Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1987, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1987, Blaðsíða 1
Dansstaðir - Matsölustaðir - Leikhus - Sýningar - Kvikmyndahús - Myndbönd o. fl. ABRACADABRA, Laugavegi 116 Diskótek föstudags- og laugardagskvöld. ÁRTÚN, Vagnhöfða 11, sími 685090 Gömlu dansarnir á föstudagskvöld. Opið kl. 21-03. Nýju og gömlu dansamir laugar- dagskvöld. Opið kl. 22-03. Hljómsveitin Danssporið ásamt söngkonunni Krist- björgu Löve bæði kvöldin. BROADWAY, Álfabakka 8, Reykjavík, simi 77500 Sveitin milli sanda leikur fyrir dansi föstu- dags- og laugardagskvöld. Stórsýningin „Allt vitlaust" á laugardagskvöld. CASABLANCA, Skúlagötu 30 Diskótek föstudags- og laugardagskvöld frá kl. 22-03. DUUS-HÚS, Fischersundi, simi 14446 Diskótek föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld. Opið frá 22 til 03. A sunnudagskvöld verða jasstónleikar í Heita pottinum og fram koma Kristján Magnússon og félagar. EVRÓPA v/Borgartún Hljómsveit hússins, Saga Class, leikur fyr- ir dansi föstudags- og laugardagskvöld. Húsið er opið frá kl. 22-03. GLÆSIBÆR, Alfheimum Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi föstudags- og laugardagskvöld frá 22-03. HOLLYWOOD, Ármúla 5, Reykjavík Tónlist 7. áratugarins verður á föstudags- og laugardagskvöld með „Leitinni að týndu kynslóðinni". Húsið opið 22-03. HÓTEL BORG, Pósthússtræti 10, Reykjavík, sími 11440 Diskótek föstudags- og laugardagskvöld. Gömlu dansarnir á sunnudagskvöld. Hljómsveit Jóns Sigurðssonar leikur. HÓTEL ESJA, SKÁLAFELL, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, sími 82200 Dansleikir föstudags- og laugardagskvöld. Hljómsveitin Kaskó leikur. Tískusýning öll fimmtudagskvöld. HÓTELSAGA v/Hagatorg, Reykjavík, sími 20221 Hljómsveit Grétars Örvarssonar leikur fyrir dansi i Súlnasal Hótel Sögu föstu- dags- og laugardagskvöld. „The Wiz“ Glæsileg söng- og danssýning á miðnætti. Á Mímisbar leikur Stefán Jökulsson. LENNON v/Austurvöll, Reykjavík, sími 11630 Diskótek föstudags- og laugardagskvöld MIAMI, Skemmuvegi 34, Kópavogi, sími 74240 Diskótek föstudaga og laugardaga. Ald- urstakmark 16 ár. ÚTÓPÍA, Suðurlandsbraut 26 Diskótek föstudags- og laugardagskvöld. Bubbi Morthens mætir með kassagítarinn í kvöld. ÞÓRSKAFFI, Brautarholti 2, Reykjavík, sími 23333 Hljómsveit Stefáns P. leikur á efri hæð hússins föstudags- og laugardagskvöld. Lúdósextett og Stefán skemmta gestum bæði kvöldin, svo og Bill Frederick. gróðureyðingu töfojlMf Það er kunnara en frá þurfi að segja að gróður landsins er á hröðu undanhaldi og hefur verið þaö lengi. Vegna þess er ástand gróðurs þessa lands orðið mjög alvarlegt. Á nýliðnu sumri skapaðist lífleg um- ræða um gróðureyðingu bæði í fjölmiðlum og manna á meðal. En betur má ef duga skal. Umhverfissamtökin Líf og land standa fyrir ráðstefnu um gróður- eyðingu og landgræðslu undir ofangreindu heiti. Landskunnir fræðimenn og leikmenn munu íjalla um efnið í stuttum erindum. Erindi flytja Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri, Ingvi Þorsteins- son náttúrufræðingur, Hákon Sigurgrímsson framkvæmdastjóri, Sigurður Arngrímsson fram- kvæmdastjóri, Olafur Dýrmunds- Gróðureyðing landsins er alvarlegur hlutur sem ógnar allri byggð. Þrátt fyrir mikið starf á undanförnum árum eyðist meira svæði en grætt er enn þann dag í dag son ráðunautur, Birgir Þorgilsson ferðamálastjóri, Huida Valtýsdótt- ir, formaður Skógræktarfélags íslands, Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður, Tryggvi Felixson hagfræðingur og Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra. Fundarstjóri er Guðlaugur Þor- valdsson ríkissáttasemjari. Stjóm Lífs og lands vonast til að ráðstefnan og umræður um það alvarlega vandamál, sem gróðu- reyðingin er, veki áhuga almenn- ings og hvetji ráðamenn til aðgerða sem dugi til aö snúa vörn í sókn. Við viljum öll skila betra landi til komandi kynslóða. Ráðstefnan verður haldin sunnu- daginn 27. september kl. 13 til 17 í Odda, hugvísindahúsi Háskólans, og aðgangur er ókeypis. Skóladagur í Tívolí Um helgina er fyrirhugaður skóladagur í Tívolí fyrir alla íjölbrauta- og menntaskóla á Suðurlandi. Það er Fjölbrautaskólinn á Selfossi sem stendur fyrir hátíðinni sem hefst kl. 15 á laugardaginn. Mikill fjöldi skemmtikrafta kemur fram á hátíðinni sem mun standa fram eftir nóttu. Má þar sem dæmi nefna Bjartmar Guðlaugsson, Ladda, Júlíus og Eddu, Bubba, Megas, Sykurmolana og Gildruna. Þá má nefna að kraftakarlarn- ir Jón Páll og Hjalti Úrsus standa fyrir kraftauppákomum. Hljómsveitin Greifamir mun leika fyrir dansi fram á rauðanótt. Hátíðin verður hin veglegasta og öll leiktæki yerða í gangi til að auka á stemmninguna. Nokkrir af aðstandendum skóladagsins í Tivolí. Kvik- mynda- hátíð lýkur Það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum að kvikmyndahá- tíð hstahátíðar stendur nú yfir í Laugarásbíói. Þar hefur verið boð- ið upp á mikinn fjölda kvikmynda, eða um 30 talsins frá 17 löndum. Sem vonlegt er þá hafa þær notið mismunandi vinsælda en mikil að- sókn hefur verið á hátíðina frá upphafi og yfirleitt fuht út úr dvr- um. Sýningar standa yfir alla daga frá klukkan 15 til 23. Hægt er að kaupa miða eins og venjulega í miðasölu í Laugarás- bíói en auk þess verður sú nýjung tekin upp að miðar verða seldir á Lækjartorgi til kl. 13 dag hvern. Einn af gestum kvikmyndahátíðar var ítalski leikstjórinn Ettore Scola sem hér sést við opnun hátíðarinnar. DV-mynd S

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.