Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1987, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1987, Blaðsíða 40
52 MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1987. Jarðarfarir Útför Jónbjörris Magnússonar, Gljúfraseli 2, fer fram frá Háteigs- kirkju miðvikudaginn 25. nóvember kl. 15.00. Útfbr Jennýar Magnúsdóttur, Kvist- um, sem andaðist á heimili sínu 13. nóvember, fer fram frá Kópavogs- kirkju þriðjudaginn 24. nóvember kl. 13.30. Páll S. Þorkelsson, Sogavegi 206, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, 23. nóvember, kl. 13.30., Jón Björnsson tónskáld, fVá Haf- steinsstöðum, lést í sjúkrahúsinu á Sauðárkróki aðfaranótt miðviku- dagsins 18. nóvember. Hafsteinn Ólafsson, Eskihlíð 33, an- daðist í Borgarspítalanum 19. þessa mánaðar. Anna Kristmundsdóttir, Hjarðar- haga 44, verður jarðsungin frá Laugarneskirkju þriðjudaginn 24. nóvember kl. 15. Útför Bodil Katrínar Örsted, Seilu- granda 8, Reykjavík, fer fram frá Litlu kapellunni, Fossvogi, í dag, 23. nóvember, kl. 15. Fundir Kvenfélagið Fjallkonurnar Jólafundur verður 1. desember kl. 20.30 í Fella- og Hólakirkju. Jólamatur og skemmtiatriði. Þátttaka tilkynnist fyrir 27. nóvember í síma 72002 eða 74505. Munið eftir jólapakkanum. Fræðslunefnd Fáks ■'■stendur fyrir fundi í Félagsheimili Fáks, Víðivöllum, þriðjudaginn 24. nóvember kl. 20.30. Á þessum fundi mun Erling Sig- urðsson flytja erindi um almenna notkun reiðtygja, kosti þeirra og galla. Tekur hann m.a. fyrir hnakka, vandamál vegna méla, höfuðleður, múla, hófhlífar og leð- urfeiti. Skyggnur verða sýndar. Eftir erindið mun Erling síðan svara fyrir- spurnum. Að lokum veröur svo sýnt úr mynd frá fjórðungsmótinu á Melgerðis- melum 1987. Ti3kyimingar ^ Fyrirlestur á vegum Rann- sóknarstofnunar uppeldis- mála Þriðjudaginn 24. nóvember flytur Guð- björg Vilhjálmsdóttir uppeldisfræöingur fyrirlestur á vegum Rannsóknarstofnun- ar uppeldismála er nefnist: Ólík sjónar- mið á félagslegri blöndun fatlaðra. Fyrirlesturinn verður haldinn í kennara- skólahúsinu við Laufásveg og hefst kl. 16.30. Öllum er heimill aðgangur. Jólamerki „Framtíðarinnar“ Jólamerki kvenfélagsins „Framtíðin" á Akureyri er komið út. Er það teiknað af Einari Helgasyni kennara. Merkin eru til sölu í póststofunni á Akureyri og í Frí- merkjamistöðinni og Frímerkjahúsinu í Reykjavik. Allur ágóði rennur í Elliheim- ilasjóð félagsins. Nýr fugl í fjöru íslenskrar >myndlistar Þriðjudaginn 24. nóvember kl. 16 opnar Gunnar J. Straumland myndlistarsýn- ingu í Hafnargalleríi, Hafnarstræti 4 (fyrir ofan Bókaverslun Snæbjarnar). Þetta er fyrsta einkasýning Gunnars en áður hefur hann tekið þátt í samsýning- um. Á sýningunni eru 15 pennateikning- ar sem allar eru unnar á þessu ári. Viðfangsefni sækir Gunnar í dýra- og mannheima. Sýningin stendur til 4. des- ember nk. og er hún opin á verslunar- tíma, kl. 9-18, nema á laugardögum kl. 9-12. Öll verkin á sýningunni eru til sölu. Félagsmiðstöð Geðhjálpar að Veltusundi 3b, er opin á fimmtudögum kl. 20-22.30, laugardögum og sunnudög- jim kl. 14-18. Einnig hefur Geðhjálp opna skrifstofu alla virka daga kl. 10-14 þar sem seld eru minningarkort félagsins og veittar upplýsingar um starfsemina. Sími 25990. Ný listaverkakort frá Listasafni íslands Út eru komin hjá Listasafni Islands ijög- ur ný litprentuð kort með eftirprentun- ijm af verkum íslenskra myndlistar- ->manna. Eru þau sem hér segir: Bátur á heimleið, 1966 eftir Gunnlaug Scheving, Uppstilling, eftir Jón Sveinsson, Fólk í. landslagi, 1978, eftir Louisu Matthías- dóttir, íslandslag, 1944, eftir Svavar Guðnason. Litprentanirnar eru límdar á tvöfaldan karton, 16x22 cm að stærð, og fylgir þeim umslag. Kortin eru mjög vön- duð og tilvalin sem jólakort. Áður hefur Listasafnið geflð út um 70 litprentuð kort í sömu stærð og eru þau fáanleg í safninu. Menning i Um vort óklassíska núta'malíf íslenskl dansflokkurinn - Flaksandi fald- ar, Þjóðleikhúsinu, frumsýning, 22. nóv. Á undanfbrnum árum hefur ís- lenski dansflokkurinn búið við kringumstæður sem nægja mundu til að setja margan danshópinn út af laginu, til að mynda stöðuga pen- ingalega og stjórnunarlega óvissu, of tíð skipti á gestastjórnendum, innri ágreining um markmið og leiðir, vöntun á karldönsurum, fyr- ir utan landlægt, vonandi tíma- bundið, áhugaleysi um hstdans. En það er eins og þessir erfiðleik- ar hafi beinlínis stælt og þroskað dansarana í flokknum, gert þær harðari af sér, útsjónarsamari, fjöl- hæfari. Samansöfnuð reynsla þeirra af aðskiljanlegum dansahöf- undum, af klassískum ballett, músíkölum, Þórskabarettum og nútímadansi er nú orðin allnokk- ur, og hefur skilað sér í rismiklum nútímadansverkum, sjá Stöðuga ferðalanga í fyrra, og dramatíska danssýningu Jochens Ulrich í ár. Á þessu stigi er spurningin þessi: Hve lengi tekst þessum flokki að halda uppi danssýningum í háum gæðaflokki við núverandi aðstæð- ur? Konurnar við þorpsbrunninn En við skulum vera bjartsýn. Nýr og valinkunnur dansstjóri, Hlíf Svavarsdóttir, hefur verið ráðin til flokksins og í sinni fyrstu sýningu hefur hún aftur fengið til liðs við sig einn af þeim hæfileikaríku dansahöfundum, sem Hollending- ar virðast eiga nóg af, Angela Linsen heitir manneskjan. BaHett Aðalsteinn Ingólfsson Til samans hafa þær stöllur búið til einkar þekkilega danssýningu fyrir ellefu kvendansara (þar á meðal Maríu Gísladóttur, ný- komna frá Bandaríkjunum) sem frumflutt var í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi. Sýningin nefnist Flaksandi fald- ar, sem er samheiti fyrir tvö að.kiljanleg verk, Kvennahjal eftir Angelu Linsen og Á milli þagna eftir Hlíf sjálfa. Kvennahjal er margbrotið dans- verk í póstmódernískum ívitnun- arstíl, þar sem tvinnað er saman þjóðdönsum, samkvæmisdönsum, nútímalegum stílæfingum, lát- bragðsleik, leikfimi, jafnvel söng og töluðum texta (eftir Jón úr Vör). Augnayndi Þjóðdansaþátturinn er þó mest áberandi, enda áréttaður af þjóð- söngvum frá Suður-Ítalíu sem leiknir eru undir sumum atriðun- um. í þeim atriðum er brugðið upp stílfærðum myndum af ýmsum hvunndagslegum ritúölum kvenna í Miðjarðarhafslöndunum, kannski samkomum við þorpsbrunninn, innilegri samkennd kvennanna, gáska og samkeppni. Þeir sem sáu uppsetninguna á Yermu munu kannast við stemmninguna. í löngu og ílóknu dansverki er erfitt að halda uppi dampi allt í gegn, enda virka sumir þættir kvennahjals svona soldið eins og dulmál eða málalengingar, sjá til dæmis burðaratriði og fremur til- breytingarlausar ítrekanir á nokkrum dansmynstrum um mið- bik verks. Sem breytir ekki því að í heildina séð er verkið mikið augnáyndi, uppfullt með óvæntum og frjóum uppákomum, bæði í látbragði og dansi, og á köflum bráðfyndið. Kvennahjal er umfram allt hóp- verk svo ekki væri sanngjarnt að taka einstaka dansara út úr til umgetningar. Þó dansar Birgitta Heide þar fallega apassjónötu sem ekki hður úr-huga þess sem þetta skrifar. Sem hópur er dansflokkurinn yfirleitt samstilltur, burtséð frá nokkrum frávikum í stærri hópat- riðum, og sérstaklega er hann vel með á nótunum í leikrænni atriö- um. .........fléttaðir saman af þögninni Verk Hlífar, Á milli þagna, sem raunar var flutt á undan, er annars eðlis/heilsteypt danssvíta með til- brigðum um tilltölulega fá stef. Sjálf lýsir höfundur verki sínu fall- ega, kallar það „Nútímavalsar fléttaðir saman af þögninni". Vals- arnir eru eftir átta nútínlahöfunda. Það hefur fyrir löngu komið í ljós að Hlíf er afar ljóðrænn dansahöf- undur, byggir verk sína á fíngerð- um blæbrigðum tilfinninga sem tengdar eru saman með háttbundn- um hætti hins klassíska dans. En klassíkin í verkum Hlífar seg- ir henni ekki fyrir verkum, heldur virkar hún eins og burðarás sem hún getur hengt á ýmis tilbrigði um vort óklassíska nútímalíf, snögg geðbrigði, sársauka og ótta. Á milli þagna er stílhreint og þokkafullt verk þar sem skarast hópdansar og tví- og þrídansar. Allt var verkið vel dansað, sérstak- lega var þáttur Maríu Gísladóttur glæsilegur. Sviðsmynd var ekki fyrir að fara, en lýsing Sveins Benediktssonar var smekkleg og búningar Sig- rúnar Úlfarsdóttur í verki Hlífar eru „smart“. Því miður verður Flaksandi fald- ar ekki sýnt nema tvisvar sinnum í viðbót sem segir sína sögu um vægi listdansins í musteri leiklist- anna. AI Tsjékhov var hér Leikhúsrými gerist æ minna í Reykjavík. Þessi þróun hófst er Alþýðuleikhúsið þurfti að setja upp Beisk tár Petru von Kant í bak- herbergi á Kjarvalsstöðum. Síðan hefur leikhús verið að flytjast inn í smáherbergi hér og þar um bæ- inn. Þetta kemur náttúrlega stór- kostlega niður á gæðum leikhúss, leikarar eru ekki þess megnugir að túlka sín hlutverk standandi nán- ast á herðum áhorfenda. Það hefði maður að minnsta kosti haldið. En hið undursamlega er að leikhópar virðast ekki láta þetta á sig fá og sýna ótrauðir. í gær frum- sýndi eih-leikhúsið tvo einþáttunga eftir Anton Tsjékhov, Um skaðsemi tóbaks og Bónorðið. Eintalið Um skaðsemi tóbaks flaUar minnst um skaðsemi tóbaks. Ivan Ivanovitsj Njúkin (Hjálmar Hjálmarsson) er roskinn vísinda- maður sem tekur að sér að flytja fyrirlesturinn að beiðni konu sinnar. Honum er það þvert um geð en lætur þó undan konu sinni. Hann mætir vel hreifur til leiks og byrjar að rekja raunir sínar fyrir áhorfendum. Textinn býður upp á stórkostlega túlkunarmöguleika og leitast Hjálmar við að sinna þeim sem best. Hann skortir þó tækni til að halda athygh áhorfenda vakandi sem skyldi og missir .verkið því að einhverju leyti marks. Þetta er ekki hvað síst litlu sviðsrými að kenna. - Hinn einþáttungurinn, Bónorðið, er bráðskemmtilegt verk, líklega eins dæmigert fyrir Tsjékhov og Leiklist Pétur L. Pétursson það getur orðið. Bóndi nokkur, Ivan Vassilijavitsj Lomolov (Guð- jón Sigvaldason), heimsækir nágranna sinn, Stepan Stepano- vitsj (Jón Símon Gunnarsson), og biður um hönd dóttur hans, Na- taleju Stepanoinu (Bryndís Petra Bragadóttir). Stepan bregst glaður ivið og sækir dóttur sína. Dóttirin kemur og taka þau Ivan tal sanian. Ivan er þó í meira lagi feiminn og fer að tala í kringum efnið. Þá leið- ist talið áð löndum hans og ýfast þar upp þrjú hundruð ára gamlar landamerkjadeilur milli fjöl- skyldnanna tveggja. Svo rekur hvert deilumálið annað, mikill. metingur er á milli fjölskyldnanna. Leikurum tókst vel að koma hlut- verkum sínum til skila. Þar spillir textinn heldur ekki fyrir, alltaf er nóg á seyði. Ég var hrifinn af túlk- un Jóns Símonar Gunnarssonar í hlutverki Stepans, og þá gkki hvað síst beitingu raddar en Jón hefur mjög þjálfaða rödd og áhrifamikla. Jón var ótvírætt maður kvöldsins (síödegisins). í hlutverki hins helsjúka Ivans er Guðjón Sigvaldason. Honum tókst vel að túlka hina skoplegu persónu og taugaóstyrku. Styrkur hans fólst einna mest í útlitsgerv- inu, en svo skondinn er hann ásýndum í víðum kjólfótunum að þar vinnst hálfur leiksigur. Dótturina leikur Bryndís Petra Bragadóttir. Nokkurs óstyrks gætti hjá henni í fyrstu og var ekki gott að skilja það sem hún sagði. Það lagaðist þó strax og átti hún góða spretti sem hin skapmikla Na- taleja. Sviðsmynd er nánast engin, það er ekkert pláss. Hins vegar hefur verið sett upp róla sem gegnir veig- amiklu hlutverki í Bónorðinu. Leikstjóri einþáttunganna er Þröstur Guðbjartsson. Honum fer verkið að mestu leyti vel úr hendi en hefði þó mátt skipuleggja betur hreyfingar Hjálmars í eintalinu. Þær eru hins vegar þaulhugsaðar í Bónorðinu. Þrátt fyrir fáránlega lítið rými er þó mikla skemmtún að hafa í Djúp- inu þar sem þessir tveir éinþát- tungar eru. Ég vona þó að eih-leikhúsinu takist að finna sér betra húsnæði og þakka kærlega fyrir hlýlegar móttökur og góða skemmtun. Fiðlu-ævintýri Tónlistarfélagið var loks með aðra tónleika sína á þessum vetri sl. laugardag. Að þessu sinni hafði félagið fengið inni í íslensku óper- unni en eins og kunnugt er hefur félagið verið á hrakhólum síöan eigendaskipti urðu á Austurbæj- arbíói. Það var fiðluleikarinn Yuval Yar- en frá ísrael sem stóð þama einn á sviðinu og lék hveija perluna af annarri... tvær partitur eftir Bach, Ballöðu - sónötu eftir Ysaye, Pag- anini - kaprísur, og verk eftir Tónlist Leifur Þórarinsson Kreisler og Ernst. Sjaldan hefur maður heyrt hér jafnsterkan flutning á Bach. Fyrst var h-moll partitan, sem heyrist tiltölulega sjaldan, miðaö við þær í E-dúr og d-moll, og þá heyrði maður strax að þama var kominn fiðlumeistari sem hlýtur að teljast til hinna stóru. Stíllinn er ákaflega’ hreinn og laus við alla tilgerð en hlýr og manneskjulegur. Fjölrad- dað spil Yarons er ótrúlega skýrt en um leið hlaðið dramtík sem náði hámarki í lokaþætti d-moll partí- tunnar, sjakkonnunni frægu, sem allir vilja leika en fáir geta. Þá var ekki síður spennandi að heyra sónötu Ysayes, sem var full af tónrænum ævintýrum. Og Pag- anini kaprísurnar, nr. 1 og 24, voru leiknar af slíkri snilld að maður tók andann á lofti við hverja hendingu. Lokaverkið, Konsert - tilbrigði um „The last rose of surnmer", eft- ir 19du aldar fiðlusnillinginn Heinrich Ernst, er eitt ótrúlegasta „virtúsósnúmer" sem maður hefur heyrt um dagana og það var leikið af slíkum glæsibrag og með slíkri stílfestu að minnti á kennara Yar- ons í Ameríku, hinn óviðjafnanlega Jascha Heifetz. Það er hápunktur- inn. LÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.