Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1987, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1987, Blaðsíða 8
26 MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 1987. SIGTÚNSHÓPURINN AUGLÝSIR Nú vantar peninga til að borga auglýsingar frá í vor. Framlög er hægt að leggja inn á gíróreikning 545-600, merkt „Sigtúnshópurinn". Útboð - Þrif Hagkaup hf„ Kringlunni 8-10, 103 Reykjavík, óskar eftir tilboði í þrif á sameign fyrir verslanamiðstöðina KRINGLUNA í Reykjavík. Um er að ræða m.a. eftirtalda verkþætti: - Dagleg þrif á göngugötu og fl., um 5.000 m2. - Þrif á þjónustugöngum og fl., um 1.000 m2. - Þrif á stigum, handriðum og fleiru. - Dagleg umhirða í göngugötu. Verkið skal hefjast 4. ágúst 1987 og samið verður til eins árs í senn. Útboðsgögn verða afhent hjá eftirliti Hagkaups hf. í Kringlunni 8, 3. hæð (gengið inn að austan), gegn 5.000,- kr. skilatryggingu. Tilboðum skal skila til Hagkaups hf„ Kringlunni 8, 103 Reykjavík, fyrir kl. 1 3.30 föstudaginn 3. júlí 1 987 en þá verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim þjóð- endum sem þess óska. HAGKAUP Kringlunni 8-10, Reykjavík Háaleitisbraut 68 Austurver Sími 8-42-40 Stærðir 3 !4 tii 11. Stærðir 28—38. FÓTBOLTASKÓR fyrir möl og gras, margar gerðir, gott verð. / ® ÁSTUHD © # SPORTVÖRUVERSLUN íþróttir • „islenska liöið“ í skoska rallinu. Talið frá vinstri: Birgir Viðar Halldórsson, Úlfar Eysteinsson, Þorsteinn Ingason og Gordon Dean. Steini slær í gegn - Þorsteinn Ingason á samning hjá Toyota í Bretlandi Það var harður slagur hjá fslending- unum í Skotlandi um síðustu helgi. Þorsteinn Ingason, stórrallari með meiru, mætti til leiks ásamt aðstoðar- ökumanninum, Skotanum Gordon Dean. Einnig voru mættir til að heija á Skota þeir félagar Birgir Viðar Halldórsson og Úlfar Eysteinsson á Ladabifreið. Keppnisbíll Þorsteins hafði verið vandlega yfirfarinn í Skot- landi fyrir keppnina og var allur sem nýr. Alþjóðlega skoska rallið er liður í opnu bresku meistarakeppninni og dregur allajafna til sín marga af fremstu ökumönnum Evrópu. Alls hófu 90 bílar keppnina að þessu sinni og fyrir stýri lá að takast á við óblíða og hlykkjótta skógarstíga Skotlands, á 33 sérleiðum, alls 1300 km sem aka skyldi á 36 tímum. Strax í upphafi lenti Þorsteinn í vandræðum, glænýtt pústkerfið hristi sig laust frá vélinni, datt niður og læsti stýrisganginn fastan. Við svo búið var lítið hægt að gera nema aka út af og það á fullri ferð. Þetta óhapp átti eftir að plaga hann nokkrum sinn- um í byijun þannig að eftir fyrstu leiðimar vermdi hann síðasta sætið í keppninni. Það er ekki uppáhalds- staða þessa sókndjarfa Þingeyings. Pústkerfinu var kippt í lag hið snar- asta og nú var ekið eins og druslan dró. Allt var sett í botn og rúmlega það en þrautir Þingeyingsins voru ekki á enda, síður en svo. Á næstu sérleið, utan í brattri fjallshlíð, sviptist vélarlok bílsins upp og skall alla leið upp á topp bílsins og byrgði alla sýn, og það á meira en 100 km hraða. En vemdardýrlingur rallmanna var þeim félögum hliðhollur, ekki fóm þeir út af en töpuðu við þetta miklum tíma. Tók því enn við botnsætið óvinsæla. Nú var að duga eða drepast. Ben- sínfjölinni var nú þjappað í bílgólfið af öllum mætti. Töldu áhorfendur sig aldrei hafa séð slíkar aðfarir og það hjá ökumanni ofan af íslandi. Náðu þeir félagar að klifra upp keppenda- listann með ótrúlegum hraða þrátt fyrir að hafa aðeins 124 hestöfl til ráð- stöfunar en Toyotan þeirra var með kraftminnstu bílum keppninnar. Þeir náðu meðal annars 6. besta tímanum á einni leiðinni og skutu þar aftur fyrir sig með stæl mörgum 300 hest- afla keppnisbílnum sem ekið var af atvinnumönnum í íþróttinni. Sögðu íslenskir áhorfendur, er fylgdust með keppninni, að aðstoðarökumaður Þor- steins hefði verið líkastur endurskins- merki i andliti, svo var hann fölur af skelfingu er hamagangurinn var sem mestur. En hann var fljótur að ná eðlilegum litarhætti er hann sá og fann að Þorsteinn réð vel við það sem hann var að gera. Tók hann nú að berja Þorstein áfram sem óður væri. En kannski var þetta of gott til að endast. Þegar aðeins þrjár sérleiðar voru eftir skeði óhappið. Bíllinn fór út af í krappri beygju og á tré. Skemmdist hann það mikið að frekari þátttaka var úr sögunni. Það var sann- arlega leiðinlegt eftir góða frammi- stöðu. Þeir höfðu unnið sig upp úr síðasta sæti af 90 keppendum og höfðu klifrað upp í það 32. Þeir stefndu á verðlaunasæti í sínum flokki, nokkuð sem enginn hafði látið sig dreyma um í upphafi keppninnar. Á þessari sömu leið, áðeins 500 metra frá þeim stað er Þorsteinn fór út af, bræddu þeir Birgir og Úlfar úr Lödunni sinni. Það var því sameiginlegur íslenskur sorg- ar- og fagnaðarfundur á þessari örlagaríku sérleið. Þorsteinn sat því uppi með skemmdan bíl í skógum Skotlands. En þá komu frelsandi engl- ar í líki keppnisdeildar Toyota í Bretlandi. Höfðu þeir hrifist svo af baráttugleði og þrautseigju þessa „brjálaða íslendings" að þeir buðust til að lagfæra bílinn, honum að kostn- aðarlausu. Þar að auki ætla þeir að veita honum aukna fyrirgreiðslu í formi varahluta og peningagreiðslna ef hann heldur áfram að keppa í Bret- landi. Sigurvegarar skoska rallsins urðu Walesbúar, David Llewellin/Phil Short á Audi Qattro og í öðru sæti, aðeins ellefu sek. á eftir, skoska áhöfn- in Jimmy McRae/Ian Grindrod á Ford Sierra, en þeir leiddu keppnina fram á næstsíðustu sérleið. Þetta er i 6. skipti sem skoska þjóðhetjan McRae nær öðru sæti á heimavelli og hans heitasta ósk er að vinna þessa keppni. Áfram veginn Þorsteinn sagði í viðtali við DV að skosku skógarstígamir væru mjög frá- bmgnir íslenskum sérleiðum. Vegimir em mjög hlykkjóttir og hraðinn mun minni en við eigum að venjast hér. Einnig er mjög einkennilegt að aka á milli tijánna því þau byrgja mönnum sýn. Þó má komast upp á lag með að lesa veginn af stöðu trjánna. Þetta er þó reynsla sem kemur sennilega ekki að notum á Islandi en nú em mér all- ir rallvegir færir í Bretlandi og ég hef hug á að nota mér það af fremsta megni. Toyota keppnisdeildin í Bret- landi hefur heitið mér fyllsta stuðningi ef ég mæti aftur til keppni þar ytra. Eg hef nú þegar hafið undirbúning að næstu keppni minni erlendis en það er RAC-rallið í nóvember, úrslita- keppni heimsmeistarakeppninnar. -ÁS/BG Bandaríska tennisstjarnan, Martina Navratilova, tapaði mjög óvænt um helgina, í úrslitaleik Eastbourne-kvennakeppninnar í Englandi, fyrir Helenu Sukovu frá Tékkóslóvakíu. Þetta er í fyrsta skipti í fimm ár sem Navratilova tapar úrslitaleik á þessu árlega móti og ennfremur var þetta hennar fyrsta tap á grasvelli í Englandi í 70 leikjum. í byrjun leit ekki út fyrir að Sukova ætlaði að gera stóra hluti. Navratil- ova komst í 5-0 í fyrsta „settinu" en Sukova náði að jafna, 5-5. Eftir mikla baráttu tókst henni svo að sigra 7-6 og 6-3. „Það er alltaf sérstök tilfinning að vinna Navratilovu því hún er efst á afrckalistanum. Ég vona bara að mér takist að leika jafn vel í Wimbledon keppninni og ég lék hér,“ sagði Sukova eftir sigurinn. Hún sést á myndinni hér að ofan með sigurlaunin en á innfelldu myndinni er Martina Navratilova, greinilega óhress með eigin frammistöðu. -SK/Símamyndir Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.