Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1987, Page 2
/
2
Fréttir
Stofníánadeild iandbúnaðaríns setur alSfugiabænduni skiiyrði:
|M mæ WUBBtOb, Æ&k BUiK Æ
KrGfst ^marK-
aðsskipulags* ‘
í búgreininni
- annars fæst ekld skuldbreyting
Stjóm Stofnlánadeildar land-
búnaöarins hefiir samþykkt sér-
stakar „vinnureglur“ um
innheimtu vanskila hjá alifugla-
bændum og vinnslustöðvum í
þeirri búgrein og segir í reglum
þessum að viökomandi aðili skuli
heita þvi aö „vinna markvisst að
bættu markaðsskipulagi í viðkom-
andi búgrein," að því er segir í
reglunum.
Reglumar em samdar af Gunn-
ari Guðbjartssyni, formanni
Framleiðsluráðs landbúnaðarins,
og sagði Gunnar í saratah við DV
að hann hefði samið reglurnar eftir
fund með stjóm Stofnlánadeildar.
Stoöúánadeild samþykktí. síðan
reglumar.
Sagði Gunnar að tilgangurinn
með þessu ákvæði væri sá að koma
i veg fyrir að framleiðendur ah-
fugla seldu afuröir sínar undir
kostnaöarverði þannig aö komið
væri í veg fyrir áframhaldandi
hallarekstur alifuglabúanna en
Gunnar sagði mörg þeirra rekin
með tapi. Þeir alifuglabændur, sem
ekki undirgangast þaö aö „vinna
raarkvisst að bættu markaðsskipu-
lagi“, fá ekki fyrirgreiöslu hjá
Stofiilánadeild landbúnaðarins.
Önnur skilyrði fyrir fyrirgreiðslu
em þau að viðunandi tryggingar
séu veittar, að viðkomandi standi
í skilum og að fyrirtækin endur-
skipuleggi reksturinn.
Stefán Valgeirsson, formaöur
stjórnar Stofnlánadeildar, sagði aö
þama væri átt við skuldbreytingar
á sjóöagjöldum en alifuglabændur
skulduðu þar verulegt fé. Hug-
myndin væri hins vegar ekki
komin frá Stofnlánadeild heldur
Framleiðsluráði enda reglumar
undirritaðar af Gunnari Guö-
bjartssyni.
-ój.
Þorsteinn Pálsson vill sameina sjálfstæðismenn á ný:
Vill breyta ímynd
flokks og þingflokks
„Því er ekki að leyna að ég hef orðið
fyrir nokkrum vonbrigðum með þá
ímynd sem flokkurinn og þingflokk-
urinn hafa sýnt á síðustu mánuð-
um,“ sagði Þorsteinn Pálsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins, í
ræðu á flokksráös- og formannafundi
á laugardaginn. „Flokksfólkiö hlýtur
eöhlega að gera auknar kröfur um
traust samstarf og heilindi þegar
þannig stendur á,“ sagði hann.
Formaðurinn ræddi um klofning
flokksins fyrir síðustu kosningar og
„mikið áfall í kosningunum" en þetta
líí&T;-------- IIIIWI— ■'
og afleiðingar þess sagði hann „meiri
þrengingar en áður í tæplega 60 ára
sögu flokksins“. Þorsteinn sagði að
þar sem vitað væri með fullri vissu
að það var ekki skoðanaágreiningur
sem leiddi til þess að klofningsflokk-
ur var stofnaður út úr Sjálfstæðis-
flokknum hlytu flokksmenn að
einsetja sér sem meginmarkmið og
höfuðverkefni að sameina sjálfstæð-
ismenn á ný.
Þá ræddi Þorsteinn Pálsson um
myndun ríkisstjórnarinnar og störf
hennar. Hann sagði að „yfirborðs-
mennska nútímafréttamennsku
gerði smáatriði oft að aðalatriðum“
og skoöanaágreiningur í stjórnar-
samstarfi kæmi því allur upp á
yfirborðið. Ekki væri óeðlilegt að
sum þeirra atvika vektu spurningar
í flokknum um hvort full heihndi
væru í samstarfmu af hálfu hinna
fokkanna. Hann sagði því tíl að svara
aö samstaða, festa, sveigjanleiki og
heilindi flokksforystunnar myndu
ráða mestu um hvað samstarfsflokk-
arnir leyfðu sér í þessum efnum.
„Ríkisstjórnin hefur allt frá því að
hún tók við völdum fengist við fylgi-
fiska góðæris, ofþenslu og spennu í
efnahagslífmu. Nú síðustu daga horf-
um við hins vegar fram á alger
umskipti til hins verra að því er varð-
ar viðskiptakjör og verðmæti sjávar-
fangs á næsta ári. Hvort tveggja þetta
setur okkur í mikinn vanda,“ sagði
Þorsteinn. Hann undirstrikaði við-
brögð ríkissjómarinnar sem yrði að
standa fast við hallalausan ríkis-
búskap og hert aöhald í peningamál-
um.
Þá sagði hann ríkisstjórnina til-
búna til þess að greiða fyrir kjara-
samningum innan þeirra marka sem
hún hefði sett sér og ef samningar
yrðu þá jafnframt í samræmi við þau
markmiö. „Við lækkum ekki gengið
til þess að hækka kaupið,“ sagði
hann. „Kjarasamningar þeir sem nú
standa fyrir dyrum geta ekki snúist
um almenna tekjuaukningu öhum til
handa heldur um skiptingu tekna
milli launþega innbyrðis.“
-HERB
Flokksráðs- og formannafundur Sjálfstæðisflokksins var haldinn á Hótel
Selfossi. Þarna eru nokkrir fundarmanna að hlýða á ræðu flokksformanns-
ins. DV-mynd KAE
Sanvtök gegn hávaða stofnuð
Um helgina var haldinn undirbún-
ingsfundur stofnfundar samtaka um
hávaðavamir. Var ákveðið að halda
stofnfund samtakanna þann 6. des-
ember næstkomandi.
Hlutverk samtakanna verður með-
al annars aö vinna gegn öhum
ónauðsynlegum hávaða í umhverfi
manna, svo sem í sambýhshúsinn, á
skrifstofum, á vinnustöðum, á sund-
stöðum, í verslunum, á götum og
torgum, í almenningsvögnum, á
tjaldstæðum og annars staðar þar
sem menn leita til að njóta nátt-
úrunnar og útivistar.
Til þess að ná þessum tílgangi er
fyrirhugað að vekja athygli í ræðu
og riti á ónauðsynlegum hávaða og
hvetja til að dregið verði úr honum
þar sem því verður við komið. Leita
til einstakra aðila sem hafa það á
valdi sínu að draga úr eða útiloka
hávaða. Og síðast en ekki síst koma
því tíl leiðar að settar verði skynsam-
legar og nútímalegar reglur um
hljóðmengun.
J.Mar
MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1987.
Stúdentsefni Fjölbrautaskóla Suðurlands á leið sinni austur til Selfoss með
tólf þúsund smokka í farteskinu. Gangan var til að minna á sjúkdóminn eyðni.
DV-mynd KAE
Við erum ekki þreytt
- stúdentsefni með tólf þúsund smokka
Stúdentsefni frá Fjölbrautaskóla
Suðurlands gengu frá Hlemmi í
Reykjavík austur til Selfoss á laugar-
daginn og höfðu meðferðis tólf
þúsund smokka sem dreift var á leið-
inni. Gangan var tíl að minna á
sjúkdóminn eyðni. Birgðirnar
geymdu nemendumir í tveimur
barnavögnum. Fjölmenni tók á mótí
hópnum við Ölfusárbrú þegar hann
kom þangað klukkan hálfátta á laug-
ardagskvöld eftir um tíu klukku-
stunda göngu.
„Við erum ekki þreytt, við hefðum
getað gengið aftur til baka tíl Reykja-
víkur,“ sagði Sveinn Kári Valdi-
marsson, nemandi í Fjölbrautaskóla
Suðurlands og einn göngumanna.
„Við létum öll í hópnum mótefna-
prófa okkar á Borgarspítalanum. Við
teljum það borgaralega skyldu hvers
og eins að láta mótefnaprófa sig,“
sagði Sveinn ennfremur.
Stúdentsefnin söfnuðu áheitum á
göngu sinni til Selfoss. „Það söfnuð-
ust um og yfir 150 þúsund krónur.
Þessir peningar verða afhentír yfir-
völdum th frekari rannsókna og
fræðslu á eyðni,“ sagði Sveinn.
-JGH
SjáHstæðisflokkurinn lertar eftir þjóðarsátt:
Niðuigreiðsla hús-
næðisvaxta færð
í skattakerfið
„Fyrirgreiðsla ríkisins færist frá
niðurgreiðslu vaxta og yfir í skatta-
kerfið,“ segir meðal annars um
húsnæðismál í stjómmálaályktun
flokksráðs- og formannafundar Sjálf-
stæðisflokksins. Þar er mörkuð sú
framtíðarstefna flokksins að einung-
is forgangshópar þeirra sem ekki
eiga íbúð fyrir fái lán úr Byggingar-
sjóði ríkisins, bankakerfið sjái um
aðra.
í ályktuninni segir aö vandséð sé
hvernig áform um að leggja launa-
skatt á sjávarútveg og að lækka
endurgreiðslu uppsafnaðs söluskatts
geti samrýmst því markmiði að
halda gengi krónunnar stööugu.
Samkvæmt heimhdum DV er þarna
tekist á um því sem næst milljarð
króna í gjöldum á útgerð og fisk-
vinnslu. Þá er talið óráðlegt að binda
stjómun fiskveiða til langs tíma.
Ályktað er um endurskoðun á
skipulagi ferðamála og aukinn inn-
flutning ferðamanna. Hvatt er th
þess að við breytingu skattalaga um
áramót verði heimhað að endur-
greiða söluskatt á vömr sem erlendir
feröamenn flytja úr landi. Þá er
ályktað um að brýnt sé að tryggja
aðskhnað dóms- og framkvæmda-
valds.
Mikh áhersla er lögð á átak í öhum
þáttum samgöngumála og hvatt er
til þess að kostir fijálsrar samkeppni
fái notíð sín. Fagnað er nefnd Scun-
gönguráðherra sem á að gera tillögur
um einkavæðingu þeirra fyrirtækja
og stofnana sem heyra undir ráðu-
neyti hans.
í ályktun fundarins er sagt aðkall-
andi að aðilar vinnumarkaðarins og
ríkisstjómin „taki á ný höndum sam-
an og finni áreiðanlegar leiðir til að
hemja verðbólguna, tryggja kaup-
mátt og draga úr launamun sem nú
er orðinn aht of mikhl og í of ríkum
mæh kynbundinn“. -HERB
Frá undirbúningsfundi stofnfundar samtaka um hávaðavarnir.
DV-mynd KAE