Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1987, Síða 1
Ef þú vilt dansa
ABRACADABRA,
Laugavegi 116
Diskótek fbstudags- og laugardagkvöld.
ÁRTÚN,
Vagnhöfða 11, sími 685090
Gömlu dansarnir á föstudagskvöld. Opið
kl. 21-03. Nýju og gömlu dansarnir laugar-
dagskvöld, opið kl. 22-03. Hljómsveitin
Danssporið ásamt söngkonunni Krist-
björgu Löve bæði kvöldin.
BROADWAY,
Álfabakka 8, Reykjavík, sími 77500
Stórsýningin Allt vitlaust verður
föstudags- og laugardagskvöld ásamt
hljómsveit Siggu Beinjeins sem leikur í
síðasta sinn í Broadway. Húsið er opið frá
22.00-03.00. Matur framreiddur fyrr um
kvöldið.
CASABLANCA,
Skúlagötu 30
Diskótek föstudags- og laugardagskvöld-
um frá kl. 22-03.
DUUS-HÚS,
Fichersundi, sími 14446
Diskótek föstudags- laugardags- og sunnu-
dagskvöldum opið frá 22 til 03.
EVRÓPA
v/Borgartún
Diskótek föstudags- og laugardagskvöld.
Dúettin Weather girls skemmtir bæði
kvöldin. Húsið er opið frá kl. 22-03.
GLÆSIBÆR,
Álfheimum
Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi
föstudags- og laugardagskvöld frá 22-03.
HOLLYWOOD,
Ármúla 5, Reykjavík
Tónlist 7. áratugarins verður á föstudags-
og laugardagskvöld með Óðmönnum í
broddi fylkingar í „Leitinni að týndu kyn-
slóðinm". Húsið opið 22-03.
HÓTEL BORG,
Pósthússtræti 10, Reykjavík, sími 11440
Diskótek föstudags- og laugardagskvöld.
Gömlu dansarnir á sunnudagskvöld.
Hljómsveit Jóns Sigurðssonar leikur.
HÓTEL ESJA, SKÁLAFELL,
Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, sími
82200
Dansleikir föstudags- og laugardagskvöld.
Hljómsveitin Kaskó leikur. Tískusýning
öll fimmtudagskvöld.
HÓTELSAGA
v/Hagatorg, Reykjavík simi 20221
Hljómsveit Grétars Örvarssonar leikur
fyrir dansi í Súlnasal Hótel Sögu föstu-
dags- og laugardagskvöld. Á Mímisbar
leikur Stefán Jökulsson.
LENNON
v/Austurvöll, Reykjavík, simi 11630
Diskótek föstudags- og laugardagskvöld
MIAMI,
Skemmuvegi 34, Kópavogi, sími 74240
Diskótek föstudaga og laugardaga. Ald-
urstakmark 16 ár.
ÚTÓPÍA,
Suðurlandsbraut 26
Diskótek föstudags- og laugardagskvöld.
ÞÓRSKAFFI,
Brautarholti 2, Reykjavík, sími 23333
Hljómsveit Stefáns P. leikur á efri hæð
hússins föstudags- og laugardagskvöld.
Diskótek á neðri hæðinni.
Fjöldi skemmtiatriða, skrúðganga og fleira verður við opnun Laugaveg-
arins á laugardag.
Formleg opnun Laugavegarins:
Þjónustuaðilar
veita vöruafslátt
Sá hluti Laugavegarins, sem hef-
ur verið í endurbyggingu í sumar,
verður formlega opnaður á morg-
un, laugardag. Davíð Oddsson
borgarstjóri mun klippa á borða
sem tengdur hefur verið á milli
Frakkastígs og Laugavegar.
Samtök Gamla miðbæjarins ætla
að nota tækifærið og kynna fólkinu
þá þjónustu sem býðst. Eru 800
aðilar með ýmiss konar atvinnu-
starfsemi í miðbænum. Opið verður
frá kl. 10.00 um morguninn til kl.
16.00. Ný bílastæði á Faxaskála-
svæðinu rúmar 370 bíla.
Dagskráin hefst kl 12.40. Þá verð-
ur Lúðrasveit verkalýðsins í farar-
broddi göngu niður að mótum
Frakkastígs og Laugavegar þar
sem Davíð klippir á borðann. Hann
mun síðan ferðast með miðbæjar-
strætó niður í bæ sem verður
fallega skreyttur allan föstudag og
laugardag.
Fornbílaklúbburinn og Trabant-
klúbburinn munu aka niður
Laugaveginn á eftir Lúðrasveit-
inni.
Þrettán aðilar á Laugaveginum
munu verða með sérstaka kynn-
ingu á vörum sínum fyrir utan
búðirnar ef veður leyfir og ætla
allflestir aðilar í miðbænum að
veita afslátt af vörum sínum.
Jón Páll ætlar að setja nýtt íslandsmet í Suzukilyftu í dag.
Reykjavíkurdagur á Lækjartorgi:
Fjöltefli, grill-
veisla og hljómleikar
- Jóhann teflir fjöltefli
Stórmeistarinn og skákhetja
okkar íslendinga, Jóhann Hjartar-
son, teflir fjöltefli á Lækjartorgi í
dag við 10 fræknustu kappa lands-
ins og hefst leikurinn kl. 13.30.
Davíð Oddsson borgarstjóri mun
tefla fyrstu skákina. Að því loknu
munu Tommahamborgarar ásamt
Stjörnunni, sem stendur fyrir þess-
ari skemmtun, efna til grillveislu
þar sem góðgæti verður fyrir fjölda
manns. Kl. 14.15 fremur Ingólfur
töframaður nokkra galdra og um
fjögurleytið hefjast tónleikar á
Torginu þar sem fjöldi þekktra ís-
lenskra tónlistarmanna mun koma
fram. Þar verður Stuðkompanííð,
Hljómsveitin DADA, Laddi, Meg-
as, Björgvin Halldórsson og Eyjólf-
ur Kristjánsson taka nokkur lög
úr rokkleiknum Allt vitlaust, sem
er á fjölunum á Broadway um þess-
ar mundir, og síðast en ekki síst
mæta frystikistugæjarnir úr Greif-
unum. I lokin verður það svo
enginn annar en Jón Páll sem ætl-
ar að setja nýtt íslandsmet í lyft-
ingum á Suzuki sem ekki hefur
verið reynt við hér á landi áður.
Sem fyrr segir mun Stjarnan
standa fyrir þessari uppákomu á
Lækjartorgi í dag og hafa þeir til-
einkað Reykvíkingum daginn frá
morgni til kvölds. Þessu verður
öllu útvarpað á Stjörnunni ásamt
miklu af öðru efni tengdu Reykja-
vík.
Opna Álafossmótið:
Tveggja
daga töm
á Hlíðavelli
Fyrsta tveggja daga Álafossmó-
tið verður haldið á Hlíðavelli í
Mosfellsbæ um helgina og er búist
við að fjöldi landskunnra golfara
taki þátt í því og einnig margir
ókunnir svo að mótið verður mjög
fjölmennt. Golfmótið hefst snemma
á laugardagsmorgun og því lýkur
ekki fyrr en síðdegis á sunnudag.
Það hefst nánar tiltekið klukkan
hálfníu á laugardagsmorgun.
Álafoss veitir vegleg verðlaun.
auk fjölda aukaverðlauna. Þeir
sem sigra í keppninni með og án
forgjafar fá vikuferð frá ferðaskrif-
stofunni Atlantik til Mallorka.
Mót á vegum Álafoss og Golf-
klúbbsins Kjalar í Mosfellbæ hafa
verið haldin undanfarin ár á Hlíða-
velli en hins vegar hefur það ekki
verið í tvo daga eins og nú og að
sögn Grétars Snæs Hjartarsonar
hefur veðrið leikið við mótsmenn
og aðra þrátt fyrir að september sé
hafinn. I fyrra var víst svo mikil
sól að keppendur, sem voru 60 tals-
ins. lögðust í sólböð á milli högga.
Hann er bjartsýnn á að gott golf-
veður verði einnig nú.
Kylfingar iandsins keppa á Hliöavelli i Mosfellsbæ um helgina.
Valgeir Guðjóns-
son í Tívolí
Stuðmanninum fótbrotna, Val-
geiri Guðjónssyni, verður aldrei
fótaskortur á tungunni og allra síst
í kvöld þegar hann mun skemmta
í Tívolíinu í Hveragerði einsamall
án Stuðmanna. Hann mætir með
gítarinn, röddina og hæfileikana
eina saman og skemmtir mönnum.
Valgeir hefur sem kunnugt er
staðið að mestu fyrir utan Stuð-
mannahópinn að undanförnu
vegna meiðsla á fæti sem hann
hlaut fyrir slysni á dögunum en
hann er að verða búinn að jafna
sig og er allavega nógu hress til
þess að skemmta mönnum í Tívolí.
Margt er annað hægt að gera sér
til skemmtunar í Tívolí um helg-
ina, skella sér í bílana og mörg
hræðslutæki. Við skulum bara
vona að engum verði fótaskortur.