Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1987, Blaðsíða 44
60
MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 1987.
Jarðarfarir
Karl Bjarnason, Tjarnarbóli 14, sem
andaðist 30. október sl„ verður jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni þriðju-
daginn 8. desember kl. 13.30
Vigdís Oddsdóttir, Hrafnistu, Hafn-
J arflröi, lést í St. Jósefsspítala,
Hafnarfirði, 24. nóvember sl. Útfórin
hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Tónleikar
Einleikaraprófstónleikar
Tónlistarskólinn í Reykjavík heldur ein-
leikaraprófstónleika í Norræna húsinu
þriöjudaginn 8. desember nk. kl. 20.30. Á
efnisskrá eru verk eftir E. Bloch, Karól-
ínu Eiríksdóttur, J. S. Bach og C. Saint-
Saens. Hildigunnur Halldórsdóttir leikur
á fiölu og Catherine Williams á píanó.
Tónleikar þessir eru síöari hluti einleik-
araprófs Hildigunnar frá skólanum.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Bridge
Frá Bridgefélagi
Hafnarfjarðar
Sl. mánudag, 30.11., voru spilaðar
fimmta og sjötta umferð í sveitar-
keppni félagsins og er staðan efitr
þær eftirfarandi:
* sæti sveit stig
1. Kristófers Magnússsonar 117
2. Ólafs Torfasonar 110
3. Valgarðs Blöndal 108
4. Drafnar Guðmundsdóttir 105
5. Jóns Gíslasonar 104
6. Ólafs Gíslasoanr 102
7. Þórarins Sófussonar 98
8. Sigurðar Steingrímssonar 96
9. Ingvars Ingvarssonar 90
10. Huldu Hjálmarsdóttur 77
11. Þorsteins Þorsteinssonar 76
12. Guðlaugs Ellertssonar 64
13. Jóns Viöars Jónmundssonar 61
14. Ársæls Vignissonar 39
Skák
DV
Heimsmeistaraeinvígiö:
Úrslrt ráðast í fjórum skákum
Eftir jafntefli í tuttugustu skákinni
í heimsmeistaraeinvíginu í Sevilla
á föstudag er staðan 10-10 og
spennan í hámarki. Þeir eiga að-
eins eftir að tefla fjórar skákir til
viðbótar. Kasparov nægir jafntefli
til þess að halda heimsmeistaratitl-
inum og hann stendur því betur
að vígi en 12. október, er einvígið
hófst. Hins vegar er sérhver þess-
ara fjögurra skáka, sem eftir eru,
geysilega mikilvæg.
Meiri þungi hvílir á herðum
heimsmeistarans Kasparovs sem
veröur að tefla varfærnislega en
um leið má hann ekki gefa högg-
stað á sér. Karpov hefur allt að
vinna og engu að tapa. Sigur í einni
skák myndi snúa stöðunni við í
einu vetfangi og
gera aðstöðu Kasparovs afar
slæma.
að hann virtist óvenju glaðlyndur
þennan dag er meistararnir voru
búnir að leika fyrstu leikina. Hann
hafði ástæðu til: Kasparov hristi
fram nýjung og staða hans lofaði
góöu.
Þær gerast æ háværari raddirnar
sem halda því fram að Karpov
muni „stela“ heimsmeistaratitlin-
um af Kasparov á elleftu stundu.
Samt hefur Kasparov ekki látiö
neinn bilbug á sér flnna. Hann sótti
t.d. stíft í tuttugustu skákinni og
ekki var annað að sjá en hann hefði
þá gert alvarlegri vinningstilraun
en í mörgum undanfarandi skáka.
Er upp var staðið var Karpov þó
sálfræðilegur sigurvegari þeirrar
skákar: „Karpov var undir miklum
þrýstingi í öllum þáttum skákar-
innar og varðist mjög vel,“ hefur
Jonathan Tisdall, fréttaritari Reut-
ers, eftir Helga Ólafssyni stórmeist-
ara sem fylgist með einvíginu frá
Sevilla.
Drottningarbragö hafa þeir teflt í
þremur síðustu skákum og raunar
hefur byrjunin sú verið vinsælust
allra í heimsmeistaraeinvígjum
þeirra félaganna. Skákin á fóstudag
tefldist þó ekki á hefðbundinn
hátt.
í 5. leik bryddaði Kasparov upp á
fáfarinni leið sem aðalaðstoðar-
maður hans, stórmeistarinn
Dorfman, sagði að fremur jafnte-
flislegt orðspor færi af. Fréttamenn
tóku orð hans með fyrirvara því
Varnartaflmennska Karpovs í
skákinni var aðdáunarverð. Burt-
séð frá einum möguleika, sem
fyrrverandi heimsmeistari, Vassily
Smyslov, benti á í skákskýringa-
salnum, verður ekki annað séð en
að hann hafi ávallt hitt á bestu leik-
ina. Undir lok skákarinnar lenti
hann í tímahraki en samt tókst
honum að leysa vandamálin óaö-
finnanlega. Samið var um jafntefli
eftir 37 leiki er Kasparov varð að
sætta sig við þráskák.
Tuttugasta og fyrsta skákin verð-
ur tefld í dag, mánudag, nema
annar keppenda fái henni frestað.
Báðir hafa nýtt sér tvö tækifæri af
þremur til frestunar. Þeir tefla á
mánudögum, miðvikudögum og
fostudögum. Því er fræðilegur
möguleiki á að lokaskák einvígis-
ins verði ekki tefld fyrr en föstu-
daginn 18. desember.
Hvítt: Garrí Kasparov
Svart: Anatoly Karpov
Drottningarbragð
1. c4 e6 2. Rc3 d5 3. d4 Be7 4. Rf3
Rf6 5. Dc2!?
Nýbreytni Kasparovs, í stað þess
að sveifla biskupnum til g5 með
sjálfvirkri handarhreyfingu.
Karpov mætir þessum óvenjulega
drottningarleik á þann hátt sem
talinn er bestur. Þess má geta að
einn aðstoðarmanna Karpovs,
Konstantín Lerner', hefur haft dá-
læti á afbrigðinu fyrir hvits
hönd, eins og fleiri skákmenn frá
Odessa.
5. - 0-0 6. Bg5 c5 7. dxc5 dxc4 8. e4
Da5 9. e5 Rd5 10. Bxc4!
Samkvæmt gömlum rannsókn-
um Packmans gefur 10. Bxe7 Rxe7
11. Bxc4 Dxc5 12. Bd3 Rg6 einungis
jafnt tafl. Kasparov hefur mun
beittari leið i huga.
abcdef.gh
10. - Rxc3 11. 0-0!
Hugmyndin var vitaskuld hvorki
að tvístra peðastöðunni með 11.
bxc3 né missa mann með 11. Bxe7
Rd5 (fráskák) o.s.frv. Svartur
kemst nú ekki hjá því að gefa
manninn aftur. Eftir 11. - Bxg5 12.
Rxg5 þarf hann að glíma við mát-
hótun á h7 og 11. - Rd5 12. Bxd5 er
heldur engin lausn. Karpov hugs-
aði sig lengi um.
11. - Dxc5 12. Dxc3 Rc6 13. Bxe7
Dxe7 14. a3 Bd7 15. Hacl Hfd8 16.
b4?! a6?
Ekki verður betur séð en aö báð-
um verði hér á í messunni. Eins
og Vassily Smyslov benti á getur
svartur notfært sér ónákvæmni
hvíts með 16. - b5! og ef 17. Bxb5,
þá 17. - Rxb4! 18. Bxd7 Rd5 og síðan
fellur biskupinn á d7 og svartur
hefur jafnað taflið. Eftir 17. Be2 a5!
virðist svartur einnig mega vel við
una. Leikur Karpovs er óvirkur og
hann lendir í varnarstöðu
17. De3
Til greina kemur 17. Rd2!? með
hugmyndinni að sveifla riddaran-
um yfir til d6.
17. - Be8 18. Bd3
Svartur má nú stórlega gæta að
sér. „Eðlilegur leikur“ er t.a.m. 18.
- Hac8 en þá kæmi 19. Hc4! og bráð-
ur háski vofir yflr svörtu kóngs-
stööunni. Hvítur býr sig undir að
vippa hróknum yfir til g4 eða h4
og um leiö hótar hann 20. Bxh7 +!
Kxh7 21. Hh4+ Kg8 22. Rg5 f6 23.
Hh8 + ! sem lyktar með máti.
Karpov finnur frábæra varnarleið.
18. - Ra7!
Hindrar 19. Hc4, vegna 19. - Hxd3!
20. Dxd3 Bb5 og vinnur skiptamun-
inn til baka.
19. Bbl Bc6 20. Rg5 h6 21. Re4 Rb5!
Annar hárréttur varnarleikur.
Riddarinn valdar d6 og um leiö
Skák
Jón L. Árnason
hindrar hann'áð hvíti hrókurinn
komist í sóknina um c3 reitinn, t.d.
eftir riddarafórn á ffi.
22. Hc4 Bxe4!
Nú hótaði hvítur 23. Rffi + ! gxffi
24. Dxh6 ffi 25. Hg4 + fxg4 26. Dh7 +
og mát í næsta leik. Eða 23. Rffi +!
Kffi 24. Hg4 meö hótuninni 25. Dxh6!
Dxffi (25. - gxh6 26. Hg8 mát) 26.
Dh8+ Ke7 27. exffi+ og vinnur.
Eftir uppskiptin minnka sóknar-
möguleikar hvíts en biskupinn er
sterkari en riddarinn í endataflinu.
23. Bxe4 Hac8 24. Hxc8 Hxc8 25. Hcl
Hxcl 26. Dxcl Dd7 27. g3 b6 28. Kg2
Dd8 29. h4 a5 30. bxa5 bxa5 31. Dc5
Rd4 32. h5 ffi!
Sterkur leikur. Eftir 33. exffi fr.
hl. gxfó og síðan 34. - ffi nær svartur
að bægja hættunni frá. Ef hann
hefði beðið aðgerðalaus hefði hvít-
ur getað þokaö peðum sínum á
kóngsvæng fram og bætt stöðuna í
ró og næði.
33. Bb7 Kf7 34. Kh2?! Db8! 35. Dxd4
Taflið leysist nú upp í jafntefli.
Hins vegar var 35. Bg2 Db2 ekki
gott og enn síður 35. Bc8? Dxe5! 36.
Dxe5Rfö+ ogsvartur vinnurpeð.
35. - Dxb7 36. g4 Df3 37. Dd7+ Kffi
- Og samiö um jafntefli.
-JLÁ
Evrópumót í bridge:
ísland komst ekki áfram
Tilkyimingar
Myndakvöld Ferðafélagsins
Miðvikudaginn 9. desember kl. 20.30 efnir
Ferðafélagið til myndakvölds á Hverfis-
götu 105. Efni þessa myndakvölds er
fjölbreytt að vanda. Félagsmenn sýna
myndir og segja frá eftirminnilegri ferð
sem þeir hafa farið á þessu ári eða fyrri
árum. Dregið verður úr nöfnum þátttak-
enda í afmælisgöngum FÍ sl. sumar.
Veitingar í hléi. Aðgangur kr. 100.
Hörpuskin
Málningarverksmiðjan Harpa hf. hefur
sett á markaðinn nýja innanhússmáln-
ingu sem nefnist Hörpuskin. Þessi nýja
málning hefur 10% gljástig sem gerir
hana bæði áferðarfallega og auðvelda í
þrifum. Hörpuskin er einkum ætlað á
steinveggi innanhúss, er einfold í notkun
og þekur mjög vel. Hörpuskin er fáanlegt
í 10 staðallitum en völ er á fleiri litum
með blöndun við aðrar málningartegund-
ir Hörpu.
Bikarmeistarar íslands í bridge
tóku nú um helgina þátt í fjögurra
þjóða undankeppni Norðurlanda-
þjóða í bikarkeppni í Malmö í Sví-
þjóð. íslenska sveitin stóð sig nokkuð
vel eftir atvikum, hún var í baráttu
um efsta sætið alveg fram í síðustu
umferð, en hafnaði þá í þriðja sæti.
Bikarsveitir Svíþjóðar, Noregs, Finn-
Lögfræðiaðstoð laganema
Orator, félag laganema, er með ókeypis
lögfræðiaðstoð fyrir almenning á
fimmtudagskvöldum í vetur milli kl. 19.30
og 22 í síma 11012.
Kvikmyndasýning
í íslensku óperunni
Þriðjudaginn 8. desember kl. 20 sýnir
Styrktarfélagið þýsku óperuna Töfra-
skyttuna eftir Carl Maria von Weber í
Gamla bíói. Töfraskyttan er tímamóta-
verk í þýskri óperu og markar þar upphaf
rómantískrar óperustefnu. Óperan naut
strax óhemju vinsælda og hefur alltaf
lands og íslands kepptu en Danir
tóku ekki þátt þar sem þeir eru nú-
verandi bikarmeistarar Evrópu.
Fyrsti leikurinn, sem spilaöur var,
var gegn Svíum og vannst hann 16:14.
í næstu umferð unnum við Finna,
17:13. Fyrir lokaumferðina var stað-
an þannig að Norðmenn voru efstir
með 33 'A stig, íslendingar næstir
þótt sameina skemmtilega kóra, spenn-
andi atburðarás og ekki síst ástarsögu
söguhetjanna. Sýningin er frá Óperunni
í Hamborg undir listrænni stjórn Rolfs
Liberman. Með helstu hlutverk fara
Ernst Kozub (Max), Arlene Saunders
(Agatu), Gottlob Frick (Kaspar), Edith
Mathis (Anna), Tom Krause (Ottokar) og
Hans Sotin (einsetumaöur).
Fundir
Kvenfélag Barðstrendinga
heldur fund að Hallveigarstöðum þriðju-
daginn 8. desember kl. 20.30. Gengið inn
Öldugötumegin.
Hið íslenska sjóréttarfélag
efnir til hádegisverðarfundar á Hótel
Loftleiðum (Leifsbúð) þriðjudaginn 8.
desember nk. kl. 12 (kalt borð). Fundar-
efni: Ragnhildur Hjaltadóttir deildar-
stjóri flytur erindi er hún nefnir
„Lögskráningarlögin nýju“. Að erindinu
loknu er að venju gert ráð fyrir fyrir-
spumum og umræðum. Fundurinn er
öllum opinn og félagsmenn og aðrir
áhugamenn um sjórétt og siglingamála-
efni hvattir til að mæta.
með 33 stig og Svíar með 30 stig. ís-
lendingar töpuðu síðan leiknum
gegn Norömönnum, 13:17, eftir að
hafa veriö 44:26 yfir í impum eftir
fyrri hálfleik. Á meðan unnu Svíar
Finna með 21,5 stigi gegn 7,5.
Lokastaðan varð því þannig: Sví-
þjóð 51,5, Noregur 50,5, ísland 46,
Finnland 30. Svíar fara því áfram í
Kvenfélag Árbæjarsóknar
heldur jólafund sinn þriðjudaginn 8. des-
ember kl. 20.30 í safnaðarheimilinu.
Margt skemmtilegt á dagskrá og veiting-
ar. Mætið vel og takið með ykkur gesti.
Húsmæðrafélag Reykjavíkur
heldur sinn árlega jólafund í Domus
Medica við Egilsgötu þriðjudaginn 8. des-
ember kl. 20.30. Húsmæðrafélagið var
eitt fyrsta félagið sem hélt jólafund fyrir
úrslitakeppni 8 þjóða um Evrópubik-
arinn.
í sveit íslendinga voru Jón Bald-
ursson, Valur Sigurðsson, Sigurður
Sverrisson, Ásgeir Ásbjörnsson, Að-
alsteinn Jörgensson og Ragnar
Magnússon. .
allar bæjarkonur og eru nú orðin yfir 50
ár síðan fyrsti jólafundurinn var haldinn.
Alla tíð hefur verið verulega vandað tO
þessara jólafunda og verður margt til
skemmtunar. M.a. verður tískusýning
frá Verðlistanum og munu félagskonur
sýna fatnaðinn þaðan. Þá verður jóla-
happdrætti með tugum góðra vinninga
og síðast en ekki síst verður kaífihlað-
borð frá Veitingahöllinni. Jólafundurinn
er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir.
Þakkarávarp
Hjartanlegar þakkir færi ég öllum sem glöddu mig á 80 ára af-
mæli mínu 22. nóvember sl.
Sérstaklega þakka ég alla vináttu og hlýhug við fráfall dóttur
minnar, Sísíar Tryggvadóttur.
Guð blessi ykkur öll.
Magnfríður Sigurbjarnardóttir, Hofteigi 16.
Omaklega vegið að Veröld
Á neytendasíðu hér í blaðinu
föstudaginn 4. desember síðastlið-
inn birtist greinarstúfur um verð-
lag hjá bókaklúbbnum Veröld
undir yfirskriftinni „Varist skrum
í auglýsingum“. Var þar rætt um
verðlagningu á hljómplötunni Dög-
un með Bubba Morthens.
í greininni er staðhæft að bóka-
klúbburinn hafi auglýst að platan
kosti að jafnaði kr. 999 og að verð
Veraldar hafl verið kr. 849. Hið
rétta í málinu er að venjulegt verð
er auglýst sem kr. 899 og verð Ver-
aldar er kr. 765, sem er talsvert
lægra en verð í verslunum.
Hér hafa átt sér stað leið mistök
og harmar blaðamaöur það. Er
bókaklúbburinn Veröld hér með
beðirtn velvirðingar á því sem mis-
sagt var.
-PLP