Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1987, Page 8
30
FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1987.
Mynd-
bönd
Umsjón:
Sigurður M.
Jónsson
Hilmar Karlsson
V
DV-LISTINN
Gamanmyndir eru greinilega vin-
sælar um þessar mundir. Helstu
stökkin á DV-listann eru gaman-
myndir. Mynd Francis Coppola,
Peggy Sue Got Married, fer úr
fimmta sæti í fyrsta sætið og veltir
þar með The Color of Money í ann-
að sætið. The Golden Child með
Eddie Murphy færist einnig upp
og Tres Amigos með þeim Steve
Martin og Chevy Chase tekur stórt
stökk inn á listann. Hin mannlegi
Lucas er svo önnur tveggja nýrra
mynda á listanum. Annars vekur
eftirtekt hversu þaulsetnar Krókó-
díla-Dundee og Top Gun eru á
listanum. Virðist ekkert lát á vin-
sældum þeirra.
1 (5) Peggy Sue Got
Married
2 (1) Color of Money
3 (7) The Golden Child
4 (3) Heartbreak Ridge
5 (2) Krókódíla-Dundee
6 (-) Tres Amigos
7 (4) Top Gun
8 (6) Best Shot
9 (-) Lucas
10 (8) Over the Top
★★★
©
í slagtogi með Kim Larsen
MIDT OM NATTEN.
Útgefandi: Háskólabíó.
Leikstjóri: Erik Balling. Aðalhlutverk:
Kim Larsen og Erik Clausen. Tónlist:
Kim Larsen.
Dönsk 1985.
Kim Larsen er í raun samnefnari
yfir allt það sem teljast má danskt
í tónlist. Hann hefur yfir að ráða
mannlegri hlýju og kímni sem get-
ur birst sem hvöss þjóðfélagsá-
deila. Þetta hefur hingað til
aðallega komið fram í tónlist hans
en Kim er fjölhæfur eins og Bubbi
Mortens og einnig sérlega meðvit-
aður ungur maður. Það liggur því
beint við hjá honum að taka fyrir
húsatökufólkið danska sem hefur
öðru hvoru skotið upp í fréttum þó
hér sé ekki um neina fjöldahreyf-
ingu að ræða.
Myndin segir frá tveim fóst-
bræðrum sem ekki hafa hirt um
að safna veraldlegum auði. Þeir
slást í för með flokki húsatöku-
manna en verða að hrökklast
undan yfirvöldum þar til þeim
tekst að finna sér griðastað. Þar
hefja þeir uppbyggingu og tekst að
skapa sér litla paradís. En Adam
NtST^JCnON:ER9<BAilJNG
|
var ekki lengi í paradís og þaö sama
má segja um Kim Larsen. Allt end-
ar þó vel um síðir.
Þetta er ákaflega hugljúf saga og
sögð af einlægni. Hún er kímin og
„ligeglad" blær yfir henni. Þó að
nokkur viðvaningsblær sé yfir
henni verður hún aldrei vand-
ræðaleg. Þá er hún tilvalin fyrir
aðdáendur Kim sem eru án efa fjöl-
margir hér á landi.
-SMJ
★ */2
Riddari götunnar
STREETS OF JUSTICE.
Útgefandl: Laugarásbió.
Leikstjóri: Chrislopher Crove.
Aðalhlutverk: John Laughlin, Robert
Loggia og Christine Raines.
Bandarísk: 1985 - Sýningartimi: 88 min.
Streets of Justice sækir fyrirmynd
sína í Death Wish myndirnar með
Charles Bronson. John Laughlin
leikur venjulegan borgara sem
verður fyrir því að eiginkona og
barn hans eru myrt á hrottalegan
hátt af óaldarflokki.
Vegna formsgalla sleppa morð-
ingjarnir með væga dóma og eru
stuttu seinna látnir lausir. Eigin-
maðurinn skilur ekki þá réttvísi
sem lætur morðingja lausa og
hyggur á eigin hefndir.
Fer hann á nóttunni út meðal
dóplýðs og glæpamanna og velur
sér fómarlömb til að aflifa og lætur
síöan lögregluna vita um atburð-
inn. Þótt lögreglan sé sátt sé við
aðgerðirnar reynir hún án árang-
urs að hafa uppi á þessum riddara
götunnar.
Streets of Justice er sæmilegasta
afþreying en líður nokkuð fyrir hve
slæmur leikari John Laughlin er.
Hlutverk hans krefst nokkurs sál-
arstríðs. Honum er greinilega alveg
fyrirmunað að kasta af sér töffara-
hlutverkinu og því verða þau atriði
mjög vandræðaleg.
-HK
★★★
Nýi - og gamli maðurinn
THE COLOR OF MONEY
Útgefandl: Bergvík
Lelkstjóri: Martin Scorsese. Aðalhlut-
verk: Paul Newman, Tom Cruise og
Mary Elizabeth Mastrantonio. Mynda-
taka: Michael Ballhaus. Handrit: Ric-
hard Price. Byggt á sögu Walter Tevis.
Bandarisk 1986. 115 min. Öllum leyfð.
Peningaliturinn verður að teljast
náinn ættingi myndarinnar The
Hustler sem gerð var á sjötta ára-
tugnum. Bilið á milli myndanna er
þó það langt að ekki er hægt að
tala um framhaldsmynd. Það yæri
heldur varla við því að búast hjá
smekkmanni eins og Scorsese.
Hann er yfir ófrumleika fram-
haldsmyndanna hafinn.
Myndin segir frá Eddie snara
(Newman) sem hefur sest í helgan
stein eftir glæstan feril við billjard-
borðið. Hann er í raun eina
samtengingin við The Hustler.
Eddie á erfitt með að slíta sig frá
billjardborðinu og þegar henn hitt-
ir Vincent (Cruise) sér hann kjörið
tækifæri til að koma fram á sjónar-
sviðið á ný og jafnvel græða á því.
Vincent er hins vegar hinn ungi
uppreisnarmaður sem ekkert fær
hamið. Þeir félagar slíta síðan sam-
vistum og hittast aftur við græna
borðið.
Þessi mynd er e.t.v. merkilegust
fyrir það að hún gefur tækifæri til
þess að bera saman menn tveggja
tíma í amerískri kvikmyndagerð.
Þó að Cruise og Newman séu báðir
dæmigerðir amerískir leikarar eru
þeir mjög ólíkir - og á þann hátt
að munurinn verður einungis út-
skýrður með þvi að fylgjast með
þeim fyrir framan kvikmyndavél-
ina. Það má vera að það sé sprottið
upp af barnalegri nostalgíu aö und-
irritaður tekur Newman fram yfir
hinn nýja mann, Cruise. Cruise er
dálítið hrokafullur og sjálfumglað-
ur í framgöngu þó hann sé alls
ekki laus við persónutöfra. New-
man fékk óskarinn langþráða fyrir
myndina sem segir í sjálfu sér ekk-
ert um framgöngu hans - það var
eingöngu verið að verðlauna hann
fyrir að hafa verið með í átta skipti.
-SMJ
★★
j®
Eddie Murphy bjargar maimkyninu
THE GOLDEN CHILD
Útgefandl: Háskólabió.
Leikstjóri: Michael Rltchie.
Aðalhlutverk: Eddie Murphy, Charles
Dance og Charlotte Lewis.
Bandarisk: 1987-Sýningartími 96 mín.
Eddie Murphy fylgdi eftir ótrúleg-
um vinsældum Beverly Hills Cop
með ævintýramyndinni The Gold-
en Child. Leikur hann þar einka-
löggu sem hefur þaö starfssvið að
finna týnd börn.
The Golden Child, sem á meira
skylt við ævintýramyndirnar um
Indiana Jones en Beverly Hills
Cop, er uppfull af tæknibrellum
sem leiða athyglina frá gamanleik-
aranum Eddie Murphy. Er það
miður, enda nær þessi ágæti gam-
anleikari sér aldrei á strik.
Chandler (Eddie Murphy) er htt
trúaður á það að hann sé „sá út-
valdi“, með öðrum orðum sá eini í
veröldinni sem getur frelsaö barn
sem á eftir að forða mannkyninu
frá tortímingu.
Hann sannfærist þó þegar alls
konar ótrúlegir hlutir fara að ger-
ast í kringum hann. Honum er ljóst
að hans vilji skiptir litlu máli þegar
hann er „sá útvaldi". Hefst nú mik-
ill gauragangur kringum drenginn
litla sem haföi verið rænt af illum
öflum, með þann í neðra í farar-
broddi. Nýtur Chandler aðstoðar
Kee Nang (Charlotte Lewis) sem
kann ýmislegt fyrir sér...
The Golden Child er hröð og laus
við dauð atriði. Tæknilega er hún
mjög góð. Handritshöfundar hafa
sjálfsagt lent í nokkrum vandræð-
um. Myndin er greinilega gerð fyrir
Eddie Murphy, gallinn er bara sá
að hann nýtur sín ekki almenni-
lega. Til þess er sviðsetningin allt
of ílókin. -HK
★ V2
% 'fwv iivrj m tm fwsnM'
> <7u í tn iílnttg tt hi/ H $em.■<
•
Algert völundarhús
LABYRINTH
Útgefandl: Háskólabió
Leikstjóri: Frank Oz. Aðalhlutverk:
David Bowie og Jennifer Connelly.
Framleiðendur: George Lucas og Jim
Henson.
Bresk/bandarisk 1986.
Þessi ævintýramynd minnir
einna helst á samsuðu úr Lísu í
Undralandi og Star Wars. Því mið-
ur hefur kokkteilhnn ekki tekist
enda verið hristur fullmikið.
Myndin segir frá ungri stúlku
sem lifir í draumaheimi og þegar
henni er faliö að gæta bróður síns
óskar hún þess að hann hverfi veg
★★★
allrar veraldar. Til allrar ólukku
rætist óskin og systirin, sem auð-
vitað sér eftir öllu saman, verður
að hefja leit að bróðumum í völ-
undarhúsinu.
Því miður villast margir í völund-
arhúsi þessarar myndar sem
virðist hafa átt erfitt með að gera
upp við sig hverjum hún ætti að
þóknast. Líklega höfðar hún mest
til bama þó að samsetning hennar
sé kannski fuhmargþætt til að hún
komist fullkomlega til skila til þess
aldurshóps.
-SMJ
NAARNER HOME VIDEO
Mordingi gengur laus
TIGHTROPE
Útgefandi: Tefli hf.
Leikstjóri: Richard Tuggle.
Aðalhlutverk: Cllnt Eastwood, Genevi-
eve Bujold og Dan Hedaya.
Bandarísk: 1984 - Sýnlngartími: 110
mín.
Eins og vænta má af sakamála-
mynd með Chnt Eastwood í aðal-
hlutverki er Tightrope hin besta
skemmtun unnendum harðra
sakamálamynda.
Morðingi gengur laus í New Orle-
ans. Sá hefur einbeitt sér að
vændiskonum og hefur mikil
hræðsla gripið um sig í þeirri at-
vinnustétt. Lögreglumaðurinn
Block hefur rannsókn morðanna
með höndum. Hann er einstæður
faðir. Við rannsókn morðanna
kynnist hann Beryl Thibodeaux
(Genevieve Bujold), sem er ráðgjafi
kvenna er verða fyrir nauðgun.
Tekst með þeim ástarsamband er
verður æ stiröara eftir því sem líð-
ur á rannsóknina. Block verður
skotmark moröingjans sem fer að
elta hann og komast þá dætur hans
í lífshættu...
Tightrope er virkilega góð saka-
málamynd sem þrátt fyrir mikið
ofbeldi heldur áhorfandanum
föngnum allan sýningartímann.
Chnt Eastwood leikur vel lögreglu-
manninn sem er ekki allt of
öruggur um sjálfan sig og finnur
að þrátt fyrir óbeitina á hann sam-
eiginlegt meö morðingjanum að
þola ekki vændiskonur.
-HK