Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1987, Qupperneq 33

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1987, Qupperneq 33
 Sviðsljós Ólyginn sagði... Brigitte Bardot sem nú er 53 ára olli miklum úlfaþyt í veislu í París fyrir stuttu. Þegar þessi fyrrum feg- urðardrottning gekk inn í salinn sló þögn á mannskap- inn sem trúði ekki sínum eigin augum, svo ellileg er Bardot orðin. Þegar fólkið hafði jafn- að sig og áttað sig á að þarna var Bardot á ferð byrjaði það að klappa fyrir hugrekki stjörnunnar og á endanum klappaði og stappaði hver sem betur gat fyrir Bardot sem varð bara feimin. „Mínar hrukkur eru til komnar af erf- iðu líferni og ofnotkun sminks," segir Bardot, „en mér er svo illa við andlitslyft- ingar að ég get ekki hugsað mér að gangast undir eina slíka." Chevy Chase er gamanleikari af lífi og sál og hann er ekki á þeim þuxun- um að yfirgefa þann þransa. Nýlega hefur Chase skrifað undir samning þar sem áfram- haldandi ferill hans sem gamanleikara er tryggður. Hann mun nefnilega leika að- alhlutverkið í framhaldsmynd þeirrar þráðskemmtilegu myndar Fletch. Chase er heppinn að nú er í tísku að gera framhaldsmyndir þvl hann mun fá ógrynni fjár fyrir vikið. m Harrison Ford er nýbúinn að eignast barn og er hann mjög stoltur yfir föðurhlutverkinu. Hann vill ekki að barnið sitt, sem reynd- ar er strákur, líði skort og fyrir stuttu keypti hann föt á stráksa fyrir rúmlega 500 þús. Með í þeim fatapakka voru sérsaumuð barnasmókingföt frá Christian Dior. Aðeins það þesta fyrir þarnið hans Harri- son en Sviðsljósið þorir að fullyrða að með sama áfram- haldi verði strákur örugglega svolítið dekraður. FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1987. J3V Davið Scheving Thorsteinsson stendur við tölvumyndvarpann og útskýrir fyrir fólki hvernig framleiöslan gengur fyrir sig. Diskó að hætti Boney M. Maður fer að halda að ísland sé að verða eitt vinsælasta tónleikaland í heimi. Frægar stjörnur birtast trekk í trekk og maður er varla bú- inn að melta síðustu hljómsveit fyrr en ný kemur og stelur athyglinni. En það er ekkert við það að athuga, svona á lífið að vera og óskandi er að áframhald verði. Gamla, vinsæla diskóhljómsveitin Boney M. kom eins og kunnugt er til landsins um síðustu helgi í tilefni eins árs afmælis skemmtistaðarins Evrópu. Hljómsveitin tróð upp bæði föstudags- og laugardagskvöld við geysigóðar undirtektir. Hljómsveitin Boney M. var stofnuð árið 1975 og átti strax mikilli vel- gengni að fagna enda brautryðjandi á sviði diskótónlistar. Þau skutust upp á stjörnuhimininn með ævin- týralegum hraða og plötur þeirra seldust í tugmilljónaupplagi. Árið 1981 ákvað söngvarinn Bobby Farrel að hætta í hljómsveitinni og reyna að komast áfram á eigin spýt- ur. Það fór nú eitthvað út um þúfur hjá karlanganum og síðan í vor hefur Boney M. starfað sameinuð á ný. Það var mikið um dýrðir í Evrópu á föstudaginn þegar a&nælið var haldið en auk Boney M. spiluðu hljómsveitirnar Greifarnir og Maó. Kynning á Sólgosi Það var alveg fullt í Evrópu sl. föstudag enda gestirnir ekki af verri endan- um, siálf stórhljómsveitin Boney M. Mikið stuð var á mannskapnum og ekki sist hljómsveitinni sem söng og dansaði oa hélt öllum í formi. Þau eru alveg einstaklega hárprúð og karlmaöurinn í hópnum minnir svo- litið á Prince í útliti. Módelsamtökin sýndu tískufatnað. DV-myndir Kristján Ari Eins og alkunna er hefur Davíð þessu tilefni, eru þær fyrstu sinnar Scheving Thorsteinsson nú hafið tegundar í heiminum. Það verður framleiðslu gosdrykkja undir nafn- boðið upp á 5 bragðtegundir með eða inu Sólgos. Uppskriftir gosdrykkj- án sykurs og einn drykkurinn, anna eru alíslenskar og umbúðavél- Súkkó, drykkur með súkkulaði- arnar, sem teknar voru í notkun af bragði, mun vera nýr af nálinni hér á Islandi. Til að kynna verksmiðjuna og starfsemi hennar bauð Sól hf. til kynningar sl. föstudag og mættu þar um 200 manns. Öllum var boðið upp á Sóldrykki og Davíð varpaði mynd- um upp á vegg til að skýra starfsem- ina út. Eftir á fóru starfsmenn verksmiðjunnar með 10-15 manna hópa í skoðunarferðir þar sem fylgst var með framleiðslunni frá byrjun til enda. Hrefna, Þóra og Sigga buðu öllum gestum upp á drykki við hvers hæfi, sykraða og ósykraða, áfenga og óáfenga. Edda Guðmundsdóttir og maður hennar, Steingrimur Hermannsson, utanrík- isráðherra voru meðal hinna 200 gesta sem komu og fræddust um hina nýju verksmiðju.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.