Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1987, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1987, Síða 9
FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1987. 9 Utlönd Franska flugmóðurskipið Clemenceau lagði i gær af stað til Indlandshafs frá Toulon á frönsku rivierunni, Simamynd Reuter Thatcher tekur akvörðun í dag iist. pr virS arS Marcrflrpf ThatrVipr Búist er við að Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, taki á- kvörðun um það í dag hvort Bretar muni veita Bandan'kjunum aðstoð sér- fræðinga við tundurduflaleit á Persaf- lóa og hvort bresk herskip verði send þangað. Bandaríkjamönnum er mjög um- hugað um að bandamenn þeirra í Evrópu geri meira vart við sig á Pers- aflóa og hafa þeir leitað til Frakka, Vestur-Þjóðveija, ítala og Hollend- inga auk Breta. Bandarísk þyrla hrapaði í gærkvöldi er hún reyndi að lenda á La Salle, flaggskipi bandarísku flotadeildarinn- ar. Einn maður fórst og þriggja er saknað. Níu menn voru um borð í þyrlunni. Tveir þeirra voru lagðir inn á sjúkrahús og er annar alvarlega slas- aður. Floti fjögurra franskra skipa lagði af stað í gær í áttina að Persaflóa en frönsk yfirvöld hafa ekki viljað gefa upp nákvæman áætlunarstað. Um borð í skipunum eru þrjú þúsund menn og er hlutverk þeirra sagt vera að gæta franskra hagsmuna á Miðjarðar- hafi og Indlandshafi. Charles Price, sendiherra Bandarikjanna í Bretlandi, kemur frá fundi með utan- ríkisráðherra Bretlands, Sir Geoffrey Howe. Bandaríkin hafa leitað eftir aðstoð Breta á Persaflóa. Símamynd Reuter Götur Haiti voru auðar í gær nema hvað herbílar óku þar um i eftirlitsferð. Allsherjarverkfall rikir nú i landinu. Simamynd Reuter Verkfallið heldur áfram Tilraunir stjómarandstæðinga á Haiti, til að fella stjómina með því að lýsa yfir allsheijarverkfalli, gætu end- að í blóðbaði að þvi er diplómatar telja. Aðstandendur verkfallsins hafa lýst yfir almennum sorgardegi í dag vegn þeirra tíu er drepnir vom þegar her- menn skutu á mótmælendur á mið- vikudaginn. Þá særðust einnig þijátíu manns. í höfuðborginni keyrðu herbilar í gær um auðar götumar. Flestar versl- anir, veitingastaðir og skrifstofur höfðu lokað og ferðir með almennings- vögnum lágu niðri. Örfáir mótmæl- endur vom á stjái í fátækrahverfunum en ekki er vitað um meiriháttar átök. Heryfirvöld hafa lýst því yfir að her- menn hafi skotið á göngumenn á miðvikudaginn eftir að skotið hafi verið að þeim sjálfum. Skila hatti Napóleons Japanir hafa samþykkt að skila frönsku þjóðinni hatti Napóleons. Talið er að Napóleon, fyrrum Frakk- landskeisari, hafi borið hatt þennan sem er talinn afskaplega vel gerður leðurhattur. Þykir hann því betur kominn á safrú í Frakklandi heldur en í Japan og því verður honum skilað. Tekið er fram að Japanir muni greiða allan kostnað af flutn- ingi hattsins. Hærri tekjur en jafnmikil fátækt Meðallagstekjur bandarískra fiölskyldna hækkuðu töluvert á síðasta ári, en fiöldi þeirra sem lifa við eða fyrir neðan fatæktarmörk hélst sá sami. Manntalsskrifstofa Bandaríkjanna skýrði frá því í gær að miðlimgstekjur fiölskyldna hefðu verið tæplega þijátíu þúsund dollarar á árinu sem væri hækkun um tæplega tvö þúsund dollara. Þrátt fyrir þessa tekjuaukningu segir skrifstofan að fiöldi þeirra sem búa við fátækt sé óbreyttur, eða liðlega þijátíu og tvær milljónir manna, sem er um fimmtán prósent af þjóðinni. Kirkjan gegn stjómlnnl Rómverskkaþólska kirkjan í Panama tók i gær harða afstöðu gegn ríkis- stjóm landsins og Noriega hershöfðingja, valdamesta manni stjómarinnar. Talsmaður kirkjuimar krafðist þess að Roberto Diaz Herrera ofursti, sem nú sigur í fangelsi fyrir að hafa borið illar sakir á Noriega, verði þegar í stað látinn laus og dagblöðum stjómarandstæðinga verði heimilað að koma út að nýju. Til nokkurra raótmælaaðgerða kom í Panamaborg í gær eftir að liðlega tvítugur piltur, Eduardo Carrera, var borinn til grafar en hann var skotinn til bana af lögreglumönnum síðastliðinn sunnudag. Hrópuðu syrgjendurslag- orð gegn stjóminni en ekki kom til átaka. Gera Innrás í Sómalíu Bandarískur flugher og sjóher munu á næstunni gera innrás í Só- maliu og er innrásin liður í viðamikl- um heræfingum sem ríkin efiia til saman. Æfingamar hefiast á morg- un, laugardag. Að sögn talsmaima Bandaríkjahers munu bandarískar hersveitir leika hlutverk innrásarhers i æfingum þessum en Sómalíuher mun veijast. Sómalía sleit nánu sambandi sínu við Sovétríkin á síðasta ári og gerði þá vamarsamning við Bandaríkin. Samningur þessi gefur Bandaríkjamönn- um rétt til að staðsetja vikingasveitir sínar úi Sómalíu, aðstöðu í flotastöð í Berbera og afiiot af flugvöllum. Bíður dóms fýrir morðtilraun Joseph Markowski, eyðnisjúkling- ur sem hafði til skamms tíma lifi- brauð af því að selja kynvilltum karlmönnum afnot af líkama sinum, verður nú dreginn fyrir rétt, sakaður um morðtilraun. Markowski hélt vændisstarfsemi sinni áfram eftir að eyðni greindist í honum þótt hann gerði sér grein fyrir þeirri hættu sem hann setti við- skiptavini sina í. Undanfarið hafa forréttarhöld farið fram i máh hans til þess að ákvarða hvort hann hafi andlegt atgervi til þess að standa fyrir dómi. Dómarinn komst í gær að þeirri niðurstöðu að þótt Markowski þarfiiaðist vafalítið sál- fræðilegrar aðstoðar, hefði hann verið nægilega skynugur til að bera ábyrgð á gerðum sinum og því sktdi hann fyrir rétt Lögreglan felldi þijátíu fanga Aðstandendur fanga í betnmarhúsi í Sao Paulo biðu þess í gær að fá nánari fregnir af afdrifum ættmenna sinna en til mikillla átaka kom i fang- elsinu í gær og segir lögregla að tuttugu og níu fangar hafi látið lifið í þeim. Talsmenn fanganna sjálfra segja að lögreglan hafi fellt að minnsta kosti eitt hundrað fanga. 1 yfirlýsingu lögreglu segir að um fimmtíu fangar hafi orðið fyrir skotum þegar lögreglan réðst til inngöngu í fangelsið þar sem fangamir höfðu gert uppreisn og tekið þijátiu gísla. Segir lögreglan að einn lögreglumaður hafi fallið í átökunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.