Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1987, Qupperneq 17
MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1987.
17
Lesendur
Ónóg þjónusta myndbandaleigu:
Betri er lykill
en leiga
t
Bertha Richter skrifar:
Laugardaginn 7. nóv sl. fór ég á
Videóleiguna Video-Sport að Eddu-
felli 4 til þess að fá leigt videotæki
og spólur. Áður en ég fékk tækið í
hendur bað ég stúlkuna sem af-
greiddi að athuga hvort snúran
(loftnetið) fylgdi ekki með. Ég hafði
nokkrum vikum fyrr fengið tæki á
þessari leigu og vantaði þá snúruna
alveg. - Eftir að hafa þá eytt fjórum
árangurslausum símtölum fór ég
með það tæki út aftur og fékk pen-
inga mína endurgreidda.
Nú vildi ég vera viss um að snúr-
an fylgdi örugglega með. Stúlkan
opnaði töskuna og sá að snúran var
þarna en skoðaði hana ekki nánar.
Ég tók tækið ásamt 6 spólum og
labbaði með það heim. Þetta átti
að vera sérstaklega til að skemmta
börnunum. Þau voru mjög eftir-
væntingarfull, einkum þar sem
þetta mistókst í fyrra skiptið. Þá
hafði mér verið sagt að ekkert væri
hægt að gera annað en endurgreiöa
mér því þeir væru aldrei með auk-
asnúrur.
Ég kem nú heim með tækið í
þeirri trú að allt sé í lagi þar sem
nú var snúran með. En þegar ég tek
upp úr töskunni og ætla að fara að
tengja sé ég að snúran er laus öðr-
um megin, þ.e. vírarnir eru ekki í
„stykkinu“.
Ég hringdi strax og talaði við
stúlkuna sem afgreiddi mig og
sagði henni frá þessu. Hún sagði
að það eina sem ég gæti gert væri
að reyna að nota mína eigin súru.
Það tókst mér þó ekki. Ég reyndi
þó á annan klukkutima en ekkert
gekk. Börnin voru nú orðin mjög
pirruð. Þá hringdi ég aftur í video-
leiguna og talaði við sömu stúlkuna
og sagði henni að mér hefði ekki
tekist þetta og mér fyndist þar af
leiðandi ekki sanngjamt að þurfa
að greiöa fyrir þetta og fór fram á
að fá endurgreitt.
Stúlkan spuröi mig hvort ég gæti
ekki komið með tækið út aftur. Það
gat ég hins vegar ekki þá af óviðr-
áðanlegum orsökum (var með ung
börn, þar af eitt í vagni). Stúlkan
sagðist skilja það og sagði að í lagi
væri að ég kæmi meö tækið daginn
eftir og þá fengi ég þetta endur-
greitt.
Daginn eftir fór ég svo á staðinn
og talaði við stúlku sem þó var
ekki sú sama og hafði afgreitt mig
daginn áður. Hún vissi greinilega
ekkert um málið og náði í einhvern
karlmann sem hafði ekki einu sinni
fyrir því að kynna sig (tel þó að það
hafi veriö eigandinn).
Hringið
í síma
27022
milli kl.
13 og 15,
eða skrifið.
Ég sagði honum alla málavöxtu
og sagðist hann þurfa aö hringja í
stúlkuna sem afgreiddi mig. Fannst
mér það ekki nema eðlilegt. Eftir
samtalið viö hana sagðist hann
ekki geta endurgreitt mér þar sem
búið væri að gera upp kassann og
auk þess sagði hann að stúlkan
hefði boðið mér að koma og fá auk-
asnúru. - Það gerði hún hins vegar
ekki, eins og áður er getið, og hafði
ég enda fengið þær upplýsingar að
þeir væru aldrei með aukasnúrur.
Sagðist maðurinn hreinlega halda
að ég hefði eyðilagt snúruna sjálf!
Þá vil ég benda á það að ef ég
hefði eyðilagt snúruna sjálf þá
hefði ég ekki byrjað á því að hringja
strax út til þess að láta vita heldur
reynt að fá hjálp við að lagfæra
hana.
Þess skal þó getið að maðurinn
bauð mér aö hafa tækið í annan
sólarhring endurgjaldslaust. En
þar sem ég er í fullri vinnu gagnaði
það mér ekkert.
Þessi reynsla hefur kennt mér að
skipta ekki við videoleigur. Og þótt
það komi þessu máli kannski ekki
við þá myndi ég, ef ég á nokkum
hátt sæi mér fært, fá mér myndlyk-
il. En því miður, þótt þeir séu með
kostaboð núna, þá sé ég mér ekki
fært að kaupa hann.
Ég vil samt nota tækifærið og
óska þeim til hamingju á Stöö 2 og
sérstaklega fyrir mikið og gott
barnaefni. - Þetta síðasta, varðandi
Stöð 2, vil ég sérstaklega að komi
fram, vegna þess að heföi ég átt
myndlykil myndi ég aldrei hafa
leigt mér videotæki og þar af leið-
andi aldrei orðið fyrir þessari
reynslu.
MALMTÆKI
Ál-plötur 0,5-20 mm
Ál-prófílar
Ál-rör Q Ál-skúffur
Ál-vinklar Ál-öxlar •
- Sendum um land allt -
Seltuvarið efni* 57S
ÁL-SKJÓLBORÐAEFNI
ÁL-VÖRUBÍLSPALLAR
ÁL-FLUTNINGAHÚS
EFNIEÐA - FULLBÚIN
STURTUR - VÖRULYFTUR
STÁLSKJÓLBORÐA-EFNI
® 91-83045
® 91-83705
MÁLMTÆKN 1
Vagnhöfða 29 - Rvk
SPRA
lakkúðinn er hraðþornandi gæða-
lakk í fjölda lita til hvers kyns nota
úti og inni.
I Dupli Color er rustlon sem hindrar ryðmyndun. Má nota
m.a. á tré, málma, gler og plast. Best er að grunna undir
með Dupli Color grunnúða. Dupli Color lakkúðinn mengar
ekki og skemmir ekki ósonlagið. Ekkert blý er í lakkinu.
v Heildsöludreifing.
^S. ^iíúiusson k<Q
Sundaborg 3, Reykjavík, s. 685755.
BRflun
MULTIPRACTIC
HVAÐ
JAFNAST
ÁVIÐ
ÞESSA
VÉL?
Verslunin
Borgartúni 20
og Kringlunni
og betri raftækja-
salar um land allt