Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1987, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1987, Qupperneq 34
46 MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1987. MINNISBLAD Muna eftir að fá mer ei.ntak af r Urval B j a rg - vætturinn hreinsar með glans! Fyrir vaska, baðkör, w.c. fiísar, keramik- eldahellur og margt fleira. Heildsala - smásala J powAksson og nordmann hf Rétlarhálsl 2 - sfml 83833. 0HITACHI RYKSUGA 1000 vött Kr. 5.900,- L Fréttir DV Gmnnskólar á Norðuriandi eystra: Engin tónmenntakennsla í þriðjungi skólanna Gylfi Kxistjánsson, DV, Akureyii; „Þaö er óhætt að segja að þetta er dapurt ástand því það vantar tón- menntakennara í 12 skóla af 38 hér í umdæminu,“ sagði Sigurður Hall- marsson, fræðslustjóri í Norður- landsumdæmi eystra, í samtali við DV. Samkvæmt lögum eiga alhr nem- endur grunnskóla að njóta tón- menntakennslu á öllum árum grunnskólanámsins. Mjög mikill skortur er á kennurum í þessari grein og t.d. hafa nemendur Glerár- skóla á Akureyri ekki fengið neina tónmenntakennslu í vetur og ekki í fyrravetur heldur. „Það er alltof lítið til af tónmennta- kennurum," sagði Siguröur Hall- marsson. „Hér er um sérhæfða kennslu að ræða og í minni skólun- um er ekki um að ræða nema nokkurra tíma kennslu á viku þann- ig við yrðum að fá í þetta fólk sem gæti farið eitthvað á milh skólanna. En það hefur ekki tekist vegna skorts á kennurunum. Við erum að vinna að því að finna lausn á þessu vanda- máli. Hún gæti ef til vill legið í því að taka upp eitthvert samstarf við tóniistarskólana og reyna aö fá kenn- ara þaðan. En útlitið varðandi tón- listarskólana er reyndar allt annað en glæsilegt eins og menn þekkja," sagði Sigurður. Vilberg Alexandersson, skólastjóri Glerárskóla á Akureyri, sagði að þrátt fyrir að mikið hefði verið aug- lýst eftir tónmenntakennurum hefðu þeir ekki fengist til starfa við skól- ann. „Þeir kjósa flestir að starfa á suðvesturhorninu og í tónlistarskól- unum þar sem aðstaðan er ef til vill betri og þeir hafa færri nemendur. Þetta ástand er einfaldlega vegna þess að tónmenntakennararnir fást ekki til starfa við skólana," sagði Vilberg. Homafjörður: Næg veikefhi fyr- ir sjúkraþjátfara Júlia Imsland, DV, Hofiv Á Höfn, eins og annars staðar úti á landsbyggðinni þar sem viima er mikil, skapast næg verkefni fyrir sjúkraþjálfara því vöðvahólgur, bak-veiki og þvíumlíkt fylgja gjarnan miklu vinnuálagi. Nýlega gáfu kvenfélagskonur pen- inga til kaupa á tveim æfingabekkj- um fyrir sjúkraþjálfun. Aðstaða er nokkuð góð fyrir sjúkraþjálfara á heilsugæslustöðinni. Einn sjúkra- þjálfari er starfandi á Höfn en hefur sagt upp störfum frá nk. áramótum. Algengt er að fólk þurfl að bíða í a.m. k. þrjá mánuöi eftir að komast í meðhöndlun hjá þjálfaranum nema sérstök beiðni sé fyrir hendi frá lækni. Ekki hefur enn fengist heimild ráðuneytis fyrir stöðu sjúkraþjálfara við heilsugæslustöðina þar sem ekki er sjúkrastofnun á staðnum. Sveitar- félög sýslunnar hafa nú auglýst eftir sjúkraþjálfara til starfa um næstu áramót. Ásgeir R. Helgason, leiðbeinandi frá Krabbameinsfélaginu, á námskeiðinu. DV-mynd Anna Geta sparað 1,2 milljónir á ári Egill Ólafsson: Hættum ekki að vera brtlar „Við erum hættir í bili sem Stuð- menn en það hefur nú gerst áður. Bihð hefur reyndar veriö mislangt því menn losna nú einu sinni ekki við það að vera bítlar," sagði Egill Ólafsson, Stuðmaður með meiru, en sú harmafregn hafði flogið fjöllunum hærra að stuðgrúbba landsins, Stuð- menn, væri runnin sitt skeiö á enda. Ekki vhdi Eghl viðurkenna að þetta væri endapunktur Stuðmanna. „Við tókum okkur hvhd frá hvort öðru en þetta hefur verið svona í gegnum tíðina. Menn hafa verið að spha sig sundur og saman.“ Stuð- menn störfuðu saman í sumar sem leið og gáfu þá út plötu. „Þó að við störfum sitt í hvoru lagi verðum við örugglega að þessu fram í rauðan dauðan hvort sem mönnum líkar betur eða verr,“ sagði Egih en hann kvaðst ætla að einbeita sér að leikhstinni í vetur. Hljómsveitin Strax mun starfa áfram með þau Jakob, Ragnhhdi og Valgeir innan- borðs og mun plata vera væntanleg frá þeim. -SMJ Höfn, Selfossi: Slátruðu 13 þúsund dilkum Regfim Thoraiensen, DV, SeKossi; Að sögn Péturs Hjaltasonar, skrif- stofustjóra hjá versluninni og slátur- húsinu Höfn, Selfossi, var hehdar- slátrun 13.207 dilkar. Þar af fóru 380 í refafóður. Meðalvigt var 14,2 khó en í fyrra var hún 13,4. Þyngsti dhk- urinn var 27,7 khó. Eigandi var Guðmundur Þorvaldsson, Laugar- bökkum. Um 7% af dhkunum fóru í tvo fltumestu flokkana og þótti sú útkoma góð. Anna Ingólfsdóttir, DV, Egilsstöðum; Rúmlega 20 manns af Héraði hafa lokið námskeiði í reykbindindi. Námskeiðið var skipulagt af JC Hér- aði og Hehsugæslustöð Egilsstaða en aðaheiðbeinandi var Ásgeir R. Helgason frá Krabbameinsfélagi Reykjavíkur. Námskeiðið var vel sótt og var mikhl hugur í fólki. Var farið yfir ýmsa þætti sem tengjast reykingum, s.s. félagslega og líkamlega, og fólk upplýst betur um reykingaávanann. Óneitanlega komu kostnaöarhðir reykinga mikið inn í umræðumar. Oft er það þannig á fámennum stöð- um á landsbyggðinni að ýmsar framkvæmdir í bæjarfélaginu drag- ast á langinn, jafnvel í mörg ár, vegna skorts á fjármagni og oft er ekki um verulegar upphæöir að ræða. Á námskeiðinu var reiknað út að ef 25 manns hætta að reykja og leggja ahir andvirði eins sígarettupakka á dag inn á sameiginlega bók safnast saman 1,2 mhljónir kr. eftir árið, fyr- ir utan vexti. Mætti fyrir þessa peninga gera ýmislegt, t.d. verja þeim th nýsköp- unar í byggðarlaginu, aðstoða aldr- aða eða krabbameinssjúkhnga, eða eitthvað annað. Ef fer sem vonast er eftir, að ísland verði reyklaust árið 2000, verða margir sem geta andað léttar því greinilegt er að fólk er að verða meira meðvitað um skaðsemi reykinga og hina ýmsu sjúkdóma sem rekja má beint th reykinga. Sjómenn skora á Jón Baldvin Áhafnir rúmlega eitt hundrað fiskiskipa hafa sent Jóni Baldvini Hannibalssyni fjármálaráðherra skeyti þar sem þær skora á hann að tryggja að Slysavamaskóla sjó- manna verði veitt fjármagn á fjárlög- um svo að hann geti starfað áfram með eðlhegum hætti. í fjárlögum fyrir næsta ár er ekki gert ráð fyrir neinum fjárveitingum til skólans og segja sjómenn í skeyt- inu að þeir beri ugg í brjósti vegna þessa. -S.dór Stækkun verksmiðju Sana á Akureyri: „Ekki vegna bjórsins“ - segir Baldvin Valdimarsson framkvæmdastjóri Gylfi Kristjánæan, DV, Akureyri: „Þessar byggingarframkvæmdir okkar eru einfaldlega th komnar vegna þess að við höfum ekki haft undan í framleiðslunni síðan í vor og við erum að byggja th þess aö auka framleiðslugetu okkar," sagði Baldvin Valdimarsson, fram- kvæmdastjóri Sana á Akureyri, en nú eru hafnar miklar framkvæmd- ir við stækkun verksmiðju fyrir- tækisins. „Auðvitað koma þessar fram- kvæmdir okkur th góða ef bjór- frumvarpið verður samþykkt á Alþingi. En viö erum ekki að byggja núna vegna bjórsins. Viö ætlum okkur hins vegar að fylgjast með framvindu bjórmálsins áður en við förum í framkvæmdir við byggingu bjórverksmiðju. Þótt meirihluti virðist vera með bjóm- um á Alþingi era margir þing- manna með alls kyns fyrirvara og því er mjög óljóst hvernig þetta fer.“ Baldvin vhdi ekki gefa upp fram- leiðslumagn Sana á áfengum bjór á sl. ári. Hann sagði hins vegar að bjórframleiðslan hefði á þessu ári aukist um helming frá fyrra ári en það nægöi ekki. „Það er margt sem sphar inn í ef menn eru að horfa til þess að bjórinn veröi leyfður hér. Eitt er að sá frestur sem talað er um í frumvarpinu, október 1988, er alltof skammur. Það er geysheg fjárfest- ing við að koma upp bjórverk- smiðju, sennhega um 400 mhljónir króna. En hitt skiptir þó ekki minna máh, en það er að kunna að búa th bjór og hafa starfsfólk sem þekkir th þeirra verka. Við höfum bæði þessa þekkingu og starfsfólkið." Baldvin sagðist ekki geta sagt th um hversu stór bjórmarkaðurinn yrði hér á landi ef græna ljósið kæmi frá Alþingi. „Þetta veltur allt á því hvernig lögin verða og reglu- gerðimar, hvemig bjórinn veröur seldur, á hvaða verði og margt fleira spilar þarna inn í,“ sagði Baldvin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.