Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1987, Blaðsíða 32
44
FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1987.
Urval
Við allra hæfí
Sviðsljós
Falleg og vin-
sæl Bondpía
Kjörinn ferðafélagi, fer vel í vasa, vel í hendi, úrvalsefni af öllu tagi.
Ágústheftíð á öllum helstu blaðsölustöðum.
Hin gullfallega franska stúlka
Maryam D’Abo er nú orðin heims-
fræg eftir leik sinn í James Bond
myndinni The living daylight eða
Logandi hræddir eins og hún hefur
verið nefnd hér á landi.
Maryam, sem er fyrrum fyrirsæta,
hafði ekki fengið mörg leiktækifæri
áður en hún lék í þessari mynd. Hún
lék þó í sjónvarpsþáttunum Master
of the game sem nýlega voru sýndir
hér á Islandi við góðar undirtektir.
Nú, eftir Bondmyndina, fær Maryam
hins vegar fjöldann allan af kvik-
myndatilboðum og vinsældir hennar
eru með ólíkindum. Bondmyndirnar
hafa líka löngum verið þekktar fyrir
fallegar stúlkur og jafnan verið
stökkpallur þeirra leikkvenna, sem
þar hafa leikið, upp metorðastigann.
A meðfylgjandi Reutersmynd má
sjá Maryam D’Abo þegar hún kom
fram í þættinum Góðan daginn Am-
eríka sem eru óhemjuvinsælt efni þar
vestra. Maryam talaði um hlutverk
sitt í Logandi hræddir og framtíðará-
form sín.
Verðið hjá okkur
er lágt venjulega.
Nú er það
þremur stöðum
Smiðjuvegi 2b, byrjar í dag.
Hringbraut 119 v/JL, byrjar á morgun, laugardag.
Skólavörðustíg 19, byrjar á morgun, laugardag.
Opið laugardaga 10-16.
VtSA
Smiöjuvegi 2b
79866
Skóiavöröustíg 19
623266
Hringbraut 119
611102
Hlýlegur
sebra-
klæðn-
aður
Nú hellist vetrartískan í stórum
stíl yfir heiminn og í fyrradag sýndi
Ameríkaninn Patrick Kelly nýju
hátísku-vetrarlínuna sína í París.
Samsetningin hjá honum er frekar
óvenjuleg eins og sést á myndinni.
Minipils úr gervi-sebraskinni og
doppóttur bolur við. Rendur og dopp-
ur saman í sæng. Yfir allt saman
notar hann hárauðan aðskorinn
jakka, svarta hanska og toppurinn á
klæðnaðinum er hvít loðhúfa sem er
góð í vetrarkuldunum.
Símamynd Reuter