Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1987, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1987, Side 14
14 MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 1987. Frjálst,óháð dagblað Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerö: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Askriftarverð á máni'ði 600 kr. Verð í lausasölu virka daga 60 kr. - Helgarblað /5 kr. Erfiðleikar í ullariðnaði Nýlega gerðust þau stórtíðindi 1 uUariðnaðinum að tvö stærstu fyrirtækin, Álafoss og iðnaðardeild Sambands- ins, sameinuðust í eitt fyrirtæki. Þessi samruni var löngu tímabær. Þau hafa kroppað augun hvort úr öðru og sam- eiginlega hafa framleiðendur í ullariðnaðinum háð vonlausa baráttu gegn innlendri verðbólgu og erlendri samkeppni. Brotalamir hafa verið í markaðssetningu og raunar hafa íslendingar fram á þennan dag stundað frumstæðar söluaðferðir og kunnað lítt til verka á al- þjóðamarkaði. Erfið fiárhagsstaða hefur heldur ekki hjálpað til. Það er auðvitað sorglegt þegar segja þarf upp tugum og hundruðum starfsmanna og eiga þeir alla samúð sem nú fá fyrirvaralausa uppsögn og verða að hverfa til ann- arra starfa. En þá er líka á það að líta að atvinna, sem engum arði skilar, er ekkert annað en dulbúið atvinnu- leysi og við höfum nógu lengi hér á landi haldið uppi atvinnubótavinnu sem þrifist hefur í skjóh hafta og opin- berra styrkja. En þeir tímar eru hðnir. íslendingar verða að selja framleiðslu sína á erlendum markaði. íslending- ar standa í samkeppni við aðrar þjóðir og við þau skilyrði verður hver atvinnugrein að standa á eigin fótum. Atvinna manna og vinnumarkaðurinn verður að taka mið af þessari þróun. Enda þótt ríkisvaldið og sumir stjómmálaflokkanna sitji uppi með steinböm í magan- um, sem kalla á hjálp um opinbera framfærslu, þá er þjóðfélagið smám saman að fikra sig inn í veruleika þeirr- ar staðreyndar að engin atvinnugrein getur til lengdar lifað á því að éta útsæðið. í ullariðnaðinum er þetta mest áberandi í augnablik- inu. Samruni Álafoss og SÍS er stærsta dæmið en fleiri eiga um sárt að binda. Hver saumastofan af annarri legg- ur upp laupana. Innlend fataframleiðsla á ekki sjö dagana sæla. Framhjá því verður auðvitað ekki htið að fastgengis- stefnan hefiir drépið iðnaðinn í dróma og mun kyrkja hann endanlega ef svo heldur fram sem horfir. Ódýr framleiðsla frá Asíulöndum gleypir markaðinn með und- irboðum í verði hér eins og annars staðar á Vestur- löndum. Íslenskur iðnaður hefur ekki beðið um opinbera vemd eða innflutningshöft. Iðnaðarfyrirtækin vita sem er að þau verða að aðlaga sig samkeppninni. En þá má ekki heldur láta þau gjalda fyrir þá baráttu með gengisstefnu sem gerir vígstöðu þeirra vonlausa. Dæmið um frönsku kartöflumar er andstæða þess sem er að gerast í uhariðnaðinum. Þar er verið að grípa til innflutningshafta til að vemda íslenska framleiðslu sem þolir ekki samkeppnina við innflutninginn. Þar ríkir enn gamla vemdarstefnan, vegna þess að íslenski landbúnað- urinn hefur enn ekki skihð sinn vitjunartíma, skilur ekki að það er hvorki í þágu hans sjálfs né heldur þjóðar- búsins að halda uppi atvinnu sem getur ekki lifað án vemdar og opinberra styrkja. UUariðnaðurinn má þó eiga það að hann er tilbúinn í slaginn. Veit sem er að hann á sér enga framtíð nema beitt sé hagræðingu, samvinnu og nútímavinnubrögðum í samræmi við lögmál hins stóra markaðar. Hér heima sem í útlöndum. Lífskjaraskerðingin er einmitt fólgin í flóttanum und- an veruleikanum. Lífskjarabótin felst hins vegar í áræði og átaki til að koma fótunum undir atvinnurekstur sem getur borið sig. Og sem getur borgað mannsæmandi laun fyrir vinnu sem skUar arði. EUert B. Schram Bátafólkið, sem flúði sjóleiðina eftir 1975 yfirgaf varla Suður-Vietnam að gamni sínu. Víetnamskt flóttafólk sem tekið hefur verið upp í skip frá Panama. Þurfia Bandaríkjamenn að skammast sín fyrir Víetnam-stríðið? Fyrir rúmum fxmmtán árum eða í júní 1972 ávarpaði þáverandi fé- lagsmálaráðherra, Magnús Kjart- ansson, norrænt sveitarstjómar- þing og lýsti þar nokkrum efasemdum sínum um lífsþæginda- kapphlaup nútímans. Til saman- burðar riíjaði hann það upp, að hann hefði árið 1968 ferðast um Noröur-Víetnam. „Ég var ekki staddur í þjóðfélagi hagvaxtar og sívaxandi vöruframleiðslu, heldur í andstæðu þess, þjóðfélagi tor- tímingar og eyðingar. Samt varð mér sú staðreynd ljós, meðan ég dvaldist í þessu landi, að þar bjó hamingjusamasta fólk, sem ég hafði kynnst. Þarna var enginn lífs- leiði, engin firring, engin streita; heldur brennandi lífsáhugi. Og skýringin var ofur augljós: Hverj- um manni fannst, að hann væri dag hvem að berjast fyrir tilvem sinni, að framtíð hans og ættmenna hans og þjóðarinnar allrar væri undir því komin, að hann leysti verkefni sitt sem best af höndum hvern dag, að hann kostaði öllu til. Það er slík einbeiting, fyrirvaralaus og altæk, sem veitir lífsfyllingu og lætur blóm lífshamingjunnar spretta einnig á vígvelli tortímingarinnar, undir skugga hinnar fallandi sprengju.“ Hvað er orðið um blóm lífshamingjunnar? Magnús Kjartansson hélt þessa athyglisverðu ræðu, á meðan margir róttækhngar á Vesturlönd- um ólmuðust gegn afskiptum Bandaríkjanna af borgarastríðinu í Víetnam, en þar liðsinntu þau sem kunnugt er stjórnarher Suður- Víetnams gegn innrásarsveitum frá Norður-Víetnam. Er ekki að orðlengja, að Bandaríkin hurfu frá stuðningi viö stjórn Suður-Víet- nams, ekki síst fyrir baráttu róttækhnga, svo. að þremur árum síðar náðu sameignarmenn völd- um í öUu Víetnam, og um sama leyti féll nágrannalandið Kambó- día í hendur skæruUða rauðra kmera. Síðan eru liðin tólf ár, og því er ef tU viU nokkur ástæöa til að forvitnast um, hvað hafi orðið um þau blóm lífshamingjunnar, sem tóku að sögn Magnúsar Kjart- anssonar svo langt fram iilgresinu á Vesturlöndum, Geta vestrænir róttækUngar horft stoltir um öxl? Reynslan þar eystra hefur því miöur staðfest aUar hrakspár okk- ar lýðræðissinna. Stjórnarfar er miklu ómannúðlegra en þekkist víðast annars staðar, þar sem sam- an fer austræn harðneskja og miskunnarleysi hugmyndafræð- inga, sem eru þess fxUlvissir, að þeir ráði yfir öllum sannleikanum. TaUð er, að um tvö hundruö þús- und menn hafi verið líflátmr í Víetnam þegar eftir valdatöku sameignarmanna eða næstum því jafnmargir og við íslendingar er- um. Enginn veit með vissu, hversu mörgum er haldið þar í endur- hæfingarbúðum, en þeir geta skipt tugum eða hundruðum þúsunda. .......i| n mmm—mmmmmmm Eymd félagshyggjunnar Kjállarinn Dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson stjórnmálafræðingur Bátafólkið svonefnda, sem flúði þaðan sjóleiðina eftir 1975, yfirgaf varla Suður-Víetnam að gamni sínu, en Uklega hefur aðeins hluti þess komist heill á húfi til annarra landa. Þetta vár þó barnaleikur í samanburði við það óskaplega fár, sem reið yfir Kambódíu eftir valda- töku félagshyggjufólks þar, en talið er, að allt að þijár milljónir manna hafi þá fallið. Sameignarmenn í Indó-Kína hafa ekki aðeins leitt kúgun yfir þegna sína, heldur líka fátækt. Þeir gera sér eins og þýskir þjóðernis-sósíal- istar á fjóröa áratugnum forneskju- legar hugmyndir um atvinnulíf, vilja hverfa út úr borgaralegri „spillingu" inn í ímyndaða sveita- sælu. Sá sósíalismi þeirra, sem snerti svo djúpa taug í félagsmála- ráðherranum íslenska árið 1972, var valdboðinn dalakofasósíalismi og eftir því mannskæður, eins og dr. Þór Whitehead prófessor bendir á í fróðlegri grein í Frelsinu 1984. Valdhafarnir eru nú orðnir háðir matgjöfum frá Vesturlöndum. En hvaðan ætla marxistar að flytja inn kornið, þegar þeir hafa lagt undir sig allan heiminn? Deilurnar á Vesturlöndum Þær deilur, sem stóðu hér sem annars staðar um liðsinni Banda- ríkjanna við stjórn Suður-Víet- nams á árunum 1965-1975, snerust að mestu leyti um það, hvers eðlis þáverandi stjómarandstæðingar í Suður-Víetnam væm. Voru þeir blóðþyrstir og ofstækisfullir kommúnistar eða saklausir, bros- mildir sveitamenn, sem áttu sér enga ósk heitari en að fá að búa í friði í landi sínu og rækta blóm lífs- hamingjunnar? Svarið er komið í ljós. En þegar viö metum, hvort Bandaríkin áttu að skipta sér af átökunum í landinu, hljótum við að hafa hliðsjón af því, hvort Bretar og aðrar lýðræðisþjóðir áttu að skerast í leikinn, þegar Hitler lagði undir sig Austurríki, Tékkóslóvak- íu og Pólland. Undir venjulegum kringumstæðum tel ég, að við höf- um þegnlegan rétt til að reyna að afvopna glæpamenn, sem ógna lífi og limum samborgara okkar, sé þess einhver kostur. Leiða má svip- uð rök að því, að lýræðisríki hafi rétt til aö reyna að stöðva hættu- lega hryðjuverkahópa. Við getum vissulega deilt um ein- stakar hernaðaraðgerðir Banda- ríkjanna í Indó-Kína en tæplega um hina almennu reglu. Bandaríkin þurfa því alls ekki að skammast sín fyrir Víetnam-stríöið. En það eiga hins vegar róttæklingarnir, sem héldu sérstakan fund í Háskólabíói í maí 1975 til þess að fagna valda- töku félaga sinna í Indó-Kína, að gera. Og þegar þeir styðja nú af alefli sameignarmenn í Mið-Amer- íku, hljótum við að draga þá ályktun, að þeir hafi öllu gleymt og ekkert lært. Dr. Hannes Hólmst. Gissurarson --------------------—----------- „En þegar við metum, hvort Bandarík- in áttu að skipta sér.af átökunum í landinu hljótum við að hafa hliðsjón af því, hvort Bretar og aðrar lýðræðis- þjóðir áttu að skerast 1 leikinn, þegar Hitler lagði undir sig Austurríki, Tékkóslóvakíu og Pólland.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.