Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1987, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1987, Side 19
FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1987. 31 ri, byrjaður að fagna marki sinu gegn KR i gærkvöldi. Framarar fögnuðu ekki í leikslok. DV-mynd Brynjar Gauti Iþróttir 'J"* mmm mmm mmm mmm mmm mmm mmm mmm mmm mmm mmm mmm mmm mmm mmm mmm mmm mmm mmm mmm mmm mmm mmm mm| i Tillaga Alfreðs hjjá íþrótta- og tómstundaráði: mm m I TTtg mun | berjast" -segirAlfreö Þorsteinsson. „Húsaleigumálinua ekki nærri lokið aráttan fram- n hjá okkur“ íasson, þjálfari Fram, eftir 3-2 tap gegn KR eins og herforingi og markið lá loftinu. A 19. mínútu einlék Pétur Ormslev upp að endamörkum, lék á tvo varnarmenn KR og gaf síðan sendingu á Einar Ás- bjöm Ólafsson sem ekki var í vandræðum með að skora. Sóknarþungi Fram hélt áfram og 26. mínútu háðu Ágúst Már og Ormarr Örlygsson kapphlaup um knött- inn og hafði Ormarr betur. Hann gaf síðan á Guðmund Steinsson sem sneri af sér vamarmann og skoraði með föstu vinstri fótar skoti, 0-2. I seinni hálfleik hrundi ieikur Fram gjör- samlega niður og KR-ingar gengu á lagið. Á 49. mínútu skoraði Rúnar Kristinsson fallegt mark með góðu skoti. Stuttu seinna komst Guðmundur Steinsson í dauðafæri fyrir Fram en brást bogalistin. Á 55. mínútu var miki] barátta inni í vítateig Fram sem endaði með því að Ágúst Már náði að skora með skalla af stuttu færi og jaiha leikinn. KR sótti án afláts og Willum Þórsson átti hörkuskot í stöng og inni á milli átti KR hættulega sóknir. Tíu mínútum fyrir leikslok tryggði svo Willum Þórsson KR-ingum sigur- imi. Hann átti fast skot að markinu, boltinn fór í vamarmann og yfir Friðrik markvörð. Rúnar Kristinsson var yfirburðamaður f KR-liðinu en hjá Fram var Pétur Orsmlev bestur í fyrri hálfleik. f síðari hálfleik var alit Fram-liðið úti að aka. Eysteinn Guðmundsson dæmdi leikinn og var lélegasti maður vallarins og er vægt til orða tekið. Dómari verður að geta fleira en segja ieikmönnum að halda kjafti tímunum saman. Frammistaða hans réði þó ekki úrslit- um þessa leiks. -JKS kk „sprengju“ nn með forystu ísfirðingur í fýrsta skipti á verðlaunapalli armet á fyrsta keppnisdeginum í meistara- flokki kvenna, lék í gær á 84 höggum og jók forskot sitt, hefur nú notað samtals 163 högg. í öðru sæti er Jóhanna Ingólfs- dóttir, GR, á 169 höggum og þriðja er Karen Sævarsdóttir, GS, á 170 höggum. Þórdís Geirsdóttir, GK, og Ragnhildur Sigurðardóttir, GR, koma næstar á 171 og 172 höggum. Fyrsti titillinn til Eskifjarðar Eskfirðingar eignuðust í gær sinn fyrsta meistara í golfi. Hjörvar Jensson, GE, sigraði þá í 3. flokki og kom inn á 350 höggum. í öðru sæti varð Ámi Ketill Friðriksson, GA, á 362 höggum og þriðji yarð Þórir Sigurðsson, snjall kylfingur frá ísaafirði, á 363 höggum. Er þetta í fyrsta skipti sem ísfirðinguj- kemst á verðlauna- pall á landsmótinu í golfi. • Keppni lauk í gær í 2. flokki kvenna auk 3. flokks karla. Þar sigraði Ámý L. Ámadóttir, GA, á 358 höggum. Hildur Þorsteinsdóttir, GK, varð önur á 373 höggum og Rósa Pálsdóttir, GA, þriðja á 376 höggum. Sólveig Birgisdóttir var á sama höggafjölda en tapaði fyrir Rósu í bráðabana. • Þegar leiknar hafa verið 54 holur í 1. flokki karla hefur Viðar Þorsteinsson, GA, skotist í fyrsta sætið á 235 höggum. Annar er Ómar Kristjánsson, GR, á 239 höggum og Ólafur Skúlason, GR, er þriðji á 240 höggum. • Jónína Pálsdóttir, GR, lék mjög vel í gær í 1. flokki kvenna og hefur forystm á 275 höggum. Önnur er Björk Ingvars- dóttir, GK, á 288 höggum en hún lék á heilum 107 höggum í gær og Erla Adolfs- dóttir, GG, er þriðja á 290 höggum. • Jóhann P. Andersen, GG, hefur for- ystu í 2. flokki karla og er á 240 höggum. Tryggvi Þ. Tryggvason, GS, er annar á 246 höggum og Guðmundur Sigurjónsson, GA, er þriðji á 249 höggum. • í dag lýkur keppni í öllum fiokkum nema meistaraflokki karla og kvenna. Síðustu holumar í meistaraflokkunum verða leiknar á morgun. -SK „í heild hafa borgaryfirvöld ekki staðið nægilega vel við bakið á íþróttahreyfingunni í Reykjavík og það hefur meðal annars komið fram í „húsaleigumálinu“ svokallaða sem DV hefur vakið athygli á undanfar- ið, það er að segja óheyrilegri gjaldtöku af íþróttafélögunum á sama tíma og nágrannasveitarfélög- in hafa algerlega fellt hana niður,“ sagði Alfreð Þorsteinsson í samtali við DV í gærkvöldi en hann lagði á dögunum fram mjög athyglisverða tillögu fyrir borgarráð þess efnis í stórum dráttum að íþróttafélögin í Reykjavfk byggju ekki við lakari kost hvað varðar leigukjör i íþrótta- mannvirkjum og æfingasölum. Tillaga þessi hefur vakið mikla at- hygli og hefur hér verið hreyft við mjög þýðingarmiklu máli fyrir íþróttafélögin í Reykjavík. „ Að mínu mati ættu borgaryfirvöld að sjá til þess að byggja íþrótta- mannvirki og sjá sjálf um kostnað- inn við að reka þau í stað þess að láta íþróttafélögin að stórum hluta standa straum af þeim kostnaði. Borgaryfirvöld hafa ekki staðið í stykkinu hvað varðar uppbyggingu íþróttaðstöðu í Reykjavík, til að mynda í Breiðholtinu, fiölmennasta hverfi borgarinnar. Félögin þar, Leiknir og IR, munu aldrei koma til með að geta reist yfir sig nauðsynleg íþróttamannvirki. í raun og veru er þetta alveg skelfilegt að íþróttafólk, unglingar, böm og aðrir, sem búa í fiölmennasta hverfi borgarinnar, séu nánast é götunni. Þetta tengist allt saman „húsaleigumálinu. A sama tíma og fiölmargir aðilar eru að vinna þýðingarmikil störf í æsku- lýðsmálum i þágu borgarinnar em fþróttafélögin að greiða borginni gff- urlega háa húsaleigu. Ég veit ekki til þess að æskulýðsmiðstöðvar greiði húsaleigu til borgarinnar. Hvað varðar íþróttafélögin þá hefúr þróunin verið sú að iþróttafélögin í Reykjavík hafa verið að rembast við að byggja eigin heimavélli, einfald- lega til þess að flýja okurgreiðslur til borgarinnar fyrir húsaleigu. Ég mun beijast fyrir því innan borgar- kerfisins að knýja á um breytingar þannig að íþróttastarfsemi verði metin að verðleikum. Og það er ör- uggt að þessu máli verður fylgt eftir þegar borgarstjóm kemur saman í haust, í lokin langar mig til að segja að mér finnst í hæsta máta óeðlilegt að saini maður sé formaður Iþrótta- bandalags Reykjavíkur og formaður íþrótta- og tómstundaráðs. í raun og vem er Júlíus Hafstein alltaf að tala við sjálfan sig. Hann getur ekki þjónað tveimur herrum i þessu máli,“ sagði Allireð Þorsteins- son. • DV leitaði álita fulltrúa í íþrótta- og tómstundaráði á tillögu Álfreðs Þorsteinssonar og fara við- tölin hér á eftir: I____________________________________ Júlíus Hafstein formaður: „No comment. Það er búið að senda þessa tillögu Alfreðs til íþróttaráðs og ég er ekki vanur að „commentera" fyrirfram áður en við tökum mél fyrir,“ sagði Júlíus Haf- stein, formaður íþrótta- og tóm- stundaráðs, þegar hann var spurður um umrædda tillögu Alfreðs Þor- steinssonar varðandi húsaleigumál iþróttafélagnna í Reykjavík. - Þú vilt ekki segja mér þína per- sónulega skoðun á tillögunni? „Nei. Ég sé ekki ástæðu til þess fyrr en ég er búinn að afgreiða mál- ið frá íþrótta- og tómstundaráði.“ Hvenær ætlar ráðið að taka máhð fyrir? „Það verður gert á næsta fúndi. Hann var ráðgerður um miðjan ágúst en það getur vel verið að ég haldi aukafimd. Þetta mál kemur hvort eð er ekki inn fyrr en gagn- vart fiárhagsáætlun sem er bundin, bæði fjárhagsáætlun ÍBR og Reykja- víkurborgar til ái-amóta, Ég geri allavega ekki ráð fyrir því. Ég sé ekki að það verði aukafiárveiting í þessum efhum." - Það gæti sem sagt eitthvað gerst í þessu máli á næstunni? „Ég get ekki „commenterað" á það hvað gerist eða hvort eitthvað ger- ist Einfaldlega að mór finnst eðli málsins samkvæmt að þegar borgar- ráð felur íþrótta- og tómstundaráði að fialla um mál þá eigi formaðurinn ekki að móta tillögumar í fiölmiðl- um fyrr en hann hefúr haft saraband við sfna samstarfsmenn,“ sagði Júl- ius Hafetein. Hilmar Guðlaugsson: „Ég held að það sé best að tjá sig ekkert um þetta fyrr en við í fþrótta- og tómstundaráði sendum frá okkur okkar umsögn um þessa tillögu. Þessi mál eru miklu flóknari hjá okkur en í öðrum sveitarfélögum,“ sagði Hilmar Guðlaugsson, en hann á sæti i íþrótta- og tómstundaráði og er fyrrverandi formaður knatt- spymufélagsins Fram i Reykjavík, þegar undir hann var horið eftú til- lögu Alfreðs Þorsteinssonar. Þegar Hilmar var spurður um hans persónulegu afetöðu til tillögunnar sagði hann: „Ja, það má auðvitað alltaf ægja að maður vilji iþróttafé- lögunum allt það besta. En maður verður líka aðeins að hugsa um fiár- hag Reykjavíkurborgar og hvemig best sé að standa að þessu til að það komi sera best út fyrir fþróttafélögin í heild. Húsaleigan kemur mjög mis- munandi niður á deildum einstakra félaga, það er alveg rétt. Inniíþrótt- imar þurfa að greiða miklu mun lægri leigu en útifþróttfrnar.“ - Er það eðlilegt að þínu mati að íþróttafélög í Reykjavík greiði háa húsaleigu á meðan félög í nágranna- sveitarfélögunum greiða ekki neitt? „Við megum ekkieinskorða okkur alfarið við húsaleiguna. Það er svo margt annað sem kemur þama inn í. Við erum að skoða þetta mál í heild og síðan kemui- frá okkur umsögn um málið,“ sagði Hilmar Guðlaugsson. Kristín Blöndal: „Ég hef verið í fríi undanfarið þannig að ég hef ekki getað fylgst með þessu máli sem skyldl Það er þó ljóst að það verður að skoða þetta í víðu samhengi, hvaða Qármagn félögin fá og hvemig því er háttað til dæmis í nágrannasveitarfélögun- um þannig að ég er ekki alveg tilbúin að svara með jái eða neii,“ sagði Kristín Blöndal, einn fulltrúa í íþrótta- og tómstundaráði um tillögu Alfreðs Þorsteins8onar.“ - Ert þú tilbúin til að styðja það að íþróttafélögin í Reykjavík sitji við sama borð og íþróttafélög í nágrenni Reykjavíkur? „Ég treysti mér ekki til að segja neitt ákveðið um það.“ - Kemur það þér spánskt fyrir sjónir að íþróttafélög í Reykjavík skuh þurfa að greiða mjög háa húsa- leigu á sama tima og nágrannamir þurfa ekki að greiða eina einustu krónu? „Mér finnst það auðvitað í fljótu bragði mjög undarlegt, ég verð að segja það alveg hreinskilnislega,“ sagði Kristín Blöndal. Amór Pétursson: „Mér líst vel á þessa tillögu. Þetta er hlutur sem þarf að fara vel ofan í saumana á og í raun og veru alla húsaleigu íþróttafélaganna í Reykj a- vfk. Það er víða pottur brotinn þar,“ sagði Amór Pétursson, einn fúlltrúa í íþrótta- og tómstundaráði Reykja- víkurborgar í samtali við DV. „Sum Reykjavíkurfélaganna eiga sín stóm íþróttahús og leigja út tímana í sínum eigin húsum. Ég held að það verði að taka þetta mál fyrir í einum heildarpakka. Það er fúll þörf á að taka þetta mál fyrir -og þá ekki sist mál þeirra félaga sem ekki eiga sín eigin íþróttahús. Þau standa verst að vígi.“ - Finnst þér ekki skjóta skökku við sá mismunur sem er á leigukjör- um íþróttafélaganna f Reykjavík annare vegar og félaganna utan Reykjavíkur hins vegar? „Nú hef ég ekki beinan samanburð þama á milli en hins vegar hefur maður heyrt um þetta og reyndar þekki ég þetta mál. Vissulega þykir raér þetta skjóta skökku við. “ - Munt þú styðja tillögu Alfreðs þegar hún kemur til afgreiðslu á næsta fúndi íþrótta- og tómstunda- ráðs? „Þetta eru svo sannarlega orð í tíma töluð og ég mun örugglega styðja þessa tillögu," sagði Amór Pétureson. -SK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.