Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1987, Page 6
■ 28
FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1987.
Leikhús- Leikhús- Leikhús- Leikhús- Leikhús
Alþýðuleikhúsið frumsýnir:
Einskonar Alaska
og Kveðjuskál
- eftir Harold Pinter
Alþýöuleikhúsiö sýnir tvo ein-
þáttunga eftir breska skálcíið
Harold Pinter í Hlaðvarpanum
laugardaginn 7. nóvember kL 16.
Nefnast þeir Einskonar Alaska og
Kveðjuskál.
Kveikjan að leikritinu Einskonar
Alaska er bókin í svefnrofunum
(Awakenings) eftir lækninn Oliver
Sack en hún kom út árið 1973.
í byrjun aldarinnar breiddist afar
kynleg farsótt út í Evrópu og síðar
um allcui heim. Einkenni hennar
voru margs konar. Þar á meðal
voru dauðadá, svefnleysi, óráð og
einkenni Parkinsonsveikinnar.
Sjúkdómur þessi var nefndur anc-
ephalitis lethariqa eða svefnsýki. Á
næstu tiu árum sýktust tæpar
fimm milljónir manna af sjúk-
dómnum sem varð rúmum þriðj-
ungi þeirra að fjörtjóni. Fimmtíu
árum síðar, eða um 1969, kom
undralyfið L-DOPA til sögunnar og
sneru þá margir sjúklinganna til
lífsins á ný. Leikritið Einskonar
Alaska segir fiá konu sem vaknar
af shkum dásvefni fyrir tilstuölan
lyfsins eftir hafa verið sambands-
laus við umheiminn í 29 ár.
Einþáttungurinn Kveðjuskál
varö til eftir að höfundurinn Har-
old Pinter og rithöfundurinn
Arthur Miller heimsóttu Tyrkland
Frá æfingu einþáttungsins Einskonar Alaska.
á vegum PEN-rithöfundaklúbbs-
ins. Þar hittust yfir hundrað rithöf-
undar, menntamenn og verkalýðs-
leiðtogar sem flestir áttu það
sameiginlegt að hafa setið í her-
fangelsum og meirihlutinn veriö
pyntaður. í yfir 90 þjóðlöndum eru
pyntingar, sem eru fylgifiskar
fangelsunar, daglegt brauð og jafn-
vel viðurkennd aðferð.
í Kveðjuskál reynir Harold Pint-
er að fá áhorfandann til að horfast
í augu við og viðurkenna þessa
skelfilegu staðreynd.
Bæði leikritin hafa vakið gífur-
lega athygli og eru að margra áliti
með því besta sem Pinter hefur
skrifað en hann hefur samið fjöl-
mörg leikrit og nú seinni ár nokkur
sjónvarps- og kvikmyndahandrit.
Leikarar í sýningunni eru: Amar
Jónsson, Margrét Ákadóttir, María
Sigurðardóttir, Þór Tuhnius,
Þröstur Guðbjartsson og Oddný
Amarsdóttir. Leikstjóri er Inga
Bjamason, leikmynd gerir Guðrún
Svava Svavarsdóttir, lýsingu ann-
ast Sveinn Benediktsson og aðstoð-
armaður leikstjóra er Ingibjörg
Bjömsdóttir.
Kvikmyndahús - Kvikmyndahús
Stjörnubíó
Ritchie Valen var ungur og efni-
legur söngvari þegar hann lést í
flugslysi 1958. Hann var aðeins
sautján ára. Samt hafði honum tek-
ist á nokkrum mánuðum að eiga
þrjú vinsæl lög, meðal þeirra La
Bamba, lag sem er titill kvikmynd-
ar um ævi piltsins. Fjahar myndin
um stutta ævi piltsins sem var af
mexíkönsku bergi brotinn. Mynd
þessi hefur vakiö nokkra athygli
og hafa lög Ritchie Valen öðlast lif
í meðforum hljómsveitarinnar Los
Lobos. í flugslysinu létust einnig
Buddy Holly, sem var orðin eitt af
skærastu goðum vestanhafs, og Big
Bopper, fyrrverandi útvarpsmað-
ur, er hafði gert eitt lag vinsælL
Leikstjóri og handritshöfundur er
Luis Valdes. La Bamba er ágæt af-
þreying, sérstaklega fyrir þá sem
hafa gaman af rokki eins og það
var spilað á sjötta áratugnum.
Bíóborgin
Það er virkilega gott úrval kvik-
mynda í Bíóborginni. í aðalsalnum
er ný kvikmynd, í kröppum leik
(Big Easy). Þetta er rómantísk
sakamálamynd um lögreglumann
og saksóknara af veikara kyninu
sem hittast við rannsókn morð-
máls. í kröppum leik er prýðis-
afþreying en lítið meira. Bitastæð-
ari mynd er Nomirnar frá
Eastwick (The Witches of East-
wick) þar sem Jack Nicholson fer
á kostum í hlutverki sjálfs kölska
og ekki er síðri Seinheppnir sölu-
menn (Tin Man), gamanmynd sem
hefur aht það til að bera er góðar
gamanmyndir eiga að hafa. Og síð-
ast en ekki síst ber að nefna hina
dulúðugu sakamálamynd, Svörtu
ekkjuna (Black Widow), þar sem
Theresa Russel og Debra Winger
fara á kostum. V
Háskólabíó
Framtiðarmyndin Riddari göt-
unnar (Robo Cop) er gerð af Hol-
lendingnum Paul Verhoven og
hefur fengið góðar viðtökur vestan-
hafs. Þetta er sakamálamynd er
gerist i náinni framtíð þegar glæpir
era orðnir þjóðarvandamál. Nýj-
asta vopnið í baráttu við glæpalýð-
inn er vélmennið Robo Cop sem er
að hluta mannleg vera en að hluta
til er efnið í róbótnum lögregla sem
hafði verið skotin í tætlur. Þykir
Verhoven hafa gert góða spennu-
mynd.
Regnboginn
í aðalsal Regnbogans er nú sýnd
gamanmyndin Þijú hjól undir
Bíóhöllin
Skothylkið
Einn helsti meistari kvikmynd- drengi sem kallaðir era í herinn
anna, Stanley Kubrick, hefur nú
sent frá sér nýja kvikmynd, Skot-
hylkið (Full Metal Jacket), og eins
og jafnan áður hafði verið beðið
eftir mynd frá Kubrick með eftir-
væntingu. Hvort menn setja
Skothylkið á pall með Paths of
Glory, 2001 Space Odyssey og
Clockwork Orange er sjálfsagt mat
hvers og eins. En hvað um það,
Skothylkið er mögnuð kvikmynd
sem hlífir engum og sjálfsagt besta
kvikmynd sem gerð hefur verið um
stríðið í Víetnam.
Skothylkið fjallar um unga
þegar Víetnamstríðið stóð yfir,
þjálfun þeirra, sem lýst er á eftir-
minnilegan hátt í upphafsatriði, og
svo reynslu þeirra á vígvellinum
sjálfum. Sjálfsagt þykir sumum
þjálfunaratriði myndarinnar full-
langt og ekki er laust við að um
endurtekningar sé að ræða en þetta
atriði er réttlætanlegt þegar líða fer
á myndina og skyggnst er í huga
hinna ungu hermanna. Skothylkiö
er kvikmynd sem flestir ættu að sjá
- kvikmynd sem lætur engan ó-
snortinn.
HK
Kvikmyndahús
vagni (Rita, Sue and Bob too). Fjall-
ar hún um Bob sem, þrátt fyrir að
vera giftur, getur ekki séð aðrar
konur í friði. Koma við sögu tvær
bráðhressar barnapíur, Rita og
Sue, sem til eru í tuskið. Sú mynd,
sem óhætt er að mæla með, er nýj-
asta mynd Woody Allen, Útvarps-
dagar (Radio Days) - mynd þar sem
Allen tekur fyrir þau ár þegar út-
varpið var helsta skemmtun
almennings. Útvarpsdagar er
kannski ekki eins góð kvikmynd
og Hanna og systur hennar en
virkilega eftirtektarverð þrátt fyrir
það.
Laugarásbíó
Christopher Walken er leikari
sem ávallt er vert að fylgjast með.
Laugarásbíó hefur nú tekið til sýn-
ingar nýjustu kvikmynd hans,
Vitni á vígvellinum (War Zone).
Leikur Walken fréttamanninn Ste-
vens sem sendur er til Beirat. Hann
fær tilboð um að hafa viðtal við
PLO-leiðtoga en það viðtal sem á
eftir að hafa alvarlegar afleiðingar.
Af öðram myndum er vert að nefna
nýjustu kvikmynd Kens Russell,
Særingar (Gothic), mynd sem hef-
ur rótað upp í mönnum. Eins og
oft áður veltir Russel sér upp úr
einkalífi þekktra persóna í mann-
kynssögunni. -HK
Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn
Sýningar
Arbæjarsafn
Árbæjarsafn er opið eftir samkomulagi.
Síini 84412.
Ásgrímssafn,
Bergstaðastræti 74
Safiiið er opið sunnudaga, þriðjudaga og
fimmtudaga kl. 13.30-16.
Ásmundarsafn
við Sigtún
Um þessar mundir stendur yfir sýningin
Abstraktlist Ásmundar Sveinssonar. Þar
gefur að líta 26 höggmyndir og 10 vatns-
litamyndir og teikningar. Þá er einnig til
sýnis videomynd sem fjallar um konima í
list Asmundar Sveinssonar. Þá eru til sölu
bækur, kort, litskyggnur, videomyndir og
afsteypur af verkum listamannsins. Safnið
er opið daglega kl. 10-16.
FÍM-salurinn,
Garðastræti 6.
. Þar sýnir Guðjón Ketilsson tuttugu mynd-
ir, málverk og teikningar. Þetta er fimmta
einkasýning Guðjóns en hann hefur tekið
þátt í samsýningum í Kanada, Finnlandi,
Sviss og á Islandi. Sýningin stendur til 15.
nóvember og er opin virka daga kl. 16-19
og um helgar kl 14-19.
Gallerí Borg,
Pósthússtræti 9
Um þessar mundir eru til sýnis og sölu
i Gallerí Borg v/Austurvöll myndir og
málverk eftir gamla meistara. Sýningin
er opin virka daga kl. 10-18 og um helg-
ar kl. 14-18.
Gallerí Grjót,
Skólavörðustig
Samsýning í tilefni 4 ára starfsafinælis
gallerísins stendur yfir. Á sýningunni eru
skúlptúrar, málverk og grafík. Þeir sem
að sýningunni standa eru Jónína Guðna-
dóttir, Magnús Tómasson, Ófeigur Bjöms-
son. Ragnheiður Jónsdóttir, Steinunn
Þórarinsdóttir, Þorbjörg Höskuldsdóttir
og Öm Þorsteinsson. Sýningin er opin
virká daga frá kl. 12-18.
Gallerí Gangskör
Hanna Bjartmars Ámadóttir sýnir verk
sin í Gallerí Gangskör. Sýningin er opin
daglega kl. 12-18 og um helgar kl. 14-18.
Gallerí íslensk list
Einn af þekktustu listmálurum þjóðarinn-
ar, Einar G. Baldvinsson, opnar málverka-
sýningu í Gallerí íslensk list á morgun.
Sýningin verður opin virka daga kl. 9-17
og 14-18 um helgar. Á sýningunni em 30
olíumálverk og er þetta sölusýning.
Gallerí List,
Skipholti 50,
nýr sýningarsalur og listmunaverslun.
Sýning á handblásnu gleri frá Nóregi,
Finnlandi og Bretlandi. Opið virka daga
kl. 10-18 og laugardaga kl. 10-12.
Gallerí Langbrók,
Bókhlöðustig 2,
textílgallerí. Opið þriðjudaga til föstudaga
kl. 12-18 og laugardaga kl. 11-14.
Glugginn, gallerí,
Glerárgötu 34, Akureyri.
„Opnun" nefnist samsýning sem verður
opnuð í Glugganum á morgum. Þeir sem
sýna em: Guðmundur Ármann, Helgi Vil-
berg, Margrét Jónsdóttir, Rósa Kristín
Júlíusdóttir, Jón Laxdal og Kristinn E.
Sýningin stendur til 8. október og er opin
daglega kl. 14-20 nema mánudaga.
Kjarvalsstaðir
við Miklatún
Rúna Gísladóttir opnar á morgim sýningu
á málverkum og collagemyndum sem hún
hefur unnið á undanförnum 3-4 árum.
Þetta er fyrsta einkasýning Rúnu en hún
hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum
á undanfömum árum. Þá opna einnig
Lýður Sigurðsson og Bjöm Bimir mál-
verkasýningar á morgun. Sýningamar
standa til 22. nóvember og eru opnar alla
daga kl. 14-22. '
Listasafn ASÍ
v/Grensásveg
Þar stendur yfir afmælissýning Blaða-
mannafélags íslands. Á sýningunni em
m.a. sýndar 100 fréttaljósmyndir frá síð-
ustu áratugum. Þá gefst gestum kostur á
að sjá þróun í útliti dagblaðanna fram eft-
ir öldinni og lesa og hlýða á af segulbandi
fyrstu fréttir og fréttaskýringar sem fluttar
vora í Ríkisútvarpinu. Einnig eru á sýn-
ingunni íjölmörg merkileg skjöl sem
tengjast sögu félagsins sl. 90 ár. Sýningin
er opin á virkum dögum kl. 16-20 og um
helgar kl. 14-22. Sýningin stendur til 15.
nóvember.
Listasafn Einars Jónssonar
við Njarðargötu
er opið alla laugardaga og sunnudaga kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega frá kl. 11-17.
Listasafn Háskóla íslands
í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opið
daglega kl. 13.30-17. Þar eru'til sýnis 90
verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri
listamenn þjóðarinnar. Aðgangur að safn-
inu er ókeypis.
Listsýning frá Hvíta-Rússlandi
í húsakynnum MÍR, Vatnsstíg 10, stendur
nú yfir sýning á myndlist og listmunum
frá Sovétlýðveldinu Hvíta-Rússlandi. Á
sýningunni era 73 grafíkmyndir, nær 200
munir úr tré og basti auk vefnaðar, 40
myndir eftir böm og um 100 bækur og
bæklingar. Sýningin er opin virka daga
kl. 17-18.30 og um helgar kl. 14-18. Að-
gangur er ókeypis.
Myntsafn Seðlabanka og
Þjóðminjasafns,
Einholti 4
Opið á sunnudögum kl. 14-16.