Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1987, Síða 30
42
FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1987.
Skák r>v
íslendingar sigursælir á Norðurlandamótinu í Þórshöfh:
Sigur í fimm flokkum af sex
- Sigurskák Jóhanns gegn Marin á millisvæðamotinu
Aldrei hafa íslendingar átt jafn-
marga sigurvegara á Norðurlanda-
mótinu í skák eins og því sem nýlokið
er í Þórshöfn í Færeyjum. í öllum
flokkum nema einum varð sigurinn
íslenskur, þó svo íslensku keppend-
umir á mótinu hefðu einungis verið
átján af samtals hundrað og einum
þátttakanda. Það var aðeins í „al-
mennum flokki B“ sem fjölfótluðum
Dana, John Petersson, tókst að sigrast
á íslensku hakkavélinni og vinna ör-
uggan sigur.
Mesta athygli beindist vitaskuld að
úrvalsflokki þar sem teflt var um
sæmdarheitið „skákmeistari Norður-
landa". Á endanum tókst Margeiri
Péturssyni að tryggja sér titilinn,
fyrstum Islendinga í sextán ár, eftir
harða baráttu við Helga Ólafsson, sem
varð að bíta í það súra epli að tapa
síðustu skákinni. Margeir og Helgi
sigu fram úr Dönunum Curt Hansen
og Erling Mortensen í lokaumferðun-
um. Danirnir leiddu mótið lengst af -
voru „Norðurlandameistarar" í níu
umferðir af ellefu. Næstsíðasta um-
ferðin reyndist þeim örlagarík.
Margeir vann Mortensen af miklu
öryggi, sem þar með missti forystuna,
og Curt Hansen, sem stóð jafnframt
afar vel að vígi í mótinu, tapaði óvænt
fyrir Finnanum Válkesálmi.
Vel má vera að vanhugsuð setning,
sem hrökk upp úr Helga við matar-
borðið þennan dag, hafi ráðið úrslitum
á mótinu. Við sátum til borðs með
Curt Hansen og rétt í þann mund er
við vorum að standa upp sagði Helgi
>við Curt: „Jæja, þá ert þú búinn að
vinna þínar venjulegu fimm skákir í
röð.“ Þessi meinleysislegu orð fengu
mjög á Curt, sem vissi upp á sig sök-
ina. í a.m.k. þremur mótum hefur
honum tekist að vinna fimm skákir í
röð en aldrei þá sjöttu. Enda fór svo
síðar um daginn að hann lá kylliflatur
fyrir Válkesálmi. „Þetta var allt þér
að kenna,“ sagði hann vonsvikinn við
Helga eftir skákina.
Elsti keppandi mótsins var hinn 83ja
ára gamli en síungi Erik Lundin frá
Svíþjóð, sem tefldi í meistaraflokki.
Lundin náði forystunni snemma og lét
sig ekki muna um að taka nokkrar
léttar skákir á útitaflinu í miðbænum
milli umferða. íslendingamir í þessum
flokki vom þó ekki á þeim buxunum
að gefast upp og láta öldunginn hlaupa
burt með sigurinn. I lok mótsins tókst
þeim að síga fram úr. Mestu munaði
er Lundin teygði sig of langt í jöfnu
hróksendatafli gegn Færeyingnum
Rana Nolsöe og tapaði. Þá náði Tóm-
as Bjömsson forystunni og með jafn-
tefli í síðustu umferð við þennan sama
Rana tryggði hann sér sigurinn. Tóm-
as hlaut 7 v. af 9 mögulegum, Róbert
Harðarson varð einn í 2. sæti með 6 'ó
v., síðan Lundin og Nolsöe með 6 v.,
Jón Ámi Halldórsson, Sigurður Daði
Sigfússon og Lars Blomström fengu
5 '/2 v„ í 8. sæti varð Arnar Þorsteins-
son með 5 v„ Bogi Pálsson hlaut 4'/2
v„ Páll Leó Jónsson 3 '/2 v. og Magnús
Ömólfsson fékk 3 v. í almennum flokki
A varð Ægir Páll Friðbertsson efstur
með 7 v. og Sæberg Sigurðsson hreppti
2. sæti með 6 Vi v. Norðmaðurinn Ein-
ar Lauritzen fékk einnig 6'/2 v. og 3.
sæti og 4. sæti með sömu vinningatölu
hlaut Páll A. Jónsson. Magnús Sigur-
jónsson hlaut 5 v. og Sigurður Ingason
3'/2 v.
Guðni Harðarson hreppti 5. sæti og
öVz v. í almennum flokki B, Gunnar
Svavarsson fékk 5 v. og Kristján
Kristjánsson einnig. Kristján náði
besta árangri sveina á mótinu, en
keppni i sveinaflokki var sameinuð
þessum flokki. Kristján hlaut því
sæmdarheitið „sveinameistari Norð-
urlanda".
íslendingar urðu einnig hlutskarp-
astir á hraðskákmóti Norðurlanda -
af fimm efstu mönnum voru fjórir ís-
lendingar. Amar Þorsteinsson varð
efstur með 14 v., Róbert Harðarson
hlaut 131/2 v„ Tómas Bjömsson 13 v.
og Sigurður Daði Sigfússon og Krist-
ensen fengu 12 /2 v.
Skákstjóri á mótinu var Þorsteinn
Þorsteinsson.
Margeir taldi skákina við Schneider
úr 5.. umferð sina bestu á mótinu.
Honum tekst að jafha taflið tiltölulega
auðveldlega eftir byrjunina og smám
saman nær hann undirtókunum. Það
er þó ekki fyrr en Schneider leikur
g-peðinu fram í 27. leik, sem Margeir
fær vemlegan ávinning. í framhaldi
skákarinnar á hvítur í erfiðleikum
með að valda veikt kóngspeðið og er
það síðan fellur þarf ekki að spyija
að leikslokum.
Hvítt: Lars Aake Schneider
Svart: Margeir Pétursson
Sikileyjarvörn.
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
RfB 5. Rc3 g6 6. Bc4 Bg7 7. h3 (H) 8. 0-0
a6 9. Hel b5 10. Bb3 Bb7 11. Bg5 Rbd7
12. Rd5 e6 13. Rxf6+ Bxf614. BxfB DxfB
15. c3 Hfd8
Hvítur hefur valið fremur bitlaust
afbrigði gegn „Drekanum ógurlega“
og nú er taflið að heita má í jafhvægi.
16. Dd2 Rc5 17. Bc2 e5 18. Rb3 Re6 19.
Ra5 Hab8 20. De3
Til greina kom 20. Rxb7 Hxb7 21.
b4 og síðan a2-a4 og reyna að skapa
veilur í peðastöðu svarts á drottning-
arvæng. Riddari hvíts á a5 stendur
ekki sérlega vel, þvi að svarti biskup-
inn tekur af honum reitina.
20. - Ba8 21. b4 h5! 22. Bb3 Rf4 23. Kh2
h4 24. Hadl
Ómarkvisst, eins og raunar tafl-
mennska hvíts í framhaldinu. Betra
er 24. a2-a4.
24. - Kg7 25. a3(?) Hbc8 26. c4 Dg5 27. g3?
Hann varð að halda sér fast með 27.
Hgl. Eftir óhjákvæmileg uppskipti á
g3 fær hvítur slæma peðastöðu, hvort
sem hann drepur aftur með peði eða
manni.
27. - Re6 28. Hcl hxg3 29. fxg3 Dxe3 30.
Hxe3 Rg5 31. Hcel fö!
Nú er kóngspeðið dauðans matur (ef
32. exfo, þá 32. - Rf3 + með skiptamun-
svinningi) og hvíta staðan fellur með.
32. cxb5 axb5 33. Bd5 Rxe4 34. Bxa8
Hxa8 35. Hcl Hdc8 36. Heel d5 37. Rc6
KfB 38. Hedl Hxa3 39. Hxd5 Ha6! 40.
Hxe5 Haxc6 41. Hxc6+ Hxc6
- Og hvítur gafst upp.
Skriður á Jóhanni
Jóhann Hjartarson stendur sig frá-
bærlega vel á millisvæðamótinu i
Szirak í Ungverjalandi. Að loknum 9
umferðum hafði hann 6 vinninga
ásamt Nunn og Salov en Beljavsky
var einn efstur með 6 /2 v. og biðskák
við Andersson. Portisch og Ljubojevic
höfðu 5 /2 v. og innbyrðis biðskák, þar
sem Portisch var að reyna að knýja
fram sigur.
Jóhann hefur aðeins tapað einni
skák til þessa á mótinu, gegn ung-
verska stórmeistaranum Adorjan. Að
sögn Elvars Guðmundssonar, aðstoð-
armanns Jóhanns, höfðu þeir félagar
undirbúið afbrigði af drottningarind-
verskri vöm fyrir skákina, en er
Jóhann var sestur að tafli tók hann
skyndilega upp á því að tefla kóngs-
indverska vöm. I framhaldi skákar-
innar fékk hann þokkalega stöðu en
í miðtaflinu valdi hann ranga áætlun
og varð að gefast upp eftir rúma fjöm-
tíu leiki.
I fyrstu umferðum mótsins fór Jó-
hann sér að engu óðslega og tefldi af
öryggi. Jafntefli við stórmeistarana
Portisch, Nunn og Velimirovic komu
honum vel í gang. Síðan góður sigur
gegn bandaríska stórmeistaranum
Larry Christiansen og enn tveir si-
grar, gegn Spánverjanum de Villa og
Bouaziz frá Túnis. Eftir þetta átti Jó-
hann erfiðan kafla. Honum tókst með
hörmungum að halda jafntefli gegn
Andersson og síðan kom tapið fyrir
Adoijan. En nú hefur hann aftur náð
upp dampi. Andstæðingur hans í 9.
umferðinni, Rúmeninn Marin, lá kyl-
liflatur í marineringu, eftir að hafa
fengið hartnær tapað tafl eftir aðeins
ellefu leiki!
Flestir skákmennimir búa steinsnar
frá skákstaðnum í Szirak en íslending-
amir og fimm aðrir - Salov, Bouaziz,
de la Villa, Todorcevic og Marin -
verða að láta sér vel líka að þurfa að
ferðast 30 km leið til og frá hótelinu,
sem er í bænum Asca, að skákstað.
Campomanes FIDE-forseti réð því
hverjir keppenda fengju ókeypis skoð-
unarferð á degi hverjum.
Lítum á skák Jóhanns við Marin.
Sigurinn er náttúrlega sérlega
ánægjulegur fyrir þá sök að Marin
þessi átti mesta sök á því að Taflfélag
Reykjavíkur skyldi verða slegið út úr
Evrópubikarkeppni taflfélaga í Búkar-
est á dögunum. Vann Margeir tvöfalt
og tefldi þá eins og herforingi.
Hvítt: Jóhann Hjartarson
Svart: Mikhai Marin
Sikileyjarvörn.
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
e6 5. Rc3 Dc7 6. Be2 a6 7. 0-0 Rxd4 8.
Dxd4 b5 9. Be3 Bb7 10. Hfdl Hc8??
Það getur enn gerst að sterkir meist-
arar leiki af sér eftir aðeins 10 leiki í
svo þekktri byijun sem Sikileyjarvöm-
in er. Jóhann er snöggur upp á lagið.
11. Bf4!
Biskupinn má vitaskuld ekki drepa:
11. - Dxf4?? 12. Dxd7 mát. Nú lendir
svartur í mikilli klemmu með menn
sína. Takið eftir að hann hefur van-
rækt að koma mönnum sínum kóngs-
megin í leikinn.
11. - Dc6 12. a4 bxa4
Ekki 12. - b4? vegna 13. Rb5!með
vinningsstöðu.
13. Dxa4
Einfalt og sterkt. Svartur getur ekki
varið a-peðið með góðu móti (13. - Ha8
14. Dxcé dxc6 15. Ha4 a5 16. Hdal Bb4
17. Rdl og síðan c2-c3) og verður að
sætta sig við hreint peðstap og erfiða
stöðu að auki.
13. - RfB 14. Bxa6 Bxa6 15. Dxa6 Dxa6
16. Hxa6 Bb4 17. Rb5! 0-0
Eftir 17. - Rxe4 er 18. Ha4 einfald-
ast, með mannsvinningi.
18. c3 Bc5 19. Bd6 Hfd8 20. Ra7! Bxa7
21. Hxa7 Ha8
Eða 21. - Rxe4 22. Be7 He8 23. Hlxd7
og vinnur létt.
22. Hxa8 Hxa8 23. e5 Rd5 24. c4 Rb6 25.
b3 Hc8 26. Bb4 Hc6 27. Ba5 f6 28. Hd6!
Hxd6 29. exd6 Rc8 30. Bc7 e5 31. b4 Kf7
32. b5 Ke6 33. c5 Kd5 34. c6 Ke6 35. b6
- Og þar sem ný hvít drottning er í
sjónmáli gafst Marin upp. Hann átti
aðeins hálfa mínútu eftir á klukkunni
en Jóhann rúma hálfa klukkustund.
-JLÁ
Bridge
EM í Brighton:
ísland sendir tvær sveitir
Landsliðshópurinn sem spilar i Brighton næstu tvær vikur. Talið frá vinstri:
Efri röð: öm Arnþórsson, Jón Baldursson, Guðlaugur R. Jóhannsson,
Ásgeir Ásbjömsson, Hjalti Eliasson, Sigurður Sverrisson, Aðalsteinn Jörg-
ensen og forseti BSÍ, Bjöm Theodórsson. Sitjandi frá vinstri: Valgerður
Kristjánsdóttir, Halla Bergþórsdóttir, Erla Sigurjónsdóttir, Esther Jakobs-
dóttir, Dröfn Guðmundsdóttir og Kristjana Steingrímsdóttir.
DV-mynd JAK
I dag hefst Evrópumótið og er
spilað í Brighton í Englandi. ísland
sendir tvö lið til keppni, annað í
opna flokkinn og hitt í kvennaflokk.
Liðið í opna flokknum er undir
stjóm Hjalta Elíassonar bridge-
meistara og hefur hann þjálfað liðið
vel undanfama þijá mánuði. í liðinu
spila Ásgeir Ásbjömsson, Aðal-
steinn Jörgensen, Guðlaugur R.
Jóhannsson, Öm Amþórsson, Jón
Baldursson og Sigurður Sverrisson.
Án efa verður róðurinn þungur fyrir
strákana en dýrmæt reynsla Hjalta
í gegniim árin gæti hjálpað þeim upp
fyrir miðjuna.
Fyrirliði kvennalandsliðsins er
Guðmundur Sv. Hermannsson en í
því spila Halla Bergþórsdóttir,
Kristjana Steingrímsdóttir, Esther
Jakobsdóttir, Valgerður Kristjáns-
dóttir, Dröfri Guðmundsdóttir og
Erla Siguijónsdóttir. Eflaust verður
róðurinn enn þyngri fyrir þær þrátt
fyrir að meirihluti sveitarinnar hafi
nokkra reynslu í milliríkjaspila-
mennsku.
I tilefhi mótsins rifjum við upp
spil frá leik Islands við England á
Evrópumótinu í Brighton 1975. Is-
land vann leikinn 13-7.
A/N-S
Vntur
4 6
O 87
0 AKD93
4 A8765
Noröur
+ D92
V AG532
Ö&42
492
#
♦ KG7543
^ 1064
0 87
4 G3
♦ A108
V KD9
0 G106
4 KD104
I opna salnum sátu n-s Flint og
Rose, en a-v Stefán Guðjohnsen og
Símon Símonarson. Ritstjóra móts-
blaðsins fannst landinn heppinn:
Austur Suður Vestur Norður
2 S 2 G dobl pass
pass pass
Tveggja spaða opnun austurs var
veik í orðsins fyllstu merkingu. Vest-
Bridge
Stefán Guðjohnsen
ur hefur áreiðanlega búist við meiri
veislu en hann fékk sex fyrstu slag-
ina og síðan tók Rose afganginn.
Einn niður og 200 til íslands.
Á hinu borðinu sátu n-s Hallur
Símonarson og Þórir Sigurðsson, en
a-v Priday og Rodrigue. Austur
stillti sig um að opna á tveimur tígl-
um (multi) og suður fékk að opna á
einu grandi. Vestur sagði tvo tígla,
norður tvö hjörtu, austur tvo spaða,
suður pass, vestur þrjú lauf, norður
þrjú hjörtu og allir pass. Vömin hirti
fimm slagi og England fékk 100. Það
voru 3 impar til íslands.