Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1987, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1987, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1987. 5 Kindakjöt: Birgðirnar nú 650 tonnn Kindakjötsbirgðir frá síðasta ári eru nú um 650 tonn og er það niður- staða kjöttalningar sem fjármála- ráðuneytið krafðist að fram færi en talning þessi var gerð um mánaða- mótin. Samkvæmt upplýsingum sem DV fékk hjá Karli Th. Birgissyni, frétta- fulltrúa fjármálaráöuneytisins, er þetta sama magn og við var búist. Framleiösluráð landbúnaðarins gaf upp þann 1. september að birgðir kindakjöts frá árinu 1986 væru 2.200 og samkvæmt því hafa um 1.500 tonn af þessu kjöti selst í september og október. Karl sagði það innan eðli- legra marka en ástæða þessarar kjöttalningar er sú að talning bank- anna á sömu kjötbirgðum þótti ekki trúverðug, að mati fjármálaráðu- neytisins. „Fyrstu tölur“ úr þeirri talningu sögðu birgðirnar vera um 1.850 tonn, en við nánari eftirgrennslan bættust við 200 tonn, samkvæmt upplýsing- um sem DV fékk í Landsbankanum. Heildarmagnið reyndist því vera um 2.050 tonn en þá vantar 150 tonn sem talið er að megi skýra sem rýrnun. þó ekki séu allir sammála um það: samkvæmt heimildum blaðsins. Þessi 150 tonn af kindakjöti, sem horflð hafa í rýrnun, jafngilda um 10.000 dilkaskrokkum. -ói Bílbeltanotkun: Segja íslend- ingarósátta um notkunina? Hagvangur gerði könnun fyrir Umferðarráð á bílbeltanotkun ís- lendinga. í könnuninni sögðust 60% aðspurðra nota beltin. 23% sögðusi nota beltin stundum. í vettvangskönnun, sem gerð var. kom í ljós að aðeins 47,7% notuðu beltin. Þannig virðist sem mun fleiri segist nota bílbelti en gera það í raun. -sme Bamalegt að nota endur- skinsmerki í könnun, sem Hagvangur vann fyrir Umferðarráð,var meðal annars spurt hvers vegna fólk notaði ekki endurskinsmerki. 42% þeirra sem spurð voru sögðu að það væri af hugsunarleysi. 20% sögðu það vera barnalegt að nota endurskinsmerki. 25% fólks á aldrin- um 18 til 29 ára sögðu barnalegt aö nota endurskinsmerkin. 21% fólks á aldrinum 30 til 49 ára sögðust ekki nota merkin af sömu ástæðu. 10% fólks, 50 ára og eldra, segist ekki nota endurskinsmerkin vegna þess hve barnalegt það sé. Aðeins 0,3% fólks sögðust nota endurskinsmerki að staðaldri. Fólk bar við ýmsum ástasðum fyrir því að nota ekki merkin. 10,9% sögðu að áróður væri ekki nógur. Einnig sögð- ust sumir ekki vita um sölustaði, af merkin væru óþjál í notkun, af merkin skemmdu fatnað og að merk- in gerðu lítið gagn. -sme Hávaðamoldrok á Homafirði Hávaðamoldrok var á Hornafirði í norðanáttinni í gær. Mesta moldrok- ið fór rétt vestan við bæinn. Svo mikill var mökkurinn að vart sást ti) sólar. íbúar lokuðu gluggum kirfi- lega svo að ekki fylltist allt af ryki. Vindhviður komust allt upp í 8í hnúta á Hornafirði í gær og varð af fella niður flug vegna.roks. Þess mi geta að 12 vindstig eru um 64 hnútar. -JGK Fréttir Davíð hættur við .„Þetta mál hefurekkiveriðrætt mótmælt kröftuglega af hálfu valdistendur.Fráþvíaðmáliövar áaðstjómaþví,þaðerfarsælast.“ lengi og ekki útlit fyrir aö þaö veröi starfsmanna. Einnig var mikil póli- til umræðu hafa orðiö ríkisstjóm- Það má þ'ví líklegt teljast að þetta gert í bili,“ sagði Davíð Oddsson tísk andstaöa gegn sölunni. En er arskipti og þaö hefur haft sín áhrif. mál sé úr sögunni því samkvæmt borgarstjóri þegar hann var spurö- Davíö þá búinn að missa áhugann Ég tel það reyndar skaöa því þessi upplýsingum sem fengust í heil- ur um hvað liöi hugsanlegri sölu á á þessu máli sem hann óneitanlega eigendaskipti hefðu orðið til bóta.“ brigöisráðuneytinu hafast menn Borgarspítalanum. sótti fast á sínum tíma? Ðavíð bætti því við aö nú greiddi þar ekkert að í þessu máli, enda Eins og mönnum er eflaustkunn- „Hvað mig varöar er málið úr ríkiö 100% af rekstri spítalans þótt ekki gert ráö fyrir því á öárlögum, ugt sköpuðust miklar umræður í sögunni. Eg mun ekki hafa frum- hann væri undir stjórn borgarinn- en á sínum tíma var rætt um að fyrrahaust vegna hugmynda Dav- kvæði aö því aö taka sölu Borgarsp- ar. Ekki sagðist Davíð vera hrifinn hugsanlegt kaupverð Borgarspítal- iðs um að selja ríkinu Borgarspítal- ítalans upp aftur enda tel ég mig af því að stjóma annarra fyrirtækj- ans væri 500 miltjónir kr. ann og var því meðal annars vera búinn að gera þaö sem í mínu um: „Sá sem greiðir til fyrirtækis -SMJ BBC MASTER COMPACT MRSTFR SERIES MICR0C0MPUTER i mnd produo®rf by Bcof J! ^ joi for the Britlsh Bro*doi*t in« torpi Mest notada tölvan í grunnskólum landsins. Yfir 1000 BBC tölvur eru nú þegar I notkun í yfir 70 skólum á íslandi. Athyglisverð staðreynd sem þó kemur ekki á óvart þegar haft er í huga nærri óteljandi möguleikar BBC tölvanna og sú staðreynd að nú þegar hafa verið gerð yfir 30000 forrit fyrir BBC tölvur. Fyrir aðeins 36.650,- færð þú: BBC Master Compact tölvu. 3,5" 650 Kb diskettudrif. Hágæða 12" monochrome skjá. Fullkomna ritvinnslu. BBCbasic. Kennslumálið LOGO. 10 leiki á diskettu. íslenskar leiðbeiningar. JAPISS BRAUTARHOLT 2 • KRINGLAN • SIMI 27133

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.