Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1987, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1987, Blaðsíða 24
24 MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 1987. DAGVIST BARNA Dagh./leiksk. Fálkaborg Fóstrur og aðstoðarfók með reynslu í uppeldisstörf- um vantar eftir hádegi nú þegar. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 78230 og umsjónarfóstrur á skrifstofu Dagvistar barna í síma 27277. SANDGERÐI DV óskar eftir að ráða umboðsmann í Sandgerði frá 1. janúar 1988. Uppl. gefa Þóra í síma 92-37684 og afgreiðslan í síma 91-27022. ^ Húsnæðisstoí'nun ríkisins ____________7'ÆKNIDEILD___________ Sími 696900 Útboó Borgarnes Stjórn Verkamannabústaða, Borgarnesi, óskar eftir tilboðum í byggingu tveggja íbúða í einnar hæðar parhúsi, byggðu úr steinsteypu. Verk nr. U.05.01. úr teikningasafni tæknideildar Húsnæðisstofnunar ríkisins. Brúttóflatarmál húss 195 m2 Brúttórúmmál húss 673 m3 Húsið verður byggt við götuna Arnarklett 12-14, Borgarnesi, og skal skila fullfrágengnu sbr. útboðs- gögn. Afhending útboðsgagna er á skrifstofu Borgarness- bæjar, Borgarbraut 11, 310 Borgarnesi, og hjá tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins, Laugavegi 77, 101 Reykjavík, frá þriðjudeginum 8. des. 1987 gegn 5000 kr. skilatryggingu. Tilboðum skal skila á sömu staði eigi síðar en þriðjudaginn 5. jan. 1988 kl. 11.00 f.h. og verða þau þá opnuð að viðstöddum bjóðendum. F.h. stjórnar Verkamannabústaða, Borgarnesi Tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins c^Húsnæðisstofmin ríkisins STÆ RÐIR 11 CL 0G 17 CL DART -------■"® EINFALDUR KAFFIBAR DRYKKJARMÁL ÚR EINANGRUNARPLASTI ENGIN Þ0RF FYRIR HÖLDUR MAL MEÐ JÓLAGREIN, 17 CL SNYRTILEGUR MALSKAMMTARI MJÖG HAGSTÆTT VERÐ ISTIEX «/f Skúlagötu 26, 101 Reykjavík Sími 623720, p.o. box 9081. í Fréttir Um sextán þúsund tonn af úigangstimbri urðuð áriega: Er hægt að nýta það á hagkvæman hátt? Um sextán þúsund tonn af timbri eru uröuð á sorphaugum höfuðborg- arsvæðisins ár hvert. Athugun hefur verið gerð á því hvort hægt sé að nýta þaö á hagkvæman hátt. Skúli Þór Ingimundarson við- skiptafræðingur gerði athugun á því fyrir Járnblendiverksmiðjuna og lét í því sambandi gera tilraunasöfnun á timbri í Gufunesi. í dag er timbrið urðað á sorphaugunum og er áætlað að ef það verði nýtt myndu sparast strax 10 milljónir króna í urðunar- kostnað. „Ég er ekki viss um að borgaryfirvöld í Reykjavík hafi gert sér almennilega grein fyrir þessu,“ segir Skúh. En hvemig skyldi þeim járnblendi- mönnum lítast á þessa hugmynd? Ekki hagkvæmt fyrir Járnblendið „Þegar farið var að kanna þennan möguleika kom í ljós að þetta var ekki hagkvæmur kostur fyrir Jám- blendið. Kostnaður við að koma þessari starfsemi af stað og síðan framleiðslukostnaður heföi verið of mikill fyrir verksmiðjuna. Þetta hefði ekki verið hagkvæm fjárfest- ing,“ sagði Jón Hálfdánarson, for- stöðumaður rannsókna hjá Járnblendinu. Jón sagði að sérstaklega hefði það verið hár flutningskostnaður sem hefði fælt menn frá. Timbrið er létta- vara og það hefði orðið að flytja það á vörabílum upp á Grundartanga. Flutningar á sjó hefðu ekki verið framkvæmanlegir vegna þess að erf- itt og kostnaðarsamt hefði verið að safna upp birgðum. „Þetta dæmi hti vissulega öðravísi út ef horft væri í urðunarkostnaðinn hka,“ sagði Jón. Hann sagði að 15.000 tonn af timbri hefðu orðið að 10.000 tonnum af tréfhsum. Þetta magn hefði komið í staðinn fyrir 2.500 tonn af koksi og kolum sem hingað komin kostuðu 12,5 milljónir króna. Þetta væri sú upphæð sem sparaðist í gjaldeyri. Þess má geta að verksmiðj- an notar um 20.000 tonn af koksi og kolum þannig að það þyrfti mun meira af timbri til að leysa það af hólmi. Jón sagði að flísarnar væra gott hráefni og auðvelt væri aö nýta sér timbrið á þessu sviði því aö ekki þyrfti að hreinsa það sérstaklega. Hann sagðist ekki sjá fram á það í framtíðinni að Járnblendið myndi nýta sér þennan möguleika þó hann vildi ekki úthoka það. -SMJ Mynt hliðstæð fímmtíukallinum í umferð hér: Ensk pund og gamlir fimmkaliar Nokkuð hefur borið á þvi aö und- anfórnu að ýmiss konar erlend mynt hefur verið í umferð hér á landi. Margt af þessari mynt er svipað íslensku myntinni að stærð og þyngd þó úthtið sé annað. Eitt enskt pund er til að mynda mjög svipað að stærð og áferð og fimmtíu krónu myntin. Þvermál fimmtíu krónu myntarinnar er 20,5 mm en enska pundið er 20,75 mm. Einnig hefur borið á því að gömul íslensk fimm krónu mynt hafi sko- tið upp kohinum og hafa menn raglast á henni og krónupeningum. Að sögn Stefáns Stefánssonar, aðalféhirðis Seðlabankans, er alltaf eitthvað af erlendri mynt í umferð hér á landi auk þess sem algengt sé að menn eigi alltaf eitthvað af gamahi íslenskri mynt, til dæmis sé það vandamál á nokkrum stöð- um að menn noti gömlu kopar- krónuna í sjálfsala sem ekki vigta peningana. Þvermál þessara pen- inga sé mjög svipað því ekki muni nema hálfum milhmetra á stærð þeirra en fimmtíu króna myntin sé þó um það bil helmingi þyngri. „Ég held að ástæðan fyrir því að ahtaf er nokkuð um erlenda mynt í umferð hér sé meðal annars sú að bankamir taka ekki við henni og fólk losnar því ekki við hana. Og kannski freistast sumir því til að koma henni í umferð. Margt af þessari mynt sleppur í gegnum mynttalningarvélar bankanna þar sem þær era ekki nógu nákvæmar. En þegar við teljum með okkar vélum finnast þessir peningar og eru tíndir úr. Þetta veldur ekki telj- andi tjóni peningalega séð en oft verður vinnutap þegar þarf að vera að tína útlensku myntina frá þeirri íslensku,“ sagði Stefán. -J.Mar Munurinn á verðgildi er verulegur, en stærðin svipuð. B-álma Borgarsprtalans: Aldarfjórðung í byggingu B-álma Borgarspítalans mun veröa ahs 25 ár í byggingu með sama áframhaldi. Þessar upplýsingar koma fram í svari Guðmundar Bjarnasonar heilbrigöisráðherra á Álþingi við fyrirspum alþýðubanda- lagsþingmannanna Svavars Gests- sonar og Guðrúnar Helgadóttur. Ákvörðun um byggingu B-álmunn- ar var tekin árið 1973. Framkvæmdir við grunn og botnplötu hófust árið 1977, fyrir tíu árum. „Framkvæmdafé til B-álmu bygg- ingarinnar í ár er 19,4 milljónir króna og samkvæmt áætlun um kostnaö við að ljúka byggingunni tæki það fimmtán og hálft ár að ljúka henni með þeim framlögum sem eru til verksins í ár,“ segir ráðherrann í skriflegu svari sínu. Þar kemur fram að talið er að 300 mihjónir króna kosti að ljúka byggingunni. Hluti álmunnar hefur þegar verið tekinn í notkun. Árið 1983 var 6. hæð tekin í notkun, 5. hæð árið 1984 og hluti af 1. hæð og kjallara hefur einn- ig verið tekin í notkun. Nú er unnið að innréttingu 4. hæöar. Heildarbyggingarkostnaður í árs- lok 1986, framreiknaður th verðlags 1. október síðasthðinn, nam 359,2 mihjónum króna. Þingmennimir spurðu einnig um hve margir aldraðir Reykvíkingar væra nú á biðhstum eftir þjónustu. í svarinu kemur fram aö 354 ein- stakhngar og 76 hjón séu á biöhsta eftir húsnæði fyrir aldraða og talin í brýnni þörf. Tahð er að 276 einstakl- ingar og 46 hjón, sem voru á biölista, geti beðið eftir húsnæði. B-álma Borgarspítalans, vinstra megin eða vestan megin turnsins, hefur þegar kostað 360 milljónir króna. -KMU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.