Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1987, Síða 3
FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1987.
21
Huxtable og Irú ræða framtið barnanna.
Sjónvarpið laugardag kl. 20.40:
Fyrirmyndarfaðirinn
og fjölskylda hans
Nú geta menn farið að anda létt-
ar því fyrirmyndafaðirinn og fjöl-
skylda hans birtast aftur á skjánum
á laugardagskvöldið. Þar er að
sjálfsögðu á ferðinni Huxtablefam-
ilían, Cosbyfjölskyldan eða svert-
ingjafjölskyldan eða bara hvaða
nöfnum sem hún nefnist. Alla vega
er það þannig hjá mörgum að þeim
finnst ekki kominn laugardagur
fyrr þessi merka fjölskylda birtist
á skjánum.
Við eigum von á mörgum
skemmtilegum uppákomum í vetur,
ekki síst frá lækninum sjálfum sem
fer oftast á kostum ásamt yngstu
dóttur sinni.
RÚV, rás^l, laugardag kl. 15.00:
Stefán íslandi hjá Eddu
Nóngestur Eddu Þórarinsdóttur að þessu sinni verður Stefán íslandi
en hann verður í ríkisútvarpinu klukkan þrjú á laugardag.
Óþarft er að kynna Stefán þar sem hann er orðinn þjóðsagnapersóna
í lifanda lífi og hefur gert garðinn frægan. Edda mun rabba við Stefán
um líf hans og störf og hann mun velja tónlistina í þáttinn. Það verður
væntanlega tónlist sem tengist hans ferli.
Stefán íslandi velur tónlist sem tengist hans ferli í þátt Eddu Þórarins.
RÚV, rás 2, sunnudag kl. 15.00:
Tónlistarkrossgátan
Það vantar nú 14 krossgátur upp á hundraðið undir stjórn Jóns Grön-
dal en 13 þegar þessari á sunnudaginn er lokið.
Lausnir sendist til Ríkisútvarpsins, rásar 2, Efstaleiti 1, 108 Reykjavík,
merkt Tónlistarkrossgátan.
Sjónvarpið laugardag kl. 23.05:
Sláturhús fimm og Kurt Vonnegut
Tveir dagskrárliðir á laugardags-
kvöldið verða tengdir Kurt
Vonnegut, rithöfundinum heim-
þekkta og afar sérstaka. Annars
vegar verður rætt við höfundinn
sjálfan vegna heimsóknar hans til
íslands í þessum mánuði á vegum
Máls og menningar og hins vegar
sýnd kvikmyndin Sláturhús fimm
sem gerð er eftir skáldsögu hans
sem komið hefur úr í íslenskri þýð-
ingu og er ein af þekktari sögum
hans.
Þessi mynd var gerð árið 1972 og
er í leikstjórn George Roy Hill.
Hún segir frá miðaldra gleraugna-
sérfræðingi sem ferðast milli
nútímans, fjarlægs hnattar og
Þýskalands styrjaldaráranna þar
sem hann var stríðsfangi er
sprengjur bandamanna lögðu
Dresden í rúst. Þessi saga er í raun
upplifun hans á stríðinu sögð á
absúrd hátt og „so on“.
Leikarar í þessari mynd eru Mic-
hael Sacks og Ron Leibman.
Kurt Vonnegut er afar sérstakur eins og myndin ber meö sér.
Sjónvarpiö sunnudag kl. 20.55:
Noröurlandaikeppni
ungra einleikara
Sigrún Eðvaldsdóttir hefur hlotið
mikinn frama sem fiðluleikari að-
eins tvítug að aldri.
Fulltrúi okkar i Norðurlanda-
keppni ungra norræna einleikara
var Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleik-
ari en hún og Gunnar Idemstam
orgelleikari leika saman á skjánum
á sunnudagskvöld.
Sigrún er aðeins tvítug að aldri
og lauk árið 1984 einleikaraprófi
undir stjórn Guðnýjar Guðmunds-
dóttur. Hún hefur tekið þátt í fjölda
keppna þrátt fyrir ungan aldur og
spilar með Islensku hljómsveitinni.
Gunnar er fæddur 1961 og hlaut
fyrstu verðlaun í virtri keppni í
Frakklandi og hefur síðan þá verið
eftirsóttur orgelleikari.
RÚV, rás 1, suiinud. kl. 13.30:
HvervarDjúkni?
Hver var Djúkni? nefnist þáttur
sem Gunnar F. Guðmundsson
sagnfræðingur tók saman en lesar-
ar eru Arnór Benónýsson og Viðar
Eggertsson.
Djúkni hét réttu nafni Stépan
Djúnkovskí og var rússneskur
prestur um miðbik nítjándur aldar.
Hann snerist til rómverskkaþól-
skar trúar og fékk það verkefni að
boða trú á Norðurlöndum.
Kynntist hann þá nokkrum ís-
lendingum, þeirra á meðal Bened-
ikt Gröndal Sveinbjarnarsyni, sem
lýsir honum skemmtilega í Dægra-
dvöl, auk þess sem Djúkni kemur
með ævintýralegum hætti við sögu
í Heljarslóðarorustu.
Ferill Djúkna var litríkur og er
brugðið upp lifandi mynd af hon-
um.
Sophia Loren leikur önnu Jesson
sem hrífst af öðrum manni en
eignmanninum.
Stöð 2 sunnud. kl. 21.15:
Loren og
Burton
Leynifundir nefnist bíómynd í
leikstjórn Alan Bridges með Soph-
iu Loren og Richard Burton í
aðalhlutverkum og er að sjálfsögðu
komin til ára sinna.
Þar leikur frú Loren gifta konu,
Önnu Jesson, sem er hamingjusam-
lega gift kona með tvö börn. Af
tilviljun hittir hún mann sem Burt-
on leikur. Hún hrífst af honum en
reynir að standast freistinguna en
tekst það sennilega ekki þar sem
myndin heitir Leynifundir.
Stöð 2 laugardag kl. 23.25:
Gary Cooper og Barbara Stanwyck
Jeff Dawson nokkur ræður sig til
starfa hjá Conway olíufélaginu í
Mexíkó. Eiginkona Conways er
fyrrverandi unnusta Dawsons,
svona er nú heimurinn lítill, og ást
hennar blossar upp er þau hittast
að nýju.
Dawson er lofaður annarri en
frúin lætur ekkert aftra sér til að
sanna ást sína, kemur hún eigin-
manninum fyrir kattarnef. Þessi
tvö skötuhjú eru leikin af gömlu
kempunum Gary Cooper og Bar-
bara Stanwyck. I öðrum hlutverk-
um eru Ruth Roman og Anthony
Quinn, enda er myndin frá því 1953
og nefnist Blowing Wind og hefur
verið þýdd sem Olíugos en hvers
vegna er ekki ljóst enn sem komið
er.
- í Olíugosi
Allir voru aö reyna að likjast Gary Cooper sem þama er með Barböru
Stanwyck i Blowing Wind.