Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1987, Page 7
FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1987.
29
Verður Valur meistari á morgim?
- næstsíðasta umferðin í 1. deildinni í knattspyrnu á morgun
Úrslitin í 1. deild íslandsmótsins
í knattspyrnu geta ráðist endan-
lega um helgina. Á morgun,
laugardag, fer fram heil umferð í
1. deildinni og að þeim leikjum
loknum er aðeins einni umferð
ólokið.
• Stórleikur 17. umferðar verður
viðureign KR og Vals á KR-velli.
Með sigri í þessum leik tryggja
Valsmenn sér fslandsmeistaratitil-
inn og jafntefli getur nægt ef
Skagamenn tapa stigum á heima-
velli sínum gegn Víði frá Garði.
KR-liðið hefur tapað síðustu þrem-
ur leikjum sínum og verður að
vinna sigur gegn Val ef draumur-
inn um Evrópusæti á að verða að
veruleika.
• Akurnesingar, sem eru fjórum
stigum á eftir Valsmönnum, eiga
heimaleik á morgun gegn Víði sem
hreinlega verður að leggja Skaga-
menn að velli ef þeir Suðumesja-
menn ætla að halda sæti sínu í 1.
deild. Ef Víðir tapar leiknum er
liðið svo gott sem fallið í 2. deild.
Ef Skagamenn vinna og Valur tap-
ar á KR-vellinum munar aðeins
einu stigi á Val og fA.
• Framarar, sem eru fimm stig-
um á eftir Val, eiga að leika gegn
Völsungi á Húsavík. Bæði lið þurfa
á sigri að halda. Vinni Fram og
Valur og Skaginn tapi leikjum sín-
um munar tveimur stigum á Val
og Fram fyrir síðustu umferð móts-
ins. Völsungar berjast fyrir lífi sínu
í deildinni og með sigri gegn Fram
á liðið mikla möguleika á áfram-
haldandi 1. deildarsæti.
• Þessir leikmenn verða í eldlínunni á morgun. Willum Þórsson sækir
hér að Skagamönnunum Birki Kristinssyni, Sigurði Jónssyni og Heimi
Guðmundssyni.
• Akureyrarliðin Þór og KA
berjast á Akureyrarvelli á morgun.
Þórsarar eru með í baráttunni um
Evrópusæti á næsta ári en KA sigl-
ir lygnan sjó. Þórsarar hafa harma
að hefna að þessu sinni því á dög-
unum sigraði KA Þór, 3-1, í leik
liðanna um Akureyrarmeistaratit-
ilinn 1987.
• Loks taka Keflvíkingar á móti
FH-ingum á morgun. FH-ingar
standa höllum fæti í deildinni eftir
mikla óheppni ! tveimur síðustu
leikjum sínum í deildinni. FH-ingar
fengu á sig mark á síðustu sekúnd-
um gegn Fram og töpuðu síðan
niður 3-0 stöðu í 3-3 jafntefli gegn
Völsungi á dögunum.
• Allir leikirnir hefjast klukkan
tvö á morgun, nema leikur Akra-
ness og Víðis en sá leikur hefst
klukkan hálfþrjú.
Hart
barist í
2. deild
17. umferðin á morgun
Endalokin á tryllingslegum slag
í 2. deild íslandsmótsins í knatt-
spymu nálgast nú óðum og á
morgun, laugardag, fer fram næst-
síðasta umferðin. Eftir þá umferð
ættu línur að hafa skýrst nokkuð
en þó gæti svo farið að allt yrði í
sömu bendunni sem fyrr eftir leik-
ina í 17. umferð.
• Topplið deildarinnar, Víking-
ur, á erfiðan útileik um helgina
gegn Vestmannaeyingum. Með
sigri tryggja Víkingar stöðu sína
verulega og ætti þá 1. deildarsætið
að vera svo til tryggt. Víkingar eiga
að leika gegn Selfossi í Laugardal
í síðustu umferð.
• Leiftur frá Ólafsfirði á heima-
leik á morgun gegn Leiftri frá
Vopnafirði. Sömu sögu er að segja
um þennan leik og alla aðra i deild-
inni, hann skiptir sköpum fyrir
bæði lið.
• Breiðablik, sem hefur verið á
dúndrandi siglingu undir stjórn
Þorsteins Friðþjófssonar, á heima-
leik á morgun gegn KS. Blikamir
komast í baráttuna með sigri og
má reyndar telja það frábæra
frammistöðu ef Blikarnir skyldu
ná að tryggja sér 1. deildarsæti eft-
ir afleitt gengi fyrri hluta íslands-
mótsins.
• ÍR-ingar tiyggja sig í deildinni
ef þeir ná að sigra botnlið ÍBÍ á
Laugardalsvelli á morgun en ís-
firðingar em fyrir löngu fallnir í
3. deild.
• Þróttarar eiga erfiðan útileik
á morgun gegn Selfossi. Bæði lið
berjast á toppi 2. deildar og verður
ömgglega hart barist.
• Allir leikimir í 2. deild á morg-
un hefjast klukkan tvö nema leikur
ÍR og IBÍ sem hefst klukkan fjögur.