Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1988, Qupperneq 6
28
FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1988
Leikhús - Leikhús - Leikhús - Leikhús - Leikhús
Litla sviðið:
BDaverkstæði Badda
Um helgina varöa tvær sýningar
á Litla sviöi Þjóðleikhússins á leik-
verkinu Bílastæði Badda eftir Ólaf
Hauk Símonarson.
Bílaverkstæði Badda er spennu-
verk sem gerist í afskekktri sveit.
Sögusviðið er lítið bílaverkstæði
þar sem bifvélavirkinn Baddi ræð-
ur ríkjum. Eitt sinn var verkstæðið
i hringiðu lífsins en þegar nýr þjóð-
vegur var lagður um sveitina lenti
það utan þjóðbrautar sem leiddi til
þess að Baddi hafði lítið að gera og
þegar leikritið gerist hefur hann
einungis stopul verkefni. Lífið hef-
ur breytt um svip og tilveran orðin
fáfengileg enda er sveitin um það
bil að leggjast í eyði.
Dag einn skýtur Pétur upp kollin-
um hann er fyrrverandi nemi
Badda í bifvélavirkjun. Þegar hann
birtist svo óvænt skjóta upp kollin-
um margar óþægilegar minningar.
Fortíðin holdi klædd er komin inn
á autt verstæðisgólfið og nú á að
afhjúpa sannleikann. En fortíðin
er ekki gamall bílskijóður sem
hægt er að tjasla saman með því
að skipta um pakkningar eða
dempara. Hafi einhver verið hafð-
ur fyrir rangri sök verður sá hinn
sami að fá leiðréttingu mála sinna.
Bílaverkstæði Badda er ellefta
leikrit Ólafs Hauks en á síðustu
árum hefur hann snúið sér í aukn-
um mæli að þeirri tegund ritstarfa.
En Ólafur hefur veriö virkur og
afkastamikill rithöfundur í hátt á
annan áratug og á þeim tíma sent
frá sér ljóðabækur, skáldsögur og
leikrit auk þess að semja dægurlög
og texta. Nýjasta bók Ólafs er
spennusagan Líkið í rauða bílnum.
Meðal leikverka Ólafs Hauks eru
Blómarósir (1979), Söngleikurinn
Grettir (1980), sem hann samdi
ásamt Þórami Eldjárn og Agh Ól-
afssyni. Milli skinns og hörunds
(1984), Ástin sigrar (1985) og Kött-
urinn fer sínar eigin leiðir (1985).
Leikstjóri Bílaverkstæðis Badda
er Þórhallur Sigurðsson, Grétar
Reynisson gerði leikmynd og bún-
inga og Bjöm Bergsteinn Guð-
mundsson annast lýsingu.
Leikendur eru sex og leikur Bessi
Bjamason bifvélavirkjann Badda.
Aðrir leikendur eru Amar Jóns-
son, Sigurður Siguijónsson,
Jóhann Sigurðarson, Guðlaug
María Bjamadóttir og Árni
Tryggvason.
Arnar Jónsson og Guðlaug María Bjarnadóttir í hluverkum sínum I Bíla-
verkstæði Badda.
Bíóborgin
Lögga til leigu
Kvikmyndahús - Kvikmyndahús
Stjörnubió
Roxanne er nýjasta kvikmynd
gamanleikarans Steve Martins sem
verður betri og betri með hverri
mynd. Roxanne er tvímælalaust
besta kvikmynd hans hingað til.
Roxanne er nútímaútgáfa af hinu
þekkta leikriti Cyrano de Bergerac.
I Roxanne er leikurinn færður til
nútímans og fer Steve Martin með
hlutverk slökkviliðsstjórans, C. D.
Bales, sem er greindur og gaman-
samur náungi. Hann nýtur þó ekki
hylli kvenna vegna afarstórs nefs
sem hann verður að burðast með.
Hann kynnist hinni glæsilegu Rox-
anne og verður ástfanginn. Hún
verður aftur á móti hrifin af sam-
starfsmanni Bales sem er myndar-
legur en stígur ekki í vitið. Verður
úr þessu sérkennilegur þríhym-
ingur. Roxanne er kvikmynd er
ætti að létta öllum skapið í skamm-
deginu.
Háskólabíó
Það er greinilegt að Kevin Costner
verður næsta stórstimi kvikmynd-
anna. Eftir stórsigur sinn í Hinum
vammlausu (The Untouchables)
kemur hann jafnferskur í róman-
tískum þriller, Öll sund lokuð (No
Way out), mynd sem alls staðar
hefur fengið góðar viðtökur. Með-
leikarar hans em Sean Young, sem
einnig er spáð miklum frama eftir
frammistöðuna hér, og gamla
brýnið Gene Hackman sem bregst
ekki frekar en fyrri daginn. Þetta
er hörkumynd sem enginn fer óá-
nægður út af.
Regnboginn
Þá hefur hún loks litið dagsins
ljós, nýjasta kvikmynd ítalska leik-
stjórans Bemardo Bertolucci,
Síðasti keisarinn (The Last Em-
peror). Og þeir sem biðu verða
sjálfsagt ekki fyrir vonbrigðum því
að Bertolucci hefur skapað eftir-
minnilegt verk um ævi síðasta
keisarans í Kína. Er honum fylgt
frá því hann er bam að aldri þar
til hann endar langa ævi á heima-
slóðum. Af öðrum myndum er helst
að nefna Að tjaldabaki (Fourth
Protocol), sakamálamynd gerða
eftir sögu Frederick Forsyth. Mic-
hael Caine leikur aðalhlutverkið.
Bíóhöllin
Að venju em margar myndir í Bíó-
höllinni og ber fyrsta að telja
jólamyndina, Undraferðina (Inn-
erspace), sem er nokkuð sérkenni-
leg framtíðarmynd. Fjallar hún um
hóp manna er getur sprautað í sig
efni er verkar þannig að þeir
minnka í örverur og þannig er
Burt Reynolds og Liza Minnelli
leika aðalhlutverkin í Lögga til
leigu (Rent-A-Cop), nýrri kvik-
mynd sem frumsýnd var vestan-
hafs fyrir fáum vikum. Reynolds
leikur Church, leynilöggu af betri
gerðinni sem lendir í vondu máli.
Honum gengur ekki allt of vel aö
handsama geðveikan morðingja,
en með hjálp stúlku, sem Liza
Minnelli leikur, tekst honum að
komast á spor morðingjans.
Hlutverk Church er eins og samið
fyrir Burt Reynolds og hefur hann
áður leikið samskonar hlutverk og
oftast betur. Liza Minnelli birtist
aftur á hvíta tjaldinu eftir langt hlé
sem stafar aðallega af því að hún
hefur verið að reyna að losa sig við
böl eiturefna og áfengis. Að mínu
mati hefði hún átt að hugsa sig um
tvisvar áður en hún þáði þetta hlut-
verk. Hún nær aldrei tökum á
persónunni. Leikstjóri er Jerry
London sem er aðallega þekktur
fyrir nokkra ágæta sjónvarps-
myndaflokka. Hann hefur ekki gott
handrit tíl að vinna úr og þess
vegna er myndin hvorki fugl né
fiskur.
Betri skemmtun er gamanmynd-
in Á vaktinni (Stakeout) þar sem
Richard Dreyfuss fer á kostum í
hlutverki lögregluþjóns sem verð-
ur ástfanginn af stúlku sem hann
á að vakta.-HK
Kvikmyndahús
þeim sprautað inn í mannslíkam-
ann í rannsóknarskyni. Ekki fer
þó allt samkvæmt áætlun...
Undraferöin hefur fengið góðar
viötökur erlendis og er ekki við
öðru að búast en að eins verði hér.
Þá hefur Bíóhöllin frumsýnt nýja
gamanmynd, Allir í stuði (A Night
on the Town). Henni er leikstýrt
af Chris Columbus. Þá er enn sýnd
hin magnaða kvikmynd Stanleys
Kubrick, Skothylkið (Full Metal
Jacket), mjög áhrifamikil mynd
sem fæstir ættu að láta fram hjá
sér fara.
Laugarásbíó
Áður en Michael J. Fox varö fræg-
ur lék hann í Teen Wolf, frekar
ómerkilegri kvikmynd sem þó hef-
ur orðið vinsæl eftir að hróður hins
lágvaxna Fox jókst. Einhveijum
hefur þótt borga sig að gera fram-
hald og hefur Laugarásbíó hafið
sýningar á Loðinbarða (Teen Wolf
Too). Ekki er Michael J. Fox til
staðar heldur er „varúlfurinn"
leikinn af Jason Bateman. Fíórða
kvikmyndin um hákarlinn, Hefnd-
in (Jaws - The Revenge), er síðasti
kapítulinn um hinn illræmda há-
karl sem sá fyrst dagsins ljós í
hinni ágætu mynd Steven Spiel-
bergs, Jaws.
-HK
Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn
Sýningar
Gallerí Gangurinn
Um þessar mundir sýnir fmnski lista-
maðurinn Jussi Kivi verk sín í gallerí
Ganginum. Hann er einn af þekktustu
ungu listamönnum Finnlands og hefur
sýnt nokkuð víða fyrir hönd Finnlands.
Verkin í Ganginum eru 16 Ijósmyndir þar
sem leikfóng og tilbúin náttúra koma við
sögu.
Gallerí list,
Skipholti 50b
Þar er nú mikið úrval af grafik, olíu- og
vatnslitamyndum. Einnig glerlist og
postulíni. Opið virka daga kl. 10-18 og
kl. 10-12 á laugardögum.
Gallerí Langbrók,
Bókhlöðustig 2,
textílgallerí. Opið þriðjudaga til fóstu-
daga kl. 12-18 og laugardaga kl. 11-14.
Listasafn Einars Jónssonar
við Njarðargötu
er opið alla laugardaga og sunnudaga kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega frá kl. 11-17.
Listasafn Háskóla íslands
í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opið
daglega kl. 13.30-17. Þar eru til sýnis 90
verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri
listamenn þjóðarinnar. Aðgangur að
safninu er ókeypis.
Mokka,
Skólavörðustíg
Þessa dagana sýnir þýskur listamaður,
Christoph von Thimgen, olíumálverk.
Sýningin á Mokka er fyrsta sýning Chri-
stophs von Thungen utan Þýskalands og
stendur hún til 11. febrúar. Mokka er
opiö daglega kl. 9-23.30.
Myntsafn Seðlabanka og
Þjóðminjasafns,
Einholti 4
Opið á sunnudögum kl. 14-16.
Norræna húsið
v/Hringbraut
í sýningarsölum Norræna hússins sýna
þrjár danskar textfllistakonur, Annette
Graae, Anette Qrom og Merete Zacho.
Listakonumar vinna með ýmis efni, hör,
sísal, silki, ull og bómull og myndefnið
er sótt til náttúrunnar og í heim drauma
og fantasíu. Þær hafa haldiö margar sýn-
ingar i Danmörku og viðar og verk þeirra
eru í eigu safna og opinberra stofnana.
Sýningin er opin daglega kl. 14-19 til 25.
janúar.
Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3
Nú stendur yfir í Nýlistasafninu sýning
á verkum Gerhards Amman en hann
sýnir þar ýmiss konar skúlptúra. Sýning-
unni lýkur næstkomandi sunnudag og
er hún opin sem hér segir: Á fóstudag
kl. 16.00-20.00 og laugardag og sunnudag
frá klukkan 14.00-20.00. Sýningunni lýk-
ur næstkomandi sunnudag.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning Áma Magnússonar er í
Ámagarði við Suðurgötu á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum kl. 14-16.
Sjóminjasafn íslands,
Vesturgötu 8, Hafnarfirði
Opnunartími í vetur er laugardaga og
sunnudaga kl. 14-18. Skólafólk og hópar
geta pantað tíma í síma 52502 alla daga
vikunriar.
Póst- og símaminjasafnið,
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
Þjóðminjasafn íslands
Laugardaginn 16. janúar kl. 13.30 verður
opnuð sýning í forsal Þjóðminjasafns ís-
lands á ýmsum munum sem fundust við
fomleifarannsóknir á Bessastöðum á sl.
ári. Safnið er opið þriðjudaga, fimmtu-
daga, laugardaga og sunnudaga kl.
13.30-16.
Sýning í Náttúrufræðistofu
Kópavogs
Nú hefur enn einu sinni verið opnuð sýn-
ing N.F.S.K. í þetta skipti hefur hið
fjölbreytta lifríki Kársnesfjöru orðið fyrir
valinu. Er reynt að gefa sem gleggsta
mynd af einni gróskumestu fjöm á höfuð-
borgarsvæðinu. Þá verða sýndar allar
tegundir andfugla sem finnast hér á
landi. Auk þess eitt fullkomnasta lin-
dýrasafn (skeldýr) á íslandi o.fl. Opnun-
artími kl. 13.30-16.30 á laugardögum.
Annar tími eftir samkomulagi ef um
skóla eða aðra hópa er að ræða. Símar
40680 eða 40241.
AKUREYRI
Gallerí Glugginn,
Glerárgötu 34, Akureyri
Laugardaginn 16. janúar kl. 14 opnar
Glugginn sýningu á málverkum og högg-
myndum þeirra Jóns Axels Bjömssonar
og Sverris Ólafssonar. Sýningin stendur
til sunnudagsins 24. janúar. Glugginn er
opinn daglega frá kl. 14-18 en lokaö er á
mánudögum.