Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1987, Blaðsíða 6
28
)
FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1987.
Réttir og smalameimska að hefjast
Smalamennskan í sveitunum er
að hefjast um þessar mundir og á
sunnudag munu fyrstu réttirnar
verða í Hrútatungurétt í Hrútafirði
í Vestur-Húnavatnssýslu. Við höf-
um fengið upplýsingar um 43 réttir
sem verða næstu helgar og birtum
við þær hér að neðan.
Réttum fylgja víða lífleg réttaböll
og má því vænta mikils fjörs í þeim
sveitum sem réttað verður í.
Einu réttirnar um helgina verða
sem fyrr segir í Hrútatungurétt.
Föstudagur 11. september:
Valdarásrétt í Víðidal, Vestur-
Húnavatnssýslu.
Auðkúlurétt í Svínadal, Austur-
Húnavatnssýslu, réttir einnig á
laugardag.
Undirfellsrétt í Vatnsdal, Aust-
ur-Húnavatnssýslu, réttir einnig á
laugardag.
Laugardagur 12. september:
Hraunsrétt í Aðaldal, Suður-
Þingeyjarsýslu.
Laufskálarétt í Hjaltadal, Skaga-
fírði.
Stafnsrétt í Svartárdal, Austur-
Húnavatnssýslu.
Sunnudagur 13. september:
Kaldárbakkarétt í Kolbeins-
staðahreppi í Snæfellsnessýslu.
Miðfjarðarrétt í Miðfirði, Vest-
ur-Húnavatnssýsl u.
Silfrastaðarétt í Akrahreppi,
Skagafirði.
Skarðarétt í Gönguskörðum,
Skagafirði.
Skrapatungurétt í Vindhælis-
hreppi, Austur-Húnavatnssýslu.
Mánudagur 14. september:
Brekkurétt í Norðurárdal, Mýra-
sýslu.
Fljótstungurétt i Hvítársíðu,
Mýrasýslu.
Reynistaðarrétt í Staðarhreppi,
Skagafjarðarsýslu.
Fellsendarétt í Miðdölum, Dala-
sýslu.
Þriðjudagur 15. september:
Þverárrétt í Þverárhlíð, Mýra-
sýslu.
Miðvikudagur 16. sept.:
Hítardalsrétt í Hraunhreppi,
Mýrasýslu.
Klausturhólarétt í Grímsnesi,
Arnessýslu.
Oddsstaðarétt í Lundarreykjadal,
Borgarfj arðarsýslu.
Svignaskarðsrétt í Borgarhreppi,
Mýrasýslu.
Tungnaréttir í Biskupstungum,
Árnessýslu.
Fimmtudagur 17. septemb-
er:
Grímsstaðarétt i Álftanehreppi,
Mýrarsýslu
Hrunarétt í Hrunamannahreppi,
Árnessýslu.
Skaftholtsrétt í Gnúpverja-
hreppi, Árnessýslu.
Föstudagur 18. september:
Rauðsgilsrétt i Hálsasveit, Borg-
arfjarðarsýslu.
Skeiðaréttir á Skeiðum, Árnes-
sýslu.
Bíóborgin
Tveir á toppnum (Lethal Wepa-
on) er að mörgum talin spennu-
mynd ársins, ekki að ósekju, því
að myndin er frá byrjun spennandi
lögreglumynd sem er borin á borð
fyrir áhorfendur á faglegan og
skemmtilegan máta. Mel Gibson
og Danny Glover leika tvo lög-
regluþjóna sem starfa saman í Los
Angeles. Lenda þeir í máli þar sem
er eins gott fyrir þá að hafa taugar
og þrek í lagi. Leikstjóri er Richard
Donner. Hefur honum tekist að
gera mjög góða spennumynd þar
sem karaktereinkenni tveggja að-
alpersónanna hafa ekki gleymst
því að þrátt fyrir alla hörkuna
kemur mannlega hliðin á þeim vel
í ljós, ólíkt hetjum á borð við
Rambo og aðra slíka.
Regnboginn
Vildðú værir hér (Whish You
Were here) hefur fengið góðar við-
tökur. Sérstaka athygli hefur vakið
ung 17 ára leikkona, Emily Lloyd,
er leikur aðalhlutverkið og er
henni spáð miklum frama. Leik-
stjóri myndarinnar er David
Leland er var annar handritshöf-
unda myndarinnar Monu Lisu, en
Vildðú værir hér er frumraum hans
sem leikstjóra. Myndin fjallar um
unglingsár þekktrar gleðikonu í
Englandi, Chynthiu Payne. 1
myndinni nefnist hún Lynda. Hún
reynir hvað hún getur til að fara í
taugarnar á föður sínum sem er
siðavandur maður. Þykir Emily
Lloyd takast einstaklega vel að
lýsa þessari orðljótu stelpu sem er
þó óhamingjusöm og saknar lát-
innar móður sinnar. Alvaran er í
söguþræðinum en í handritinu
leynist gamansemi sem léttir
myndina.
Stjömubíó
Nýjasta mynd Blakes Edwards
er Óvænt stefnumót (Blind Date).
Er hér um að ræða hina skemmti-
legustu mynd og þegar Edwards
tekst vel upp gerir enginn betri
gamanmyndir. Það er nýjasta
stirnið, Bruce Willis, er leikur að-
alhlutverkið, Walter Davis, sem
fær svo aldeilis að kenna á því þeg-
ar hann býður Nadiu (Kim Bass-
inger), sem hann hefur ekki séð
áður, út. Áður en hann veit af er
hann meðal annars búinn að missa
vinnuna. Sökudólgurinn er að
sjálfsögðu Nadia sem um leið og
hún bragðar vín breytist úr
draumaprinsessu í kvenmann er
lætur allt flakka. Óhætt er að lofa
þeim sem skreppa í Stjörnubíó
þessa dagana góðri skemmtun.
Bíóhöliin
Það eru nú liðin tuttugu og fimm
ár frá því að þá óþekktur, skoskur
leikari, Sean Connery, sagði hin
fleygu orð „My Name is Bond,
James Bond“ og hóf þar með nýjan
kafla í kvikmyndasögunni. Hetjur
kvikmyndanna hafa horfið en Jam-
es Bond hefur ávallt haldið velli
og nú er komið að kaflaskiptum.
Þriðji leikarinn, sem lék Bond,
Roger Moore, sagði upp starfinu
og Timothy Dalton, breskur leik-
ari, hefur tekið við hlutverkinu og
John Huston er allur en eftir
hann liggja margar kvikmyndir
sem eiga eftir að halda nafni hans
á lofti um ókomna framtíð. Ein
þeirra er Undir eldfjallinu (Under
the Volcano) sem þrátt fyrir
nokkra annmarka er geysisterk
kvikmynd og ber merki meistarans
sem hana gerði.
Myndin gerist i Mexíkó og fjallar
um konsúl Breta þar sem er að láta
af störfum. Hann er drykkjusjúkl-
ingur sem haldinn er sjálfseyðing-
arhvöt og ekki bætir um fyrir
honum sa grunur að eigmkona
hans haldi fram hjá honum með
bróður hans.
Hin geysisterku áhrif, sem kvik-
myndin hefur á áhorfandann, eru
ekki síst að þakka stórbrotnum leik
Alberts Finney í hlutverki konsúls-
ins. Þessi ágæti leikari, sem á
marga leiksigra að baki, jafnt á
sviði sem í kvikmyndum, og er
skemmst að minnast leik hans í The
Dresser, bætir hér enn einni rós í
hnappagat sitt.
Bíóhúsið
Undir eldfjallinu
Laugardagur 19. september:
Heiðarbæjarrétt í Þingvallasveit,
Árnessýslu.
Húsmúlarétt v/Kolviðarhól, Ár-
nessýslu.
Kaldárrétt við Hafnarfjörð.
Nesjavallarétt í Grafningi, Ár-
nessýslu.
Skaftártungurétt i Skaftártungu,
V estur-Skaftafellssýslu.
Sunnudagur 20. september:
Fossvallarétt við Lækjarbotna.
Mánudagur 21. september:
Kjósarrétt í Kjósarhreppi, Kjós-
arsýslu.
Kollafjarðarrétt í Kjalarnes-
hreppi, Kjósarsýslu.
Selflatarétt í Grafningi, Árnes-
sýslu.
Selvogsrétt í Selvogi, Árnessýslu.
Vogarétt á Vatnsleysuströnd,
Gullbringusýslu.
Þórkötlustaðarétt v/Grindavik.
Þverárrétt í Eyjarhreppi, Snæ-
fellsnessýslu.
Þriðjudagur 22. september:
Ölfusrétt í Ölfusi, Árnessýslu.
þar með gert nafn sitt ódauðlegt.
Það þarf ekki mikið að fjölyrða um
efni nýjustu Bond-myndarinnar.
Þeir sem hafa haft gaman af fyrri
myndum vita nákvæmlega hverju
þeir eiga von á. Ekkert hefur
breyst, aðeins nýtt andlit í kunnug-
legu hlutverki.
Háskólabíó
Gínan (Mannequin) fjallar á
gamansaman hátt um ungan mann
sem bjargar lífi verslunareigand-
ans. Verslunareigandinn tekur
hann upp á arma sína og leiðin á
toppinn er greið hjá unga mannin-
um. Ekki er hægt að hrósa Gínunni
mikið. Hún er ósköp venjuleg miðl-
ungsgamanmynd og Andrew
McCarthy, sem verið hefur í nokkr-
um unglingamyndum og alltaf
verið leiðinlegur, staðfestir það
álit.
Laugarásbíó
Á morgun verður frumsýnd
Sjálfsleit (Square Dance). Fjallar
myndin um Gemmu sem býr hjá afa
sínum í sveit. Hún er þrettán ára
og hefur aldrei séð foreldra sína.
Dag einn birtist móðir hennar og
segist vera komin til að taka hana
burt og segir það í hennar þágu.
Gemma harðneitar að fara með
henni. En vegna rifrildis við afa
sinn og flytur að heima og leitar
uppi móður sína. Það eru úrvals-
leikarar í aðalhlutverkum. Jason
Robbards leikur afa stúlkunnar og
Jane Alexander móðurina. Gemmu
leikur svo ung, óþekkt leikkona,
Wiona Ryder. -HK
Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn
Sýningar
Hafnargallerí,
Hafnarstræti
Matthew James Dricoll sýnir ljósmyndir
í Hafnargalleríi, Hafnarstræti 4 (yfir bóka-
verslun Snæbjamar. Á sýningunni eru 55
litmyndir teknar víðs vegar í Evrópu og
Bandaríkjunum á sl. 8 árum en flestar
þeirra eru frá fslandi. Sýningin eru opin
á venjulegum verslunartíma og henni lýk-
ur 9. sept.
Mokka kaffi
v/Skólavörðustíg
Michael Gunter frá Bandaríkjunum hefur
opnað sýningu á svart/hvítum ljósmynd-
um í Mokka kaffi. Á sýningunni er 31
ljósmynd og eru þær allar teknar á íslandi.
Myntsafn Seölabanka og
Þjóðminjasafns,
Einholti 4
Opið á sunnudögum kl. 14-16.
Nýlistasafniö,
Vatnsstíg 3
í kvöld verða opnaðar í Nýlistasafninu við
Vatnsstíg tvær myndlistarsýningar. Það
eru þau Hjördís Frímann og Hallgrímur
Helgason sem sýna olíumálverk og teikn-
ingar. Sýningin stendur til sunnudagsins
6. september og er opin 16.00-20.00 daglega
en 14.00-20.00 um helgar.
Norræna húsið
v/Hringbraut
TVeir danskir gullsmiðir þeir Henrik
Blöndal Bengtson og Ulrik Jungersen
sýna verk sín í Norræna húsinu fram til
20. september. Niðri sýnir Vilhjálmur
Bergsson 47 myndir. Sýningin stendur til
20. sept. Sýningarnar báðar eru opnar
daglega frá 2 til 22, einnig um helgar.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning Áma Magnússonar er í
Ámagarði við Suðurgötu á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum kl. 14-16
til ágústloka.
Þjóðminjasafnið
í Bogasal Þjóðminjasafns fslands stendur
yfir sýningin Hvað er á seyði? Eldhúsið
fram á okkar daga. Þar em til sýnis eld-
húsáhöld frá ýmsum tímum. Opið alla daga
frá kl. 13.30-16.
Sjóminjasafn íslands,
Vesturgötu 8, Hafnarfírði
í safninu stendur yfir sýning sem byggir
á riti Lúðvíks Kristjánssonar, íslenskum
sjávarháttum, verki í 5 bindum, sem nú
er komið út í heild sinni. Sýningin kallast
Árabátaöldin. Teikningar, ljósmyndir og
textar em úr fslenskum sjávarháttum en
munir eru úr sjóminjadeild Þjóðminja-
safnsins og frá ýmsum velunnumm safns-
ins.
Póst- og símaminjasafnið,
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
Málverkasýning í Viðey
Jónína Björk Gísladóttir opnar í dag sýn-
ingu í Viðey. Á sýningunni verða olíumál-
verk: fólk og landslag. Sýningin stendur
til 6. september og eru ferðir út í eyjuna
alla laugardaga og sunnudaga frá kl. 13-19
og virka daga frá kl. 14. Báturinn fer frá
Sundahöfn.
Sýningar á landsbyggðinni.
Byggða-, Ijsta- og
dýrasafn Árnesinga,
Tryggvagötu 23, Selfossi
Opið frá kl. 14-17 virka daga og frá kl.
14—18 um helgar á tímabilinu 17. júní til
13. september.
Eden, Hveragerði
Sigurpáll Á. fsíjörð heldur myndlistasýn-
ingu í Eden í Hveragerði. Sýnir hann þar
36 vatnslita- og olíumyndir sem allar eru
til sölu. Sýningin stendur til 7 september.
Veitingastofan, Þrastarlundi
Unnur Svavarsdóttir sýnir í Þrastariundi
36 vatnslita- og olíumyndir. Þetta er 14.
sýning Unnar og stendur hún til 20. sept-
ember. Sýningin er opin föstudaga,
laugardaga og sunnudaga frá 9 til 23.30.
Sýning í Gamla-Lundi, Akur-
eyri.
Sýning er í Gamla-Lundi við Eiðsvöll á
höggmyndum Hallsteins Sigurðssonar.
Forráðamenn Gamla-Lundar standa að
þessari sýningu. Tímasetningin var valin
m.a. vegna 125 ára afmælis Akureyrarbæj:
ar og má líta á þessa sýningu sem framlag
Gamla-Lundar til hátiðahaldanna. Sýn-
ingin stendur til 30. ágúst og er opin kl.
17-20 daglega en frá kl. 15-22 um helgar.
Skíðaskálinn, Hveradölum,
Árleg sýning þeirra Bjama Jónssonar og
Astrid Ellingsen er hafin í skíðaskálanum
í Hverdölum en þar sýna þau málverk og
prjónakjóla um hverja helgi.