Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1987, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1987, Page 28
40 FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1987. Tarðarfarir Árni Gíslason framkvæmdastjóri lést 24. júlí sl. Hann var fæddur á Bíldudal 15. nóvember 1920. sonur hjónanna Kristínar Kristjánsdóttur og Gísla Ásgeirssonar. Hann fluttist með foreldrum sínum til Hafnar- fjarðar um 1930 og bjó þar æ síðan.. Árni lauk vélvirkjanámi. Hann var verksmiðjustjóri Lýsis og mjöls hf. um árabil og síðan forstjóri þess í um ártug. Einnig starfaði hann hjá Sölumiðstöð hraðfrvstihúsanna. Síð- ustu árin rak hann eigið fyrirtæki. Vörubretti sf. Eftirlifandi eiginkona hans er Ester Kláusdóttir. Þau hjón- in eignuðust sex börn og eru fimm á lífi. Útför Árna verður gerð frá Frí- kirkjunni í Hafnarfirði í dag kl. 15. Pétur Georgsson lést 24. júlí sl. Hann var fæddur á Melstað á Akra- nesi þann 5. júní 1931. Foreldrar hans voru hjónin Georg Sigurðsson og Vilborg Ólafsdóttir. Pétur lærði ungur netagerð og um langt árabil veitti hann forstöðu Nótastöðinni hf. á Akranesi. Eftirlifandi eiginkona hans er Emilía Jónsdóttir. Þau hjón- in eignuðust fjórar dætur. Útför Péturs var gerð frá Akraneskirkju í morgun kl. 11.30. Sveinn H. Þórðarson. fvrrv’. skatt- stjóri. lést 22. júlí sl. Hann fæddist á Hvammstanga 21. febrúar 1916. son- ur Þórðar Sæmundssonar og Guð- rúnar Karólínu Sveinsdóttur. Sveinn lauk prófi í viðskiptafræðum frá Háskóla Islands 1943. Að því loknu hófst starfsferill Sveins. fyrst sem verðlagsstjóra á Vestfjörðum. 1943-44. þá sem fulltrúa hjá tollstjór- anum í Reykjavík. 1944^60. Næstu sjö ár var hann svo aðalendurskoð- andi Pósts og síma. Sveinn tók við embætti skattstjóra í Revkjanesum- dæmi 1967 og gegndi því uns hann lét í fvrra af störfum fvrir aldurs sak- ir. Eftirlifandi eiginkona hans er Þórunn Kristín Helgadóttir. Þau hjónin eignuðust tvær dætur. Útför Sveins verður gerð frá Hafnarfjarð- arkirkju í dag kl. 13.30. Sverrir Arason andaðist í Landa- kotsspítala 20. júlí. Útför hans hefur farið fram. Jórunn Sigurðardóttir Njarðvík, Skarði. Skarðshreppi. Skagafjarðar- sýslu. sem lést á heimili sínu 25. júlí sl.. verður jarðsungin frá Sauðár- krókskirkju laugardaginn 1. ágúst kl. 16. Magnús Ingi Sigurðsson við- skiptafræðingur. er lést af slvsförum 23. júlí. verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju í dag. 31. júlí. kl. 13.30. Nauðungaruppboð Opinbert nauðungaruppboð, sem auglýst var í 146. tbl. Lögbirtingablaðsins 1986 og 3. og 10. tbl. þess 1987 á eigninni Arnarhrauni 4-6, 2.h.v„ Hafn- arf., talinn eigandi Sigurður Jóhannsson, fer fram á skrifstofu minni að Strandgötu 31 þriðjudaginn 4. ágúst nk. kl. 14.30 og verður þvi síðan fram haldið eftir nánari ákvörðun uppboðsréttarins. Uppboðsbeiðendur eru Gjaldheimtan í Hafnarfirði, Landsbanki íslands og Hlöðver Kjartansson hdl. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði Nauðungaruppboð Opinbert nauðungaruppboð, sem auglýst var í 146. tbl. Lögbirtingablaðsins 1986 og 3. og 10. tbl. þess 1987 á eigninni Álfaskeiði 82, 2.h.h„ Hafnarf., þinglesinn eigandi Fjóla V. Reynisdóttir, fer fram á skrifstofu minni að Strand- götu 31 þriðjudaginn 4. ágúst nk. kl. 14.00 og verður því síðan fram haldið eftir nánari ákvörðun uppboðsréttarins. Uppboðsbeiðendur eru Gjaldheimtan í Hafnarfirði og Guðjón Steingrímsson hrl. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eigninni Álfaskeiði 76, 3,h.th„ Hafnarfirði, þingl. eign stjórnar Verkamannabústaða en talin eign Hafsteins Péturssonar, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 6. ágúst 1987 kl. 15.30. _____________________Bæjarfógetinn i Hafnarfirði Nauðungaruppboð annað og síðara á fasteigninni Vestun/ör 27, hluta, þingl. eigandi Samþand eggjaframleiðanda, fer fram í skrifstofu embættisins, Auðbrekku 10 í Kópa- vogi, miðvikudaginn 5. ágúst kl. 10.00. Uppboðsbeiðendur eru Útvegsbanki (slands, Kristinn Sigurjónsson hrl„ Ing- var Björnsson hdl„ Gjaldheimtan í Reykjavík, Steingrímur Eiríksson hdl., Bæjarsjóður Kópavogs, Sveinn H. Valdimarsson hrl. og Iðnlánasjóður. Bæjarfógetinn I Kópavogi Nauðungaruppboð annað og síðara á fasteigninni Hraunbraut 3, hluta, talinn eigandi Þjóðólfur Gunnarsson, fer fram í skrifstofu embættisins, Auðbrekku 10 í Kópavogi, miðvikud. 5. ágúst kl. 10.30. Uppboðsbeiðendur eru Landsbandi íslands, Bæjarsjóður Kópavogs, Tómas Þorvaldsson hdl., Guðjón Ármann Jónsson hdl. og Jón Ólafsson hrl. _________________________Baejarfógetinn i Kópavogi I gærkvöldi Hreinn Halldórsson frá Kópaskeri: Af „íslensku" sjónvarpi og bíósnarii Kobba frænda Ég er þessi dæmigerði nútíma- neytandi á sjónvarp og útvarp. Þegar klukkan slær hálf átta hendi ég frá mér Mogganum eða DV til að hækka í sjónvarpinu sem stillt hefur verið á Stöð 2. Ég hækka hljóðstyrkinn þar til hann er í fu.ll- komnu jafhvægi við Bylgjuna, FM 98,9 og þannig get ég meðtekið báða þessa íjölmiðla í einu. Að sjálfsögðu tek ég í blaðið um leið. Klukkan átta stundvíslega er stillt á ríkissjón- varpið eða „íslenska" sjónvarpið eins og ég kalla það. Það verð ég að viðurkenna þó óljúft sé að það „íslenska" stendur sig mun betur. Ástæðan er einfaldlega sú að Stöð 2 er einkum frásagnarmiðill á meðan það „íslenska" revmir að kafa dýpra í fréttina; útskýra aðdraganda og jafrivel að spá í framvindu málsins. Auk þess sem það hefur liprara mál- far og framsetningu. Lengra nær mitt sjónvarpsgláp ekki. Kemur þar margt til; á ekki „ruglara" og hef ekki áhuga á þeim bíómvndum sem Stöð 2 býður uppá, þar sem ég hef einfaldlega séð þær allar. (Ég er ekki að skrökva, Jón Óttar!) auk þess sem ég hef önnur áhugamál. Eitt af mínum áhugamálum, - sem snertir þessa umfjöllun - eru bíóferð- ir. Á þvi sviði er ég sjúklingur. Upplifun í kvikmyndahúsi er marg- falt sterkari á allan hátt en 26 tommu skermur í stofuhomi. Ég mæli því eindregið með bíóferðum og vil í því sambandi láta fljóta með uppskrift að bíósnarli frá Kobba frænda: 1 popp, 1 hrískúlupoki. Blandist á staðnum. Besta myndin í bænum um þessar mundir er án efa Betty Blue. Ég hef farið tvisvar á hana og stefni á þriðju ferðina innan tíðar. James Bond er hins vegar mynd upp á tvær ferðir. Seinni ferðin er til að reyna að hanka framleiðendur á blöffi í áhættuatriðum. Eftir bíóferð er gott að slappa af og hlusta á næturútvarp Bylgjunn- ar. Þvi miður sofha ég oftast út frá útvarpinu svo ég get ekki dæmt um alla dagskrána. Þið ættuð kannski að spyrja stelpumar sem leigja á neðri hæðinni! Ásgeir Blöndal Magnússon verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 4. ágúst kl. 10.30. Antonía Erlendsdóttir frá Siglu- nesi verður jarðsett frá Akureyrar- kirkju í dag, 31. júlí, kl. 13.30. Þórunn Björg Jakobsdóttir, sem andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu Neskaupstað, laugardaginn 25. júlí, verður jarðsungin frá Norðfjarðar- kirkju í dag, 31. júlí, kl. 14. Árni Sigurður Gunnarsson, Sund- laugavegi 10, lést af slysförum 26. júlí sl. Hann var fæddur í Borgar- nesi 25. nóvember 1968 og ólst þar upp. Hann var sonur hjónanna Jó- hönnu Sigurðardóttur og Gunnars Jóns Árnasonar rafvirkja. Árni Gunnar var mikill áhugamaður um íþróttir og lék bæði með Ungmenna- félaginu Skallagrími í Borgarnesi og körfuknattleiksdeild ÍR. Hann starf- aði hjá Loftorku hf. í Borgarnesi. Ámi Gunnar verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 5. ágúst kl. 13.30. Messur Þingvallakirkja Guðsþjónusta á sunnudag kl. 14. Organleikari Einar Sigurðsson. Sóknarprestur. Tapað - Fundið Kola er týnd Kola er svört og gulbrún yrjótt læða. Hún á heima í Hlíðunum og hefur ekki sést síðan fimmtudaginn 23. júlí. Hún gæti hafa lokast inni í bílskúr eða geymslu. Þeir sem hafa orðið hennar varir eru beðn- ir að hringja í Guðmundu, s. 621525, eða í Dýraspítalann, Víðidal, s. 76620. Myndavél tapaöist Premier myndavél tapaðist í Glaðheimum sl. sunnudag. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 22655 eða 24774. Fundariaun. Tímarit Sjónmál, nýtt tímarit Hjá útgáfufélaginu Stöku er komið út 1. tbl. tímaritsins Sjónmáls sem er tímarit um kvikmyndir og video. Ritstjórn er í höndum þeirra Gunnars Hersveins Sigur- steinssonar og Jóns Egils Bergþórssonar. Framkvæmdastjóri er Bjarni Þór Sigurðs- son. Tímaritið er 84 síður að stærð með fjölbreyttu efni og mikið myndskreytt. Utlitshönnuðir þess eru Björgvin Ólafsson og Einar Garibaldi. I blaðinu eru m.a. greinar um James Bond. Foxtrott. Plato- on. Orson Wells. Ran. Miu Farrow og David Linch. Þá má nefna viðtöl við Karl Júlíusson. Eddie Murphy. Kim Basinger o.fl. Fjölmargar. mvndir sem nýlega eru komnar út á videospólum, fá umsögn og sagt er frá því nýjasta sem er að gerast í kvikmyndaheiminum bæði hér heima og erlendis. Tímaritið kemur út á tveggja mánaða fresti og kostar 289 í lausasölu. Áskrift (6 tölublöð) kosta kr. 1.400 og hafa aðstendendur Sjónmáls ákveðið að draga úr nöfnum allra þeirra sem gerast áskrif- endur fyrir 1. okt. nk. Eitt nafn og fær sá heppni videomyndavél að verðmæti 72.000 kr. Sjónmál og útgáfufélagið Staka hf. eru til húsa að Laugavegi 18a og er skrifstofu- sími þeirra 624070. Tilkyimingax Prestur kosinn í Hjallaprestakalli Á kjörmannafundi í Hjallaprestakalli, sem haldinn var í safnaðarheimili Digranes- safnaðar 29. júlí, var séra Kristján Einar Þorvarðsson kjörinn f>Tsti prestur þessar- ar nýju sóknar sem stofnuð var í vor. Á kjörmannafundinum mættu 16 af 18 kjör- mönnum en þeir eru aðal- og varamenn í sóknarnefndinni. Er þetta í fyrsta skipti sem prestur er valinn með þessum hætti eftir nýjum lögum um prestkosningar irá því í vetur. Umsækendur um Hjallapresta- kall voru fjórir. Háls-, nef- og eyrna- læknir áferð um Austfirði og Suðurland Einar Sindrason háls-, nef- og eymalæknir ásamt öðrum sérfræðingum Heymar- og talmeinastöðvar íslands verða á ferð um Austfirði og Suðurland dagana 8. ág. til 14. ág. nk. Rannsökuð verður heyrn og tal og útveguð heyrnartæki. Farið verður á eftirtalda staði: Fáskrúðsfjörður 8. ágúst, Breiðdalsvík 9. ágúst, Djúpivogur 10. ágúst, Höfn í Hornafirði 11. og 12. ágúst, Kirkjubæjarklaustur 13. ágúst og Vík 14. ágúst. Tekið á móti tímapöntunum á við- komandi heilsugæslustöð og er fólki bent á að panta tíma sem fyrst. Aktu ÖKUM EINS OG MENN! eins og þú vilt að aorir aki! ||U^IFERÐAR Loftbru - Vestmannaeyjar - Hella Sem undanfarin ár mun Leiguflug Sverris Þóroddssonar halda uppi loftbrú um versl- unarmannahelgina. Reglulegum ferðum verður haldið uppi og það verður farið að minnsta kosti á klukkutíma fresti, eins lengi og þátttaka levfir. frá Rvík til Vest- mannaeyja og frá Hellu til Vestmanna- evja. Fargjöld eru á mjög viðráðanlegu verði kr. 1300 frá Hellu til Vestmannaeyja og kr. 2000 frá Rvík til Vestmannaeyja. Farpantanir á Hellu í síma 99 5165 og 28011 hjá Leiguflugi Sverris. Trvggið ykk- ur tímanlega ferð með LÞS. Byggtnganefnd Reykjavfkun Sviptir húsa- smíðameist- araviður- kenningu í Reykjavík Ólafur Bjömsson húsasmíðameistari hefur verið sviptur viðurkenningu til að starfa sem húsasmíðameistari í Reykjavík. Bygginganefhd Reykjavík- ur ákvað þetta á fundi sínum í vikunni. Ólafur mun hafa brotið bygginga- reglugerð við framkvæmdir í Hamars- húsinu við Tryggvagötu. Bygginganefnd krefst þess að nýir iðnmeistarar skrái sig fyrir þeim verk- þáttum sem ólokið er við. Einnig er iðnmeisturunum gert að ljúka við ólokna verkþætti fyrir 26. ágúst að viðlögðum dagsektum sem eru 10.000 krónur á dag. -sme Innbrot á Hvammstanga Brotist var inn í Kaupfélagið á Hvammstanga og stolið þar 90 þúsund krónum í peningum. Innbrotið var fra- mið aðfaranótt fimmtudags. Þjófurinn eða þjófamir unnu litlar sem engar skemmdir. Málið er enn í rannsókn og biður lögreglan í Húnavatnssýslu þá sem geta gefið upplýsingar um mannaferðir við Hvammstanga á þess- um tíma að láta sig vita. -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.