Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1987, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1987, Page 34
MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 1987. . 50 Iðnverkafólk Óskum eftir að ráða fólk til framtíðarstarfa við máln- ingarframleiðslu í verksmiðju okkar að Dugguvogi 4. Allar nánari upplýsingar veittar á staðnum. Málningarverksmiðjan Slippfélagið í Reykjavík hf. Dagvist barna auglýsir Fóstrur og aðstoðarfólk óskast til starfa nú þegar eða um áramót á eftirtalin heimili: Efrihlíð Bakkaborg Iðuborg Völvuborg sími 83560 sími 71240 sími 76989 sími 73040 Upplýsingar gefa forstöðumenn heimilanna og um- sjónarfóstrur á skrifstofu dagvistar barna, sími 27277. Nú er það komið aftur, hið geysivinsæla útvegspil. Fæst í bóka- og leikfangaverslunum um land allt. Pantanasími 91-52677. REYKJMIÍKURBORG JLau&asi Stödíei SÁLFRÆÐINGUR - UNGLINGADEILD Unglingadeild Félagsmálastofnunar Reykjavíkur- borgar auglýsir eftir sálfræðingi í fullt starf. Skilyrði er-að viðkomandi hafi að minnsta kosti 2 ára starfs- reynslu sem sálfræðingur. Starfið felst meðal annars í meðferð, ráðgjöf við starfshópa og þátttöku í stefnu- mótun og skipulagningu unglingastarfs. Umsóknarfrestur er til 8. desember. Upplýsingar veita Snjólaug Stefánsdóttir, deildar- stjóri unglingadeildar, í síma 622760 og Gunnar Sandholt, yfirmaður fjölskyldudeildar, í síma 25500. Umsóknum skal skilað til starfsmannahalds Reykja- víkurborgar á umsóknareyðublöðum sem þar fást. Örvi, verndaður vinnustaður, Kópavogi Tilboð óskast í innanhússfrágang í húsinu Kársnes- braut 110, Kópavogi. Um er að ræða 447 m2 af 1. hæð hússins sem nú er múrhúðuð innan; lagt er í gólf og ofnar komnir. Loft eru einangruð og klædd. Ganga skal að fullu frá húsrýminu að innan tilbúnu til notkunar með innréttingum og húsgögnum. Verk- inu skal lokið 25. mars 1988. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgar- túni 7, Reykjavík, gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 22. desember 1987 kl. 11.00. ll\ll\ll(AUPAST0Fi\IUI\l RÍKISIIMS _________BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK Sandkom Salome getur átt á hættu að þurfa að byrja nýja áriö á nokkuö nýstár- legu matarræöi. Étur Salome hattinn? Salome Þorkelsdóttir al- þingismaöur skartar gj aman hátiskuhöttum. Hún ereinn- ig þekkt fyrir áhuga sinn á úrbótum í umferðarmálum, einkanlega í heimasveit sinni. Nú hefur hún samein- að þessi áhugamál sín á sérstæðan hátt. Hún hefur nefnilega strengt þess heit að éta einn af sínum fínustu höttum með viðhöfn á nýárs- dag ef samflokksmaður hennar í samgönguráðuneyt- inu hefur þá ekki komið á úrbótum í vegamáium Mos- fellsbæjar, sem nauðsynlegar þykja tÚ að draga úr slysa- hættu. Vopnin hafa þó heldur betur snúist í höndum Saiome, því nú segja sögur að Mosfellingar liggi í Matthí- asi að doka viö með aðgerðir því þeir vilji ekki fyrir nokk- um missa af því að sjá frú Salome éta hattinn sinn. Kolkrabbinn vinsæll Þeir sem oft þurfa að hringja úr höfuðborginni út á land hafa rekið sig á að það getur verið þolinmæðisverk. Mikið álag er á símakerfmu sem virðist ekki þola allar þessar hringingar á álagstím- um, sérstaklega upp úr kvöldmat. Á miðvikudags- kvöldið ætlaði einn kunningi Sandkoms að hringja til ætt- ingja síns sem býr á Vestur- landi. Það var sama hvað hann reyndi, aldrei náöi hann sambandi. Hann missti þolinmæðina og hringdi nið- ur á langlínumiðstöð í 02 og spurði hvort eitthvað væri að símakerfinu, hann væri bú- inn að reyna hátt í klukku- tima að ná í ákveðið símanúmer á Vesturlandi en ekkert gengi. „Nei, nei, bless- aður vertu, þetta er alltaf svona," var honum tjáð. „Reyndu bara að hringja þeg- ar Kolkrabbinn er byijaður í Sjónvarpinu. Það notar eng- inn símann á meðan!“ Glæsileg verðlaun í jólaleikjum Fyrirtæki nota í síauknum mæli þá aðferð að krækja í viðskiptavini með loforðum um alls kyns verðlaun og vinnmga. Jólaleikir em að verða æ vinsælli og er ein útvarpsstöðin til dæmis með hálfrar millj ón króna vömút- tekt í boði. Nýjasti jólaleikur- inn, sem við höfum rekist á, er jólaleikur Cöca Cola. Leik- urinn felst í því að fólk fær afhent dagatal með 26 reitum. Myndir, sem eiga að passa í reitina, em svo á límmiöum á kókflöskum. Fólk á að leysa límmiðv íafflöskunumog límaréft myndinnávið- komano.) :it.Þegarbúiðer að frnna 2o réttar myndir og líma á almanakið skal það sent til Vífilfells og fá fyrir vikið glæsileg verðlaun, eitt hundrað króna ávísun! Ávís- unin verður send til vinn- ingshafanna í janúar og á ömgglega eflir að hjálpa mörgum við að borga upp jólaskuldimar sínar. Himbriman- um bjargað Það gerðist fyrir nokkrum árum, þegar Skeiðfossvirkj- un í Fljótum í Skagafirði var í byggingu, að nokkrir múrarar frá Siglufirði vom ráðnir til að vinna við frá- gang stíflumannvirkja. Einn múraranna var mikill skot- maður og hafði með sér byssu ef ske kynni að þeir rækjust á mink. Einu sinni, er þeir vora að drekka kaffi við lónið sem myndast hafði fyrir ofan stífluna, sáu þeir himbrima skjótast upp úr vatninu og stóð stóreflis silungur hálfur út úr honum. Þó himbriminn sé alfriöaöur greip skotmað- urinn byssu sína og hæfði fuglinn í fyrsta skoti. Einn félagi hans, sem almennt var ekki talinn neitt sérstakt Kolkrabbinn er vinsæll þáttur i Sjónvarpinu. Á þessarl mynd er Kolkrabb- inn sjálfur að búa sig undir eitt þunglyndiskastið. Hreinræktuö Reykjavikurönd. gáfnaljós, hrópaði þá með bros á vör: „Þama bjargaðir þú himbrimanum. Hann hefði ábyggilega kafnað ef þú hefðir ekki skotið hann! ‘ ‘ Ættfræði anda Endur valda víðar vanga- veltum en í Reykjavík. Nýlega gerði skipshöfnin á togaranum Ljósafelli frá Fá- skrúðsfirði sér glaðan dag. Félagamir ákváðu að skreppa til Egilsstaða og fóm inn á veitingahúsið Sam- kvæmispáfann til að fá sér dýrindismáltíð. Glatt var á hjálla undir borðum og er aðalrétturinn var borinn fram kom í ljós að þetta var andaréttur. Skipverjamir veltu vöngum yfir öndinni og kölluðu til framreiðslustúiku sem gekk framhjá borðinu þeirra og spurðu hvort þama væri peking-önd á ferðinni. Stúlkan yppti öxlum og sagð- ist ekki vita það en hún skyldi spyijast fyrir um málið. Svo gekk hún inn í eldhúsið og eftir drykklanga stund kom hún fram aftur, heldur kind- arleg á svipinn og sagði: „Nei, þetta er víst ekki Peking-önd, hún er frá Borgarfirði eystra!" Umsjón: Axel Ammendrup Kvikmyndir Bíóborgin/Flodder: Stórgóð hollensk hugmynd Hollensk frá 1987 Leikstjóri: Dick Maas Handrit og tónlist: Dick Maas Myndataka: Mark Fleperlaan Aóalhlutverk: Nelly Fridja, Huub Stabel, Réne Hof, Tatjana Simic Sumarmynd Hollendinga síðastlið- ið sumar var mynd sem er komin frá þeim sjálfum og heitir Flodder. Hún hefur einnig komið víða við í Evrópu við ágætisundirtektir og nú sjáum við hana hér á landi og ■þá er að bíða og sjá í hvaða jarðveg hún fellur hér. Ekki er hægt að segja annað en frumlegheitin ráði ferðinni hvað varðar góða hugmynd að baki myndinni. En Flodder greinir frá fjölskyldu einni, nokkuð stórri og sérstæðri, sem lifað hefur í heldur hrörlegu húsnæði um dagana. Bæj- arstjómin ákveður að hlaupa undir bagga með fjölskyldunni og útveg- ar henni hús á Sumarhæðum, sem er eins konar Beverlly HiUs þeirra Bandaríkjamanna eða Laugarás okkar íslendinga. Flodder fjöl- skyldan hefur um ævina htið gert að því að velta fyrir sér almennum mannasiðum og hreinlegri um- gengni svo að vonum hrella þau grannana með sínum lifsmáta. Flodder gengur með öðmm orð- um út á árekstra hinna ríku og snobbuðu við hina fátæku og ófáguðu á gamansaman máta. Uppákomurnar eru margbreytileg- ar og jafnan skemmtilegar en eiga til að ganga fram af mönnum enda eru mörk „velsæmisins“ mjög teygjanleg hjá leikstjóranum og handritahöfundinum Dick Maas. Hvað varðar sóðaskap og kald- hæðni þessarar íjölskyldu gengur hún alltaf einu skrefi lengra en von er á. Eflaust er leikurinn til þess gerður. Svo ekki sé talað um snob- bið hjá íbúum Sumarhæða. And- stæðumar eru með öðrum orðum mjög skarpar. Leikendur þessarar myndar koma allir sínu til skila og má segja að þar sé samankomið úrvalslið holienskra leikara sem allir skila sínu vel. Fremst í flokki vil ég þó setja höfuðpaur íjölskyldunnar, frú Flodder, sem er hreint út sagt óborganleg í hlutverki mömmunn- ar sem á sér engan líka. Hins vegar liggur helsti veikleikinn í ofhleðslu á atriðum í myndinni. Hollensk kvikmyndagerð situr ekki aftarlega á merinni eftir þessu að dæma. Eg mæli eindregið með þessari mynd, ekki síst fyrir þá sök að hér er ekki bandarísk né bresk mynd á ferðinni. Auk þess er hug- myndin að baki henni stórgóð. -GKr Flodder fjölskyldan í hnotskurn á sér engan likan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.