Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1987, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1987, Blaðsíða 3
FÖSÍUDAGUR 27. NÓVEMBER 1987. 21 Stjarnan gefur há]fa milljón Útvarpsstöðin Stjarnan efnir nú til spurningaleiks sem hefur hlotið nafnið Jólaleikur Stjörnunnar. Leikurinn hefst í dag, föstudag, og stendur til 15. desember. Vinningar eru ekki af verri endanum, vöruút- tekt fyrir hálfa milljón króna sem skiptist í tvennt. Tveir heppnir hiustendur Stjörn- unnar fá því hálfa milljón króna jólagjöf frá Stjörnunni, eða 250 þús- und krónur hvor, í vöruúttektum frá fyrirtækjunum Vatnsrúmi, Hagkaupi, Jens gullsmið, Skæðum, Stefanel, Ferðaskrifstofu Reykja- víkur, Pelsinum, Sævari Karli og sonum og Heimilistækjum. Þá fá vinningshafarnir myndlykil og ársáskrift að Stöð 2 og kampavíns- kvöldverð á Arnarhóli. Sem fyrr sagði hefst leikurinn í dag með spurningu í morgunþætti Þorgeirs Astvaldssonar og Gunn- laugs Helgasonar og verður hún endurtekin í eftirmiðdagsþætti Helga Rúnars Óskarssonar. Þannig verður ein spurning lögð fyrir hlustendur á dag í þrettán daga og af þrettán svörum þurfa ellefu að vera rétt til að tryggja þátttöku í drætti sem fram fer 20. desember. Sérstakur svarseöill verður birtur í blöðum með svarreitum sem hlustendur geta fyllt út ásamt nafni, heimilisfangi og símanúm- eri. Svava Jakobsdóttir, rithöfundur og fyrrverandi þingmaður. Sjónvarp sunnudag kl. 21.15: Afbrags skemmtun Spurningaþættir Ómars Ragn- arssonar, Hvað heldurðu?, eru sífellt að vinna á og vinsældir þátt- anna að aukast. Þarna fer líka saman spennandi keppni og létt spaug sem Ómar á sjálfur drjúgan þátt í. Það er vel til fundið hjá sjón- varpinu að leggja land undir fót, taka þættina upp í héraði og fá inn- ansveitarfólk til að sjá um skemmtiatriði. Með því kemur sjónvarpið á framfæri hinum ágæt- ustu skemmtikröftum sem þjóðin hefði annars aldrei kynnst. Þetta eru einfaldir þættir en afbragðs skemmtiiegir. í þættinum á sunnudaginn leiða saman hesta sína sveitir Héraðs- búa og Fjarðabúa og fer keppnin fram á Hótel Valaskjálf á Egilsstöð- um. Ómar Ragnarsson er óviðjafnan- legur í spurningaþáttunum Hvað heldurðu? Hann er óþvingaður og skemmtilegur, virðist skemmta sér betur en nokkur annar og yrkir smellnar vísur á meðan hann spyr spurninga. Jennifer O’Neil og James Coburn á góðri stundu i myndinni Neyöarúrræði (The Carey Treatment). Sjónvarp laugardag kl. 23.20: Neyðarúrræði Tónlistarkrossgátan nr.93 Stöð 2 sunnudag kl. 20.50: Svava í Nærmynd Jón Óttar Ragnarsson sjónvarps- stjóri tekur á móti Svövu Jakobs- dóttur, rithöfundi og fyrrverandi þingmanni, í þætti sínum, Nær- myndum, á sunnudagskvöld. Svava er forvitnileg kona. Hún var um árabil framarlega í stjórn- málavafstrinu og þingmaður Alþýðubandalagsins um skeið. Þá hefur hún lengi verið í hópi eftir- tektarverðari rithöfunda ísiend- inga og sent frá sér skáldsögur og leikrit sem vakið hafa athygli og umtal. - Svava Jakobsdóttir kemur úr ijölskyldu þar sem annar hver maður er ritsnillingur og verður eflaust gaman að heyra hvaö hún hefur að segja við Jón Óttar. Stöð 2 laugardag kl. 9.00: Amma í garðinum Spennumyndin Neyðarúrræði (The Carey Treatment) er á dag- skrá sjónvarpsins seint á laugar- dagskvöldið. Myndin er talin nokkuð vel gerð og reynt er að koma vissum boðskap tii skila á milli blóðbaða. Meinafræðingur. sem vinnur á sjúkrahúsi í Boston. stefnir lífi sinu i hættu er hann hyggst rannsaka lát ungrar konu vegna ólöglegrar fóstureyðingar. Neyðarúrræði er bandarísk mynd frá árinu 1972. Leikstjóri er Blake Edwards sem kannski hefur orðið frægastur fyrir gerð mynd- anna um Bleika pardusinn. Með aðalhlutverk fara James Coburn. Jennifer O'Neif. Pat Hingle og Skye Aubrey. Þátturinn Með afa hefst á Stöð 2 klukkan níu á laugardagsmorgun. Þetta er þáttur með blönduðu efni fyrir yngstu bömin. í þættinum á laugardag gefst yngstu áhorfend- unum kostur á að fara með afa í heimsókn til ömmu í garðinum. Amma á heima í skrýtnu húsi með skrýtnum garði þar sem ýmis- legt óvænt getur gerst. Brúðurnar eru eftir franska stúlku, Dom- inique Poulin, en leikmynd er eftir Steingrím Eyfjörð. Saga Jónsdóttir leikur ömmu en leikstjóri er Guðr- ún Þórðardóttir. Þessi skemmtilega brúða er engin önnur en amma i garóinum. Séra Rögnvaldur Finnbogason. Rás 1 sunnudagkl. 13.30: ÁdegiPalestínu- þjóðarinnar Alþjóðadagur gyðinga er tilefni þáttar sem séra Rögnvaldur Finn- bogason hefur tekið saman og nefnist Á degi Palestínuþjóðarinn- ar. Elías Davíðsson valdi tónlistina í þáttinn sem verður fluttur á Rás 1 á sunnudag. Þátturinn ijallar fyrst og fremst um samskipti ísraelsmanna og Pa- lestínuaraba, séð með augum hinna síðarnefndu. Sagt verður frá tildraganda að stofnun Ísraelsríkis, frá síonisma sem pólitískri hreyf- ingu og lögð áhersla á að i Palestínu búi þjóð sem á sína sérstöku menn- ingararfleifö og sögu. Rás 1 laugardag kl. 9.10: Davíð Copperfield Barnaleikritið um Davíð Cop- perfield eftir Charles Dickens verður flutt á Rás 1 á laugardags- morgun klukkan tíu mínútur yfir níu. Höfundur útvarpsleikgerðar er Anthony Brown en þýðandi og leikstjóri er Ævar Kvaran. Þetta er endurflutningur verksins en leikritið var áður á dagskrá árið 1964. Á laugardaginn verður fluttur fimmti þáttur. Með helstu hlutverk fara Gísli Alfreðsson, Þorsteinn Ö. Stephens- en, Helga Valtýsdóttir, Erlingur Gíslason, Valdimar Lárusson og Borgar Garðarsson. Ævar Kvaran er þýðandi og lelk- stjóri barnaleikritsins Davíð Copperfield eftir Charles Dickens.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.