Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1987, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1987, Qupperneq 16
16 Spumingin FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1987. Hvað ætlarðu að gera um verslunarmanna- helgina? Margrét Karlsdóttir: Ég ætla í tíu daga ferð um Landmannalaugar og hálendið. Ólöf Huber: Ég ætla í gönguferð um Svartaskóg ásamt manni mínum, en við erum búsett í Þýskalandi. Gunnar Gunnarsson: Ég ætla að slappa af í Munaðamesi. Sigrún Gísiadóttir: Eg ætla að eyða viku í sumarbústað í Svignaskarði. Kristinn TryggvasonVerð mest heima við en skrepp kannski upp að Elliðavatni að veiða Lesendur DV Bílar og stæði Vegfarandi skrifar: I sjónvarpinu fyrir skemmstu kom frétt sem gekk alveg fram af mér. Þar var rætt við lögreglumann sem var að viðra sínar einkaskoðanir frammi fyrir alþjóð. Þama er ég að sjálfsögðu að tala um frétt um einhver samtök sem berj- ast gegn ofnki blikkbeljunnar á götum borgarinnar. Samtök þessi munu hafa látið útbúa límmiða sem á var letrað eitthvað um að gangstéttir væru ekki bílastæði og höfðu félagar úr téðum samtökum gerst svo djarfir að líma miða þessa á þá bíla, sem svo frekjulega hafði verið lagt á gangstéttir, að bamavagn komst ekki leiðar sinnar. Nú, samkvæmt áðumefridri frétt höfðu sumir bíleigendur bmgðist ókvæða við þessari nýbreytni og kært athæfið til lögreglu. Fréttamaðurinn tók vakthafandi lögregluþjón tali og sagði sá að þama væm samtökin að taka löggæslu úr höndum réttra aðila en slíkt væri voða Bréfritari telur að lögreglan standi sig illa í stæðismálum. R200041 voða Ijótt. Það kom einnig fram að þetta hefði ekkert verið rætt innan lögreglunnar. Því spyr ég. Hvers vegna sinnir ekki lögreglan þessum skyldustörfúm sín- um? Ef allir bílar, sem lagt er ólöglega, væm sektaðir þá væri t.d. hægt að halda uppi strætisvagnakerfi sem virk- aði og myndi það sjálfsagt stuðla að mihnkandi umferð þegar fram í sækti. Víða erlendis tíðkast það að í stað þess að sitja að tafli em lögregluþjón- ar á stöðugum þönum um götur og setja þeir sektarmiða á alla bíla sem lagt er ólöglega. Sektimar þarf ekki að borga en af og til er lögreglan líka á ferð með kranabíla og em þá þær bifreiðar, sem illa er lagt, færðar til geymslu. Ef eigandi vill svo endur- heimta bifreið sína þarf hann fyrst að greiða allar sektir sem á bílnum hvíla og geta þær skipt hundruðum. Þetta kerfi er hvetjandi því fólk hugsar sig um tvisvar áður en það leggur bílnum „uppi um alla veggi“. Margir eru reiðir vegna skrefatalningar. Sú von brást Eldri kona hringdi: Ég var lengi búin að vona að hætt yrði að mæla hvert orð sem talað er í síma en sú von brást. Þessir herrar sem ráða virðast víst aldrei ætla að verða gamlir, einir eða lasburða. Þegar vond em veður og ekki hægt að fara út, er síminn eina sambandið sem maður hefur við um- heiminn en vegna skrefatalningar verður maður víst að láta sér nægja að horfa á hann i stað þess að tala. Þegar maður er gamall em kunn- ingjarnir gjaman gamlir líka þannig að eins er ástatt fyrir þeim. Ég vona bara að þessir herrar fari nú að sjá sig um hönd og breyti þessu fyrirkomulagi því ég hélt að skömmt- un og höft væm úr sögunni. Seljum Póst og síma 3359-5433 skrifar: Ég vil lýsa velþóknun minni yfir því að Reykjavíkurborg skuli hafa haft frumkvæði að því að mótmæla síðustu hækkun hjá Pósti og síma. Allur þorri almennings er mjög ánægður með að viðræður skuli hafhar um að síðasta hækkun verði dregin til baka. Það er óvanalegt, en um leið mjög ánægju- legt, að stjómmálamenn hafi frum- kvæði að svona viðræðum. Þetta sýnir að kjömir fúlltrúar fólksins í Reykja- vík em lifandi í starfi. Eftir þessu verður munað við næstu kosningar. Póstur og sími er fyrirtæki sem er þekktara fyrir dýrar utanlandsferðir yfirmanna stofnunarinnar en hagræð- ingu í rekstri. Þessi síðasta hækkun var mjög ósvífin og öll fyrri loforð svikin. Ég legg til að farið verði að fordæmi Breta og Póstur og sími verði seldur á almennum hlutafjármarkaði. Einnig langar mig til að sá yfirlýsinga- glaði ráðherra, Steingrímur Her- mannsson, komi með enn eina yfirlýsinguna og núna til að minna á loforð þau sem hann gaf þegar hann var samgöngumálaráðherra. Almenningur er fyrir löngu orðinn þreyttur á auknum álögum hins opin- bera. Má minna á skatt sem ýtinn ráðherra lagði á fasteignir í landinu í nafni menningar en notaður er til að útbúa forarpytt kringum svokallaða Þjóðarbókhlöðu. Troðið á almenningi Elísabet Þorsteinsdóttir skrifar: Nú á að bjarga efnahagsmálum þjóð- arinnar með því að leggja 10% sölu- skatt á matvæli (nema að sjálfeögðu brýnustu nauðsynjar eins og kinda- kjöt). Alltaf er hoggið í sama knérunn. Ríkið heimtar meir og meir og fólkið borgar. Ekki dettur þeim í hug að þeir geti sparað þessa milljarða sem þeir eiga svo auðvelt með að leggja á í auknum sköttum. Almenningur hristir hausinn með vanþóknun, en síðan ekki söguna meir. Hvar eru mótmælin? í útlöndum eru höfð uppi hörð mót- mæli ef stigið er jafn gróflega yfir neytendur og skattborgara. En hvað gerist hér? Við kyngjum öllu óréttlæti sem við erum beitt, án þess að æmta né skræmta. Stjórnarandstaðan gefúr út einhverjar yfirlýsingar sem eru ekkert nema orðin tóm. Ekkert heyrist í verkalýðsfélögum. Af hverju eru ekki mótmælagöngur, undirskriftalistar eða annað þessháttar? Erlendis hafa orðið uppreisnir út af minni málum. Við segjum ekki orð þó grænmeti sé hent frekar en við fáum að njóta lágs vöruverðs. Við borgum skattinn okkar og hreyfum engum mótmælum þó bróðurparturinn af þeim fari í kindakjöt ofan í útlendinga eða bara á haugana. Fólk kennir svo bara kerfinu um og finnur til vanmáttar við að reyna að breyta því. Enda er Jón Helgason áfram landbúnaðarráðherra svo ekki þarf að búast við breytingum meðan hann ræður á þeim bæ. Stjómmálamenn hafa sko engar áhyggjur af viðbrögðum neytenda og skattgreiðenda. Við segjum ekki múkk og þeir vita það. Hringið í síma 27022 milli kl. 13 og 15, eða skrifið Askrifanda finnst sem vegið sé ómaklega að myndavali Stöðvar 2. Góðar myndir á Stöð 2 Áskrifandi hringdi: Ég vil endilega bera á móti allri þessari gagnrýni sem fram hefur kom- ið á Stöð 2 að undanfömu. Mér finnast myndir þar góðar og þótt eitthvað sé um endursýningar þá em þær klukkan fimm á daginn og em sjálfsögð þjónusta þannig að þessi gagnrýni á sér litla stoð í raunvem- leikanum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.