en að þjálfa leikmenn
Víkings. Hann tekur daginn
snemma og vökvar grasvöllinn
þegar þurrkar em. Þá skúrar
Sedov félagsheimilið að Hæðar-
garði og segja menn að hann vilji
fyrir alla muni hafa félagsheimilið
vel hreint þannig að leikmönnum
líði sem best þar.
Furðuleg
vinnubrögð
Það vakti gífurlega athygli á
dögunum þegar Islendingar léku
gegn Austur-Þjóðverjum í Evrópu-
keppninni í knattspyrnu á Laugar-
dalsvelli þegar landsliðsþjálfarinn,
Sigi Held, lýsti því yfir eftir leikinn
að hann hefði gert samkomulag
við þjálfara Stuttgart um að láta
Ásgeir Sigurvinsson ekki leika all-
an leikinn. Vinnubrögð sem þessi
em ekki til fyrirmyndar og víða
annars staðar en hér hefði þetta
nægt til þess að fram hefðu komið
kröfur um afsögn viðkomandi
þjálfara.
• Sigi Held, landsliðsþjálfari í
knattspyrnu. Mikill hljómgrunnur
er nú fyrir því að hann hætti sem
landsliðsþjálfari enda hafa vinnu-
brögð hans undanfarið verið fyrir
neðan allar hellur.
Hvað er að
lega ekkert í knattspyrnu. Okkur
lánist að hanga í jafntefli í leik og
leik á Laugardalsvellinum litla, en
síðan ekki söguna meir. Kannski
em þetta orð í tíma töluð.
Hrein móðgun
við blaðamenn
Mikið hefur verið rætt og ritað
um aðstöðu blaðamanna á knatt-
spymuleikjum í sumar og ekki að
ástæðulausu. Víða er hún til há-
borinnar skammar. Á KR-vellinum
er blaðamönnum boðið upp á
sendiferðabifreið þar sem fjórir
blaðamenn komast fyrir og sjá
ekki mikið af því sem gerist á vell-
inum. Á sumum völlumun er
hreinlega engin aðstaða fyrir
blaðamenn. Á Kaplakrikavelli er
ekki gert ráð fyrir því að blaða-
menn þurfí að mæta á leiki. Á
gamla malarvellinum, sem er
skammt frá grasvellinum, er ágæt-
is skúr á undirstöðum og ef hann
yrði færður um 100 metra væri
aðstaðan orðin vel boðleg. En það
kemur ekki til mála hjá þeim í
Firðinum. Það er kominn tími til
að foiráðamenn félaga, sem geta
tekið framangreind orð til sín,
hugsi sinn gang. Blaðamenn eru
ekki að biðja um neinar hallir
heldur aðeins starfsaðstöðu sem
er mönnum bjóðandi.
Fékk kúlu
í Kjósinni
íþróttamenn koma víða við. Á
dögunum var mikill áhugamaður
um laxveiði staddur í Laxá í Kjós.
Lítið var um afla en þó tókst veiði-
manninum að krækja í golfkúlu
úti í miðri ánni. Var það það eina
sem hann veiddi í túrnum. Eina
skýringin sem manni dettur i hug
á veru kúlunnar í ánni er að kylf-
ingar hafi verið við veiðar og tekið
á það ráð að reyna með sér í gölf-
inu á árbakkanum.
Framtakssamur
bóndi á Nesinu
gerast hjá
landsliðinu?
Skammarleg fr'ammistaða ís-
lenska landsliðsins í knattspyrnu
gegn Austur-Þjóðverjum á dögun-
um líður mönnum seint úr minni.
Langt er síðan landslið okkar hef-
ur fengið aðra eins útreið og
vonandi eiga knattspymuunnend-
ur ekki eftir að þurfa að horfa upp
á slíkan skrípaleik oftar.
Mörgum hefur í framhaldi af
úrslitum umrædds leiks orðið tíð-
rætt um stöðu íslenskrar knatt-
spymu og þeir era margir sem
halda því fram að við getum hrein-
Það er ekki á hverjum degi sem
maður rekst á bónda uppi í sveit
sem hefur það helst að markmiði
að laða til sín ferðamenn. Símon
Sigurmonsson, bóndi á Görðum á
Snæfellsnesi, hefur þó gert ótrú-
lega hluti á jörð sinni á síðustu
áram. Hann býður ferðainönnum
upp á skemmtilegt veiðisvaiði,
vatnasvæði Lýsu, þar sem mikið
veiðist af silungi og fyrir þá sem
ekki hafa mikinn áhuga á veiðinni
er Símon búinn að „græja" ágætis
knattspymuvöll rétt hjá bænum.
Gistiaðstaða er til mikillar fyrir-
myndar. Þama er tilvalið fyrir
íþróttahópa að dveljast en þeir era
eflaust ekki margir sem vitað hafa
lun þessa „paradís" á Snæfellsnesi.
-Muggur.