Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1987, Side 26
38
FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1987.
Fréttir
Listamannaíbúðir í Bjarnaboiginni?
„Við höíum boðið menntamála-
ráðuneytinu að kaupa íbúð og
vinnustofu í húsinu sem notaðar
yrðu fyrir erlenda listamenn, til
móts við þær íbúðir sem íslendingar
geta notað erlendis. Hefur ráðherra
tekið vel í þessar hugmyndir okk-
ar,“ sagði Hjörtur Aðalsteinsson,
einn af eigendum Bjamaborgarinnar
við Hverfisgötu.
Fyrirtækið Dögun s/f keypti
Bjamaborgina, sem var byggð árið
1902, af Reykjarvíkurborg á síðast-
liðnu ári og hafa unnið að því að
gera það upp. Er stefnan sú að því
verki ljúki um mánaðamótin febrú-
ar/mars.
Hjörtur sagði að þeir vildu gera
húsið að menningarhúsi með lista-
mannaíbúðunum og vinnustofu, auk
þess sem hugsanlega yrði ein íbúð
seld undir lista- og menningarmið-
stöð. Að auki yrði í húsinu kaffistofa,
blómabúð, matsöl'istaður, brauðbúð
og arkitektastofa. Bmnnur sem væri
miðsvæðis í húsinu yrði endurgerð-
ur, en hann er eitt elsta vatnsból í
Reykjavík. Yrði þar lítið torg. „Sam-
kvæmt skipulagi á að koma torg á
Svona mun Bjarnaborgin lita út eftir lagfæringarnar, séð frá Vitastíg.
Vinstri og hægri hlutar hússins eru hugsaðir fyrir listamennina.
móti húsinu, á Vitastíg, og því væri
gaman að gera þetta að eins konar
lista og menningartorgi," sagði
Hjörtur.
Guðný Magnúsdóttir, formaður
Sambands listamanna, sagði að
myndlistarmenn yrðu mjög ánægðir
ef þetta kæmist í framkvæmd. Þeir
sæju möguleikana sem þetta byði
upp á og styddu eindregið að ríki
og borg keyptu þessar íbúðir.
Einar Hákonarson, listráðunautur
Kjarvalsstaða, sagðist hafa heyrt
minnst á hugmyndina og sér litist
vel á. „Öll samskipti listamanna em
til hins góða og því myndi ég hvetja
til þess að af kaupunum yrði,“ sagði
Bjarnaborgin við Hverfisgötu, ve-
rið er að gera hana upp og á því
að Ijúka í byrjun mars. Á að gera
húsið að húsi menningar.
DV-mynd BG
Einar. Hann sagði að talað hefði
verið um að setja þar upp einnig list-
iðnaðarstöð og slíkt væri þarft verk
því stórefla þyrfti listiðnað. Örvun
frá hinu opinbera til listalífsins
þyrfti að koma til.
-JFJ
Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti 11 DV
Tek að mér háþrýstiþvott.sandblástur,
sprunguviðgerðir og sílanhúðun, er
með traktorsdælur, 280-300 bar. Uppl.
í síma 73929. Ómar.
Verktak sf„ sími 7.88.22. Háþrýstiþvott-
ur, vinnuþrýstingur að 400 bar.
Steypuviðgerðir - sílanhúðun.
(Þorgrímur Ó. húsasmíðam.)
Húseigendur. Smiður getur bætt við
sig margs konar verkefnum. Uppl. í
síma 675509 eftir kl. 17.
Ferðalög
Mallorcaferð til sölu. Vinningsmiði að
verðmæti kr. 100.000. Uppl. í síma
666308 eftir kl. 18.
M Feröaþjónusta
Sumarfri í sveit. Leigjum út litla íbúð
fyrir ferðamenn í fallegri sveit á Norð-
austurlandi í Sprengisandsleið.
Nánari uppl. í síma 96-43286.
Sport
Golf og stangaveiði. Á Strandarvelli í
Rangárvallasýslu, 100 km frá Reykja-
vík, er einn besti 18 holu golfvöllur
landsins. Vallargjald aðeins kr. 400 á
dag. Sumarkort með ótakmarkaðri
spilamennsku eru seld á kr. 1200. Völl-
urinn er í næsta nágrenni Ytri- og
Eystri-Rangár þar sem einnig eru til
leigu 2 sumarhús. Sameinið sumar-
leyfi og sport í fögru og rólegu
umhverfi. Úpplýsingar um golf eru
veittar í síma 99-8382 eða 99-8670
(Svavar). Upplýsingar um veiði og
sumarhús eru veittar í Hellinum,
Hellu, í síma 99-5104 eða í sima 99-
8382.
Verslun
Sænskar innihurðir. Glæsilegt úrval af
innihurðum, nýja, hvíta línan, einnig
furuhurðir og spónlagðar hurðir.
Verðið er ótrúlega lágt, eða frá kr.
8.560 hurðin. Harðviðarval hf.,
Krókhálsi 4, sími 671010.
Norm-X setlaugar, 3 gerðir og litaúrval.
Norm-X, Suðurhrauni 1, Garðabæ, sími
53851 og 53822.
OTTO Versand-vörulistinn til afgreiðslu
á Tunguvegi 18, Helgalandi 3 og í
pósti. Stærsta póstverslun Evrópu,
með úrvalsvörur fyrir alla. Vetrar-
tískan, gjafavörur o.fl. Uppl. í síma
666375 og 33249. Verslunin Fell.
Hjólkoppar, ný sending. 12", 13", 14"
og 15", 9 gerðir, einnig krómhringir,
13" og 14" stál og plast. Frábært verð,
t.d. 12" kr. 2.500, 13" kr. 2.600. 4 stk.
sett. Einnig toppgrindur og burðar-
bogar. Sendum í póstkröfu samdæg-
urs. G.T. búðin hf„ Síðumúla 17, sími
37140.
"Brother" tölvuprentarar. Brother, frá-
bærir verðlaunaprentarar á góðu
verði. Passa fyrir IBM samhæfðar
tölvur, t.d. AMSTRAD, ATLANTIS,
COMMODORE, ISLAND, MULT-
ITECH, WENDY, ZENITH osfrv.
Ritvinnsluforrit fylgir. Arkamatarar
fáanlegir. Góð greiðslukjör. Líttu við,
það gæti borgað sig. Digital-Vörur hf,
Skipholt 9, símar 24255 og 622455.
Viimuvelar
Hjólaskófla, Michigan Clark 125 B, til
sölu, snjótönn getur fylgt, vél í fyrsta
flokks ástandi. Uppl. í símum 672173,
34305 og 985-23882.
Til sölu
Sandkassar, vatnspollar, sláttuvélar,
fjarst. bílar, talstöðvar, brúðuvagnar,
hjólaskautar, skautabretti, Masters-
leikföng. Nýtt: BRAVE STAR karlar.
Opið laugard. Pósts. Leikfangahúsið,
Skólavörðustíg 10, s. 14806.
Garnið í þessa peysu kostar aðeins kr.
290. Ný sending af púðum, klukku-
strengjum og veggteppum í grófu
góbelíni. Póstsendum. Strammi,
Óðinsgötu 1, sími 13130.
■ Bílar til sölu
International 1210 74 til sölu, skoðaður
’87, 100 ha. Ford dísil m/mæli, ekinn
17 þús. D60 aftan m/fljótandi öxlum,
D44 framan, ný Good Year dekk. U ppl.
í síma 651543 á kvöldin og 652065 á
daginn.
UAZ árg. 1977 til sölu, 11 farþ., bíll í
góðu standi. Uppl. í síma 93-81591 eða
í bílasíma 985-23115.
Alvöru jeppi. Til sölu Willys CJ7, 6
cyl„ árg. ’82. Mjög fallegur og vel með
farinn bíll. Teppalagður, fíberhús, ný
dekk. Sjón er sögu ríkari. S. 79305.
Hanomac Henschel m/disilvél, sumar-
hús á hjólum, fullkomið eldhús,
tvöfalt gler, einangraður, sjónvarp,
ísskápur, eldavél, vatnstankur, 140
lítra, snyrtiklefi og wc, svefnpláss fyr-
ir 4, verð 780 þús., góð greiðslukjör.
Uppl. í síma 10300.
Nú er tækifærið komið. Glæsilega inn-
réttaður Chevrolet Van, árg. ’79, með
steriogræjum af bestu gerð, ekinn 48.
000 mílur. Uppl. í síma 99-2682.
Renault Trafic árg. ’83 til sölu,
stöðvarleyfi. Uppl. á bílasölunni Hlíð,
símar 17770 og 29977.
M. Benz 309 D árg. ’86 til sölu, lengri
gerð, með kúlutoppi, ekinn 60.000 km.
Sími 72721 eftir kl. 18.
Galant GLS ’82 til sölu, ekinn aðeins
58 þús. km. Toppbíll utan sem innan.
Verð 290 þús. Úppl. í síma 673172.
Toyota Corolla '84 til sölu, sjálfskipt,
1600 vél, grjótgrind, ný dekk og púst-
kerfi. Góður bíll. Uppl. í síma 79305.
Bátar
Þessi bátur, sem er „Viking” plast-
bátur, ca 5,7 tonn, dekkaður, er til
sölu. Báturinn er nýr, með 65 ha.
Sabb-vél og skiptiskrúfu. í bátnum er
radar, litadýptarmælir, sjálfstýring,
talstöð og ýmis annar búnaður. Nán-
ari uppl. í síma 50520 eða 50168.
Bátalón h/f„ Hafnarfirði.
Ymislegt
KOMDU HENNI/HONUM
þÆGILEGA Á ÓVART
Hjónafólk, pör, konur, karlar, ath: Verið
óhrædd að hleypa tilbreytingu inn í
kynlíf ykkar. Hjálpartæki ástarlífsins
ér ein stórkostlegasta uppgötvun við
björgun hjónabanda, sjálfstæði í kyn-
lífi, einmanaleika og andlegri streitu
Einnig úrval af sexý nær- og nátt-
fatnaði sem alltaf stendur fyrir sínu.
Vertu ófeimin(n) að koma á staðinn.
Ath., ómerktar póstkröfur. Opið frá
10-18 mán.-fös. Erum í Brautarholti
4, 2. hæð, sími 29559 - 14448, pósthólf
1779, 101 Rvk.
Þjónusta
Við þvoum og bónum bílinn á aðeins
10 mínútum, þá tökum við bíla í hand-
bón og alþrif, djúphreinsum sæti og
teppi, vélaþvottur og nýjung á ís-
landi, plasthúðum vélina svo hún
verður sem ný. Opið alla daga frá kl.
8-19. Sækjum sendum. Bón- og bíla-
þvottastöðin, Bíldshöfða 8, v/hliðina
á Bifreiðaeftirlitinu, sími 681944.
MOÐA
MILLI
GLERJA?
Erum með sérhæfð tæki til að fjar-
lægja móðu á milli glerja, varanleg
og ódýr aðgerð. Verktak, sími 78822.