Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1987, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1987.
29
Njarðvíkmgar fá
Valsmenn í heimsókn
Helgin, sem nú fer í hönd, verður
frekar róleg hér innanlands á
íþróttasviðinu. Þó verða körfu-
knattleiksmenn á fullum krafti og
verða nokkrir leikir á því sviði um
helgina.
• í kvöld verða tveir leikir í úr-
valsdeildinni í körfuknattleik. í
íþróttahúsinu í Digranesi í Kópa-
vogi leika Breiðablik og Þór frá
Akureyri en hvorugt þessara liða
hefur hlotið stig í deildinni til þessa
í vetur. Seinni leikur kvöldsins
verður viðureign Njarðvíkinga og
Valsmanna í íþróttahúsinu í Njarð-
vík en sem kunnugt er tróna
Njarðvikingar í efsta sæti deildar-
innar og hafa ekki tapað leik. Báðir
þessir leikir hetjast kl. 20.
• Á laugardag verður einn leik-
ur þegar ÍR-ingar og Haukar
mætast í íþróttahúsi Seljaskóla kl.
14.
-JKS
■w mrmiTiyrrtn
: ' ■ ::
-
via'Éaai.'i
• Valur Ingimundarson úr Njarðvik sést hér á myndinni undirbúa skot i körfuna en í kvöld mæta félagar
hans Valsmönnum í íþróttahúsinu í Njarðvík og hefst leikurinn kl. 20.
LOKSINS KOMIN
SP1UN VINSÆLU
SENDUM I PÓSTKRÖFU.
Hjá Magna Sfm?23011
gj
IANDSVIRKJUN
Blönduvirkjun - forval
Landsvirkjun efnir til forvals á verktökum vegna und-
irbúnings grunna fyrir stíflur Blönduvirkjunar, þ.e.
Blöndustíflu, Kolkustíflu og Gilsárstíflu.
Verkiö nær til bergþéttunar undir stíflunum og nauð-
synlegs graftar í því sambandi, auk hreinsunar á
klapparyfirborði, gerð varnarstífla o.fl.
Helstu magntölur eru áætlaðar samtals:
Gröftur 140.000 m3
Borun 14.000 m
Efja 600 m3
Varnarstíflur 12.000 m3
Útboðsgögn eru á ensku og verða tilbúin til af-
hendingar í lok janúar 1988. Verkið hefst í vor og
skal því iokið haustið 1988.
Forvalsgögn eru á ensku og verða afhent frá og með
mánudeginum 30. nóvember 1987 á skrifstofu
Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík.
Útfylltum og undirrituðum forvalsgögnum skal skila
á sama stað eigi síðar en miðvikudaginn 6. janúar
1988.
Reykjavík, 27. nóvember 1987.
HELGARBLAÐ
Frjálst.óháö dágblaö
A NIORGUN
Norðurhjaratröllið Arthur Bogason ætlaði ekki að gefast upp fyrir sjávarútvegs-
ráðherranum og kvótakerfinu. Hann hefur áður tekið fast á og er harðastur
þegar slagurinn stendur hæst. Hann hefur verið trillukarl frá unga aldri og
rétt gefið sér tíma til að lyfta lóðum i landlegum. Arthur Bogason er í hressi-
legu helgarviðtali á morgun.
Þeir kalla bókina Spaug-
sama spörfuglinn, féiag-
arnir Sigurdór Sigurdórs-
son og Þröstur
Sigtryggsson skipherra.
Þarna rekur Þröstur sjó-
ferðasögu sína sem hann
segir að alveg eins hefði
mátt kalla Fimmtíu ár á
flatreki. Kafli úr bókinni
er í helgarblaðinu.
Góði dátinn Sveik hefurskemmtsjón-
varpsáhorfendum undanfarnar vikur.
Þessi sérkennilegi karl á sér engan sinn
líka nema helst sjálfan skapara sinn, rit-
höfundinn Jaroslav Hasek. Við segjum frá
þeim félögum í helgarblaðinu.
Síðustu ár hafa islendingar tekið sérstöku
ástfóstri við drykk sem gengur undir nafn-
inu jólaglögg. Nú er timi þess drykkjar að
renna upp og í helgarblaðinu má lesa allt
um hann.